Þjóðviljinn - 20.08.1972, Qupperneq 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJtNN Sunnudagur 20. ágúst 1972
WW/Æ
WW//W
Æ/Ma
W/M/m
Háskólabió:
FRÖNSK
GAMANMYND
SÝND
NÆSTA
MÁNU’
DAG
Þaö er ósvikin frönsk gaman-
mynd, sem Háskólabió hefur val-
ið til sýningar á næstu mánudög-
um, „FKABÆRIR FEÐGAR”
eftir Claude Berri.
Myndin segir frá daglegu lifi
ósköp venjulegrar, franskrar
fjölskyldu, en það, sem á daga
hennar drifur, er, eins og hjá öðru
fólki, ýmist kátlegt eða grátlegt,
og eins og svo margar fjölskyldur
um allan heim lifir þessi i þeirri
von, að „hinn stóri dagur” renni
upp, það er að sonurinn verði ekki
aðeins að manni;heldur miklum
manni.
Fjölskyldufaðirinn er feldskeri
af pólskum Gyðingaættum, sem
gerir sér vonir um, að sonurinn
feti i fótspor hans en verði þó
meiri maður i sinni stétt; en pilt-
urinn vill það ekki, hann ætlar sér
Yves Robert i hlutverki föðurins
að fara i kvikmyndirnar, verða
leikari, sem allir vilja sjá. En það
veldur sifelldum áhyggjum, að
sigurinn vinnst aldrei, allt mis-
tekst hjá hinum unga manni og
faðir hans tekur það sér mjög
nærri. Loks ákveður sonurinn að
gerast kvikmyndaframleiðandi
og þá sér hann brátt, að ævi sjálfs
hans er tilvalið yrkisefni. Við það
tekur daglegt lif fjölskyldunnar
nýja stefnu, og skal sú saga ekki
rakin lengra.
Claude Berri er ekki aðeins
leikstjórinn, heldur leikur hann
og soninn. Berri mun fyrst hafa
sézt hér á landi i myndinni
„Gamli maðurinn og drengur-
inn”, sem var sýnd hér fyrir
fáeinum árum, en þar lék Michel
Simon aðalhlutverkið. En hlut-
verk föðurins i þessari mynd leik
ur Yves Robert, einn bézti skoþ-
leikari Frakka. Gerard Barray,
sem raunar er frægur leikari,
eins og islenzkir kvikmyndahús-
gestir vita, leikur „stjörnu dags-
ins” i myndinni. Nefna mætti
fleiri þekkta leikara, en þetta
verður að nægja.
Hér skal að endingu getið um-
sagna nokkurra danskra blaða:
Berlingske Tidene: „Myndin er
full af hlýju, ólgandi af gaman-
•semi. Það er langt siðan maður
hefur skemmt sér svona inni-
lega”. Svend Kragh Jacobsen.
Jyllandsposten: „Kraftaverk,
þótt i smáum stil sé,Tilýleg, fögur
og gerhugsuð mynd. Maður fær
mætur á henni strax i byrjun.” Ib
Monty
Ekstra Bladet: „Þetta er
óvenjulega ljúf mynd;uppistaðan
er innileg ást á fjölskyldunni og
listinni. Hún er bráðfyndin og
maður er feginn að hafa séð
hana”. — Knud Schönberg.
OL YMPÍUMYNDIN
Milos Forman
Ef dæma má af öllum undir-
búningi að Olympiuleikunum i
Miinchen i sumar, er hægt að
búast við nákvæmum sjónvarps-
myndum af leikunum. En hin
opinbera Olympiuleika-kvik-
mynd mun skera sig mjög úr fyrri
myndum, sem hafa nær allar leit-
azt við að sýna keppni i einstök-
um iþróttagreinum, og þá verið
gerðar sem heimildamyndir.
Undantekning er þó hin framúr-
skarandi mynd um Tókió-leikana,
sem Kon Ichikawa stjórnaði. og
svo mætti auðvitað nefna áróð-
ursmyndina frægu sem Leni
Riefenstahl gerði 1938. Nýja
myndin á ekki að fjalla um
iþróttakeppnina sjálfa. 11 þekkt-
um leikstjórum af jafnmörgum
þjóðernum hefur verið boðið að
gera 10 minútna mynd hverjum.
Þeir hafa algjörlega frjálsar
hendur, þeir eiga aðeins að filma
eigin hugmyndir um leikana og
eitthvað tengt þeim. Kvikmynda-
höfundarnir ellefu eru:
Milos Forman — Tékkóslóvakiu.
Arthur Penn — Bandarikjunum.
Yuri Ozerov — Sovétrikjunum.
John Schlesinger — Bretlandi.
Franco Zeffirelli — Italiu.
Claude Lelouch — Frakklandi.
Kon Ichikawa — Japan.
Mai Zetterling — Sviþjóð.
Ousman Scmbene — Senegal.
Michael Pfleghar — Vestur-
Þýzkaiandi.
Koman Polanski — Póllandi.
Kafli Arthurs Penn fjallar um
hnefaleikarann Bobby Lee
Hunter, sem situr nú i betrunar-
húsi i Kaliforniu, dæmdur fyrir
manndráp. Heyrzt hefur að hann
verði látinn laus um tima til þess
í
kvikmyndir
3
að keppa i olympíuliði Banda-
rikjamanna. Penn hefur þegar
tekið nokkur atriði i fangaklef-
anum þar sem Hunter æfir sig
undir eftirliti fangavarðar sem
einnig er þjálfari hans.
Mynd Zeffirellis á að lýsa
hlaupurunum sem hlaupa með
Olympíueldinn frá Grikklandi til
Mönchen. Zeffirelli ætlar að
skoða þá sem einstaklinga og
skjóta inn i myndum af kyndla-
hlaupi fyrr á öldum. Ichikawa
ætlar að nota 35 kvikmyndatöku-
vélar i hinar 10 sekúndur sem 100
m. hlaupið stendur yfir. Þeim
verður ekki aðeins beint að
hlaupurunum, heldur einnig að
áhorfendum og viðbrögð
þeirra athuguð. Þessar 10
sekúndur vara svo 10 minútur i
kvikmyndinni.
Þ.S.