Þjóðviljinn - 30.01.1973, Page 1
(RO
Maður
skotinn
til bana
Sá atburður gerðist á Höfn i
Hornafirði á sunnudags-
morgun að Stefán Egilsson,
32ja ára, var skotinn til bana.
Banamaður Stefáns, sem var
drukkinn er atburðurinn átti
sér stað, var strax handtekinn
og siðan fluttur til Reykjavik-
ur, þar sem málið verður tekið
til rannsóknar.
Banamaöur Stefáns skaut
tveimur skotum úr hagla-
byssu, og lézt Stefán sam-
stundis. Stefán var ókvæntur.
Einar Agústsson
utanrikisráðherra:
Hart að hafa
erlent fólk í
íbúðum
þegarsvona
stendur á
1 viðtali við útvarpið i gærkvöld
sagði Einar Agústson utanrikis-
ráðherra aö utanrikisráðuneytiö
heföi ekki enn fengið bréf bæjar-
stjórnar Keflavikur varðandi
rýmingu húsnæðis þess sem
Amerikumenn dvelja i þar i bæ,
svo hægt veröi að hýsa Eyjamenn
i Keflavik.
Um erindi Keflvikinga sagði
Einar m.a. eitthvað á þessa leið:
Hugmyndin er ekki óeðlileg i
þessum erfiðleikum. Þaö er hart
að horfa upp á að erlent fólk sé i
ibúðum þegar svona stendur á hjá
okkur.
Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar, aö þeir erlendu menn
og fjölskyldur þeirra, sem hér
dvelja á vegum „Varnaliðsins”,
eigi að vera i húsnæði á þess veg-
um.
Miklar sprengingar í gígnum í gœr
Búið að tæma nær öll
hús austan Skólavegar
Frá fréttamanni Þjóðviljans i
Vestmannaeyjum, Sigurdóri
Sigurdórssyni, i gærkvöld :
Vindur snerist
Heldur skánaði ástandið hér i
Vestmannaeyjum eftir hádegi i
dag. Vindur hafði verið suðaustan
frá þvi i nótt er leið, en um kl. 2
snerist hann eins og hendi væri
veifað i hreina sunnanátt, um leið
tók öskufalliö af bænum svo og
reykjarmökkinn. Með þessari
sunnanátt birti til og gerði hið
bezta veður, og vona auðvitað all-
ir að þetta góðviðri haldist eitt-
hvað, svo menn losni við öskufall-
ið meðan unnið er að björgun úr
húsum i bænum, en öskufallið og
gjallregnið gerir mönnum mjög
erfitt fyrir.
Enn brenna hús
Eldur kviknaði i einu húsi aust-
arlega i bænum um hádegi i dag,
og einnig var greinilegt að annað
hús var að brenna undir öskunni.
Ég skoðaði austurbæinn eftir að
vindáttin breyttist. Enn hafa
nokkur hús sokkið i ösku. Þá er
kirkjugarðurinn algjörlega kom
Krh. á bls. 15 Búslóöin komin út og biður þess að verða sett i gám
Ólafur Jóhannesson, forsœtisráðherra á alþingi í gœr
Byggja verður á heildar-
átaki allrar þjóðarinnar
Tillaga forsætisráðherra vegna jarðeldanna samþykkt samhljóða
40 ár frá
valdatöku Hitlers
1 dag, 30. janúar eru 40 ár liðin
frá valdatöku Hitlers og rikis-
stjórnar nazista i Þýzkalandi. 1
þessu tilefni mun Þjóðviljinn
birta einhvern næstu daga grein
um upphaf nazismans, eftir
Sverri Kristjánsson sagnfræðing.
Ríkisst jórnin hefur
ákveðiö að leggja sérstakt
frumvarp fyrir nefnd þá er
alþingi kaus i gær um ráö-
stafanir vegna jarðeldanna
i Eyjum. I frumvarpi þessu
er gert ráð fyrir þvi að
kauphækkun þeirri sem
t gær var afgreidd i Sameinuðu
þingisem ályktun alþingis tiilaga
frá forsætisráöherra um ncyðar-
ráðstafanir vegna jarðelda i
Hei maey. Var tillagan samþykkt
samhijóða á þingfundinum og er
endanieg gerð tillögunnar birt á 3.
siðu biaösins i dag.
Forsætisráðherra flutti til-
löguna og mælti fyrir henni. Hann
rakti tjón það sem oröið er I Eyj-
um fyrir þjóðarheildina, einstak-
linga og sveitarfélagið i Eyjum.
koma átti til framkvæmda
1. marz n.k. — 6 og 7% —
verði frestað til 1. október,
en atvinnurekendur greiði
hækkunina i sérstakan
„Viðlagasjóð" sem
stofnaður yrði.
Forsætisráðherra ólafur
Taldi ráðherrann að þegar á
þessu ári þyrfti að afla a.m.k.
2.000 milj. kr. til þess að tryggt
væri að þjóðfélagiö stæði örugg-
lega undir skyidum sinum við
Vestmannaeyinga. En að auki er
svo áfall þjóðarbúsins i heild og
þess vegna yrði m.a. að draga úr
heildarútgjöldum og innflutningi.
Forsætisráðherra skýrði frá þvi
að lauslegt áætlunarverð þeirra
eigna sem óflytjanlegar væru sé
talið um 10 miljarða króna.
Jóhannesson greindi frá þvi I gær
er hann mælti fyrir tiilögu sinni
um neyöarráðstafanir vcgna
jarðclda I Eyjum, að rikisstjórnin
hefði gengið frá frumvarpi um
ráðstafanir cða sérstakt gjald,
..viðlagagjald” sem renni til
„viðlagasjóðs” en tilgangur hans
er að standa straum af þeim
1 ræðu sinni vék forsætisráð-
herra að tveimur meginatriðum
þessa máls. 1 fyrsta lagi að rikis-
stjórnin hefði lagt áherzlu á að
landsmenn allir öxluðu þær
byrðar sem tjóninu fylgja og i
öðru lagi að nást yrði samstaða
um þær aögerðir sem gripið yrði
til. Þess vegna hefði rikisstjórnin
ákveðið að leggja til að skipuð
yrði nefnd fulltrúa allra flokka til
að fjalla um málið og gera til-
lögur. Rikisstjórnin myndi leggja
búsifjum sem nú verða vcgna
jaröcldanna i Vestmannaeyjum.
t frumvarpi þvi sem rikis-
stjórnin hafði tilbúið og hún mun
nú leggja fyrir nefnd þá, scm
alþingi kaus i gær, til þess að
lryggja samstöðu allra flokka
þingsins um ráöstafanirnar, er
Frh. á bls. 15
fyrir nefndina frumvarp það er
hún sjálf hefði gengið frá um
neyðarráðstafanir.
Jóhann Hafstein og Gylfi Þ.
Gislason lýstu stuðningi við
þingsályktunartillögu rikis-
stjórnarinnar og vilja til sam-
starfs viö rikisstjórnina i þessu
máli.
Jóhann Hafstein óskaði eftir
þvi, að tillögunni yrði visað til
nefndar, og var orðiö við þeirri
ósk.
Einnig töluðu ráðherrarnir
Iiannibal Valdimarsson og Lúð-
vik Jósepsson og segir annars
staðar frá ræðu Lúðviks.
Hannibal sagði, að það væri tvi-
mælalaust skylda samfélagsins,
að standa straum af þeim ráð-
stöfunum, er gera þyrfti til að
tryggja Vestmannaeyingum
örugga lifsafkomu þann tima,
sem þeir verða að dveljast fjarri
sinni heimabyggð.
Hann skýrði frá þvi, að tekizt
hafi að útvega 1000 manns bráða-
birgðahúsnæði á vegum Rauða
Krossins og nefndar þeirrar, sem
rikisstjórnin skipaði i þau mál.
En allt meginverkefnið er þó
eftir, sagði Hannibal.
Það kom fram i ræðu Hanni-
bals, að talið er að með 50 miljón
króna tilkostnaði megi skapa allt
að 50 bátum til viðbótar aðstöðu i
Grindavikurhöfn.
Málinu var svo visað til fjár-
Frh. á bls. 15
Kauphækkun frestað—
upphæðin renni í sjóð
— er bœti búsifjar vegna jarðelda í Heimaey