Þjóðviljinn - 20.08.1972, Side 2
2.S1ÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur 20. ágúst 1972
B U Ð I N
-----t
KLAPPARSTiG 26,
DUAL STEREO SAMSTÆÐUR
á viðráðanlegu verði fyrir fólk á öllum aldri.
Verð frá kr. 21.000,00
SlMI 19800, RVK. OG BREKKUGÖTU 9, AKUREYRI, SlMI 21630
ULTIMA
KJðRtARUI
Gluggatjaldadeild
^ *
Utsala — Utsala
20-50% afsláttur
hefst á morgun mánudag
Kjólajersey tvibreitt kr. 399.00
Sumarkjólaefni kr. 199.00
Ullareíni tvibreið kr. 399.00
Samkvæmiskjólaefni kr. 299.00
Pr jónasilki tvibreið kr. 299.00
Ullarkápuefni kr. 399,00
Kápupoplin 160 cm. kr. 399.00
ALLT AD 75% AFSLATTUR
Geri aðrir betur
King Crimson: Earthbound
1 vor sem leiö fór hin þekkta
brezka framúrstefnuhljómsveit
King Grimson i hljómleikaför um
Bandarikin.
Robert Fripp er nú sá eini sem
eftirer af hinni upprunalegu King
Crimson, en með honum i förinni
voru Mel Collins, saxofón og
mellótrón, Boz, söngvari og
bassaleikari, og Ian Wallace,
trommur.
Fripp leikur á gitar og semur
tónlist. Eftir hljómleikaförina
leystist hljómsveitin upp, Fripp
hélt til Englands en hinir urðu eft-
ir vestra. Ástæðan fyrir hinum
tiðu mannaskiptum hjá Crimson
er vafalitið einræðiskennd
Fripps. Maðurinn er vafalitið
frábær tónlistarmaður og virðist
vita af þvi.
En sem sagt, hér er kominn
hluti tónlistarlegs afrakstrar
hljómleikahaldsins á plötu.
Tónlistin var öll tekin upp á
kassettu, enda eru gæðin eftir þvi,
vægast sagt litil. Hingað til hefur
stefnan hjá Fripp og félögum
ávallt verið sú að vanda sem mest
til plötuútgáfu sinnar, en nú er
tekin þveröfug stefna. Til dæmis
er litið lagt i umbúðir um plötuna.
Platan er siðan seld á lægra verði
en tiðkast, vafalitið til að hleypa
fjöri i söluna.
Svo vikið sé aö tónlistinm þá
eru tvö gömul lög á plötunni og
þrjú ný. Hið stórkostlega 21st
century shizoid man er algjörlega
misheppnað i þessari útgáfu,
veldur mestu um léleg upptaka og
slæmur söngur. Einnig virðist
Wallace standa Giles langt að
baki sem trommari, en hin
frábæra frammistaða Giles viö
stúdióupptöku lagsins forðum
daga jók stórlega á gildi þess.
Sailors tale kemur öllu skár út,
þótt það nái hvergi stúdióupptök-
unni að gæðum. Raunar hefur
aðal KC alltaf verið hin frábæra
stúdíðvinna þeirra; sem stúdió-
hljómsveit eru þeir i allra
fremstu röð.
Nýju lögin bera það með sér, að
hljómsveitin er ,,á leið til jarð
ar”, dulúð fyrri tima er horfin,
eftir er gróf sterklega djössuð
tónlist. Þessi djasskennda tónlist
er töluvert i ætt við þann djass
sem Miles Davis leikur, nema
hvað hér er saxófónninn i önd-
vegi, hjá Davis trompetið.
Nýju textarnir eru ekki upp á
marga fiska, enda Sinfield hættur
að starfa meö hljómsveitinni
(Sinfield vinnur nú að einleiks-
plötu ásamt Mel Collins og Giles).
Saxófónleikur Collins bjargar
þvi sem bjargað verður á þessari
plötu, frammistaða hans er góð.
Fripp sýnir hins vegar litil tilþrif
með gitarnum og Wallace er
verulega leiðinlegur trommu-
leikari, þótt hann sé all-fær.
Söngur Boz er tyrir neðan allar
hellur.
Fripp ætlar að leika með gamla
manninum Alexis Korner eitt-
hvert skeið; vonandi vandar hann
gitarleikinn betur þá.
King Crimson aðdáendur eru
beðnir um að forðast
„Earthbound” eins og heitan eld-
inn.
Procol Harum Live
Þann 18. nóvember árið 1971
fóru fram tónleikar i kanadisku
borginni Edmonton þar sem
Procol Harum lék með sinfóniu-
hljómsveit staðarins og De
Camerkórnum. Þessir tónieikar
voru hljóðritaðir og gefnir út á
plötu.
Það vekur athygli áheyrenda,
að Harum taka einungis fyrir
gömul lög á þessum miklu hljóm-
leikum. Þannig er byrjað á laginu
Conquistador frá árinu 1967.
Gonquistador er reyndar mjög
gott lag og fer vel i sinfóniskri út-
gáfu.
Whaling stories fylgir i kjöl
farið, langt verk og töfrandi, upp-
runalega á plötunni Home.
Uppbygging þess er með ein-
dæmum snjöli og samræmist
mjög vel þeirri togstreitu hugans
sem lýst er i textanum.
Næstu lög, A salty dog (af
samnefndri plötu) og All this &
more, eru fremur litið spennandi.
Siðari hluti tónleikanna er
algjörlega undirlagður löngu tón-
verki, In held t’was I. Þvi er skipt
niðrf fimm tiltölulega ósamstæða
kafla sem hver um sig gæti staðið
sem sérstakt lag.
Fyrsti kaflinn heitir Glimpses
of Nirvana og byggist að mestu á
upplestri ljóðs eftir Keith Reid,
hinn ágæta textasmið hljómsveit-
arinnar. Pianósólo tengir þennan
hluta við þann næsta, Teatime in
the circus. 1 þessum kafla rikir
kátina og sirkusstemning sem þó
ristir ekki djúpt, angurværðin er
skammt undan eins og alltaf þeg-
ar Procol Harum eiga i hlut. In
the autumn of my madness hefst
á upplausn sirkusstemningar-
innar með þrumum og eldingum,
haustveðrahljóðum. Þessi kafli
fellur eðlilega að þeim fjórða,
I know if I’ve been wiser þung
lyndi og angurværð svifa yfir
vötnum f báðum lagstúfunum.
Tónverkinu og jafnframt plötunni
lýkur á Grande Finale þar sem
pianóið er i öndvegi og tónlistin
minnir á kirkjutónlist 18. aldar.
t heild er þetta ákaflega góð
plata, tónlist Procol Harum hæfir
mjög vel sinfóniskur undirleikur.
Ekki skal lagður dómur á
frammistöðu Edmontonsinfóniu-
hljómsveitarinnar, en smæð
hennar (54 hljóðfæraleikarar)
kemur i veg fyrir að hún beri
Procol Harum ofurliði. Raunar
kemur hún aðallega við sögu sem
veitandi meiri fyllingar i tónlist-
ina, ekki eins og i tónverki Jon
Lord þar sem rokkhljómsveitin
og sinfónian koma fram sem and-
stæður, tónverkið er byggt
kringum þessa spennu.
Liðsmenn Harum koma ágæt-
lega frá plötunni, fyrirliðinn Gary
Brooker virðist vera ágætur
pianóleikari og skemmtilegur
söngvari. Einnig vekur vandaður
gitarleikur athygli.
Það sem helzt er hægt að finna
tónlist Procol Harum til foráttu er
hve einhæf hún vill verða, mörg
lögin virðast næstum aiveg eins.
Samt er enginn vafi á þvi, að þeir
eiga sér fáar hliðstæður i pop-
heiminum og skipa fremstu röð.
Að lokum fáein orð um texta-
smiðar Keith Reid ; Hann er ákaf-
lega akademiskt skáld, ekki óá-
þekkur skáldum á borð við
Robert Lowell. Hann er mjög
upptekinn af persónulegum
vandamálum; einstaklingshyggja
og borgaralegur lifsleiði i hverju
orði.
RÍSPAPPÍRSLAMPINN
FRÁ JAPAN
Japanski rispappirslampinn fæst nú einnig á Islandi i 4
stærðum.
Hentar hvar sem er, skapar góða birtu og er til skrauts
bæði einn og einn og i samsetningum eins og á myndinni.
Athyglisverð og eiguleg nýjung.
HÚSGAGNAVERZLUN
\XELS EYJÓLFSSONAR
SKIPHOLTI 7 — Reykjavlk.
Símar 10117 og 18742.
MAKKAÐURINTN, Aðalstrœti 9