Þjóðviljinn - 29.12.1972, Page 16
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavfkur,
simi 18888.
Föstudagur 29. desember 1972
Lyfjaþjónusta apótekanna
vikuna 23.-29. des. er i
Ingólfsapóteki og i Laugar-
nesapóteki. Nætur- og helgi-
dagavarzla er i Ingólfs-
apóteki.
Slysavaröstofa
Borgarspitalans er opiq all-
an sólarhringinn. „
Kvöld-, nrétur og helgidaga-
vakl a heilsuvernarstöóinni.
Sími 21230.
Einörð
afstaða
Norður-
landa
vekur
athygli
PARIS 28/12 Leiðtogar
smárikjanna á Norðurlöndum
þora að segja það sem flestir
aðrirláta sér nægja að hugsa,
segir hið áhrifarika franska
blaö Le monde i dag um mót-
mæli leiðtoga á Norðurlöndum
gegn loftárásum Bandarikj-
anna á Norður-Vietnam.
Le monde segir ennfremur:
Hin heiftarlegu viðbrögð
Bandarikjastjórnar við
fordæmingu sænska forsætis-
ráðherrans á loftárásunum
sýnir glögglega hversu illa
stórveldin þola gagnrýni. Það
hefur komiö i ljós, að riki þarf
ekki að vera „stórt” til að hafa
kjark til að láta i ljós siðferði-
legar skoðanir. Stjórnir Dan-
merkur og Noregs hafa nú
tekið sömu afstöðu og Sviar,
þótt þær hafi ekki orðað af-
stöðu sina jafn skorinort.
Þetta er góð staðfesting á
friðarstefnu Noröurlanda,
sem orðin er erfðavenja og
einkennist af trú á ytri og
innri eindrægni og virðingu
fyrir sjálfstæði og fullveldi
annarra.
Þetta mikla hrós er i
forystugrein Le monde á for-
siðu. Blaðið segir að Norður-
löndin hafi áöur i verki sýnt,
að þeim sé alvara með þessari
stefnu. Það hafi þau gert með
stuðningi sinum við þróunar-
löndin og þjóðfrelsis-
hreyfingar i undirokuðum
iöndum.
Þessi kjarkmikla afstaða,
segir Le monde ennfremur,
leiðir til vissra óþæginda fyrir
Norðurlöndin vegna óvildar
Bandarikjast jórnar. En
Norðurlöndin mega lika vita,
það, að þau fá ekki aðeins
viðskotaillsku að launum fyrir
hreinskilni sina heldur einnig
virðingu. Slik virðing sé lika
miklu meira virði heldur en sú
varkára þögn, sem mörg riki
sýni, t.d. Frakkland. Margir
svokallaðir „vinir Bandarikj-
anna” afneiti sinni eigin
sannfæringu til þess að falla
ekki i ónáð hjá hinum volduga
bandamanni, Bandarikjunum.
Bandarikjamenn varpa yfir Norður-Vietnam
50 þúsund lestum af
sprengjum á 10 dögum
Saigon/Paris 28/12 — Logandi B-
52 sprengjuþota hrapaði til jarðar
i grennd við forsetahöllina i
Hanoi, og margir af áhöfn vélar-
innar fórust, segir i frétt frá ung-
versku fréttastofunni MTI i
kvöld.
Fréttaritari MTI i Hanoi sagði,
aö logandi brak úr þotunni hefði
dreifzt yfir þéttbýlt svæði i borg-
inni, Ba Dinh, þar sem forseta-
höllin er. Tvær B-52 sprengjuþot-
ur voru skotnar niður með eld-
flaugum og þrjár i viðbót af norð-
ur-vietnömskum orrustuþotum,
sagði fréttaritarinn.
Áframhaldandi
sprengjuregn
Sendinefnd Norður-Vietnama á
friðarfundinum i Paris sagði i
dag, að bandariskar sprengju-
flugvélar héldu áfram Ioftárásum
á Hanoi og Haiphong af sama
ákafanum og áður. Þetta liktist
ógnarlegum jarðskjálftum og
þúsundir borgara biðu bana i
þessum árásum.
Gifurlegt flugvélatjón
Loftvarnalið Norður-VIetnams
hefur skotið niður 71 bandariska
árásarflugvél, þar af 31 af gerð-
inni B-52 siðustu niu sólarhring-
ana, að sögn sendinefndarmanna.
Hér væru þó aðeins taldar þær
vélar, sem hrapað hefðu til jarðar
yfir Norður-Vietnam. Margar
fleiri vélar hefðu verið hæfðar
skotum og hrapað á ýmsum stöð-
um á bakaleiðinni til bækistöðva
sinna. Talsmaður nefndarinnar,
Nguyen Thanh, sagði að banda-
riskar flugvélar hefðu varpaö 50
þúsund lestum af sprengjum yfir
stærstu borgir Norður-Vietnam
siðan 18. desember.
Bandariska herstjórnin i
Saigon viðurkennir að 73 flug-
manna sé saknað eftir árásar-
ferðir til Norður-Vietnam siðast-
liðna viku. Tvær B-52 þotur hefðu
verið skotnar niður á miðviku-
dagskvöld og ein flutningaþyrla
yfir Laos. Hins vegar viðurkennir
hugsa um að hætta loftárásum
norðan 20. breiddarbaugs eftir
nokkra daga til þess að bæta horf-
urnar á friðarsamningum i Paris.
Það var einmitt af sömu ástæðu
sem Nixon ákvað að hefja hinar
heiftarlegu loftárásir á stórborgir
Norður-Vietnams að nýju hinn 18.
desember. Hann ætlaði að bæta
samningsaðstöðuna i Parisarvið-
ræðunum og hræða Norður-Viet-
nama til undanhalds.
Útkoman hefur hins vegar orðið
sú, að Norður-Vietnamar eru
aldrei ákveðnari en nú i þvi að
láta ekki undan ógnunum Banda-
rikjamanna, og bandariski flug-
herinn hefur goldið mikið afhroð i
loftárásunum.
Bandarisku risasprengjuþoturnar B-52 bera 30 lestir af sprengjum og
voru taldar óhuitar fyrir loftvörnum. En á síðustu 10 dögum hafa Norð-
ur-Vietnamar grandað 31 slikri flugvél.
herstjórnin aðeins að hafa misst
14 risasprengjuþotur siðan 18.
desember. Þrátt fyrir fréttir frá
fréttariturum og öðrum sjónar-
vottum i Hanoi, harðneitar
bandariska herstjórnin að
sprengjum hafi verið varpað á
ibúðarhverfi og sjúkrahús i borg-
um Norður-Vietnams.
Er Nixon að heykjast?
Dagblaðið Tin Song, málgagn
Saigon-stjórnar, heldur þvi fram i
dag, að Bandarikjamenn séu að
Vinnuslys
Vinnuslys varð við uppskipun
úr Rangá I Reykjavikurhöfn i
gær. Slitnuðu virar á uppskip-
unarhlera með þeim afleiðingum,
að hann datt á bryggjuna. Tveir
menn voru þar nálægir og urðu
fyrir vörunni, en þó ekki undir
henni. Féllu mennirnir við og
slösuðust nokkuð. Voru þeir flutt-
ir á sjúkrahús.
Danir ætla að veita
N-Vietnömum hjálp
KAUPMANNAHÖFN 28/12
— K.B. Andersen, utan-
ríkisráðherra Danmerkur
sagði í dag að stjórnin hefði
jákvæða afstöðu til þess að
senda Norður-Víetnam sér-
staka efnahagslega hjálp.
Svarti september
BANKOK 28/12 Fjórir félagar
úr sk ær u 1 iða sa m t öku m
Palestinu-Araba, Svarta
september, réðust i morgun inn i
sendiráð Israels i höfuðborg
Thailands. Tóku þeir a.m.k. 6
gisla og hótuðu að taka þá af lifi ef
arabiskum skæruliðum i Israel
yrði ekki sleppt úr fangelsi.
Thailandsstjórn reyndi að fá
skæruliðana til að sleppa gislun-
um og hét þeim frelsi i staðinn, en
seint á fimmtudagskvöld neituðu
skæruliðarnir að halda
samningaumræðum áfram. Aður
hafði þó verið tilkynnt i Bankok
að skæruliðarnir hefðu fallizt á að
sleppa gislunum, ef þeir fengju
sjálfir að fara frjálsir ferða sinna
úr landi.
AFGREIÐSLUBANN A
BANDARÍSKAR VÖRUR
KAUPMANNAIIÖFN 28/12 for-
maður danska vcrkalýðssam-
bandsins, Thomas Nielsen, hcfur
lagt fram tillögu um viðtækt
afgreiðslubann i Evrópu á
bandariskar vörur — eða að
minnsta kosti sameiginlega af-
stöðu Norðurlandaþjóðanna gegn
sprengjuárásum Bandarikjanna i
Norður-Vietnam.
Nielsen kvaðst ekki i vafa um,
að öll verkalýðshreyfing Evrópu
gæti sameinazt i andstöðunni
gegn loftárááum Bandarikja-
manna. Nielsen sagði i dag að að-
gerðir yrðu ræddar hinn 2. janúar
n.k. á fundi 15 fulltrúa verkalýðs-
sambandanna á Norðurlöndum,
EBE-landanna og Sviss og
Austurrikis. Til fundarins var
boðað i Kaupmannahöfn fyrir
löngu vegna 75 ára afmælis
verkalýðssambands Danmerkur.
Samstaða nauðsynleg
Danskir hafnarverkamenn
ræddu þessa tillögu á fundi sinum
i dag. Alit fundarins var það, að
viðtæk samstaða innan hinnar al-
þjóðlegu verkalýðshreyfingar
væri nauðsynleg, ef árangur ætti
að nást í þeim ásetningi að setja
afgreiðslubann á allar
bandariskar vörur.
Fundurinn samþykkti ályktun
þar sem skorað er á Verkalýðs-
sambandið að hefja þegar við-
ræður á alþjóðlegum grundvelli i
þvi skyni að koma á allsherjar-
banni á bandariskar vörur.
Formaður sænska verkalýðs-
sambandsins, Arne Geijer, sagði i
Stokkhólmi i dag, að alþjóðlegu
banni, eins og gert er ráð fyrir i
tillögu Nielsens, hefði aldrei
tekizt að koma i framkvæmd til
þessa. Kvaðst Geijer vantrúaður
á að allsherjareining fengist um
þetta i allri Vestur-Evrópu.
Ekki hafði frétzt um undirtektir
verkalýðssamtakanna á öðrum
Norðurlöndum en Danmörku og
Sviþjóð.
Þetta lét ráðherrann i
Ijósi á fundi með dönsku
Víetnam-hreyfingunni.
Hann vildi ekki nefna
neina upphæð, en viðmæl-
endur hans töldu að um
væri að ræða 3—5 miljónir
danskra króna.
I fréttaviðtali um nýárið sagði
Andersen, að um þessi áramót
einkenndist ástandið á alþjóða-
vettvangi af tveimur andstæðum
atriðum. 1 fyrsta lagi af sorg, ugg
og harmi vegna hinnar vanhugs-
uðu og tilgangslausu stefnu
Bandarikjamanna i Vietnam, og i
öðru lagi bjartsýni vegna vaxandi
friðar og samkomulags i Evrópu.
Andersen benti á, að það væri
rikasta og tækniþróaðasta riki
heims, Bandarikin, sem nú væri
með sprengjuregni að reyna að
ýta fátækustu þjóð veraldar út i
yztu neyð og hörmungar. Eina
lausnin er pólitisk lausn, samn-
ingar sem gefa Vietnam-þjóðinni
það frelsi sem hún hefur barizt
fyrir i 25 ár, sagði Andersen.
I þessu sama viðtali sagði And-
ersen, að Danir myndu halda
áfram að veita þjóðfrelsishreyf-
ingunum i portúgölsku nýlendun-
um i Afriku ■ mannúðlegan
stuðning. Hann sagði ennfremur,
að danska stjórnin hefði samband
við stjórn Norður-Kóreu, en eðli-
legast væri að Norðurlandaþjóð-
irnar tækju sameiginlega ákvörð-
un um stjórnmálasamband við
það riki.
Tunglgullið
bliknaði
HOUSTON 28/12 — Tungl-
grjótið sem tunglfararnir á
Apollo 17 höfðu með sér til
jarðar, mun að likindum gefa
góðar upplýsingar um tunglið
og sköpunarsögu þess.
Hið gullbjarta grjót, sem
svo fagurlega glóði á tunglinu
reyndist þó hafa allt annan lit
þegar til jarðar kom, og olli
það nokkrum vonbrigðum.
Ýmsir höfðu gert sér vonir um
að þetta grjót sannaði að elds-
umbrot hefðu átt sér stað á
tunglinu.
Grjótið reyndist vera ryð-
rautt á litinn, en forstöðumað-
ur jarðfræðideildar geim-
stofnunarinnar i Houston
sagði, að tvfmælalaust væri
þetta mikilvægasta grjót, sem
borizt hefði til þessa frá tungl-
inu. Sýnishornin ættu, að áliti
visindamannanna, að geta
breytt fyrri hugmyndum
manna um uppruna tunglsins.
USA-skip í bann í Ástralíu
SYDNEY 28/12 — Sjómannasam-
bandið i Astraliu tilkynnti i dag,
að það hefði ákveðið að setja af-
greiðslubann á öll skip, sem
kæmu frá Bandarikjunum eða
sigldu þangað. Þetta er gert til að
mótmæla loftárásum Banda-
rikjamanna á Norður-Vietnam.
Talsmaður Sjómannasam-
bandsins sagði, að Nixon hefði
verið sent skeyti með tilkynningu
um bannið og að það yrði i gildi
þar til loftárásum yrði hætt.