Þjóðviljinn - 08.10.1972, Síða 12
12. SIÐA — ÞIÓÐVILJINN Sunnudagur X. október 1972.
'Vr lönskólinn í Reykjavík
Nemendumsem stunda eiga nám i 3.
bekk á annarri námsönn þetta skólaár, en
hafa ekki lokið prófum i einstökum náms-
greinum 2. bekkjar með fullnægjandi
árangri, gefst kostur á að sækja námskeið
i dönsku, reikningi og efnafræði ef næg
þátttaka fæst.
Innritun fer fram i skrifstofu skólans
dagana 9. til 11. þ.m. kl. 8,30—16.00.
Námskeiðin hefjast 16. október og próf
byrja 6. nóvember.
Námskeiðsgjald verður kr. 500,- fyrir
hverja námsgrein.
Nemendur sem þurfa að endurtaka próf
i öðrum námsgreinum 2. bekkjar skulu
koma og láta innrita sig i þau dagana 23.
til 25. október.
Skólastjóri.
Tilboð óskast i smiði og uppsetningu inn-
réttinga og hurða fyrir barnadeild nr. 18
við Kópavogshæli.
Verkinu skal vera lokið 15. júli 1973.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, R., gegn 3.000.00 kr.
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjud.
31. okt. 1972, kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
® Rafvirkjar
Rafmagnsveita Reykjavikur óskar eftir
að ráða rafvirkja til starfa.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
hjá yfirverkstjóra Rafmagnsveitunnar,
Ármúla 31 milli kl. 13.00 og 14.00 daglega.
Umsóknarfrestur er til 14. október 1972.
^ RAFMAGNSVEITA
^ REYKJAVÍKUR
LITLI GLUGGINN
Grátittlingurinn
Ivan Turgenjev átti veiðihund,
sem hét Trésor. Einu sinni þegar
Ivan var á leið heim af dýraveiðum
kom fyrir atvik, sem hann segir svo
frá:
Ég kom heim af dýraveiðum og
gekk eftir trjáganginum í aldingarði
mínum. Hundurinn minn hljóp á
undan mér. Allt í einu hægði hann á
sér og læddist gætilega áfram, eins
og hann yrði var við veiði fram
undan sér.
Ég horfði fram eftir trjáganginum,
kom auga á grátittlingsunga með
gult nefið og úfið fiður á kollinum.
Hann hafði dottið út úr hreiðrinu —
stormurinn hristi og skók birkitrén í
ganginum-og sat nú og baðaði ráða-
laus úr litlu vængjunum sínum.
Trésor færði sig nær honum í viga-
hug, — þá steyptist allt í einu gamall
grátittlingur svartur á bringunni
niður úr næsta tré og datt eins og
steinn rétt fyrir framan hundskjaft-
inn, og með ýfðar fjaðrir, frá sér
numinn, titrandi og tístandi,
hoppaði hann tvisvar fram móti
þessu opna gini, er var sett svo
hvössum tönnum, með hugrekki því,
er örvæntingin gefur...
Hann hafði steypt sér niður til að
frelsa ungann sinn og ætlaði að vera
honum hlífiskjöldur. En allur litli
kroppurinn titraði af hræðslu, hann
tfsti aumlega, — í dauðans angist
fórnaði hann sjálfum sér....
Hvílík voðaleg ófreskja hlaut
hundurinn að hafa verið fyrir hon-
um. Og þó hafði hann ekki getað set-
ið kyrr þar sem hann var, óhultur á
grein sinni. Vald, sem var viljanum
voldugra hafði knúið hann til að
fljúga ofan.
Trésor stóð kyrr, hopaði lítið eitt
aftur á bak ...það sýndist eins og
jafnvel hann lyti því sama valdi.
Ég varð hrifinn og flýtti mér að
kalla á hundinn... og fór leiðar
minnar með helgri lotningu í huga
minum.
Já hlæið ekki. Ég bar sannarlega
lotningu fyrir þessum litla hetju-
fugli og fyrir kærleiksverki hans.
Ég fann að kærleikurinn sigrar
bæði dauðann og dauðans angist.
Kærleikurinn einn er viðhald alls
lífs.
Þessi fugl syngur
aldrei framar
Einu sinni sat búandi maður úti í
garði sínum með öllu fólkinu; sá
hann þá Ijómandi fallegan fugl, sem
sat á trjágrein þar nærri. Sonur hans
sex ára gamall starði á fuglinn með
mestu athygli. Bóndi hélt að syni
sínum myndi þykja gaman að sjá
hann nær, greip byssu sína í
hugsunarleysi og skaut fuglinn.
Síðan kallaði hann á drenginn til
þess að hann skyldi sjá, hversu
fjaðrirnará fuglinum voru fallegar.
En drengurinn fór að gráta, þegar
hann sá fuglinn dauðan, og sagði :
„Faðir minn, þessi fugl syngur
aldrei framar".
„Það skal ekki verða næsta daginn,
að ég skjóti fugl," sagði bóndi
nokkru seinna við einn af finum sín-
um.
í
H r'o
RvaR
Ilér er skcmmtilcg mynd eftir hann Helga litia Hjörvar. Myndin er af konungshöll og þrem llfvörð-
um, sem eru að gæta hallarinnar og kóngafólksins.
Helgi er 5 ára og er nýkominn heim frá Danmörku, þar sem hann var I tvö ár með mömmu sinni og
pabba.
Litli glugginn þakkar þér fyrir myndina, Helgi, og vonast eftir fleiri myndum frá þér.