Þjóðviljinn - 30.01.1973, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 30. janúar 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Ályktun alþingis um
neyðarráðstafanir
vegna jarðelda
1 gær lagði forsætisráðherra
fram á alþingi tillögu til þings-
ályktunar um neyðarráð-
stafanir vegna jarðelda I Vest-
mannaeyjum. Tillagan var
strax tekin til umræöu I
Sameinuðu þingi og var svo
afgreidd i gærkvöld og sam-
þykkt samhljóða. Tillagan —
sem nú er orðin ályktun
alþingis — er á þessa leið:
Alþingi ályktar að kjósa
nefnd sjö þingmanna til þess
að gera tillögu um neyðarráð-
stafanir vegna eldgossins á
Heimaey og um fjáröflun
þeirra vegna. Skal hún þegar
hefja starf og skila tillögum
sinum i frumvarpsformi svo
fljótt sem nokkur kostur er.
Tillögur nefndarinnar skulu
við það miðaðar, að búsifjar af
völdum náttúruhamfaranna
séu bornar af þjóðinni allri
sameiginlega.
Jafnframt heimilar Alþingi
rikisstjórninni að taka bráða-
birgðalán i Seðlabanka Is-
lands eða annars staðar, að
fjárhæð allt að 500 miljónir
króna, til þess að standa undir
kostnaði sem þegar er áfall-
inn, og margvislegum ráðstöf-
unum.sem ekki verður komizt
hjá að gera án tafar.
Bráðabirgðalán þetta skal
endurgreitt af væntanlegri
fjáröflun skv. ákvörðun
Alþingis. Ráðstöfun fjár þess,
er tekið verður að láni tií
bráðabirgða samkvæmt
framansögðu,- skal vera i
höndum nefndar þeirrar, sem
rikisstjórnin skipaði 23.
janúar s.l. til að rannsaka,
hverjar afleiðingar náttúru-
hamfarirnar i Vestmanna-
eyjum geta haft fyrir efna-
hagslega afkomu þjóðar-
búsins og hver úrræði eru
helzt fyrir hendi til að draga
úr þeim afleiðingum. Sam-
kvæmt skipunarbréfi sinu ber
þeirri nefnd að hafa samráð
við bæjarstjórn Vestmanna-
eyja.
Jón Kjartansson SU
af V attamesi
innlend
sökk út
Hið mikla aflaskip Jón
Kjartansson SU frá Eski-
firði sökk hálfa aðra sjó-
mílu út af Vattarnesi,
nákvæmlega kl. 21,15 á
sunnudagskvöld. Hafði þá
skipshöfn verið bjargað um
borð i Dagfara.
Skipstjóri á bátnum var
Þorsteinn Erlingsson.
Mörgum kom til hugar fyrst i
stað að þetta mikla aflaskip hafi
sokkið sökum ofhleðslu út á
miðunum. Það er ekki raunin.
Farmur mun hafa kastazt til i lest
bátsins á sunnuriagsmorgun og
Keflavikingar hafa, að öörum
byggðarlögum ólöstuðum, tekiö
hvað stórmannlegast á, til lausn-
ar vanda Vestmannaeyinga.
Þegar er ósk þeirra til stjórn-
valda um að Kanar rými húsnæði
i Keflavik komin áleiðis i em-
bættismannakerfinu, og bæjar-
stjórnin hefur opnað upplýsinga-
og miölunarskrifstofu fyrir Vest-
mannaeyinga að Klapparstig 7 i
Keflavik.
Jóhann Einvarðsson, bæjar-
stjóri i Keflavik, varð fyrir svör-
um á hinni nýju upplýsingamið-
stöð fyrir Eyjamenn i Keflavik.
Sagði hann aö þarna væri ætlunin
að skrá fólk, hvort tveggja sem
væri að leita eftir atvinnu eöa
húsnæði.
— Eru margir Vestmanna-
eyingar búnir að leita til ykkar?
— bað eru mjög margir búnir
að þvi nú þegar. Ég hef þó ekki
tölu á þvi, þar sem ekki hefur
unnizt timi til að telja þá saman,
en segja má að það sé óhemju
fjöldi.
— Er þá leitaö bæði eftir hús-
næði og vinnu?
— Já. Þó virðist mestur
vandinn vera meö húsnæði. Flest
virðast þetta vera sjómenn á
Eyjabátum, og fólk sem vill
komast i frystihúsin, en þar er
kom þá þegar mikill bakborðs-
halli á bátinn. Var báturinn þá
staddur út af Hvalbak.
Dagfari frá Húsavik tilkynnti
kl. 10,24 á sunnudagsmorgun aö
hann fylgdi Jóni Kjartanssyni
eftir ásamt fleiri bátum. Skipið
var þá talið i mikilli hættu, en
skipshöfn talin óhult. Atti að
reyna að sigla bátnum til Eski-
fjarðar.
Kl. 11,15 sneri Jón Kjartansson
bakborðshlið upp i vindinn og
lagðist þá skipið yfir á stjórn-
borða með svipuðum halla. Fóru
þá allir menn um borð i Dagfara
utan þrir skipverjar.
Halli bátsins jókst á siglingunni
til Eskifjarðar og björguðu skip-
oftast pláss fyrir vinnuafla, ekki
sizt ef bátar bætast við hér.
Einnig hef ég óljósar fréttir af
nokkrum handverks- og iðnaðar-
mönnum sem eru komnir i vinnu,
eða búnir að fá loforð fyrir vinnu.
En það er samt sem áður hús-
næðið sem viö erum mest að
basla við, og það hefur lýgilega
mikið komið út úr fyrirspurnun-
um um húsnæði, þó það sé engan
vegin nægilegt.
Ætlunin er að þetta veröi mið-
stöð hér á Suðurnesjasvæðinu,
þannig að hér geta Vestmanna-
eyingar fengið upplýsingar um
eitt og annað, þar á meðal dótið
Reykjanes
t gærmorgun strandaði
Reykjancsið frá Hafnarfirði á
Ilvalbak fyrir austan, en þar i
kring hafa hringnótabátar kastað
á loðnumiðum.
Strandið varð kl. 6,20 i gær-
morgun, en hins végar kom
báturinn til hafnar kl. 16,45 i gær.
Næstu skip voru Dagfari frá
Húsavik og Höfrungur III frá
Akranesi. Tókst skipverjum á
Dagfara að koma linu um borð i
verjar á Dagfara hinum þremur
mönnum um borð um kl. 20 og var
þá skipið statt um 1 1/2 milu út af
Vattarnesi.
M.s. Hafaldan kom til móts við
Jón Kjartansson út á miðin. Hafði
hún brunadælu um borð og átti að
freista þess að dæla úr bátnum.
Það þótti hinsvegar ekki fært fyrr
en báturinn kæmi inn á fjörðinn.
Jón Kjartansson var áður
togarinn Jörundur, smiðaður 1949
og var 491 tonn að stærð. Vélar
voru nýjar i bátnum.
Eigendur bátsins voru Jón
Kjartansson h.f. á Eskifirði og
Gislason h.f. i Reykjavik. Þar á
meðal hinn góðkunni aflaskip-
stjóri Þorsteinn Gislason. g.m.
sitt. Einnig er meiningin að efri-
hæð hússins verði búin einhverri
þeirri aðstöðu að Vestmannaey-
ingar geti hitzt þar, eða haft þar
einhverja bækistöð.
Rétt er að geta þess að simi
þessarar upplýsingamiðstöðvar
er 1800, en svæðisnúmerið 92.
1 gær fengum við fréttir af þvi
að Keflvikingar almennt hefðu
tekiö mjög vel i samþykkt bæjar-
stjórnarinnar um að rýma ibúðir
fyrir Vestmannaeyingum með
þvi að flytja Kana upp á Vöíl.
Meðal annars hafa nokkrir aðilar,
sem árum saman hafa leigt
Amerikumönnum húsnæði, sagt
upp leigusamningum til þess að
geta tekið Eyjamenn i ibúðir sin-
ar þess i stað.
= + + + =
168 ibúðir hafa nú verið boðnar
Vestmannaeyingum, viða um
land. —úþ.
strandar
hinn strandaða bát um kl. 8 um
morguninn. Var þá sjór kominn i
dæluhús og forlest bátsins, en
ekki flæddi i afturlest eða vélar-
rúm.
Hafði Reykjanesið strandað á
grynningum landmegin við Hval-
bak, en það er klettur er stendur
einstakur upp úr sjó úti á hafi.
Þannig hefur Dagfari bjargað
tveim skipshöfnum á sólarhring.
Skipstjóri á Dagfara er Sigurður
Sigurðsson frá Húsavik.
Brœðsla byrjuð
á Breiðdalsvík
Breiðdalsvik, 29/1. — Hingað
hafa borizt um 400 tonn af loðnu
úr tveim bátum, Heimi frá
Stöðvarfirði og Arna Magnússyni
SU. Er Arni Magnússon gerður út
héðan.
1 dag fer i gang loðnubræðsla.
Bræðir hún 500 til 800 mál á sólar-
hring. Þá er ætlunin að frysta hér
loðnu siðar i vetur á vegum hrað-
frystihúss.
Siðar i vetur fer Sigurður
Jónsson SU á þorskanet.
6200 tonn af
loðnu til
Eskifjarðar
Eskifirði 29/1. — Hingað hafa
borizt i dag um þúsund tonn af
loðnu. Hafa eftirfarandi bátar
landað hér loðnu eftir nætur-
veiðina: Jón Finnsson, Fifill,
Gisli Arni, Arni Magnússon og
Arinbjörn. Er meðalafli um 200
tonn á bát.
Hingað hafa borizt um 6200 tonn
af loðnu. Byrjaði bræðsla i
morgun á loðnu, sem hefur borizt
hingað siðan á föstudag. Aður var
búið að bræða rösk þúsund tonn.
Þá hefur nokkuð verið fryst af
loðnu i beitu.
4000 tonn af
loðtiu til
Reyðarfjarðar
lteyðarfirði, 29/1 — Hér er
stillilogn á firðinum sem á
sumardegi og hóf verksmiðjan að
bræða loðnu i morgun. Hefur ekki
verið hreyft við þessari gömlu
sildarverksmiðju lengi.
Hingað hafa borizt 4000 tonn af
loðnu og lönduöu fjórir bátar hér i
gær: Guðmundur RE 300 tonnum,
Sæberg 250 tonnum, Súlan 300
tonnum og Þóröur Jónasson ein-
hverjum afla. Hins vegar hefur
enginn bátur komið hingað i dag.
Engin loðna til
Borgarfjarðar
Borgarfirði eystra, 29/1. —
Hingað hefur engin loöna borizt
og stendur ekki til að taka á móti
henni hér, sagði Sigriður Eyjólfs-
dóttir við blaðið.
Margir eru farnir á vertið
héðan. Fóru menn aðallega til
Hornafjarðar og Grindavikur.
Aðeins þrir fóru á vertið i Eyjum.
Er það af sem áöur var, þegar
menn fjölmenntu þangað á vertið.
2400 tonn af
loðnu til
Seyðisfjarðar
Seyðisfirði, 29/1. — Þrir bátar
hafa komið hingað i dag eftir
veiði næturinnar austur af Gerpi
og er stutt fyrir bátana að sigla
hingað inn af veiðisvæðinu.
Þessir bátar losa hér I dag:
Guðmundur RE 400 tonn, Reykja-
borgin 200 tonn og Asberg RE 250
tonn.
Hingað eru komin 2400 tonn af
loðnu i verksmiðju Hafsildar. Er
þegar farið aö rjúka úr reykháf-
um loðnubræðslunnar. Hér er
logn og stillur á firðinum sem á
bliðum sumardegi.
Ekki er farið að hreyfa við
sildarverksmiðju rikisins hér á
staönum.
1500 tonn af
loðnu til
Stöðvarfjarðar
Stöðvarfirði, 29/1. — Hingað
kom Alftafelliö með 260 tonn af
loðnu i dag. Hafði það fengið
hana um 50 sjómilur út af Norð-
fjarðarhorni.
Loðnubræösla byrjaði hér á
hádegi i gær og liggja nú hér 1500
tonn af loðnu i þróm.
Stillilogn er hér á firðinum og
veður gott. Hins vegar er spá
verri á morgun.
Safnað á
ísafirði
isafirði, 29/1. — Bæjarstjórn
hefur samþykkt að láta i té alla
þá aðstoð til handa Eyjabúum er i
valdi hennar er og lýsir yfir sam-
úð vegna þessara atburða.
Fjársöfnun er nú i gangi hér
meðal sjómanna um borð i fiski-
bátum og verkafólks i hraöfrysti-
húsum og er gert ráð fyrir að tvö
þúsund kr. framlag komi frá
hverjum einstökum.
Þá hefur vélbátabyrgðarsjóður
samþykkt að gefa 250 þúsund kr. i
Vestmannaeyjasöfnun i tilefni af
afmæli sjóðsins.
Sól sést frá
byggð
ísafirði, 29/1.— Þorrablót eru hér
um hverju helgi og þá haldin
mörg i senn á vegum átthaga-
félaga. Nýliðin er árshátið Sunnu-
kórsins og sólardagurinn er alltaf
25. janúar. Var boðið upp á sólar-
kaffi þann dag. Eiginlega ætti að
halda upp á sólardaginn tvisvar
hér. Daginn áður sést nefnilega til
sólar i efri byggðinni i bænum.
Þrœr fullar á
Fáskrúðsfirði
A Fáskrúðsfiröi eru komin á
land 2500 tonn af loönu og átti
bræösla að hefjast i gærkvöld, en
afkastageta verksmiðjunnar er
200 tonn á sólarhring. I gær varö
aö neita bátum um löndun vegna
þess að þróarrými var fullnýtt.
Hoffell hefur verið á linu en
aflað treglega, er með um 50 tonn
i þessum mánuði.
Við erum tilbúnir að taka á
móti Vestmannaeyingum, sagöi
kaupfélagsstjórinn á Fáskrúös-
firði, útvega þeim net og fyrir-
greiðslu i landi. Aftur á móti er
erfitt með húsnæði en sveitar-
stjórnin er nú að kanna það mál.
Kveðjur frá
hafnarstjórn
Reykjavíkur
„Hafnarstjórn Reykjavikur
sendir Vestmannaeyingum
kveðjur sinar vegna þeirra vá-
legu náttúruhamfara sem yfir
Eyjarnar hafa dunið.
Jafnframt heitir hafnarstjórn
útvegsmönnum og sjómönnum
frá Vestmannaeyjum allri til-
tækri fyrirgreiðslu hafnarinnar”.
Keflvíkingar reynast Eyjamönnum vel
Opna upplýsinga
skrifstofu