Þjóðviljinn - 10.09.1972, Side 16
Hér skolaði út uliartjásum, sápufroðu og rauðu litarefni.
A ineðan staldrað var við, seytlaði skolplitað vatn úr stokknum.
SÆTTUM ÖKKIJR
EKKI VIÐ BÐN-
AÐARMENGUN!
Um þessar mundir er mikið
talað um náttúru- og um-
hverfisvernd, enda kominn
timi til. bað sýna hin miklu
umhverfisspjöll sem iðnaður-
inn hefur valdið i þeim löndum
sem lengst eru komin á svo-
kallaðri þróunarbraut. En
menn gera sér nú æ betur
ljóst, að hreint umhverfi og
aðgangur að ómengaðri
náttúru er meðal æðstu verð-
mæta. Islendingar mega vera
vel á verði ef þeir eiga að
halda þeim verðmætum sem
landið býður upp á að þessu
leyti. bað leynast viða hættur,
og landið er alls ekki eins
óspillt og.ómengað og oft er
látið i veðri vaka. Og dæmið
frá Straumsvik þar sem er-
lendur auðhringur fékk að
koma upp hættulegri stóriðju
án venjulegra hreinsitækja er
viti til varnaðar. Iðnaðinum á
ekki að leyfast að menga um-
hverfið með þeirri afsökun, að
ómengað umhverfi sé óeðli-
legur lúxus fyrir þessa þjóð, —
aðrar þjóðir sætti sig við
margfalt meiri mengun!
Hér hafa náttúruverndarfél-
ögin i landinu miklu hlutverki
að gegna. bau eiga að benda á
það sem miður fer i þessum
efnum, vara við og minna á.
bjóðviljanum er ánægja að
þvi að birta þá þörfu hugvekj'u
um frárennslið á Álafossi sem
Náttúruverndarfélag Suð-
vesturlands hefur sent
blaðinu. Og sjái nú ábyrgir
aðilar að sér!
h—
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Að húsabaki búnaði óhreint vatn i ána, og gufumökkurinn lék um járnarusl á bakkanum.
Skyndilega stóð gulbrúnn vatnsstrókur út um rörið og hálffyllti árfar-
vcginn.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar’
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavfkur,
simi 18888.
Kvöld-, helgi- og sunnu-
dagsvarzla i apótekum
Reykjavikur vikuna 9. — 15.
september er I Garðs-
apóteki, Holtsapóteki og'
Lyfjabúðinni Iðunni. Nætur-
varzla i Stórholti 1.
Óviðiinandi ástand er Áminning frá
r P r 1 • r Á 1 á* • Náttúruverndarfélagi
a irarennsli ira Alaiossi Suðvesturlands
Aðalbygging klæðaverksmiðjunnar
Álafoss hf. stendur á bakka Varmár i
Mosfellssveit. Þessi litla og hlýlega á
rennur þétt við tvær hliðar hússins. Á
þeim hliðum húsgrunnsins sem að
ánni snúa eru fjögur op, og er það frá-
rennslisbúnaður ullariðnaðarins. Þar
á skolpið frjálsa för út i umheiminn.
Myndirnar hér á siðunni voru teknar
við Álafoss snemma að morgni góð-
viðrisdags i sumar, nánar tiltekið 22.
ágúst. Þær lýsa betur en nokkur orð
þeim áhrifum sem klæðaverksmiðjan
hefur á næsta umhverfi sitt, sérstak-
lega á Varmá. Áður rann þar bergvatn
silfurtært, og laxar gengu upp að foss-
inum. Nú er það góðgætið frá verk-
smiðjunni sem setur svip á ána, sápu-
lögur, litarefni, ullartjásur...
Þann stutta tima sem tafið var þar
efra, rann án afláts mikið vatn úr viðu
röri að húsabaki, og úr tréstokk
seytlaði skolp. Gegnum þriðja opið
kom sápufroða, rauður litur og ullar-
hnak, og skyndilega stóð gulbrún
vatnsbuna út úr þvi f jórða og hálffyllti
árfarveginn i nokkrar minútur.
Illt er til þess að vita, að enn skuli
það látið átölulaus af hálfu opinberra
aðila og nágrannanna, að skolpvatn
frá iðnaðarfyrirtækjum renni
óhreinsað i bæjarlækinn. Hvort sem
hér á i hlut einkafyrirtæki eða rikis-
verður ekki lengur unað slikri ósvinnu
og tillitsleysi i annarra garð. Sameigin
lega berum við ábyrgð á umhverfi
okkar
ÍÚÐVIUINN
Sunnudagur 10. september 1972