Þjóðviljinn - 30.12.1972, Qupperneq 4
4.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. desember 1972
F rímerkj asýning
í Reykjavík 1973
Hér með er auglýst eftir umsóknum um
þátttöku i samkeppnisdeild Frimerkja-
sýningarinnar Islandia 73, sem haldin
verður i myndlistarhúsinu á Miklatúni i
Reykjavík dagana 31. ágúst til 9. septem-
ber 1973.
Samkeppnisdeildinni verður skipt i eftir-
talda flokka:
1. Heildarsöfn islenzkra frimerkja
2. Söfn islenzkra frimerkja frá þvi fyrir
1900
3. Söfn islenzkra frimerkja frá siðustu
aldamótum
4. Sérsöfn og rannsóknarsöfn
5. Tegundasöfn
0. Æskulýðssöfn
Umsóknir á sérstökum eyðublöðum skulu
hafa borizt sýningarnefndinni fyrir 1.
marz 1973. Eyðublöð verða fáanleg á
flestum pósthúsum landsins og á skrif-
stofu sýningarnefndar i húsi Pósts og sima
við Austurvöll, svo og hjá frimerkjaverzl-
unum i Reykjavík.
Reykjavík, 28. desember 1972.
Framkvæmdastjórnin.
1 BORGARSPÍTALINN
Heimsóknartími
Frá og með 2. janúar 1973 verða heim-
sóknartimar i Borgarspitalanum i Foss-
vogi sem hér segir:
Mánudaga til föstudaga kl. 18.30-19.30
Laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-14.30
ogkl. 18.30-19.00
Heimsóknartimar geðdeildar i Hvita-
bandinu og hjúkrunar- og endurhæfingar-
deildar i Heilsuverndarstöðinni verða
óbreyttir.
Reykjavík, 28. desember 1972.
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar.
SKRIFSTOFU -
STIJLKA
Óskum eftir að ráða skirfstofustúlku,
nokkurra ára reynsla ásamt góðri ensku-
kunnáttu nauðsynleg, þýzkukunnátta
æskileg. Ráðning nú þegar eða eftir sam-
komulagi.
Þeim, sem eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu, er bent á
að hafa samband við starfsmannastjóra.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, Austurstræti, Reykjavík og bókabúð Oli-
vers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar eigi siðar en 5. janúar 1972 í póst-
hólf 244, Hafnarfirði.
ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ H.F.
STRAUMSVÍK
IÐNÞJÓNUSTAN S.E.
Sími 24911
ALHLIÐA FAGMANNSVINNA
Vöruhappdrœtti SIBS
Fleiri og hærri
vinningar
Nýtt starfsár Vöruhappdrættis
S.l.B.S. er að hefjast. Miklar
breytingar verða nú gerðar á
vinningaskrá happdrættisins, og
eru þær fólgnar i þvi, að vinning-
um fjölgar og þeir hækka veru-
lega. Meðalháum vinningum
fjölgar mcst. Sem dæmi má
nefna, að tiuþúsund króna vinn-
ingum fjölgar úr 500 i 1000;
e i 11hundraðþúsund króna
vinningum fjölgar úr 15 i 20; bætt
verður við vinningaskrána 12 tvö-
hundruðþúsund króna vinning-
um. og fim mhundruðþúsund
króna vinningum fjölgar úr 1 i 11.
i desember verður hæsti
vinningur ein miljón króna.
Lægsti vinningur verður 3. 000
krónur.
Eins og undanfarin ár verður
dreginn út aukavinningur i júni-
mánuði, og verður hann að þessu
sinni Range Rover bifreið ásamt
vönduðu hjólhýsi, með svefnrými
fyrir fimm manns.
Á siðasta ári (1972) seldust yfir
90 af hundraöi útgefinna miða i
happdrættinu, og hefur miðasala
stóraukizt i happdrættinu hin
siðari ár. Útgefnum miðum
verður ekki fjölgað um þessi ára-
mót, og má þvi búast við, að
miðar seljist nú upp i flestum um-
boðum landsins. Verð miðanna er
150 krónur á mánuði.
öllum hagnaði happdrættisins
er varið til að reisa og reka
endurh æf i ngarstöðvar og
öryrkjavinnustofur, en eins og
kunnugt er, rekur S.l.B.S. nú
þrjár slikar stöðvar: Reykjalund
i Mosfellssveit, Múlalund i
Reykjavik og litla vinnustofu i
Kristneshæli.
Um mitt ár 1971 hófust fram-
kvæmdir við mikla stækkun
Reykjalundar, og er áætlað að
ljúka þeim framkvæmdum á
árinu 1975. I meginatriðum eru
áformaður byggingafram-
kvæmdir þessar:
Stækkun aðalbyggingar, sem
gerir kleyft að fjölga vistmönnum
um 50. t kjallara þessarar við-
byggingar fær sjúkraþjálfunar-
deild stóraukið húsnæði. Þar
verður meðal annars stærri og
hagkvæmari sundlaug en áður
hefur verið að Reykjalundi,
ásamt viðeigandi búningsher-
bergjum og baðaðstöðu. A fyrstu
hæð hinnar nýju viðbyggingar
verða dagstofur, bókasafn og ies-
stofa, tvö anddyri, snyrting, fata-
geymslur o.fl.. Annað and-
dyranna verður þannig úr garði
gert, að inn- og útgangur verður
mjög greiður, og inn af þvi verður
lyfta upp á efri hæðirnar. Endan-
legur frágangur á hlaðinu fyrir
framan anddyrin verður einnig á
þann veg, að hljólastólaumferð
verður þar greið og óhindruð frá
sérstökum bilastæðum ætluðum
einkum þeim, sem i hjólastólum
eru, eða eru hindraðir til gangs.
Þá verður byggð hæð ofan á nú-
verandi skrifstofu- og geymslu-
húsnæði. Skrifstofur munu
flytjast þangað, en við þá ráð-
stöfun fæst húsnæði fyrir ýmsa
þætti endurhæfingar, sem ekki
hefur verið unnt að sinna hingað
til vegna skorts á húsnæði, svo
sem iðjuþjálfun og starfshæfnis-
prófanir.
Þá er vel á veg komin rúmlega
800 fermetra bygging, þar sem
röraframleiðslan verður til húsa
ásamt vörugeymslu.
Ýmsar aðrar endurbætur og
breytingar verða gerðar á húsa-
kosti heimilisins, þótt þær verði
eigi taldar hér.
Mikið hefur verið unnið á liðn-
um árum að frágangi og fegrun
umhverfis Reykjalundar, m.a.
lagðar götur úr varanlegu efni
meðfram smáhýsum, sett þar
lýsing, ræktað svæðið fyrir
framan vinnuskálana og gróður-
sett hundruð trjáa og runna. Þó
hefur ýmis frágangur utanhúss af
eðlilegum ástæðum orðið að biða,
þar til byggingaframkvæmdir
eru komnar betur á veg, en
gengið verður endanlega írá um-
hverfi húsa, akbrautum og bila-
stæðum jafnóðum og byggingar
eru fullgerðar.
Geðverndarfélag íslands tekur
þátt i byggingaframkvæmdum
Frh. á bls. 15
þú vaknar
hressari
í fyrramálid
Hættu
ad reykja
strax f dag,