Þjóðviljinn - 20.08.1972, Qupperneq 16
UÚOVIUINN
Sunnudagur 20. ágúst 1972
Kvöldvarzla lyfjabúðanna
vikuna 12,—18. ágúst er i
Vesturbæjar Apóteki, Háa-
leitis Apóteki og Apóteki
Austurbæjar.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Olympíudeilan fer
enn harðnandi
Brundage hótar hinum óhlýðnu
MUNCIIEN 19/8 Al-
þjóðlega ólympiu-
ncfndin, IOC, hefur
beðið fimmtán
Afrikuriki að endur-
skoða ákvörðun sina
um að hætta við þátt-
töku i Ólympiuleik-
unum i Munchen
vegna þess að
Ilódesiu er leyfð þátt-
taka. Um leið berast
fregnir af þvi, að
átján þeldökkir
handariskir iþrótta-
menn styðji ákvörðun
Afrikurikjanna og ætli
einnig að hætta við
þátttöku.
Nefndin tilkynnti einnig, að
hún styddi forseta sinn,
Brundage, i þeirri ákvörðun
hans, aö leyfa Ródesiumönn-
um þátttöku i leikunum undir
brezkum fána, og verða þeir
skráðir sem fulltrúar brezkrar
nýlendu.
Nefndin segir, að ákvörðun
rikjanna 15 muni ekki skaða
Ródesiu neitt heldur aðeins
skipuleggjendur leikanna og
hina afrisku iþróttamenn.
Meöal þeirra sem búizt er við
að pakki niður föggum sinum
eru gullverölaunahafar frá
fyrri leikum eins og Keino
(1500 m hlaup), Namos Biwott
(3000 m hindrunahlaup) og
Naftali Temu (10.000 m.).
Keino, ólympíusigurvegari i 1500 m hlaupi, i ibúð sinni f Nairobi:
margir verðlaunamenn hætta við þátttöku.
Avery Brundage hefur lýst ólympiuleikum, eigi á hættu
þvi yfir að þau lönd, sem nú að fá ekki að taka þátt i þeim i
vilja hætta við þátttöku i framtiðinni.
Dýrt spaug er listin
Listamaðurinn Christo Javacheff er búlgarskrar ættar og hefur eink-
um fengizt við að koma firnamiklum dúkum fyrir hér og þar f náttúr-
unni. A dögunum tókst honum cftir langa mæðu að strengja 400 metra
langt nælontjald yfir gilið Riffle Gap i Colorado. Kostaöi tiltæki þett.a
750 þúsund dollara. En dýrðin stóð ekki lengi — það tók vinda ekki
nema dag að tæta tjaldiö i sundur. Aður en af þvf varð var þessi mynd
tekin.
Flugvélarœningi tekinn
Hafði fengið tvær
miliónir dollara
SEATTLE 19/8. Grímu-
klæddur maöur, sem í gær
rændi farþegavél í Renó í
Nevada og krafðist tveggja
miljóna dollara í lausnar-
gjald var snemma i morg-
un særöur skotsári og hand-
tekinn af lögreglunni í Se-
attíe.
Maðurinn haföi þegar fengið
lausnargjaldið greitt i seðlum og
gulli, og er þaö hæsta upphæð sem
til þessa hefur veriö krafizt i sam-
bandi við flugvélarán. Kvaðst
hann ætla að nota peningana til
aðstoöar vietnömskum börnum,
sem hafa orðið örkumla i striðinu.
Maðurinn kom hjólandi að flug-
vélinni er hún stóð á flugvelli i
Renó og ógnaði áhöfninni með
byssu. Fyrst lét hann fljúga vél-
inni til Vancouver i Kanada og
fékk þar greiddan hluta lausnar-
gjaldsins og þaðan var svo flogið
til Seattle á vesturströnd Banda-
rikjanna til að ná i afganginn.
Hrikamorð í Noregi
KONGSVINGER 19/8. Maður
nokkur fannst skorinn á háls i
kjallara húss sins á Kongsvinger i
Noregi i nótt og skömmu siðar
fannst leigubilstjóri, særður um
30 hnifstungum, 25 km. frá bæ
þessum. Leigubilstjórinn hafði
tekið upp i bil sinn tvo grunsam-
lega náunga, sem launuðu honum
þennan greiða með þvi að marg-
stinga hann hnifum og henda hon-
um út úr bilnum. Oku þeir áfram i
leigubilnum, sem enn hefur ekki
fundizt. Talið er vafalaust að þeir
hafi einnig ráðið þeim manni
bana, sem fyrst var nefndur.
liðsmenn
hervernd
Nixon og
biðj a um
MIAMI BEACH 19/8. Um 2000 sérþjálfaðir her-
menn hafa slegið upp tjöldum skammt frá Miami og
eiga þeir að vera reiðubúnir að berja á andstæðing-
um Vietnamstriðsins, sem hafa hótað því að koma i
veg fyrir að Repúblikanar geti haldið flokksþing i
næstu viku, en á þvi á að ganga frá endurframboði
Nixons forseta.
Meðan þessu fór fram var
stefnuskrárnefnd flokksins að
ganga frá kosningastefnuskrá.
RABAT 19/8 Innanrikisráð-
herra Marokkós staðfesti i gær,
að Mohammed Oufkir varnar-
málaráðherra hefði verið foringi
samsærismanna þeirra sem
gerðu misheppnaða tiiraun til að
drepa Hassan konung á mið-
vikudag. Oufkir framdi sjálfs-
morð eftir að samsærið hafði mis-
tekizt. Hann hafði verið talinn
hægri hönd konungs og hafði
sjálfur útrýmt andstæðingum
hans af mikilli grimmd.
Þar er farið mjög sterkum lofs-
oröum um Vietnamstefnu Nixons,
sem er köiluð „göfuglynd og tii
sóma”. Um leið ásakar stefnu-
skrárnefndin McGovern, forseta-
efni Demókrata, um að vilja að
Bandarikjamenn gefist upp i Vi-
etnam,
Nefndin veitist aö þeim um-
mælum McGoverns, að hann
muni ef nauðsyn kréfur betla um
að bandarískir striðsfangar i
Norður-Vietnam verði látnir
lausir. Það verður sagt Nixon for-
seta til hróss, að hann mun ekki
fremja slik þjóðsvik og aldrei
skal bandariskur forseti fara með
betlistaf til Hanoi, segir i stefnu-
skránni. Þá segir ennfremur að
McGovern sé hættulegur einangr-
unarsinni sem muni, ef hann fær
að skera niður útgjöld til her-
mála, veikja stöðu Israels. Repú-
blikanarhafa einmitt biðlað mjög
til bandariskra Gyðinga að und-
anförnu, og koma siðastnefnd
ummæli þvi ekki á óvart.
Metrakerfið tekið
uppí
Bandaríkjunum
WASHINGTON 19/8. Oldunga-
deild Bandarikjaþings hefur
samþykkt lagafrumvarp um að
tekið verði upp i landinu metra-
kerfi. Gert er ráð fyrir að breyt-
ingar þessar taki tiu ár — vikja þá
fet, tommur, pund og kvartar fyr-
ir metrum, kilóum og litrum.
Byrjað verður á þessum breyt-
ingum innan iðnaðarins. Undir-
búningur málsins hefur tekið þrjú
ár.
Afmælisrit Stein-
dórs frá Hlöðum
Hinn 12. þ.m. átti hinn
landskunni skólamaður og
náttúrufræðingur, Steindór
Steindórsson frá Hlöðum, sjö-
tugsafmæli. I tilefni þess gaf
bókaútgáfan Orn og Örlygur
út bók með greinum og ræðuru
Steindórs, fiestu áður óbirtií
Bókin ber nafniö AF SÓLAR-
FJALLI og á bókarkápu segir
að Steindór hafi lengstum
beint sjónum sinum til vors og
gróanda og þvi beri bókin
þetta nafn.
AF SÓLARFJALLI skiptist i
fjóra meginþætti, en þeir eru:
1. Landið og náttúran, 2.
Minnst samferðamanna. 3.
Við ýmis tækifæri, 4. Skóla-
kveðjá 1972. Þá er nokkrum
kvæðum eftir Steindór dreift
um bókina.
Fremst i bókinni er Tabula
gratulatoria, eða skrá yfir
hátt á sjötta hundrað manns
sem minntust afmælis Stein-
dórs með þvi að taka með á-
skrift sinni þátt i útgáfunni.
Hákon Bjarnason, skóg-
ræktarstjóri ritar formála að
bókinni sem hann nefnir
HANN HEFUR BENT A
BETRA LAND. Þar greinir
Hákon frá æviferli Steindórs
og segir m.a. i upphafi formál-
ans: „Útgefendur bókarinnar
hafa valið þann kost að birta
ritgerðir, erindi og ljóð Stein-
dórs i þessu afmælisriti, og tel
ég það vel farið. A þennan hátt
er vikið frá þeirri venju, sem
viðgengst þegar heiðra á
merka menn, að gefa út bók
þar sem hinir og aðrir skrifa
um sundurleit efni. Með þessu
móti sést þó, að maðurinn á
heiður og lof skilið fyrir langt
og merkt starf”. Hákon gerir
grein fyrir rannsóknum Stein-
dórs á gróðurfari Islands og
kemst m.a. þannig að orði:
„Með rannsóknum sinum hef-
ur Steindór þvi fært þjóð sinni
heim sanninn um, að hún á
betra land en almennt var áð-
ur talið”. Bókin er 162 bls.