Þjóðviljinn - 30.12.1972, Qupperneq 7
ÞJÖÐVILJINN — SJÐA 7
w
t öllum þeim fjórum lýðveldum
sem hér um ræðir,Hvitarússlandi,
Litháen, Lettlandi og Eistlandi
starfar Visindaakademia. t
Hvitarússlandi einu starfa 178
visindastofnanir, og alls starfa á
sviði visinda og æðri menntunar
um 50 þúsund manns, þeirra á
meðal 6 þúsund doktorar og kand-
idatar (menn sem hafa lokið
akademíunnar, segir að tengsli
við framleiðsluna hafi mjög ýtt
undir þróun visinda i lýðveldinu.
Hann minnir á, að enda þótt menn
hefðu gefið háleiðnifyrirbærum
gaum þegar á sl. öld væri tiltölu-
lega stutt siðan sovézkum og
bandariskum visindamönnum
tókst að gera grein fyrir þeim
sem skyldi. Með þvi opnuðust við-
i visindaslöð i Kistlandi.
Um vísindastarfsemi
framhaldsnámi við háskóla). En
ibúar landsins eru 9.1 miljón.
Hvitrússneskir visindamenn eiga
náið samstarf við starfsbræður
sina i öðrum hlutum Sovétrikj-
anna, og gildir það að sjálfsögðu
um visindastarf i öllum hlutum
landsins. Hafa þeir lagt drjúgan
skerf til lausnar mála er varða
atvinnulif rikisins.
Hvitarússland var áður van-
þróað „kartöfluland”, en er nú i
fyrsta sæti i landinu i framleiðslu
á tölvum og i öðru sæti i fram-
leiðslu vörubifreiða, sem eru allt
að 120 smál. Þetta eru nýjar iðn-
greinar fyrir landsmenn eins og
efnaiðnaður, viðtækjasmiði og
oliuvinnsla. Meðlimur Aka-
demiunnar, N. Erúgín, hefur ný-
lega gert grein fyrir þróun eðlis-
fræðirannsókna i lýðveldinu. Þar
eru menn einkum framsæknir á
sviði ljósfræði og gefa út sérhæft
timarit um þau efni fyrir allt
rikið. Mikið og vel er unnið að
rannsóknum á lasergeislum.
Mikil stærðfræðivinna er unnin
að þvi að mata tölvur af gerðinni
Minsk, en þær eru útbreiddastar
allra sovézkra tölvutegunda.
EUifræðingar Hvitarússlands
hafa komizt að þeirri merku stað-
reynd, að málmamagn likamans
eykst eftir þvi sem árin færast
yfir menn. Þetta opnar að likind-
um möguleika á að berjast við elli
með þvi að fjarlægja reglulega úr
likamanum málma sem þar
setjast til.
1 Litháen starfa 10 þúsund
manns að visindum (ibúafjöldi er
3.2 miljónir), i Lettlandi meira en
9 þús. (ibúar 2,4 milj.) og i Eist-
landi 5 þús. (ibúar eru 1,4 milj.)
Fyrir strið störfuðu t.d. i Litháen
400 visindamenn.
Alþekktar eru rannsóknir lithá-
iskra visindamanna á sviði eðlis-
fræði, stærðfræði, rafefnafræði,
stjórnunarfræði.
Poziela, varaforseti litháísku
tækir möguleikar á gerð leiðara
sem þola mikinn hita. Þá eru
hátiðnibylgjur mikið notaðar i
hvers kyns fjarskiptatækni, jafnt
við siglingar, flugumferð og
geimferðir. Hátiðnibylgjur eiga
og mikla framtið fyrir sér i þá
veru að auka starfshraða tölva.
Eðlisfræðistofnun Litháens
hefur unnið árangursrikt starf á
sviði hitunar rafeinda i hálf-
leiðurum með sterku hátiðniraf-
sviði. Nokkur þúsund volt geta
t.d. hitað rafeindir á einum senti-
metra i germanium eða kisil um
meira en 2000 gráður enda þótt
sjálfur krystallinn haldi stofuhita
og gerist þetta á miljarðasta parti
úr sekúndu.
Möguleiki á þvi að gera hátiðni
hálfleiðara, segir Poziela, mun
hafa i för með sér ekki minni bylt-
ingu i tækni og daglegu lifi en
uppgötvun transistora á sinum
tima. Hann telur vist að samstarf
litháiskra visindamanna við
starfsbræður i Leningrad,
Moskvu og Novosibirsk muni
tryggja farsæla lausn þess máls.
Litháískir verkfræðingar hafa
unnið frábært starf fyrir iðnað
lýðveldisins. Það er miðað við
fólksfjölda fremst i landinu i
framleiðslu rennibekkja, sér
næstum þvi öllu landinu fyrir
vissum tækjum eins og t.d. raf-
mælum. Þá er lýðveldið og
framarlega á sviði rafsuðutækni,
skipasmiða og er að byrja á oliu-
hreinsun. Raforkuframleiðslan
kemst upp i 11 miljarði kvtstunda
1975.
Undir Akademiu Lettlands
heyra 14 stórar visindastofnanir.
Þar fást menn við merk vanda-
mál eins og t.d. könnun jarðfræði-
legrar byggingar hafsbotnsins og
þeirra lögmála sem ráða dreif-
ingu nytsamra jarðefna á hafs-
botni.
Við Eðlisfræðistofnunina
starfar sérhæfð hönnunarskrif-
stofa sem býr til nýjan útbúnað
fyrir málmbræðslu. Þar eru og
gerðar rafseguldælur til að dæla
iljótandi málmum og er hér um
mjög efnilegt starfssvið að ræða.
Rannsóknir visindamannsins
U. Úlmanisar hafa sýnt, að
geislun breytir eigindum hálf-
leiðaratækja. Gölluðum og
ónákvæmum transistorum má
gefa vissan skammt af hröðum
nevtrónum og færa þá i rétt lag
með þvi móti. Þetta skiptir miklu
útvarpstækjaiðnað Lettlands, en
þar er fimmta hvert transistor-
tæki i landinu framleitt.
Þekkt eru i visindaheiminum
störf Stofnunar lifrænnar synt-
esu, sem Solomon Geller
stjórnar. Þar eru sett saman lyf
gegn veirusjúkdómum, berklum
og krampa. Lyfjaiðnaðurinn er
þegar farinn að framleiða lyf sem
stofnunin hefur búið til gegn
krabbameini.
Rafeinda- og tölustofnun lett-
nesku akademíunnar (F. Krogius
o.fl.) hefur m.a. sýnt fram á að
hægt er að nota aðferðir stjórn-
fræði og tölvur til að spá um stærð
fiskitorfa, reikna út heppilega
nýtingu fiskistofna.
Starfsmenn lifefnastofu Fiski-
málastofnunarinnar i Rigu hafa
leyst það verkefni að ala upp
styrju og laxategundir i gervi-
vötnum. Þeir hafa fundið fæðu
sem tryggir það, að seiðin verða
7-10 grömm yfir sumarið og ná
þeim þroska á tólf mánuðum að
hægt er að hleypa þeim i sjó — en
það er helmingi styttri timi en
venjulegt er. Hér við bætist að i
sjó heldur fiskurinn áfram að
vaxa með sama hraða og i eldis-
stöðinni. Arið 1971 ólu lettneskar
fiskiræktarstöðvar upp h.u.b.
hálfa miljón laxa. 100 þúsund
styrjuseiði frá Kaspiahafi hafa
setzt að i vötnum Eystrasalts-
landa og i Eystrasalti sjálfu á sl.
árum sem og seiði frá ám Sibiriu
og Bækalvatni. Styrjurnar hafa á
4-6 árum lagað sig fyllilega að
nýjum aðstæðum.
A. Veimer, forseti Akademiu
Eistlands, skýrir svo frá, að i
lýðveldinu starfi rúmlega 70
visindastofnanir. Helztu
menntam iðstöðvar eru Há-
skólinn i Tartu og Verkfræði-
skólinn i Tallin. Eitt helzta við-
fangsefni eistneskra visinda-
manna er hagnýting oliuleirs
þess, sem er verðmætasta jarð-
efni landsins. Úr honum eru unnin
ýmisleg efni — tjörutegundir,
sýrur, efni sem örva vöxt jurta
o.fl. Auk þess er mikið unnið á
sviði stjórnfræði, eðlisfræði,
dýrafræði, grasafræði.tölvusmið-
Úr oliuleir er nýlega byrjað aö
framleiða efni sem heitir nerosin
og kemur að miklu gagni við að
hefta sandfok og uppblástur i
Mið-Asiu.
A þessu ári eru 12 miljarðar
kvtstunda raforku framleiddar i
Eistlandi. Þar er háþróuð raf-
lækjasmiði og rafeindatækni.
Eðlis- og stjarnfræðistofnunin i
Tartu vinnur mikið starf, allt frá
kerfun öreinda til athuguna á
þróun vetrarbrauta. Yfirmaður
hennar, Herald Keres, hefur
komizt að frumlegum niður-
stöðum, sem dýpka skilning
manna á afstæðiskenningu Ein-
steins. Stór hópur fræðimanna
vinnur þar undir stjórn Karls
Rebane að smiði krystalla með
fyrirfram ákveðnum eigindum —
koma þeir að miklum notum við
lasertækni, hálfleiðara, háleiðara
og tölvur.
Forseti Akademúmnar sagði,
að visindastofnanirnar ættu fasta
viðskiptavini meðal framleiðslu-
lyrirtækja og annarra hagnýtra
stofnana. Til dæmis hefur
„hreinni” fræðastofnun eins og
Eðlisfræðistofnuninni verið falið
að gera sjálfvirkan útbúnað, sem
finnur sérstæðar hreyfingar i
jarðskorpunni, sem fara á undan
jarðskjálftum. Hefur slikur út-
búnaður að sjálfsögöu mikla þýð-
ingu fyrir jarðskjálftasvæði
landsins, þar eð viðvörun um
aðsteðjandi hættu getur að sjálf-
sögðu bjargað mannslifum og
verðmætum.
APN.
ífyrstd sinn eftir menningarbyltingu:
Kínverjar skopast
að eigin ávirðingum
i fyrsta sinn síðan í
menningarbyltingu hafa
ibúar Peking fengið
kabarettsýningar, þar sem
gert er gys að vissum
stjórnarstofnunum — í
fremur varkáru formi þó.
Þar má til dæmis sjá senu þar
sem simastúlka ein „þjónar
fólkinu” með þvi að setja ai-
menning i samband við skriffinna
þá sem vilja halda sér einangruð-
um frá fjöldanum.
Aðrir leikarar gera gys að allri
þeirri lygilega stóru hrúgu af
eyðublöðum sem menn verða að
útfylla i Kina i dag.
Sýningin heitir „Byltingar-
senur” og er hún flutt i litlu leik-
húsi skammt frá Markaði
austanvinda i Peking.
Erlendir Kinverjar, sem hafa
komið á sýningar þessar þegar
þeir heimsóttu Peking, hafa skýrt
sér þvi, að áhorfendur skemmti
sér hið bezta og hlægi mjög
hjartanlega að grininu um
skriffinnana.
— Þetta er einskonar kabarett
segja þeir, með söngvum, döns-
um og skopi um heimsvaldasinna
og Sovétrikin, en einnig um ýmsa
þætti i stjórnsýslu heima fyrir.
Það skop lýtur einkum að eyðu-
blaðaæðinu og þvi hve erfitt sé að
komast i samband við embættis-
menn .
1 einu atriði kvartar ung söng-
kona yfir þvi að hún eigi þegar
fjögur börn, enda þótt hún sé
aðeins 24 ára að aldri. Þessu
atriði er ætlað að flytja áróður
fyrir getnaðarvörnum.
Sérlega vel lukkað er atriði sem
sýnir þrjá bandariska hers-
höfðingja i Vietnam sem rifast sin
á milli um það, hvort það sé land-
her, flugher eða flotinn sem hafi
tapað striðinu og fara siðan i hár
saman út af öllu saman.
Útlendingar, sem hafa reynt að
kaupa miða á sýningu þessa, hafa
rekizt á óvinnandi vegg kin-
verskrar skriffinnsku.
Þeim er sagt, að þeir verði að
panta miða sina i stofnun þeirri
sem sér um þjónustu ýmislega
við útlendinga, og i þeirri stofnun
er þvi jafnan fram haldið, að allir
miðar séu uppseldir.