Þjóðviljinn - 30.01.1973, Page 4
1 SiÐA — ÞJÓDVII.JINN Þriðjudagur 30. janúar 1973
Skúli á Ljótunnarstöðum
sjötugur í dag
Skúli á Ljótunnarstöðum er sjö-
tugur i dag.
Það er staðreynd, sem kemur
mér til að hugsa um, hvernig tim-
inn liður, þvi hraðar sem árin
liða.
Fyrir tæpum 20 árum vissi ég
ekkertannað um Skúla en þaö, að
hann skrifaði skemmtilegar
greinar i Þjóðviljann, og að hann
var blindur.
Þegar ég svo kynntist honum,
kom mér þaö gleöilega á óvart, að
hann var alls ekki blindur, þvi að
ég hef kynnzt mörgum sjáandi
manninum, sem er blindari en
Skúli á Ljótunnarstöðum. t raun
var það þannig, aö fyrstu ár
kynna okkar kom Skúli mér alltaf
á óvart, þar til að þvi kom, að ég
hreint og beint gleymdi þvi að
hann var blindur.
Það er ekki óalgeng sjón, þegar
ekiö er hjá garði aö Ljótunnar-
stöðum, að sjá Skúla vera að
dytta að girðingum sinum eða
sinna öðrum búverkum, sem al-
sjáandi væri, eða jafnvel við
byggingavinnu, þegar hann og
synir hans voru aö stækka bæjar-
húsin. Eins er það ekki óalgeng
sjón, aö sjá hann i fjósafötunum
sinum ganga til gegninga eða
mjalta, en eitt er vist, að hvenær
sem þú kemur að Skúia við vinnu,
þá hangir litla transistor-út-
varpstækiö um hálsinn á honum.
Heim að sækja er Skúli gestris-
inn og skemmtilegur og ekki fer
hjá þvi, að af fundi hans ferð þú
ætið fróðari en áður, þvi að minni
hans er frábært.
Um greinar Skúla um útvarps-
dagskrána, eöa um bækur hans
þarf ekki að fjölyrða, en ég man
þó, að oft hefur verið á það
minnzt, að Þjóðviljinn væri alltaf
uppseldur, þegar greinar Skúla
birtust i honum.
Skúli hefur alla tið verið rót-
tækur i skoðunum, og var hann
einn af þeim hér i Hrútaf., sem-
stofnuðu félagsskap, sem þeir
kölluðu „Félag róttækra alþýðu-
manna”. Þetta var siðast á þriðja
áratugnum. Félagsmenn héldu
fundi og skeggræddu þjóðfélags-
mál og höfðu leshring, bæði pólit-
iskan og bókmenntalegan. Gerð-
arbók var haldin yfir þessa starf-
semi. Er hún enn i vörzlu Skúla og
er hin fróðlegasta. f bók þessari
sést, hve róttækir ungir menn
voru hér i Hrútafirði i þá daga.
Margir af félagsmönnum i ,,Fé-
lagi róttækra alþýðumanna”
dreifðust svo hingað og þangað
um landið, en aðrir breyttu um
skoðun, svo að um tima stóð Skúli
einn uppi hér i héraðinu, trúr sin-
um málstað, en það hefur hann
verið til þessa dags, og vart trúi
ég þvi, að hann breytist úr þessu.
Ég hef verið svo lánsöm um æv-
ina, að kynnast mörgum mönn-
um, sem birtu hefur stafað af.
mönnum sem hafa opnað dyr
fyrir mig og vikkað sjóndeildar-
hring minn. Einn af þessum
mönnum er Skúli. — Þú sagðir,
Skúli, i afmælisgrein um sam-
eiginlegan vin okkar, Hannibal,
nú á dögunum, að með blaöa-
greinum á stórafmælum væri á
vissan hátt verið aö skrinleggja
menn. Þú skalt samt ekki halda,
að ég sé að skrinleggja þig, Skúli,
heldur vil ég aðeins þakka þér
samfylgdina og vináttuna, þakka
þér fyrir aö hafa i mörgu opnað
mér lokaðar dyr, og þakka þér
fyrir baráttu þina og einlægni i
störfum fyrir sameiginlegan mál-
stað.
Stuðningur þinn hefur verið
vinstri hreyfingunni ómetanleg-
ur. Er við, ég og bóndi minn,
nú færum þér þakkir fyrir þetta,
óskum viö þér til hamingju og
einnig þess, að þú megir halda
fullri heilsu alla ævi, — og að end-
ingu vil ég segja, eins og ein vin-
kona þin sagði við þig, þegar þú
varðst sextugur: „Megir þú
verða allra karla elztur”.
Lára Helgadóttir.
Afmælisávarp til Skúla.
Skúli minn!
Ég finn engan frið i minum bein-
um, nema senda þér loksins linu
áður en það verður um seinan.
Það hefir verið svo undur gott,
að vita af þér, einmitt þarna á
ishafsströndinni, einmitt svona i
hafisáttinni.
Þú þekkir hlutverk land-
vættanna. Ég er ekki beint að
telja þig til þeirra, — en samt.
Einhver skyldleiki er með hug-
renningatengslunum, þvi get ég
ekki varizt, það finn ég.
Veit ég vel, að þú ert bara einn
af oss, veikbyggðum og vanmátt-
ugum og fjölfötluðum mannanna
börnum. Ekkert væri fjarstæðu-
kenndara en setja þig á einhvern
ofurmennisstall. En samt. —
Eitthvað ertu frábrugðinn þvi al-
vanalegasta. Ég hefi verið að
reyna að grafast fyrir um hvar
þessi ósýnilegi pensildráttur
muni falinn i persónu þinni. Það
var einhverntima milli dúra, nær
óttu en miðmorgni, að þvi laust
inná vitundarsviðið. Vitrunin
segir að þú sért dálitið skyggn á
manneðlið, sért skyggn á innri
manninn á bak við mannsrödd-
ina, hugrenninguna. Sé þetta ekki
fjarri þvi rétta, er skýrt að
nokkru hve sjálfgefið er að taka
eftir þvi sem þú segir, einkum og
sérstaklega fyrir þá sjálfa, sem
þú eyðir orðum um.
Vist er það skritið, já hreint og
beint lýgilegt, að það er bara tvis-
var, sem við höfum komizt i beina
umgengnissnertingu hvor við
annan. Það var nú þegar það var,
eins og hann Villi danski heitinn
einu sinni sagði, þegar við vorum
kosnir blaðafulltrúar bændaráð-
stefnunnar, sællar minningar.
Reyndar liggur mér við að halda,
að blaðafulltrúanafnið hafi ekki
verið búið að lita dagsins ljós þá,
en blaðafulltrúar vorum við þá
samt sem áður, svo mikið var
vist.
Þá vorum við fleygir og færir,
ekki bar á öðru, gengum á vit
pressuráðenda og útvarps með
skerf okkar af ályktunum og til-
lögum varðandi málefni
bændanna, þó fyrir litið kæmi.
Ekki man ég það nú i smáatrið-
um, en fæstir virtu okkur þess að
geta okkar að nokkru.
Það var ekki svo galin lexia
útaf fyrir sig. Til dæmis man ég
að ekki kom stafur i Alþýðu-
blaðinu af neinu þvi, sem ég
tiundaði meö hvað mestri ná-
kvæmni við Helga Sæmundsson,
enda höfum við bændur löngum
haft þá herra við sama heygarðs-
hornið alla daga siðan.
1 annað sinn man ég fundum
okkar bar saman á Hólmavik
haustið 1959, á framboösfundi
kvöldið fyrir kjördag. Steingrim-
ur okkar Pálsson var svo
slunginn, að espa okkur hvorn
fyrir sig til þeirrar feröar. Það
var þegar við vorum allir inná að-
dráttarsviði þessarar björtustu
pólitisku halastjörnu, sem herjað
hefir himingeim hins islenzka
stjórnmálasólkerfis, Hannibals
Valdimarssonar.
Auk okkar þriggja, voru ræðu-
menn Halldór á Kirkjubóli, Her-
mann og Sigurvin. Stjórnmála-
átök þessa fundar, þau hin dags-
daglegu, eru flesthver fyrnd og
gleymd að mestu.
Frá þessum fundi á ég samt
einhverja hugstæðustu minningu,
sem varðveitzt hefir i minu minní
frá framboðsfundum.
Það var viðureign ykkar
Halldórs. Svo bar til, að þið tókuð
báðir upp þráöinn frá ritdeilu i
Skinfaxa, þá fyrir 30 árum, eða
þvi sem næst. Þetta var mér stór-
sögulegur atburður, ekki deilan
sjálf i sjálfu sér, heldur þessir
yfirburðahæfileikar i minni,
skýrleika, alvöru, málafylgju,
vopnfimi og kennimannlegum
krafti, sem mér fannst þiö báðir
vera gæddir — og þið voruð það.
Svo sannarlega voruð þiö það.
Það veit trúa min. Þvi get ég ekki
gleymt.
Liklega áttar fólk sig ekki á þvi,
að ég skuli taka uppá þessu, að
spyrða ykkur svona saman. Bara
þeir sem muna fundinn skilja það,
og þar á meðal vona ég þú sért.
Og að skilja er að fyrirgefa. Ekki
svo að skilja að ég biðji þig, eða
Halldór, eða nokkurn annan að
fyrirgefa þó ég opni hug minn og
lýsi aðdáun minni á jafnoka þin-
um og þér. Það er afmælis-
kveðjan til þin á ishafsströndina
norður þangað sem ég veit að þú
stendur meðan stætt verður og
náttúrulega lengur þó, þvi þá
fyrst er nú lifið lif!
Játvarðurá Miðjanesi.
Orð geta stundum verið undar-
lega torskilin, þó þau virð i>st vera
einföld og blátt áfram. Ég hef
alltaf átt ákaflega erfitt með að
skilja muninn á skáldi og alþýðu-
skáldi. Þessi greining kemur þó
afar viða fram og sannarlega er
ákaflega mikill munur á afstöðu
samfélagsins til þessara tveggja
aðila.
1 augum sumra er alþýðuskáld-
ið bara svona pinulitið skáld, allt
annað en sjálft — skáldið, — og
viss er ég um, að ærið mörgum
þeim er við skáldskap fást þætti
það hrein óvirðing við sig, ef þeir
væru nefndir sliku nafni. Nei,
skáld vilja þeir vera, en i guðanna
bænum lausir við alþýðuna.
Þegar ég var að búa undir
prentun bók Skúla, — Það sem ég
hefi skrifað, — laukst allt i einu
upp fyrir mér alveg nýr skilning-
ur á þessu orði, nýr skilningur á
þvi hvað það væri, að vera al-
þýðuskáld, hvers vegna alþýðan
eignaði sér algerlega suma menn
og vildi alls ekki rugla þeim
saman við aðra, er við lika iðju
fengust.
Þetta lá einfaldlega i þvi, að sá
einn taldist alþýðuskáld, er sótti
og varði mál sitt með þeim rökum
og þvi táknmáli, er alþýðan
skildi, — höfðaði til reynslu henn-
ar, liþkjara og framtiðar-
drauma, og stóð báðum fótum i
þeirri lifsbaráttu, sem hún háði.
Ég skildi þá, við lestur þessara
greina, að einmitt af þessum
ástæðum þótti ýmsum mennta-
gæðingum heldur öndótt að lenda
i ritdeilum við Skúla á Ljótunnar-
stöðum á árunum milli striða. —
Það var hreint hvergi i rimnalög-
um, — frekar en hjá Kolbeini,
hvernig hann sótti og varði og þó
verst af öllu hvernig hann læddist
undir hin rómantisku silkiklæði
sem menn breiddu yfir framtið-
ina. Hann hafði enga ofbirtu i
augum af bóndanafninu né
dreymdi um heldri bænda stétt
upp á fornan móð. Hann tilheyrði
— bændaalþýðunni, —sem þá var
reyndar nýtt hugtak, hugtak, sem
hann sjálfur kom með inn i málið.
Þeir, sem hafa lesið Jósafat og
Jukki, eða þó enn heldur — Menn-
ingarástand sveitanna, geta
kannski gert sér i hugarlund
hvers konar steypiregn þær voru
á sinum tima.
Og alltaf hefur Skúli haldið
þessar skarpskyggni sinni og
aldrei svikist um að beita henni, á
hverju sem hefur gengið. Sannar-
lega hefur hann -oft heldur
óþyrmilega gert grin að manni,
flett burtu þeirri rósrauðu lýgi,
sem samtiminn hefur viljað
breiða yfir óþægilegan sannleika.
Og hann hefur gert þetta með
þeim vopnum, sem mörgum eru
heldur óþjál i hendi, með málfari
og hugsunarhætti hins islenzka
alþýðumanns, sótt rök sin til
sóknar og varnar i þá lifsbaráttu,
sem alþýðan háir hverju sinni.
Hafi það ekki dugað til, hefur
hann beitt þvi vopninu, er stund-
um er hvað sárbeittast, en það er
skopið og það á margur einna
verst með að þola.
Við eigum marga góða rit-
gerðamenn — (esseyista) — og ég
held að Skúli sé i hópi þeirra
beztu. Það ritform leikur svo i
hendi hans, að unun er að en þar
um er annarra að dæma.
Þetta átti ekki að verða nema
kveðja til hans, enda i flýti gert og
til þess eins, fyrst og fremst, að
þakka honum fyrir vökuna,
hversu hann hefur verið fljótur að
stugga við manni, ef honum hefur
fundizt að maður ætlaði að gerast
um of trúaður á rósrauða róman-
tikina, eða láta ihaldið blekkja sig
i hvaða mynd sem það tók á sig,
og siðast en ekki sizt vildi ég
þakka honum áralanga samvinnu
og umgengni.
Það er til siðs að sæma menn
orðum og titlum fyrir vel unnin
störf, en að visu á það nú kannski
bráðum að falla burt, — en mætti
ég sæma Skúla einhverju vildi ég
sæma hann heitinu — alþýðu-
skáldið okkar — og óska þess um
leið að hvers konar ihaldsöfl verði
ætið tilneydd að tauta fyrir munni
sér, svo sem skrattinn er hann
kvaðst á við Kolbein: — Þetta er
hvergi i rimnalögum.
Pétur Sumarliðason.
A sextugsafmæli Skúla Guð-
jónssonar á Ljótunnarstöum birt-
ist afmælisviðtal við hann i Þjóð-
viljanum. Það var sá ágæti við-
ræðumaður Jón heitinn Bjarna-
son, sem þá spjallaði við afmælis-
barnið.
f þessu viðtali kennir margra
grasa, margt er þar skemmtilegt
og maður kynnist næsta náið
þeim ágæta manni Skúla á Ljót-
unnarstöum. Hann segir þar frá
uppruna sinum og þar kemur
fram, að hann er af kynþætti Hún-
vetninga og Dalamanna. Faðir
hans Guðjón Guðmundsson og
Guðjón alþingismaður Guðlaugs-
son voru bræðrungar og i mörgu
likir. Guðjón Guðlaugsson var i
áratugi þingmaöur Stranda-
manna og kaupfélagsstjóri á
Hólmavik, auk þess sem hann lét
önnur héraðsmál til sin taka. Um
hann eru þessar tvær visur i
Alþingisrimum:
„Spýttust „eiturornar” þá
út úr Guðjóns túla;
og engir brandar bitu á
berserkinn i Múla.
Guðjón rauðan hristi haus
með hrotta-glott á vörum,
aldrei blauður, ótta-laus
öskraði, sauð og vall og gaus.”
Þá kemur fram i viðtalinu, að
eftir fermingu voru uppi ráða-
gerðir um að Skúli gengi mennta-
veginn.eins og það er kallað, og
yrði prestur. Segir hann sjálfur,
að til þess hafi hugur sinn staðið á
þeim árum. Úr þessu varð ekkert
annað en ráðagerðin og Skúli seg-
ist una vel þeim málalokum.
Við, sem stöndum utan við
svona atburði, erum stundum að
velta þvi fyrir okkur, hvað orðið
hefði úr mönnum, sem við þekkj-
um eða höfum spurnir af, ef lifs-
ferill þeirra hefði fallið i annan
farveg. Hvað um Bólu-Hjálmar —
hefðu lifskjör hans orðið önnur og
betri? Stórskáld myndu flestir
álykta og það með töluverðum
likum. En þá hefðum við engan
Bólu-Hjálmar átt. Við getum á
sama hátt ályktað, að stólræðurn-
ar hans séra Skúla Guðjónssonar
hefðu marga hrifið, en hver hefði
þá komið i stað Skúla okkar á
Ljótunnarstöðum?
Þegar menntavegurinnlokaðist
Skúla, ákvað hann að gerast
skáld, en þá reyndist Jónas á
Hriflu það peneselin, sem losaði
hann við þá bakteriu. Eftir það
segist Skúli aðeins stöku sinnum
setja saman visu, þegar hann sé
að mjólka kýrnar, en ætið siðan
hafi sér verið hlýtt til Jónasar.
Frh. á bls. 15
BÚTASALA
Bútar og efnisafgangar á lágu verði
Gluggatjöld ^
I AI !/'■' Al/CZ'l / / t . r PV, 1 •
LAUGAVEGI 66 (2. HÆÐ), SÍMI 1 7450