Þjóðviljinn - 20.08.1972, Side 15
Sunnudagur 20. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15.
Mjólkárvirkjun
Framhald af bls. 1.
t fyrra var auglýst eftir tilboð-
um i stiflugerð. Tvö tilboð bárust
og var all mikill munur á þeim, og
lægra boðinu tekiö, en það var frá
Vesturverki h.f.
Vegna þess aö aðeins er unnt að
vinna við mannvirkjagerð svo
hátt uppi 3—4 mánuði á ári, var
samið við Vesturverk um vinnu
við undirstöður fyrir efsta hluta
þrýstivatnspipulagnarinnar, þvi
ekki vannst timi til að bjóða þann
hluta út, ef takast ætti að hefja
lagningu þrýstivatnspipanna nið-
ur af fjallinu þegar næsta vor.
Þessar framkvæmdir við undir
stöður lagnanna er aðeins 4% af
heildarverkinu. Aætlað er að út-
boð á þvi, sem eftir verður að
vinna við virkjunina, fari fram i
febrúar, og hægt verði að ganga
frá samningum um framkvæmd-
irnar i mai-lok á næsta ári. Enn-
fremur er áætlað að öllum fram-
kvæmdum verði lokið um miðjan
mai 1975 og þá verði hægt að setja
vélar virkjunarinnar i gang.
Miðað við eðlilega fólksfjölgun
á Vestfjörðum má ætla að Mjólk-
árvirkjunin geti framleitt það
rafmagn sem svæðið þarf til
neyzlu, framleiðslu og upphitunar
allt til ársins 1982.
Á öllum Vesfjarðakjálkanum
eru nú virkjanir sem framleiða
samtals 4 þúsund kilóvött, en eftir
stækkun Mjólkarvirkjunar verð-
ur raforkuframleiðsla Vestfjarða
9700 kilóvött.
oOo
Reynt hefur verið að vekja upp
tortryggni vegna virkjunarfram-
kvæmda við Mjólká, og hefur i þvi
sambandi verið talað um að ekki
yrði nægur varaforði til fyrir
Vestfirði, ef framleiðslan i Mjólk-
á stöðvast.
Athugasemd
1 þættinum Lesendur spyrja, i
blaðinu fyrir skömmu, urðu mis-
tök á greiningu lagabókstafs, þar
sem úrskurða skal hvort skák-
maður vinnur skák, sá sem hefur
svart eða hvitt, ef hvorugur mæt-
ir til leiks.
Guðmundur Arnlaugsson rekt-
or tjáði blaðinu i dag, að skýrt
væri tekið fram i lögum, að ef
hvorugur mætti, töpuðu báðir
skákinni. Sá sem hefði svart
þyrfti þó ekki að sitja við skák-
borðið heldur væri nóg að hann
tilkynnti komu sina til dómara.
Blaðið hafði samband við Val-
garð Thoroddsen rafmagnsveitu-
stjóra rikissins og spurði hvað
hæft væri i þessum fullyrðingum.
Valgarð sagði að alls væru 8
diselrafstöðvar á Vestfjörðum og
þær yrðu reknar áfram sem vara-
aflstöðvar eftir að Mjólkárvirkj-
unin væri komin i gagnið.
Þrjár þessara varaaflstöðva
eru á suðurfjöröunum, sunnan
Arnarfjarðar, en þær gætu fram-
leitt 910 kilóvött, en 5 stöðvar á
fjörðunum norðan Arnarfiarðar
gætu framleitt 1990 kilóvött, svo
að samtals geta varaaflstöðvar
þvi framleitt 2900 kilóvött.
Og nú verða úrtölumennirnir
með bæjarlækjasjónarmiðin að
bita i það kæsta skötubarð, að sjá
framkvæmdum miða áfram viö
Mjólkárvirkjun, og bæjarlækjar-
sjónarmiðin i virkjunarmálum
ekki lengur tekin góð og gild. —úþ
Gligoric
Framhald af bls. 3.
— Er þýtt mikið af erlendum
bókum á serbó-króatisku?
— Já, reiðinnar býsn. En það
er lika mikið um að fólk tali og
skilji erlend mál heima. Ég les
frönsku, þýzku og ensku, þó mér
veiti léttast að tala siðastnefnda
málið; þar bý ég að beztum
orðaforða.
— Þú hefur skrifað allmikið
sjálfur ekki satt?
— Þaö er talsvert slangur,
aðallega þó um skák. Núna er
ég að skrifa bók um heimsmeist-
araeinvigið.
— Nú, einmitt. Hvenær kem-
ur hún út?
— Um leið og einviginu lýkur.
Ég hef setið hér á hótelherberg-
inu alla daga og skrifað i grið og
erg, auk þess sem ég sendi rfk-
isútvarpinu i Júgóslaviu fréttir.
Ég hef ekkert komizt út vegna
alls þessa skriferíis, þó svo að
mig langi til að skoða mig um
hér á landi. Það verður vist að
biða betri tima, þvi að eg fer til
Skopje i Suður-Júgóslaviu og
tek þar þátt i ólympiuskákmót-
inu um leið og þessu lýkur i
Laugardalshöllinni. En bókin
min kemur út á ensku óðara og
einviginu lýkur. Ætlarðu að lesa
hana?
Blaðamaður Þjóðviljans lofar
að lesa bókina spjaldanna milli,
þakkar fyrir spjallið og röltir til
dyra. Við kveðjum stórmeistar-
ann Gligoric og óskum honum
heilla á sviði ritstarfa, tónlistar
og skákmennsku. gæ.
Landbúnaður
Framhald af bls. 11.
má ætla að önnur gjöld rikissjóðs
til landbúnaðarins, sem hafa á-
hrif á rekstur atvinnugreinarinn-
ar, hafi verið um 200 miljónir kr.
Þannig má telja að um 530 mil-
jónum króna hafi veriö varið til
að lækka framleiðslukostnað og
til greiðslu útflutningsbóta. Sé
gengið út frá þeirri tölu, nemur
hún um 15% af heildarverðmæti
landbúnaðarframleiðslunnar
þetta ár.
Til fróðleiks má geta þess, að
þegar samanburður var gerður á
þvi fyrir nokkrum árum á vegum
Búnaðarnefndar, hve miklum
hluta slikir styrkir næmu i nokkr-
um nágrannalöndum okkar, voru
þeir taldir nema: i Bretlandi um
17% af brúttótekjum bænda, i
Vestur-Þýzkalandi á milli
20—25% og i Noregi var talið að
um helmingur af nettótekjum
bænda kæmi frá rikinu. Þá var
talið, ef fylgt var svipuðum
reikningi, að hér kæmu um 15' ’
heildarverðmæti landbún
vara úr rikissjóði og virðis* .ð
vera svipað nú.
Opið bréf
Framhald af bls. 4
ar. Þar er bæði ágætt gistirými og
ákjósanleg mötuneytisaðstaða.
Nú virðist þó standa fyrir dyrum
samningamakk milli Eimskipa-
félags Islands og borgarstjórnar
um afnot félagsins af húsinu. Þó
svo að Hafnarbúðir fullnægi langt
i frá þeim hugmyndum er við höf-
um gert okkur um fullnægjandi
gistirýmis- og mötuneytisaðstöðu
skólafólks, þá er einsýnt að ef
húsið væri nýtt i þágu nemenda
þá væri um mikla bót að ræða.
Stjórnvöld verða nú þegar að
gera sér Ijóst að við kennaranem-
ar munum ekki taka þvi þegjandi
og hljóðlaust að öllum okkar
málaleitunum um aukiö félag!
legt réttlæti, séu að engu hafðar. i
krafti einingarinnar munum við
yfirstiga þær hindranir sem á
vegi kunna að verða og það fyrr
en seinna.
Landsfeður: Ykkur kanna að
undra að sjá þvilikt bréf en skýr-
ingin er nærtæk. Nú þegar höfum
við reynt allar venjulegar leiðir
til að koma okkar brýnu hags-
munamálum i höfn. En hvorki
hefur gengið né rekið. Þvi er
þetta bréf sent til að þið sem með
völdin fariö, sjáið að það er ekki
nóg að kinka kolli til samþykkis
heldur eru það verkin sem tala.
Þessu bréfi er ekki aðeins ætlað
það hlutverk að hvetja ykkur til
dáða, heldur einnig að sýna þjóð-
inni fram á hvernig þessum
brýnu hagsmunamálum kenn-
aranema er háttað. Þvi skorum
við á ykkur sem með völdin farið,
i þessu tilfelli rikisstiórn og
borgarstjórn, að láta ekki flokka
erjur né valdadraumapólitik ráða
feröinni, heldur sameinast i þvi
að vinna að þessum hagsmuna-
málum nemenda og þar meö
þorra þjóðarinnar.
F.h. Námsaöstöðuncfndar, S1K>
og Nemcndaráös K.H.l.
Þorleifur Friðriksson, form.
Nemr..
Valþór Hlöðversson.
Ólafur M. Jóhannesson, form.
StKN.
„Táp og fjör”
Framhald af 5. siðu.
skemmtilega kvöldstund þeg-
ar þessi mynd verður sýnd.
Þar að auki ætti það að guil-
tfyggja gamanið, að Bessi
Bjarnason leikur aðalhlut-
verkið i myndinni, Lása fjósa-
mann. Margan fjósamanninn
er maður búinn að sjá um dag-
ana, en ég hygg að Bessi slái
þá alia út, og hann var eins og
fæddur i hlutverkið. Svo langt
gekk grfnið, að aðstoðarfólkið
við upptökuna skellti uppúr
hvað eftir annað, og það hlýtur
að vera dauður maður sem
ekki skemmtirsér viðað horfa
á þessa mynd.
tbúarnir á bæjunum Katr-
fnarkoti og Hausastöðum
fylgdust af áhuga með upptök-
unni, en þeir höfðu lánað sjón-
varpinu hús sin og hlað til upp-
tökunnar.
Hvort þeir hefðu gaman af
þessu?
— Jú mikil ósköp, það er af-
ar skemmtilegt að fylgjast
með þessu. Manni finnst þetta
nú kanski nokkuö ýkt allt sam-
an, en bráðskemmtilegt.
Enn var farið að rigna og
myndatöku hætt á meöan
skúrin gekk yfir, en svo stytti
upp aftur, aö enn var rokið til.
Það hlýtur að taka á taugarn-
ar að standa i þessu kvik-
myndastússi, og fyrir þá sem
eru með kvikmyndastjörnu-
delluna ætti einn dagur við
svona upptöku að lækna það
mein. — S.dór.
Askriftasími
Þjóðviljans er 17500
Laugardalsvöllur
íslandsmótið 1. deild
Mánudagskvöld kl. 19.00 leika
FRAM - ÍBK
Fram.
Islandsmótið. 1. Deild.
YALUR
- AKRANES
Leika i dag sunnudag kl. 16.00. Hvað
skeður nú?
VALUR
Húsbyggjendur —
Yerktakar
Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22, og 25 m/m. Klippum og
beygjum stál og járn eftir óskum viðskiptavina.
Stálborgh.f.
Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Simi 42480.
Skrifstofustúlkur
óskast til almennra skrifstofustarfa. Laun
skv. kjarasamningi rikisstarfsmanna.
Upplýsingar i sima 83200.
IiANNSÓKNAItSTOFNUN
BYGGINGARIÐNAÐARINS.
KELDNAIIOLTI.
Útsala— Útsala
Útsala hefst á mánudagsmorgun.
Góðar vörur. Gott verð.
S. ó. búðin
N jálsgötu 23.
Matráðskona
Starf matráðskonu i eldhúsi
Sjúkrahússins i Húsavik er laust til um-
sóknar. Æskilegt er, að umsækjandi hafi
húsmæðramenntun eða starfsreynslu.
Upplýsingar um starfið veitir fram-
kvæmdastjóri. Umsóknarfrestur er til 30.
september n.k.
Sjúkrahús Húsavikur.
SAMVINNU
BANKINN
ROBINSON'S ORANGE S<|(JASH
má blanda 7 sínnnm með vatni