Þjóðviljinn - 20.08.1972, Page 13
Sunnudagur 2«. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13.
EVA RAAAM:
AAANNFALL
OG
AAEYJAVAL
— En fyrst þú veizt allt þetta, —
af hverju læturðu þær þá ekki
finna fyrir þvi og segir álit þitt á
þeim? I stað þess að vera notaleg
og setja þær i nefndir og þess
háttar.
Gunda andvarpaði þungan og
horfði áhyggjufull fram fyrir sig.
— Af þvi að ég er orðin
pólitikus og hef beðið tjón á sálu
minni. Sjáðu til, það getur komið
sér vel að vita eitthvað misjafnt
um fólk og lúra á þvi þar til hægt
er að nota sér það. Ef til vill þarf
ég einhvern tima að fara til
Siverts Kroken og segja: Ef þú
gerir ekki þetta eða hitt, þá
básúna ég yfir allan Tottabæ
hvers konar maður þú ert!
Skilurðu þetta ekki? Ég
skammast min dálitið fyrir það,
en það er einmitt svona sem ég
hugsa. Og sama máli gegnir um
Merete Band og Rigmor
Hammerheim. Ef til vill þarf ég á
þessu að halda seinna meir, og
þess vegna steinheld ég kjafti.
Finnst þér ég vera voðaleg?
— Já, sagði Brita hrein-
skilningslega. — Er það svona að
vera pólitikus, Gunda?
Gunda kinkaði kolli.
— Það gerir mann ekki að góð-
menni. En karlmennirnir hafa
fint nafn á þetta. Þeir kalla þetta
raunsæi.
— Þá verð ég að læra það lika,
sagði Brita.
Meðan hún og Gunda voru með
þessar heimspekilegu vanga-
veltur á heimleið af hinum ýmsu
fundum, masandi og þungt hugsi
á milli, sat Sivert Kroken bakvið
gluggatjaldið á Stórugötu 12 og
horfði á þær rauðeygur og illileg-
ur. Allt hafði hrunið i rúst i kring-
um hann og tilveran var ekkert
orðið annað en egghvasst grjót og
steinar sem óhjákvæmilegt var
að reka sig á i hverju spori. Og
hann sem hafði haldið að Totta
væri hreinasta Gósenland fyrir
Það er leiðinlegt hve komm-
únisminn er kominn á heilann
á Styrmi Gunnarssyni. 1 stað
þessaðhafa „Staksteina” eins
og hvern annan slúðurdálk
með ómerkilegu snakki, sem
höfundurinn hefði ráðið vel
við, gefur að lita þar dag eftir
dag, viku eftir viku og mánuð
eftir mánuð, sömu ofstækis-
skrifin um kommúnista,
„Staksteinar” er orðinn drep
leiðinlegur þáttur, enda er ég
viss um að enginn nennir orðið
að skoða þennan ótrúlega ein-
hæfa sálarspegil höfundarins
unga. Ég segi fyrir mina
parta, að mikið myndi stak-
steinahöfundur njóta sin vel
sem dómari i USA eða i
Tékkóslóvakiu.
þann sem vildi komast áfram i
lifinu: Já, honum hafði fundizt
hann vera eins og kýr i grænum
haga — dálitið baul hér og
vingjarnlegt mö þar, og maður
var samstundis orðinn formaður i
einni eða annarri nefnd. Og siðan
var hægt að rölta yfir á æ grænni
beitilönd, unz að þvi kom að lenda
i bæjarstjórn og jórtra með öllum
hinum beljunum.
Sitja i bæjarstjórn, já.
Það kom að þvi að maður sat
þar einfaldlega ekki lengur. Það
var ótrúlegt, skelfilegt, hörmu-
legt. Það var eins og Sivert
Kroken hefði ekki lengur neitt að
lifa fyrir. Hann varð harður og
bitur og ásjóna hans sem áður
hafði verið svo brosmild, varð nú
hrukkótt og hörkuleg. Og einn
góðan veðurdag fluttist Sivert
Kroken aftur til vesturlandsins
ásamt Ellinor og syninum Ivari,
niðurbrotinn og beizkur maður.
En i hjartanu leyndist von um
það að byrja upp á nýtt i heima-
byggð sinni; það var enginn
smákalli sem var að koma heim
til sin aftur; hann hafði þó að
minnsta kosti verið varaforseti
bæjarstjórnar.
Siðan var eins og bæjarfulltrú-
inn Sivert Kroken hefði aldrei
verið til i Totta. Þrotlaust starf
hans fyrir bæjarfélagið gleymdist
á einum eða tveimur dögum, eld-
legar ræður hans á bæjar-
stjórnarfundum um aukið fram-
lag til strætisvagnanna eða hækk-
uð laun til starfsmanna bæjar-
félagsins voru geymdar og
gleymdar eins og sjálfur hann.
Laun heimsins eru vanþakk-
læti.
Ef til vill geymdist minningin
um hann einna lengst i húsi bila-
smiðsins.
— Nú ertu vist ánægð, sagði
Hermann Henriksen við eigin-
konu sina eitt kvöldið þegar þau
voru að hátta. Þaö var eini timi
sólarhringsins sem þau gátu
skipzt á orðum, fáeinum kulda-
legum orðum, en orðum þó: sam-
bandið var ekki algerlega rofið.
En hjónabandssamlifið hafði ekki
verið tekið upp að nýju, og fjand-
inn mátti vita hvort það yrði
nokkurn tima eins og Gunda tók
til orða.
Hún horfði döpur i bragði á föt-
in sem hann fleygði frá sér eins og
skurðgrafa i ham.
— Hermann geturðu ekki iagt
fötin þin almennilega frá þér, svo
að ég þurfi ekki alltaf að vera að
taka til eftir þig? sagði hún
gremjulega. — Littu i kringum
þig. Það hangir sokkur á lampan-
um, inni i stofunni hangir jakkinn
þinn, frammi i baðherbergi er
skyrtan og bindið og i eldhúsinu
fleygðirðu af þér samfestingnum
áður en þú fórst á fundinn og
skórnir standa óhreinir og óburst-
aðir i búrinu. — Af hverju i
ósköpunum settirðu þá annars i
búrið?
— Ég fékk mér brauðsneið og
egg að borða, tautaði Hermann
önuglega.
— Hér er allt úr lagi gengið. Og
ég var svo þreyttur i löppunum að
ég sparkaði þeim af mér.
Gunda andvarpaði.
—- Ég hef allt of mikið að gera —-
— Þú gætir að minnsta kosti
reynt að gera eitthvað hérna
heima!
Gunda stundi enn á ný.
— Nú ertu ósanngjarn, Her-
mann. Ég kemst ekki yfir meira
en ég geri! Sérðu ekki að ég hef
miklu meira að gera en þú? Ég
get þetta ekki öllu lengur hjálpar-
laust. — Ég er alveg að siigast!
— Af hverju ert þú svona
þreytt? sagði Hermann fýlulega:
hann tók sokkinn af lampanum og
lagði hann á stól.
— Af hverju ég er þreytt —! Er
ég ekkibæjarstjórnarforseti og er
ekki bæjarráðsfundur á hverjum
miðvikudegi og eilift renneri af
fólki hjá mér og þarf ég ekki að
mæta á nefndafundum og
stjórnarfundum og ráðstefnum
og þarf ég ekki að sjá um dæluna
alla morgna? Þú hefur ef til vill
ekki orðið var við það ennþá, Her-
mann Henriksen, sagði Gunda
með beisku háði. — Og verð ég
ekki i þokkabót að taka til eftir
þig og strákana, elda mat og þvo
upp og þvo þvott og kaupa inn og
meira að segja þvo baðgólfið
þegar þú hefur farið i bað? Og svo
ert þú að spyrja hvað ég hafi að
gera — ! Ég geri að minnsta kosti
það sem hann Storhaug gerði áð-
ur, fyrir utan allt hitt!
Hermann hnussaði fyrirlitlega
og sagði að kvenmannsverk væru
ekkert i samanburði við vinnu
karlmannsins. Konur væru bara
að dúlla við þetta og hitt. Þæi
tækju aldrei neitt alvarlega. En
karlmenn legðu alla sál sina i
vinnuna, og guð mátti vita að það
var nógu erfitt að vera karlmaður
og leggja sál sína i starfið. Og
hann gat ekki skilið að hún væri
neitt sérlega þreytt —
— Og svo fæ ég enga hjálp,
sagði Gunda. — Ég er búin að
auglýsa i Tottatiðindum, en það
vill ekki nokkur manneskja vinna
húsverk nú á dögum.
— Þú tekur sko ekki eyri af
heimilispeningunum i slikt, sagði
Hermann ógnandi. Hann var
kominn undir sængina og lá þar
og horfði illilega á hana. — Þú
hefur kallað þetta yfir þig sjálf,
og þú verður sjálf að bjarga þér
út úr þvi.
— Ég hef auðvitað forsetalaun-
in min, sagði Gunda. — En það
verður ekki mikið afgangs, þegar
uppundir helmingurinn fer i
skatta og hitt i tilbúinn mat i
Sælkeranum. Ég veit ekki nema
ég ætti að hækka forsetalaunin '
um tvö eða þrjú þúsund. Hvað
segirðu um það?
Hermann settist upp og otaði að
henni krepptum hnefanum. Hann
var svo reiður að hann stamaði.
— Þú — þú rétt ræður þvi! Ég
skal segja þér aðég tek ekki i mál
að konan min mergsjúgi bæjar-
félagið!
Hann lagðist dasaður út af aft-
ur, svitinn perlaði á enni hans og
augun voru blóðhlaupin eftir
margar andvökunætur og stöð-
ugar áhyggjur.
— Hvernig gengur annars?
spurði Gunda og horfði á hann
með áhyggjusvip.
Hermann urraði bara eins og
reiður og svefndrukkinn bangsi:
svo settist hann upp aftur og otaði
að henni fingri, sem var dökkur af
inngróinni smuroliu:
— Þú rakst Sivert Kroken burt!
— Rak ég hann, segirðu? Fór
hann ekki af frjálsum vilja?
Hann fór burt vegna þess að
hann þurfti að hrökklast úr
bæjarstjórninni. Hefði það ekki
verið fyrir þitt tilstilli og þessa
kerlingaflokks þins, þá væri hann
hér enn, þvi að bæjarstjórnin var
hans hálfa lif, skal ég segja þér!
Gunda settist á rúmstokkinn og
horfði á hann vansæl á svip.
— Nei, heldurðu það, Hermann?
Kannski langaði hann sjálfan til
að verða forseti, það er aldrei að
vita: karlmenn eru svo skrýtnir.
Rétt eins og það sé eitthvað eftir-
sóknarvert! Strit og púl og eilifar
áhyggjur. Nei, heldurðu það ann-
ars, Hermann? Að hann hafi flutzt
burt vegna þess?
— Já.hrópaði Hermann sigri
hrósandi. — Það gerði hann ein-
mitt. Og nú geturðu legið þarna
og hugsað um það og iðrazt synda
þinna, — þú ótrygga kona sem
vildir ekki hlusta á eiginmann
þinn, þvi nú ætla ég að fara að
sofa. Góða nótt!
Þessa nótt lá Gunda lengi and-
vaka, snökti ögn niður i koddann
og hugsaði um Sivert Kroken. Að
visu var hann ógeðfelldur potari,
sem erfitt var að láta sér þykja
vænt um fyrir sakir verðleikanna,
en samt var sorglegt til þess að
vita, að hann skyldi verða að
flytjast burt, vegna þess að ekki
var rúm fyrir hann i bæjarstjórn-
inni. Það minnti hana á hinar
glötuðu sálir sem á dómsdegi yrði
ýtt út i yztu myrkur vegna þess að
ekki var rúm fyrir þær i Paradis.
Brúðkaup
22. júli voru gefin saman i
hjónaband af séra Áreliusi Niels-
syni ungfrú Sigfinna Lóa Skarp-
héðinsdóttir og Magnús Kristins-
son. Heimili þeirra er að Sólheim-
um 32.
Þann 10/6 voru gefin saman i
hjónaband af séra Olafi Skúlasyni
ungfrú Sigriður Björg Eiðsdóttir
og Sturla Ómar Birgisson
bakaranemi. Heimili þeirra er að
Snælandi 8, Reykjavik.
Studio Guðmundar.
bridge
Óvenjuleg spilamennska
Þriggja granda sögnin [ þessarl
gjöf var sögð af fullmikilli bjartsýnl
og hollenzka meistaranum Bob
Slavenburg tókst heldur ekki að
vinna hana. En hann hefði auð-
veldlega getað unnið hana, ef öll
epilin hefðu legið á borðinu.
Norflur
♦ G-5-3
¥ D-8-5-2
♦ D-9-4-3
♦ 9-2
8u8ur Vootur
4 K-4 * D-10-e
¥ K-7-6 ¥ Á-10-9
♦ Á-8-8 ♦ G-10-7-2
4 A-K-G-8-7 ♦ 10-8-4
AiMtur
♦ A-9-8-7-2
¥ G-4-3
4 K-5
♦ D-5-3
Sagnlr: Vestur gefur. Norður—
Suður ð hœttunnl.
Vestur: Debonnaire. Norður:
Kreyne. Auatur: Moura. Suður:
Slavenburg.
Veatur NorSur Austur Suður
paes pase 1 * dobl
2 4 paaa pase 2 gr.
pass 3 gr. pase pasa
dobl paae pase pass
Veatur lét út spaðasexu. Hvemlg
hefði Slavenburg getað unnið þesea
þriggja granda aögn hvemig eem
andstæðlngamlr hefðu hagað vðm-
Innl?
Svar:
Slavenburg fór þessa leið við
epilaborðið. Útspilið var sem sagt
spaðasex, þristur úr borði, sjöan
frá Austri og tekið á kónginn. Síð-
an er hjartakóngur látinn út og
Vestur tekur á ás sinn, lætur síðan
út spaðadrottningu og varnarspil-
ararnir felldu sögnina með því að
taka þrjá slagi í spaða til viðbótar.
Til þess að vinna sögnina hefði
þurft að beita heldur óvenjulegri
spilamennsku: Suður hefði átt að
láta spaðagosann i fyrsta slag, þá
lokast fyrir spaðann! Það skiptir
engu máli hvort Austur tekur slag-
Inn eða lætur hann fara fram hjá
sér. Hugsum okkur að hann taki á
ásinn og láti aftur út spaða. Suður
tekur þá með kónginum og lætur
út lághjarta sem Vestri er öll þægð
I að láta afskiptalaust. Drottningin
I borði tekur slaginn og sagnhafi
lætur út tígulþristinn úr borði en
sjálfur lætur hann áttuna af hendi.
Vestur tekur slaginn, en getur nú
ekki komið meðspilara sínum inn
og sagnhafi á trygga níu slagi:
Einn spaði, eitt hjarta, tvo tigla
(kóngurinn fellur f ásinn) og fimm
lauf (með svíningu).
Happadrjúgt
mismæli
Þessi skemmtilega þraut sem
samin er úr spili sem kom fyrir á
móti I Frakklandi fyrir nokkrum ár-
um hefði ekki orðið til ef einum
spilamannanna^ hefði ekki orðið á
mismæli f söfnunum.
Norður:
♦ 3
¥ Á-9-5-4-2
♦ Á-G-10-8-5-3
4 6
Vestur: Austur:
4 D-9-6 4 10-8-7-5-4
¥ K-D-G-10-7 y 8
♦ K-7-6-4 * g
4 8 Jf. G-9-7-5-2
Suður:
♦ K-G-2
¥ 6-3
♦ D-2
4 Á-K-D-10-4-3
Sagnir: Suður gefur. Englnn á
hættu. Suður: Vestur: Norður: Austur:
1 4 1 ¥ dobl 1 *
2 4 2 4 3 ♦ pass
3 gr. pass 5 41 pass
Vestur lætur út hjartakóng.
Hvernig á Suður að halda á spll-
unum til þess að vinna þessa fimm
laufa sögn gegn beztu vöm?
Athugasemd um sagnirnar:
Allar eru þessar sagnir rökréttar,
nema sú síðasta. Eftir yfirboð Vest-
urs (eitt hjarta), á Norður að dobla,
þvi að annars kann svo að fara
að honum gefist ekkí tækifæri til
ag sýna fimmlit sinn f hjartanu.
Norður lætur siðan vita um tígul
sinn, og Suður á að svara þriggja
tigla sögninni með þrem gröndum.
En vegna skiptingarinnar 6—5 kaus
Norður heldur að segja fimm tígla.
En þvi miður varð honum á það
mismæli að segja „fimm iauf'.
Hann uppgötvaði mismæli sitt um
seinan, því hann er skyldur til að
leiðrétta sögnina þegar í stað (i
gömlum spilareglum var m.a. sagt
að það yrði að gerast „f sama
andardrætti"). En það furðulega
kom á daglnn, að fimm tígla sögn
var engin von til að vinna, en hins
vegar var hægt að vinna fimm laufl