Þjóðviljinn - 02.11.1972, Side 13
Fimmtudagur 2. nóvembcr 1972ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13.
23
Alistair Mair:
Það
var sumar í
gær
standa sig i slikri samkeppni. Það
er allt og sumt.
— Áttu við að hann elski starfið
meira en þig?
— Já, eiginlega held ég að hann
geri það að vissu marki.
— En það er ekki vel gott.
— Tja, ég veit það ekki. Það er
alls ekki slæmt, Bill. Hann gæti
ekki verið betri og tillitssamari.
Eða kærleiksrikari þegar hann
man eftir þvi. Og það hefur aldrei
verið önnur kona, og það ætti að
gleðja f jörutiu og fimm ára
gamla eiginkonu.
Bill drap i sigarettunni.
Hann virðist varla hafa mátt
vera að sliku.
— Ég vil heldur hugsa mér
betri ástæðu, sagði Elisabet. —
Hver einasta eiginkona verður að
trúa þvi að til sé betri ástæða.
Hún leit undan, horfði á gervilog-
ann speglast i málmplötunni. —
Lifið hefur ekki verið alveg eins
og ég hafði hugsað mér það, sagði
hún hljóðlega. — En það er það
vist aldrei.
— Það getur verið, sagði Bill
með hægð. — Ef til vill hefði lif
með þér ekki orðið sá dýrðar-
draumur sem ég gerði mér vonir
um.En ef ég ætti að lifa lifinu upp
á nýtt, þá myndi ég taka áhætt-
una. Það er aðeins eitt sem ég
myndi gera á anna hátt.
— Hvað er það?
— Ég myndi draga þig til
borgardómara i svo miklum flýti,
að þú yrðir komin ibrúðkaupsferð
áður en þú vissir að þú værir trú-
lofuð.
Hún hló.
— Já, ég verð að viðurkenna,
að það hefði getað heppnazt. Ég
hef alltaf þurft að láta aðra taka
ákvarðanir fyrir mig.
— Já, en það vissi ég ekki i þá
daga. Ég var of ungur. Ég gaf þér
góðan tima. Eg gaf þér þann tima
sem þú þurftir til að hitta Peter.
—- Já, sagði hún. — Það gerð-
irðu reyndar.
Hann horfði á hana og rifjaði
upp með sjálfum sér hve hörund
hennar hafði verið mjúkt, hve
varir hennar höfðu verið hlýjar
og örvandi og likaminn stinnur og
stæltur. 1 kvöld var auðvelt að
minnast hins liðna, auðvelt að
imynda sér að ekkert hefði
breytzt. hvorki ástin né þráin, né
sorgin sem hann hafði fyrst fund-
ið til þetta aprilkvöld fyrir langa-
löngu. Stolt hans hafði verið sært
þá, og enn lék honum forvitni á að
vita hvort hún hefði nokkurn tima
dregið i efa að val hennar hefði
verið rétt, gert sér i hugarlund
það sem hefði getað orðið. Hann
spurði bliðlega:
— Nokkur eftirsjá?
Hún brosti ögn.
Nei, Bill, eiginlega ekki.
— Eiginlega ekki? Hann virti
hana fyrir sér. — Einhver vottur?
Hún hló.
— Ef til vill vottur.
— Að hvaða leyti?
— Þér myndi ekki lika það.
— Skiptir það máli?
— En mér líkar það ekki
sjálfri.
— Hvernig þá?
Hún leit á hann.
— Jú, sjáðu til, ég hef ekki
breytzt, Bill. Ég held að fólk
breytist ekki. Ég er eldri og ekki
eins löguleg utanum mig og ég
var, og ég á tvö uppkomin börn,
en eiginlega hef ég ekki breytzt.
Ég er ennþá eins og ég var þetta
kvöld við Loch Ard. Ég er ennþá
eigingjörn. Ég vil enn eiga Peter,
en ég gæti lika hugsað mér að
eiga þig.
Hann hallaði sér aftur á bak i
stólnum með hægð.
— Misskildu mig ekki, sagði
hann, — en ég verð að spyrja: Er
þetta uppástunga?
Hún hristi höfuðið.
— Nei, Bill. Ég er hrædd um
ekki.
— Sem snöggvast var ég i vafa.
— Hluti af mér óskar þess, en
Þann 17. sept. voru gefin saman
i hjónaband i Langholtskirkju af
sr. Sigurði H. Guðjónssyni ungfrú
Gerður Kristjánsdóttir og Bergur
Björnsson. Heimili þeirra verður
að Eyjabakka 12 R. (Ljósmst.
Gunnars Ingimars Suðurveri —
simi 34852)
Brúðkaup
Laugardaginn 16. sept. voru
gefin saman i hjónaband i Dóm-
krikjunni af sr. Skarphéðni
Péturssyni ungfrú Hildur Skarp-
héðinsdóttir og Sigurður
Einarsson. Heimili þeirra verður
að Grænuhlið 17. R. (Ljósmst.
Gunnars Ingimars Suðurveri —
simi 34852)
hinn hlutinn veit að það myndi
valda vandræðum.
— Vandræði eru rétta orðið,
sagði Bill. — Með upphafsstöfum
og undirstrikað.
— Og ég elska Peter i alvöru.
Þú mátt ekki misskilja mig. Ég
elska hann.
— Það er ég viss um að þú
gerir.
— Og ekkert vildi ég siður en
særa hann.
— Og ég ekki heldur.
— Og þú skilur þetta?
— Nei, sagði Bill. — Það væri
ofmælt að segja að ég skildi það.
En ég gengst upp við það.
— Það var ekki ætlunin.
En þannig er það samt. En
sannleikurinn er sá, að hvað sem
öllum vandræðum liði, þá myndi
ég ekki kæra mig um að deila með
öðrum. Ég er frjálslyndur i hugs-
un, en ekki i svo rikum mæli.
Hann þokaði sér framar i stólinn.
—- Og eftir þessa háfleygu yfir-
lýsingu er bezt að ég fari. Það eru
takmörk fyrir þvi hve ég get stað-
izt miklar freistingar.
— Hef ég hneykslað þig?
— Nei, það hefurðu ekki gert.
— Þá ertu reiður mér.
— Siður en svo.
— Nú, jæja. Hvað liggur þér þá
á?
— Það er komið miðnætti eða
þvi sem næst. Ég er mannlegur,
og þú ert alltof falleg. Vegna þess
að Peter, maðurinn þinn og bezti
vinur minn, gæti komið heim eftir
hálftima og þessa stundina er ég
ekki alveg i skapi til að hitta
hann.
Það kom glettnissvipur i augu
hennar.
— Ertu með sektarkennd?
— Já, fyrst þú spyrð. Svolitinn
vott. En það lagast. Hann stóð
upp. — Er frakkinn minn ekki i
anddyrinu?
— Jú, sagði hún. — Ég skal
sækja hann.
Þau komu samtimis að dyr-
unum. Andartak snertust fingur
þeirra á hurðarhúninum. Svo tók
hann um hönd hennar.
— Elisabet, sagði hann blið-
lega, — það tók okkur tuttugu og
fimm ár að koma þessu samtali i
verk. Ef til vill liður óratimi
þangað til við tölum saman næst.
Leyfðu mér að segja eitt enn.
— Já, Bill.
— Allan þennan tima hafa til-
finningar minar ekkert breytzt.
Þær fara varla að breytast úr
þessu. Jafnvel þótt við eigum
aldrei framar eftir að tala saman
á þennan hátt, þá mundu eitt: Ef
þú þarft min við, þá er ég til taks,
hvenær sem er.
Hún kinkaöi kolli.
— Já, ég veit það.
— Og ef þú þarfnast min, þá
kemurðu?
— Og ef ég þarfnast þin, þá
kem ég.
— Gott. Hann horfði niður á
andlit hennar og brosti. — Vertu
góða stelpan, Elisabet.
Hún dró að sér höndina og færði
sig fjær honum.
— Ef þú ferð ekki, sagði hún
veikum rómi, — þá get ég engu
lofað.
— Allt i lagi. Hann opnaði
dyrnar með hægð. — Góða nótt.
Elisabet.
— Góða nótt, Bill.
Hún stóð á dimmum útitröpp-
unum og horfði á rauð bakljósin
fjarlægjast niður hæðina milli
trjánna. Hún stóð kyrr og hlustaði
FIMMTUDAGUR2 . nóvember.
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15.
og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.) 9.00
og 10.00 Morgunbænkl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7 50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Liney Jóhannsdóttir
heldur áfram lestri þýð-
ingar sinnar á sögunni um
,,Húgó og Jósefinu” eftir
Mariu Gripe (5) Tilkynning-
ar kl. 9,30. Létt lög milli
liða. Þáttur um heilbrigðis-
inálkl. 10.25: Geðheilsa, I:
Gylfi Asmundsson sálfr.
svarar spurningunni :
,,Hvað er andleg heilbrigði”
Morgunpopp kl. 10.40: Leon
Russel syngur. Fréttir kl.
11.00. Hljómplötusafnið
(endurt. þáttur G.G.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna
14.15 Búnaðarþáttur. Vinir
Hrafna-Flóka, pistill eftir
Helga Haraldsson á Hrafn-
kelsstöðum. — Guðmundur
Jósafatsson frá Brandsstöð-
um flytur. (endurt.)
14.30 Bjallan hringir. Annar
þátturum skyldunámsstigið
i skólum. Móðurmáls-
kennsla. Umsjón hefur
Steinunn Harðardóttir.
15.00 Miðdcgistónleikar:
Gömul tónlist, Léontyne
Price og Placido Domingo
syngja ariur eftir Hándel.
Eugen Míiller-Dombois
lútuleikari, Heinz Friedrich
Hartig semballeikari og
Irmgard og Fritz Helmis
hörpuleikarar leika ásamt
Filharmoniusveit Berlinar
balletttónlist úr óperunni
„Almira” eftir Hándel; Wil-
helm Bruckner-Ríiggeberg
stj. Enrico Mainardi leikur
Einleikssvitu fyrir selló nr.
5 i c moll eftir Bach.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
16.25 Popphornið.Pétur Stein-
grimsson kynnir
17.10 Barnatimi: Soffia
Jakohsdótlir stjórnar. a.
Veturinn og börnin.
Frásagnir . þulur og sitt-
hvað fleira. Solveig
Halldórsdóttir og íris
Erlingsdóttir, 8 ára,les auk
Soffiu. b. Ctvarpssaga
barnanna: „Sagan hans
II jalta litla” eftir Stefán
Jónsson. Gisli Halldórsson
leikari les (5)
18.00 Létt lög. Tilkynningar
18,45 Veðurfregnir . Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Daglegt mál. Páll
Bjarnason menntaskóla-
kennari flytur þáttinn
19.25 Glugginn, Umsjónar-
menn Ágúst Guðmundsson,
Guðrún Helgadóttir og Gylfi
Gislason.
20.00 Frá vorhátiðinni i Prag i
mái s.t. Vlach-kvartettinn
leikur Strengjakvartett i a-
moll op . 51 nr. 2 eftir
Jóhannes Brahms, (Hljóð-
ritun frá tékkneska út-
varpinu.)
20.35 Leikritið: „Rosenbcrgs-
hjónin skulu ekki deyja”
eftir Alain Decaux;þýðandi:
Torfey Steinsdóttir. Leik-
stjóri: Gisli Halldórsson
Persónur og leikendur:
Július Rosenberg/Þorsteinn
Gunnarsson Ethel Rosen-
berg/Kristbjörg Kjeld
Dómarinn/Steindór
Hjörleifsson Verjand-
inn/Guðmundur Pálsson
Akærandinn/Jón Sigur-
björnsson Fréttamaður-
inn/Guðmundur Magnússon
David Greenglass/Sigurður
Karlsson Ruth Green-
glass/Hrönn Steingrims-
dóttir Tveir rikislögreglu-
menn/Rúrik Haraldsson og
Pétur Einarsson Max
Elitcher/Karl Guðmunds-
son McCarthy, öldungar-
deildarþingmaður/Helgi
Skúlason
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Reykja-
víkurpistill. Páll Heiðar
Jónsson leggur leið sina i
myndlistarsal SÚM og talar
viö Stefán Jónsson frá
Möðrudal.
22.45. Manstu eftir þessu?Tón-
listarþáttur i umsjá Guð-
mundar Jónssonar pianó-
leikara.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Akureyri
Iljólbarðaviðgerðir.
Iljólbarðasala.
Snjóneglum notaða og nýja hjólbarða.
Gúmmívi niiustofan BÓTIN
Hjalteyrargötu 1 Akureyri.
Simi 12025.