Þjóðviljinn - 30.12.1972, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.12.1972, Blaðsíða 5
Laugardagur :t<). desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 innlend Dœgurlaga keppni á Sauðárkróki Sauðárkróki, 29/12 — Hér hefur alltaf verið mikið um sprell á gamlárskvöld og verður vart brugðið út af þeim vana, sagði Hreinn Sigurðs- son, fréttaritari blaðsins. Þá hefur orðið samkomulag um að reisa stóra brennu uppi á Nöfunum og sameina alla krafta að þessari stóru brennu i staðinn fyrir að skiptast nið- ur i smáhópa og standa að mörgum smábrennum eins og stundum er gert hér á gaml- árskvöld. Mikill dansleikur verður haldinná gamlárskvöld. Siðan er efnt til dægurlagakeppni á vegum kvenfélagsins á nýárs- dag og þá leikin ný lög er sér- stakri nefnd hefur borizt frá þvi i haust. Er þetta orðin fastur siður hér undanfarin ár. Hafa sum lögin náð vinsæld- um i landinu svo sem lag eftir Geirmund Valtýsson — „Biddu min.” Hér hafa verið rauð jól og er ennþá auð jörð og stafalogn með eilitlu frosti. Hjónaklúbbar og flugeldar Grindavfk, 29/12 — Þrjár brennur verða i útjaðri kaup- túnsins á gamlárskvöld og hafa strákar verið að safna i þessar brennur, sagði Guð- finnur Bergsson, lögreglu- varðstjóri. Nýtt félagsheimili var opn- að hér i haust, en ekki verður dansleikur á gamlárskvöld. Vilja menn sitja heima. Hins vegar sjá hjónaklúbbar um dansleik á nýársdag og er bú- izt þar við fjöri hjá ungum sem öldnum. Litið er um sprell á gamlárskvöld utan flugeldar er liða upp á himin- inn i ró og spekt. Aður fyrr voru hér tið sprell um áramót- in, en þau hafa verið lögð nið- ur og er það vel, sagði Guð- finnur. Tveir linubátar eru á sjó i dag. Hefur verið treg veiði hjá Grindavikurbátum og gæftir stirðar. Eldiviðarköstur í litilli eyju Höfn i Hornafirði, 29/12 — Hér er ætið ein stór brenna á gamlárskvöld og er reist i eyju framan af þorpinu. Heitir eyj- ar ósland og er nú orðin land- föst. Hafa strákar verið að safna eldiviði að undanförnu, sagði Benedikt Þorsteinsson, fréttaritari blaðsins. Meðal annars er þar kominn gamall nótabátur og nokkuð af timbri i bátinn. Tveir dansleikir eru hér ætið á gamlárskvöld, — annar i fé- lagsheimilinu Sindrabæ og hinn haldinn i hótelinu. Er heldur ráðsettara og eldra fólk á hótelinu. A nýársdag hafa menn hægt um sig og sofa úr sér dansgleðina. Leikfélag Hornafjarðar sýn ir nú Gullna hliðið undir leik- stjórn Kristjáns Jónssonar. Hafa verið sýndar þrjár leik- sýningar fyrir fullu húsi og nú á að sýna fjórða sinn i kvöld. Kerlingu leikur Sigrún Eiriks- dóttir og Jón bónda leikur Gisli Arason. Brennan fyrir ofan Krókinn Flateyri, 28/12-— Hér er allt á kafi i snjó og ófærð á götum þorpsins. Heyrt hef ég að fyr- i nær hverju kauptúni á landinu logar glatt i brennum á gamlárskvöid. irtækið Hjálmur ætli að standa fyrir áramótabrennu i hliðinni fyrir ofan kirkjugarðinn. Hér sukku þrjár trillur i sumar og voru dregnar á þurrt. Stendur til að brenna þessa báta ásamt öðrum eldivið, sagði Þórður Gislason, sveitarstjóri. Hins vegar verður erfitt að flytja þá meðan frá bryggjunni i þess- ari ófærð. Þá verður áramóta- dansleikur i samkomuhúsinu að venju. Jólaverzlun var sæmileg hér hjá kaupmönnum og kaupfélagi. Gæftir hafa verið stirðar að undanförnu og hefur afli verið rýr hjá Flateyrar-og Þingeyr- arbátum borið saman við ná- grannafirði. Nú nota þessir bátar sömu smokkbeitu. Búið er að leggja bátnum Asgeiri Torfasyni vegna manneklu. Hins vegar róa héðan 4 bátar i vetur. Áramótagleði á Þrettánda Akranesi, 28/12—Aramóta- gleði fer aðallega fram á iþróttavellinum á þrettándan- um. Standa þá skátar fyrir brennu og álfadansi. Fjöl- mennir fólk i álfabúningum og gamla árið kvatt i tötrum búnu gamalmenni og nýju ári heilsað með bjartri álfamey, sagði Bjarnfriður Leósdóttir. Á gamlárskvöld er haldinn unglingadansleikur á hótelinu og fullorðna fólkið fer á dans- leik á nýársdag. Þá kveikja strákar i smábrennum siðasta kvöld ársins. Hér eru hvit jól og gott skiðafæri. Hins vegar er litið um skiðafólk á Akranesi. Skátar hafa verið i útilegu i Skarðsheiði. Mikil byggingarvinna hefur verið hér i haust. Hins vegar hafa verið miklar ógæftir sið- ustu daga. Hafa bátar róið lit- ið og jafnvel skortur á neyzlu fiski. Aðalbrennan í Olafsvíkurenni ólafsvik, 28/12 — Þrjú brennuleyfi hafa verið veitt hér i plássinu, sagði Guð- brandur Guðbjartsson, hrepp- stjóri á staðnum. Aðalbrennan er fyrir ofan kauptúnið á svonefndum Bekk i Enninu og sést vel til hennar að venju. Þá er haldinn dans- leikur i félagsheimilinu eftir miðnætti og stendur fram eftir nóttu. Gæftir hafa verið stirðar i nóvember og desember og bátar vart farið á sjó. 1 dag er Auðbjörgin ein á sjó, sagði Guðbrandur. Við fáum svona fisk i soðið. Mikill hugur er hér fyrir vertiðina og fjölgar bátum um þrjá á næstu vertið. Hafa bræðurnir Guðmundur og Gunnar Jónassynir keypt bát- inn Feng frá Þorlákshöfn, þá hefur Hörður Guðmundsson keypt bát frá Hornafirði og i fyrrasumar var Bliki keyptur frá Kópavogi. Eru þetta 40 til ' 60 tonna bátar. Um 19 dekk- bátar yfir 20 tonn og 6 trillu- dekkbátar 8 til 10-tonn verða gerðir út á næstu vertið Dansað i nýju félagsheimili Húsavik, 29/12 — Hér eru núna hvit jól. Stafalogn og lit- ilsháttar snjókoma og ákaf- lega notalegt veður, sagði Haukur Harðarson, bæjar- stjóri. Aðdrættir eru nú i fullum gangi i stóra brennu norðan við kaupstaðinn. Þá verður áramótadansleikur á gaml- árskvöld i nýju félagsheimili i miðjum bænum. Er verið að opna þetta félagsheimili til notkunar. Stirðar gæftir hafa verið hjá Húsavikurbátum að undan- förnu og litið farið á sjó. Bandalag kvenna um uppeldis- og skólamál: Dagheimilum fjölgi og bann aðir séu leikir á götunni Aðalfundur Bandalags kvenna i Keykjavik i nóv. sl. skoraði á yfirvöld Reykjavíkurborgar að fjölga verulega gæzluvöllum og dagvistunarstofnunum borgar- innar. Bent var á, að heildarþörfin á auknu dagvistunarrými fyrir börn er á milli 3200 — 3800 sé lagt til grundvallar eigið mat kvenna, eins og það birtist i könnun Þorbjarnar Broddasonar lektors, og er hlutfallið milli einstakra tegunda stofnana: 1/10 dag- vöggustofurými, 1/5 dagheimila- rými, 2/5 leikskólarými og 3/10 skóladagheimilarými. Beint er til borgaryfirvalda, hvort ekki sé timabært að banna foreldrum og forráðamönnum barna að láta ung börn sin til leikja á götuna og forráðamenn áminntir um hættuna, sem þeir stofna börnum i með þessu móti. Skorað er á barnaverndarnefnd Rvikur að birta sem oftast i fjöl- miðlum áminningar um löglegan útivistartima barna og þökkuð aukin umferðargæzla við skólana. Þeim tilmælum er beint til Félags einstæðra foreldra að gangast fyrir álmennri fræðslu foreldra. Lýst var yfir ánægju með fram- komið frumvarp um að Fóstru- skóli tslands verði rikisskóli og með frumvarp um hlutdeild rikis- ins i byggingu og rekstri dag- vistunarheimila. Beint var til borgaryfirvalda að byggja einfaldari og ódýrari dag- vistunarstofnanir og bent á, hvort ekki mætti bæta úr brýnustu þörf með að taka á leigu eða kaupa húsnæði i eldri hverfum borgar- innar. Til heilbrigðismálaráðuneytis- ins var beint þeirri áskorun að sjá hið bráðasta fyrir dag- og vist- heimili fyrir taugaveikluð börn og til sjóðsstjórnar heimilissjóðs taugaveiklaðra barna að koma til hjálpar t.d. með húsakaupum, þar eð peningar rýrna, en safnað hefur verið i þennan sjóð árum saman. Skorað var á borgaryfirvöld að hlutast til um stofnun heilsu- gæzlustöðva fyrir ungbörn i út- hverfum borgarinnar (Fossvogi og Breiðholti III). Bent var á nauösyn þess, að opnunar- og lokunartimi leikskóla væri sveigjanlegri vegna breyti- legs vinnutima fólks og þess ein- dregið óskað, að leikskólum og dagheimilum borgarinnar verði ekki lokað meðan starfslið þeirra tekur sumarleyfi. Lýst var yfir stuðningi við stefnu borgar- yfirvalda i skóladagheimila- málum og bent á nauðsyn þess, að þeim verði fjölgað. Skorað var á viðkomandi yfir- völd að breyta reglum um öku- skírteini þannig, að þau verði að endurnýja á árs fresti frá 17 ára aldri til tvitugs, þar sem fram kemur i umferðarskýrslum, að tiltölulega margir tjónvaldar eru á þessum aldri. Að lokum er i ályktunum bandalagsins um uppeldis- og skólamál bent á, að verkmenntun þjóðarinnar hafi ekki verið nægi- legur sómi sýndur og iðnnám dregizt saman. Iðnmenntun og tækninám þurfi að breytast svo þaðsamræmist kröfum nútimans og verði uppvaxandi æsku eftir- sóknarvert ekki siður en aðrar menntabrautir. Iðnskólar verði rikisskólar, lúti sömu stjórn, og nám verði það sama i þeim, hvar sem er á landinu. Getnaðarvarnaherferð á. Indlandi Stjórnvöld hafa um nokkra hrfð háð niikinn áróður fyrir takmörkun harneigna, en ekki hefur hann borið þann árangur að skipti sköpuin. Myndin sýnir stöð seni Norðinenn reka á lndlandi — á plakatinu er áróður fyrir þvi á hindi, að hver fjölskvlda láti sér nægja tvö börn. Þar hiða menn eftir upplýsingum eða jafnvel eftir aðgerð sem gerir þá ófrjóa.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.