Þjóðviljinn - 24.12.1969, Side 24

Þjóðviljinn - 24.12.1969, Side 24
24 — JÓLABLAÐ Það var verið að hringja úr síðasta tíma í Austurbæjarskólanum kvöldið sem ég kom til að rabba við Eyjólf Eyfells. Og þegar ég kem upp á efsta stigapall stendur listamaðurinn þar og rabbar við tvö brosleit telpukorn. Hann býður mig hlýlega velkominn og við setjumst inn í vinnustofuna hans, sem er undir súð þarna í risinu; sennilega ein minnsta vinnustofa íslenzks listamanns. Hvar ertu fæddur, Eyjólfur? — Ég er Eyfellingur, faeddur í Seljalaindsseli 6. júní 1886, en á fynsta ári fluttist ég með móð- ur minni að Súliholti í Flóa og var þar til 13 ára aldurs, nema eitt ár var ég undir Eyjaf jöllum- Hvenœr snerist hugur þinn til málaralistar? — Ég man það nú ekiki gjörla, en snemma var það- Einhvem- tíma á þessum árum í Súlholti eignaðist sonur bóndans blákrít- Þegar hann fór í verið lánaði hann mér krítina og þar opnað- ist mér skemmtilegur heimur. En þagar hann kom heim um vorið lagðist eins og farg á barnssam- vizku mina hvað lítið var orðið aftir af krítinni. Annars held ég að Þórður Jasonarson kennari hafi vakið málarann í mér- Hann átti raiuða og bláa blýanta og teiknaði stafi og blóm, sem hann gaf okkur krökfcunum- Líka teiknaði hann hús, skip og kirkj- ur. Og enn man ég hvemig kirkjan var, mér þótti hún svo falleg, og mikill meistari fannst mér Þórður- — Snemma hafði ég míkið yndi af fuglum og blómum og eyddi miklum tíma með þessum vinum mínum. Skammat innan tún-garðsinis í Súlholti er lítið klettabelti, þar sem við krakk- amir lékum oktour marga stund. í klettuwum mátti glöggt auga vel sjá bæjarrönd, og garnla fólkið trúði að þama byggi h.uldufólk. Við krakkamir vor- um ekki að hugsa um slíka hluti, smáfuglarndr, blómdn og nátt- úran öll voru oklkur nægar lílfs- gátur, svo ekki sé minnzt á sófliarlaigið — eða niðandi læk- ina, senn enginn vissi hvað- an komu- Svo var það eitt sum- arkvöld að ég undi mér einn í blómskrúðinu við klettana- Heyrði ég þá mannamál, tvö börn að tala saman, fannst mér. En engan sá ég og enginn mennskur maður var þarna, ég er viss um það- En kannski hef- ur þetta bara verið mávur. — Síðan liðu fjölmörg ár- Ég var svo sem ekki að ala í leyn- um hugans einhverja álfatrú, hafði fyrir löngu gleymt bessu- En fyrir nokkrum árum dreymdi mig ég væri austur í Súl'holti, heimilisfastur að mér fannst. Ég er staddur úti í mýri og sé tvö böm sem ég kannast ekkert við ganga heim að bænum- Mig langaði til að tala við þau og gekk því í humátt á eftir þedm upp að klettabeltinu þar sem þau hurfu inn um dyr í berginu Dymar voru lokaðar begar ég kom að, en ég lauk beim upp — Já, ég man vel að hurðin opnaðist inn í göngin, sem voru löng — og fyrir enda þeiira var baðstofa- Þar sat kona og gamall maður. Börnin létou sér á gólfinu, stúlkan varla eldri en tíu ára, drengurinn eitthvað yngri- Ég man að ég spurði konuna: — Átt þú heima hér? Og hún svaraði því játandi. Þið hljótið þá að vera huldufólk, segi ég þá, en konan brosir og kinkar kolli- Nú heyrðist ein- hver umgangur eða traðk utan- frá og sá ég að komunni varð bilt við. Ég fór inn göngin og í því var knúið dyra og einhver reyndi að opna. Ég setti þá öxl- ina í hurðina og spymti við fótum. — Já, kunninigi, það var lagzt þungt á hurðina að utan, en einhvem veginn dugði ég þótt rýr væri. Eftir nokkra stund hvarf sá aðkomni frá- En ég varð þess var að konan var mér þakklát. Þessi draumur stóð mér lengi ljóslifandi fyrir sjónum. Ég mál- aði mynd af klettabænum og bömunum tveimur sitt hvomm megin við dymar í tunglsljósinu. Máninn sóst ekki á myndinni, en hvítri birtunni stafaði að of- an- Það var einkennileg sternn- ing í þessari mynd- Ég gaf dótt- ur Guðmundar æskuvinar míns í Súlholti myndina, það fólk er allt mikið vinafólk mitt. — En þama endar sagan ekki væni minn. — Skömmu eftir þetta dreymdi mig svo annan draum: Ég var staddur á sörnu slóðum og verður gengið fram- hjá stómm einstökum kletti, sem ég man vel frá æskudögum mínum. Kletturinn stóð opinn og sá ég þar var kapella- Kap- ellan var lítil og mannlaus, en mikil birta var yfir henni. Ég færði mig nær og tók sérstaklega eftir lofti hvelfingarinnar. Það var sett svo fögm mynztri að ég heillaðist gjörsamlega af- Skreytinguna mundi ég vel þeg- ar ég vaknaði, og lengi hef ég ætlað að mála mynd af kap- ellunni. Heldurðu að þessi draumur megi ekki heita táiknrænn fyrir lífsviðhorf þitt? — Etf menn vilja afstorifa allt sem þeir ekki sjá eða skilja, geta þeir kannski snúið þessu þann- ig til- Ég hef jú alltaf elskað hið fagra, reynt að spoma við hinu illa af veikum mætti og kannski átt mér sérstakan heim sem fá- ir hafa öðlazt hlutdeild í, — einskonar kapellu- — Vorið 1899, tæpra 13 ára, fórstu frá Súlhölti? — Já, ég fór að Neðradal und- ir Eyjafjöllum og var þar eitt ár og síðan tvö ár að Brekkum í Hvolhreppi. Frá Brekkum fór ég aftur að Súlholti til móður minnar, sem var þar enn, því að þangað sótti hugurinn sem hún var- Á meðan ég var þar dó bóndinn, Ingimundur Jóhanns- son, en sonur hans Guðjón tók við búi. Að f jónum árum liðnum réðst ég vinmumaðuir að Gaul- verjabæ til séra Einars Páls- sonar- Einar var mér góður hús- bóndi, m.a- kenndi hann mér grai.t í dönsku, svo ég skildi létt rnál. Ég var í tvö ár viðloðandi í Gaulverjabæ. Seinni veitur- inn henti mig minnissitætt atvik- Dag einn eftir langan frosta- kafla var ég sem oltar að leysa hey úr garði- — Æ, þú veizt náttúrlega ekkert um vinnu- brögð þau sem þarna voru við- höfð, þú ert svo ungur. — Það var tyrft yfir garðann og tarf- ið fraus náttúrlega siaman og heyið efst í stöbbunum líka og var auk þesis oft ógott. Vildi því bera við að meira væri tekið úr stöbbunum neðantil og urðu þeir gjaman niðuirmjóir og jafn- vel valtir. En sem ,ég isgt ,yið að troða í kýrmeisana komu böm hjónanna og sögðu að húsmóð- ir mín bæði mig að leggja söð- ul á hann Skjóna, reiðhest sinn- Ég bregð skjótt við, leysi út hrossið og legg á það, en sný svo við upp í heygarð aftur- Á miðri leið mæti ég gömlum manni, sem heimilisfastur var á bænum. Var hann skelfingin uppmáluð, en loÆaði Guð er hann sá mig. — Hvað er nú? sagði ég- — Stabbinn sem þú varst að leysa úr fóll, sagði gamli maðurinn — og ég hélt þú værir undir þar, trauðla h'fs, allavega verra en dauður- — Þetta er ein af þessum svn- kölluðu tilviljunum, sem líf mitt hefur mótazt af. Þú hefiur verið að færa þig upp á skaftið í málaralist- inni þessi ár? — Ætli það hafi ekki verið seinna árið mitt í Gaulverjabæ sem Ásgrímur kom. Hann var að mála þarna í grenndinni- Og þá féll Þórður í stouggann- Ég var að slá á engjum þegar ég sá hann fyrst vera að mála, og hugurinn varð alveg gagntekinn. Einhvern veginn komst ég yfir vatnsliti og sat eiftir það ippi hverja nótt og málaði- Þá fannst mér að þetta vildi ég gera og etoki annað. Hvenær komst þú svo til Reykjavíkur? — Haustið 1908 kom ég til bæjarins. Fyrstu þrjá veturna var ég í teiknitímum hjá Stef- áni Eiríkssyni. Á sumrum var ég í kaupavinnu austur í sveit- um, en vann á eyrinni á vetrum. I rauninni hef ég verið verka- maður alla mína ævi, en lán mitt er, að bafa getað umnið starf á því sviði sem hæfileik- ar mínir og hugur stóð til- Frá 1913 hef ég ekki haft lífsbjörg af öðru en myndlist. Við getum ekki gert lífshlaupi þínu í 83 ár nein sikil í Viðtal við listamannmn EYJÓLF EYFELLS spjalli sem þessu, en ég hef fyr- ir satt þú hafir verið heppnis og lánsmaður, Eyjólfur. — Það er eklki hlaupið að því að lýsa lífsláni sínu fytrir öðrum, sízt í stiuittu blaða- viðtali, en heppinn segirðu. E,inu sinni sem oftar átti ég leið til Þingvalla til að mála, auðvitað, — ég fer etóki upp á annað- Þegar þangað kom var málaragrindin mín brotin- Samt fór ég á gamla staðinn minn og reyndi að hlaða steinum undir myndramimann. Sem ég niú er að basla við að mála þama á óhæigan máta tek ég elftir músa- rindli á hraunbakka 3t^4. mþt-ía . frá mér. Fannst mér fuglinn vera að reyna að tala við mig- Og þótt hvorugíur sikdldi annan, var ég farinn að talá við Ihann fyrr en varði: — Oktour leiðist ekki fámennið, — sagði ég, — erum víst náttúrudýrkendur báðir tveir. Nú fór ég að hugsa um að fá mér kaffisopa. Fuglinn var nú floginn, og ég færði mig þangað sem hann hafði verið- Sá ég þá að hann hefur setið á barmi gjótu og á botni hennar liggur málaragrind- Tek ég n« grindina í sundur og sé að hún er góð, og útslagið verður að ég mála á henni allan daginn. Þeg- ar ég er nýbyrjaður að mála kemur fuiglinn litli aftur á sama stað og er eins og hann vilji segja: — Gott þú fannst grind- ina- — Grindina lagði ég á sama stað að áliðnum degi, og þegar ég kom þama nokkrum dögum síðar, var hún horfin- Vitanlega hefur einhver málari geymt grindina þama- Einber tilvilj- un, en skrýtin. — Já, heppinn hef ég verið, eiginlega hefur alltaf greiðst úr minum vanda og stundum hefur þessi eiginleiki komið öðrum til góða- T d- var ég eitt sinn á ferð frá Eystri-Hrepp til Reykjavík- ur. í bílnum voru eins margir Dg leyfilegt var. Við neðstu bæi í hreppnum kerour stúlka í veg fyrir bílinn og biður sér fars, segist nauðsynlega þurfa að komast til Reykjavíkur sam- dægurs- Bílstjórinn var tregur til að brjóta lög; þetta var bezti drengur, en eins og fleiri hræddur við Blöndal löggæzlu- mann- Þó varð úr að hann tók stúlkuna- Þegar til Selfoss kom fáum við svo þær fréttir, að Björn löggæzlumaður Blöndal, hafi farið þar um fyrr um dag- inn, á austurleið. Þessi fregn gladdi okkur og bílstjórinn þótt- ist nú ekkert hafa að óttast- Þeg- ar við komum upp úr Kömbum nefni ég við bílstjórann að stanza andartak, bví kunningi minn hafi beðið mig taka ljós- mynd fyrir sig barna á vissum stað- Bílstjórinm leyfði það. óg ég valdi mér góðan stað til myndatötounnar og bar leiti á } ►

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.