Þjóðviljinn - 30.12.1972, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. desember 1972
SKRIFSTOFUR
okkar verða lokaðar
þriðjudaginn 2. janúar 1973 vegna ára-
mótauppgjörs.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26B'44
V inningsnúmerin:
R- 13959 Hornet SST
X- 686 Peugeot 304
R' 25869 Datsun 1200
Ó- 205 VW 1300
Happdrætti Styrktarfélags
vangefinn^.
Rafveita Hafnarfjarðar
óskar að ráða fulltrúa I til starfa nú þegar.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Raf-
veitunnar.
Rafveita Hafnarfjarðar.
Flugfreyjur
LOFTLEIÐIR H.F. ætla frá og meö maímánuði 1973
að ráða allmargar nýjar flugfreyjur og flugþjóna
til starfa. í sambandi við væntanlegar umsóknir,
skal eftirfarandi tekið fram:
1. Umsækjendur séu — eða verði 20 ára fyrir 1. júlí 1973
og ekki eldri en 26 ára. Þeir hafi góða almenna menntun,
gott vald á ensku og öðru erlendu tungumáli, helzt þýzku,
frönsku eða Norðurlandamáll.
2. Líkamsþyngd svari til hæðar.
3. Umsækjendur séu reiðubúnir að sækja kvöldnámskelð í
febrúar/marz n.k. (ca. 5 vikur) og ganga undir hæfnispróf
að því loknu.
4. Á umsóknareyðublöðum sé þess greinilega getið, hvort
viðkomandi sæki um starfið til lengri eða skemmri tíma.
5. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
6. Umsóknir um endurráðningu flugfreyja, sem áður hafa
starfað hjá félaginu, skulu hafa borlzt starfsmannahaldi
fyrir 7. janúar n.k.
7. Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu félagsins, Vesturgötu 2
og Reykjavikurflugvelli, svo og hjá umboðsmönnum úti um
land, og skulu hafa borizt starfsmannahaldi, Reykjavíkur-
flugvelli, fyrir 7. janúar n.k.
LITLI
GLLGGINN
Jörn Birkeholm:
HJÁLP
Það er fíll
undir rúminu mínu
Það byrjaði að lýsa af degi. Það
var enn hvasst og nú gekk hann líka
á með skúrum.
„Það verður bráðum orðið bjart,"
sagði Nikulás önugur. ,,Við verðum
að reyna aftur við fílskömmina."
Síðan fóru þeir niður í kjallarann
og reyndu á ný. Þeir veltu fílnum á
hrygginn, svo fæturnir stóðu beint
upp í loftið, til að vita hvort það
gengi betur þannig. Það gerði það
ekki. Það var aldeilis útilokað að
fíllinn kæmist innum litlu kjallara-
dyrnar.
Herra Nikulás var farinn að verða
hræddur. Það var bráðum kominn
morgunn og það var ekki skemmti-
legt að sjást í kjallaranum i húsi
Diðriks bakarameistara með fíl.
,,Hvað eigum við að gera við
þennan árans fíl?" Þrumaði hann.
,,Við getum ekki staðið hér næstu
tvær vikurnar yfir fíl. Ég er viss um
að herra Diðrik þolir ekki fila. Við
neyðumst víst til að koma honum
einhvers staðar af okkur. Þú skalt
ekki vera leiður yfir því úrsus. Við
stelum þá bara einhverju öðru."
,,Ég veit hvað við getum gert",
sagði úrsus. „Við getum borið hann
upp til herra Grepps. Hann er dýra-
vinur og hann verður ábyggilega
góður við hann. Á eftir getum við
hjólað út og stolið öðrum fíl."
Þcssa mynd sendi Guðjón Simonarson, 8 ára, okkur. Við þökkum Guðjóni fyrir.
Áskorun Bandalags kvenna:
Kvölddagskrá sé
felld niðurl7.
juní
Rvík
Bandalag kvenna i Reykjavík hefur skorað á
borgarráð og þjóðhátíðarnefnd að fella niður kvöld-
dagskrá á þjóðhátiðardaginn 17. júni, að fenginni
reynslu undanfarinna ára.
Áskorunin er liður i samþykkt
aðalfundar bandalagsins um
áfengismál, en i henni er einnig
tekið undir samþykkt landsþings
Kvenréttindafélagsins, að öll sala
ÁTVR á áfengi verði bundin við
nafnskirteini, auk þess sem minnt
er á nauðsyn þess að herða eftirlit
með smygli á áfengi og sölu þess.
Þá taldi aðalfundurinn, sem
haldinn var fyrstu helgina i nóv
ember, nauðsynlegt að koma
upp fleiri vistheimilum fyrir
drykkjusjúklinga, konur ekki
siður en karla, og hjálpa þessu
fólki að eignast eigið heimili og
komast aftur til eðlilegra
lifnaðarhátta að lækningameð-
ferð lokinni, en kostnaður verði
greiddur úr rikissjóði.
Skorað var á landsmenn að
hagnýta berjafeng til heimilis-
þarfa, en selja hann ekki Áfengis-
verzluninni til blöndunar i áfenga
drykki. Og að lokum var skorað á
fólk, sem hefur áfengi um hönd i
heimahúsum, að gæta þess, að
börn og unglingar hafi ekki
aðgang að áfengisbirgðum.