Þjóðviljinn - 30.01.1973, Page 6
<> SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 30. janúar 1973
MALGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Ctgáfufélag Þjóftviljans
Frainkvæmdastjóri: Eióur Kergmann
Kitstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson <áb.)
''uglýsingastjóri: lieimir Ingimarsson
Kitstjórn, algreiftsla, auglýsingar:
Skólav.st. I!). Sfmi 17300 <5 linur).
Askriftarverð kr. 225.00 á mánuði.
l.ausasöluverð kr. 15.00.
Prentun: Blaðaprent h.f.
AÐ HJALPA SER SJALFUR
íslendingar eru tiltölulega efnuð þjóð.
Þjóðartekjur á mann eru einhverjar þær
GRÓUSÖGUR OG
RÓGBURÐUR
Þegar mikinn vanda ber að höndum er
hætt við þvi að ósvifnir aðilar sjáist ekki
fyrir og misnoti aðstöðu sem þeir hafa til
þess að skapa hræðsluástand sem getur
haft i för með sér sundrungu. Ólafur
Jóhannesson, forsætisráðherra, varð á
alþingi i gær að verja nokkrum tima i
ræðu sinni til þess að mótmæla hverskyns
gróusögum sem einhverjir siðlausir ein-
staklingar hafa komið á kreik siðustu
sólarhringana með hjálp vissra fjölmiðla.
Þjóðviljinn fordæmir sundrungariðju; oft
hefur verið rætt og ritað um að þjóðin væri
á örlagastund en slikt tal hefur i rauninni
aldrei verið við hæfi fyrr en nú. Þess
vegna hvetur Þjóðviljinn alla landsmenn
til þess að standa þétt saman og láta
hvorki gróusögur né rógburð villa sér
sýn. Þvi verður ekki trúað að til séu aðilar
á íslandi, sem vilja notfæra sér slikt
ástand sem nú hefur skapazt sér og sinum
til framdráttar. A.m.k. er fullvist að
stjórnmálaöfl, sem kynnu að hegða sér á
þann veg, ættu ekki lengur upp á pall-
borðið með þessari þjóð.
hæstu i heimi, kaupmáttur er hærri nú hér
á landi en nokkru sinni og allt virðist vera
i blóma. Nú leit fremur vel út með aflann á
þessu ári; spáð er miklum loðnuafla og
þorskaflinn ætti senn að geta aukizt vegna
aukinnar friðunar á miðunum. En mitt i
allri þessari lifskjaraframför i landinu
vakna menn upp við vondan draum: Gos i
Heimaey. Atvinnutæki, ibúðarhús, bátar
fyrir miljarða og miljarða aftur eru i stór-
felldri hættu. Á örskömmum tima breytist
ein blómlegasta byggð þessa lands i
óbyggilega eyðimörk vikurs og hraun-
burðar. Fólk flykkist i land þúsundum
saman og sezt að til bráðabirgða á ýmsum
stöðum á meginlandinu.Þetta fólk er rifið
út úr félagslegu samhengi, fjárhagslegt
öryggi þess er i voða og atvinnuóvissa al-
ger að heita má. Þetta er dökk mynd —
íslendingar hafa vart séð hann svartari
um áratugaskeið. Og hvað skal gera?
Svarið við þeirri spurningu virðist vera
nær einróma: Aðgerðir skulu allar við það
miðaðar að „búsifjar af völdum náttúru-
hamfaranna séu bornar af þjóðinni
sameiginlega” eins og það er orðað i
þingsályktunartillögu, sem forsætisráð-
herra lagði fyrir alþingi i gærdag. Lausn
þessa stóra vandamáls verður að byggja á
sameiginlegu átaki þjóðarinnar allrar,
sagði Ólafur Jóhannesson, forsætisráð-
herra, i ræðu sinni á alþingi i gær. Og full-
vist er að þjóðin öll er reiðubúin til að axla
byrðarnar. Það getur hún nú betur en
nokkru sinni fyrr.
Afstaða rikisstjórnarinnar eftir
náttúruhamfarirnar i Vestmannaeyjum
byggist á þessari meginstefnu. Þess
vegna hefur forsætisráðherra nú lagt
fram á alþingi tillögu til þingsályktunar
sem gerir ráð fyrir þvi að unnið verði á
grundvelli þeirra meginatriða sem hér að
ofan eru nefnd: Að sameiginlegt átak
landsmanna leysi vandann og að lands-
menn, hvar i flokki sem þeir standa, nái
að standa saman um úrræðin.
TIL BRETA OG
VESTUR-ÞJÓÐVERJA
Mikið tal er um það manna á meðal að
við eigum að taka við aðstoð og hjálp
utanlands frá. Einhverjir aðilar hafa búið
til sögur um að rikisstjórnin hafi hafnað
einhverri aðstoð — en svo er ekki. Þjóð-
viljinn vill nota þetta tækifæri til þess að
benda á það að tvær þjóðir i grennd við
okkur gætu sýnt drenglyndi með ákaflega
einföldum hætti en þó til fyrirmyndar. Þar
er átt við Breta og Vestur-Þjóðverja. Þeir
ættu nú tafarlaust að viðurkenna islenzku
50 milna landhelgina og þeir mættu lika
skila einhverju aftur af þeim fiski sem
þeir hafa tekið ófrjálsri hendi á fiskimið-
um íslendinga siðustu mánuðina — eða
ámóta verðmætum.
Staldrað við í Hafnarbúðum:
„Hús til sölu... hægt
að flytja inn strax”
Hvað er i matinn? hugsar þessi
litia Eyjastúlka og teygir sig eins
og hún hefur lengd til. Börn innan
12 ára aldurs fá fritt fæOi i
HafnarbúOum.
Mikill fjöldi Vestmannaeyinga
var samankominn i Hafnar-
búOum i gærdag er fréttamaður
Þjóðviljans leit þar inn. Þarna er
miöpunktur alls, sem Eyjamenn
þarfnast brýnast — hvers
konar u p pl ý s i n ga m i ðl u n ,
greiðslur frá almannatrygg-
ingum, styrkveitingar, úthlutun
fatnaðar og þess háttar. Þarna cr
fjölmennt starfslið Kauða kross-
ins og Vcstmannaeyjabæjar og I
mörgu að snúast scm vonlegt er.
Skrifstofa almannatrygginga
og sjúkrasa m lags Vestmanna-
eyja tók til starfa i Hafnarbúöum
á föstudaginn og vegna aðstæðna
eru fjölskyIdubætur greiddar
fram I timann.
Veggblöð og
orðsendingar
Hingað og þangað á
veggjum eru margs konar orð-
sendingar, þar á meðal hangir á
vegg 1. tölublað Fréttablaðs Vest-
mannaeyinga, en ábyrgðarmaður
er Gisli Þorsteinsson. Þar eru
m.a. tilkynningar um sima lækna
og þjónustu heilsuverndarstöðvar
Reykjavikur við Eyjamenn. A
öðrum stað er plagg um veitinga-
sölu, og þar má lesa að hádegis-
verður kostar 50 krónur, en
ókeypis fyrir börn inna 12 ára
aldurs. Kaffibrauð kostar 10 kr.
per stykki. Hér koma nokkur
sýnishorn af orðsendingum:
Junior Chamber Kóp.avogi,
annast húsgagnaílutninga
laugardaga og sur.nudaga, simi
25543 (Rauði krossinn)....
Þeir Vestmannaeyingar sem
hyggjast leita sér að húsnæði og
atvinnu á Akranesi fá fritt far
með Akraborginni ...
Og undirskriftalisti: Vér
undirritaðir Vestmannaeyingar
förum þess á leit, að fjárhagsað-
stoð sú, sem erlendar rikis-
stjórnir hafi boðið oss , verði
þegnar. Rikisstjórnin byrji strax
á móttöku þess fjármagns sem
hefur boðizt.
Valgerður Jónsdóttir getur
tekið 100 kindur og 4 hesta.
Barnarúm til láns....
Stefania Sigurjónsdóttir tekur
að sér fiska og fugla....
Ómar Guðjónsson, Höfða, Bisk-
upstungum, getur tekiö að sér
þrjá hesta, 10-20 kindur. Hefur
ibúð, tvö herbergi og eldhús.
Bragi Hermannsson i Garða-
hreppi getur tekið að sér
kaninur....
Páll Jónsson, tannlæknir á Sel-
fossi, getur tekið að sér hesta....
Getum komið fyrir i geymslu
hundum, köttum, kindum,
fuglum, hænsnum og kindum......
Hreinn Ólafsson — pláss fyriri
hænsni og búslóð...
Hænsni ,nokkur hundruð, Jón
Stefánsson...
Sigriður Pétursdóttir Lauga-
vegi 28 vill taka að sér hunda...
Dýrapössun — Hafnarfjörður...
Hús til sölu i Þorlákshöfn.Hsgt
að flytja inn strax — fimm her-
bergi og ein stofa...
Einbýlishús i Bolungarvik fyrir
sjómann. 9 manna fjölskylda
kemst fyrir...
Athugið': Munaðarnes 23 ibúöir
(næg atvinna, skóli og ferðir),
DAS sumarhús, 12 fjölskyldur, 15
min. frá Selfossi. Lækjarbotnar
Kópavogi, sumardvalarheimili, 6
fjölskyldur. Sumardvalarheimili
sjómanna, As Grimsnesi, 20 her-
bergi. Grimsnes er stutt frá
Eyrarbakka og Selfossi, þar sem
atvinnumöguleikar eru góðir.
Og fólkið vann baðað i sjón-
Starfsfólk Rauðakrossins er önnum kafið eins og þessi mynd
sýnir. (Ljósm. sj.)
varpsljósum, þvi aö þarna voru
að starfi sjónvarpsmenn frá
bandarisku sjónvarpsstöðinni
NBC. Þeir komu á laugardag og
höfðu enn ekki fengið leyfi til að
fara til Eyja, — á meðan létu þeir
sér nægja að kvikmynda i
Hafnarbúðum, en þar er útaf
fyrir sig nægilegt myndaefni.
sj
5200 tonn af loðnu
til Neskaupstaðar
Neskaupstað, 29/1 — Nokkrir
bátar fengu loðnu út af Norðfjarð-
arhorni i nótt. Hafa bátar verið að
streyma hingað inn með afla.
Þessir hafa tilkynnt afla til losun-
ar hér i dag: Hilmir 350 tonn,
Skirnir 110 tonn, Helga Guð-
mundsdóttir 220 tonn, Bjarni
Ólafsson 160 tonn, Sveinn Svein-
björnsson 160 tonn, Náttfari 160
og Magnús 130 tonn.
Tveir bátar eru begar komnir á
loðnu frá Neskaupstað, Sveinn
Sveinbjörnsson og Magnús. Hafa
þeir landað hér 3svar i loðnu-
bræðslu, — ekki þó með fullfermi.
Nú eru komin rösk 5 þúsund
tonn af loðnu i þrær Sildarvinnsl-
unnar. Byrjaði bræðslan kl. 8 i
gærmorgun og fóru fyrstu
loðnurnar inn um miðjan dag.
Bezt er að bræða loðnu sjö daga
gamla. Er elzta loðnan i þró, ekki
orðin svo gömul.