Þjóðviljinn - 30.01.1973, Blaðsíða 9
8 SIDA — ÞJ6DV1LJINNÞriðjudagur 30. janúar 1973
ÞriOjudagur 30. janúar 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Horft yfir miö- og eystrihiuta Vestmannaeyjakaupstaöar út á höfnina frá Suðurvegi, þar sem öll hús viö efrihluta götunnar eru komin á kaf I gjall og ösku. (Ljösm. vh.)
Komum aldrei aftur!
Komum strax aftur!
Misjafnlega bregðast menn
við spurningum um það hvort
þeir snúi aftur til Eyja
yfirlögregluþjónn sagöi, en hann
kom hingað til Eyja á laugardag
og tók við yfirstjórn ailra
björgunarstarfa hér og er þaö til
mikilla bóta, þvi þau höfðu veriö
litt skipulögð þangaö til. Ekki
hafði veriö hægt aö lenda fyrir
hádegið, en með þessari vél átti
að koma nýr flokkur lögreglu-
þjóna, til að leysa þá af sem verið
hafa hér við björgunarstörf og
unnið mjög svo kappsamlega
siðan á fimmtudag og eru sannar-
lega orðnir hvildar þurfi. Mikið
hefur veriö af ungum mönnum
hér úr lögregluskólanum, og hafa
þeir vafalaust fengiö dýrmæta
reynslu af störfum sinum hér.
Engin breyting varð á rennsli
hraunsins um helgina, og i gær-
morgun, mánudag, rann það enn
til austurs.
Er höfnin þvi ekki i neinni hættu
þess vegna. Hins vegar getur
þetta sifellda öskuregn yfir hana
grynnkaö hana verulega, en
askan og gjallið er mjög þungt, að
þvi er Þorleifur Einarsson jarð-
fræöingur sagði mér, og sekkur
með það sama. Enginn vikur
hefur enn komið úr gignum og er
þaö jákvætt, enda mundi vikur
fljóta á sjónum i kring um Eyjar,
og veröa hættulegur bátum sem
þar sigla, þvi hann fer i kælivatn
þeirra.
Unnið var allan mánudags-
morguninn að þvi aö moka þök
þeirra húsa sem björgunarmenn
hafast við i, svo sem af húsi
Isfélagsins, þar sem mötuneytið
er, en þar var óttazt aö þakiö væri
að gefa sig. Þakið á lögreglu-
stöðinni, sem er flatt, er farið aö
gefa sig, og ætlar lögreglan að
flytja aðsetur sitt á hótelið, að þvi
er sagt er.
1 gær var mikið gjall- og ösku-
fall yfir bæinn, og jafnframt lagði
reykinn frá gosstöðvunum yfir
bæinn, svo varla sáust handaskil.
Var ákaflega vont að vera úti við i
reyknum án þess að hafa gas-
grimur.
Undir hádegið var gosið með
allra mesta móti, að þvi er þeir
sögðu, sem fylgzt hafa með þvi
frá upphafi, og hefur það ekki
verið eins mikið um þessa helgi
fyrr. Búizt er við að vindátt snúist
siðar i dag.
Það versta við þetta ösku- og
gjallregn er hve stórir hnullungar
falla. Sá stærsti sem sézt hefur er
sagður um 50 kilóa þungur, en
ekki þori ég að ábyrgjast sann-
leiksgildi þess. Frh á bls. 15
Frá Sigurdóri Sigurdórssyni i
Vestmannaeyjum.
Ég lagði þá spurningu fyrir all-
marga Vestmannaeyinga, sem
voru hér i Eyjum um helgina að
bjarga munum ' snnum, hvort
þeir myndu snúa aftur til Vest-
mannaeyja ef gosinu linnti áður
enmeiratjón yrði en oröið er.
Mjög snerust menn misjafnlega
við.
Flestir þeir sem komnir eru
yfir miðjan aldur og spurðir voru
svöruðu þvi til að þeir myndu
koma aftur eins fljótt og hægt
væri./{,Hvað eigum við að gera
þarna/1 fyrir sunnan”, svöruöu
þeir til. Svo voru nokkrir, sem
alið höfðu allan sinn aldur hér i
Eyjum, sem svöruðu þvi til, að
þeir myndu ekki snúa aftur til
baka.
Nokkuð virtust svör manna
fara eftir þvi hvar þeir eiga hús i
bænum. Þeir sem áttu hús i
austurbænum, og þá illa farin,
sögöust ekki koma aftur, en þeir
sem eiga óskemmd hús, vestast,
eru bjartsýnni.
Nær undantekningarlaust svör-
uðu yngri menn þvi til að þeir
myndu ekki koma aftur. Margir
þeirra höfðu nýlokið við að
býggja sér hús, sem nú eru ann-
aðhvort ónýt eða mikið skemmd,
enda eru nýju húsin flest i austur-
bænum.
Einn sagði: ,,Ég hef ekki að
neinu að hverfa hér, og ég get
ekki hugsað mér að fara að
standa i húsbyggingu aftur”.
Svartsýnin virðist þvi einkum
rikja hjá yngri mönnunum. Eins
fjölgar þeim nú einnig, sem eru
svartsýnir á það, að nokkuð verði
búið hér aftur i nánustu framtið.
Enda var ástandið hér á laugar-
dag, og aftur á mánudag, þegar
ösku og gjalli rigndi yfir bæinn,
og hvert húsið af öðru ýmist hvarf
i ösku eða varö eldinum aö bráð,
ekki til að lifga upp á bjartsýni
manna.
Haldi öskugos áfram þarf ekki
marga daga með austan- eða suð-
austanátt til þess að byggöin hér
fari gjörsamlega i kaf.
Aöur en farið var aö flytja burt húsgögnin fékk fólk aö sækja nauösyn-
legustu föggur meö Heklunni. Hér sjást nokkrir á heimleiö. (Ljósm.
vh.)
Þótt reynt væri aö flýta störfum ineð þvi aö ryöja allar aöalgötur var
þetta algeng sjón: bilar festust og uröu aö fá aöstoö til aö komast
áfram. (Ljósm. vh.)
Frá Sigurdóri Sigurdórssyni I
Vestmannaeyjum.
Sá sem ekki hefur reynt
það getur vart imyndað sér
hve ógnvænlegt ástandið
var hér í Vestmannaeyjum
aðfararnótt laugardagsins
og allan laugardaginn. Þá
stóð vindur af suð-austri og
því nær beint yf ir bæinn frá
gosstöðvunum. Eldi og
eimyrju rigndi látlaust
yfir, logandi gjall og aska
fauk bæinn á enda, allt
niðurað Friðarhöfn. Askan
færði hvert húsið á fætur
öðru í austurbænum á kaf
og kveikti i öðrum. Alls
munu tólf hús þá hafa
brunnið, önnur gáfu sig
undan öskuþunganum sem
lagðist á þau, jafnvel hús
sem ekki stóðu austast í
bænum. Á stundum var
ástandið þannig, að lífs-
hættulegt var að vera utan-
dyra í austurbænum þegar
gjallhnullungar á stærð við
simtól eða stærri féllu allt i
kring, en megnið af ösku-
steinunum var á stærð við
mannshnefa. Enda fór það
svo að þessi sólarhringur
var sá versti sem komið
hefur fyrir kaupstaðinn
síðan gosið hófst.
Aðfararnótt sunnudagsins
snerist áttin til suðurs og suö-
vesturs og skipti þá um: ekkert
kom frá eldstöövunum yfir bæinn
heldur stóð allt af eyjunni. Var
unnið kappsamlega að
björgunarstörfum af þeim sem
komnir voru úr Reykjavik, og
fóru bæði Dettifoss og Herjóifur
fulihiaðnir héðan á sunnudags-
kvöld áleiðis til Rvikur.
A iaugardag var taliö að
kviknað hefði i 12 húsum vegna
þess að glóandi gjallsteinar brutu
giugga og kveiktu I giuggatjöld-
um eða teppum. Þá sukku mjög
mörg hús i ösku, en það er
sjálfsagt ekki oftalið þó sagt sé,
að um 150 hús séu brunnin, sokkin
eða hálfsokkin i ösku sem kalla
má þegar askan er komin upp
fyrir efri brún glugga.
A sunnudaginn rigndi töiuvert
og þyngdist þá askan mikið og
þök húsa sliguðust. Til að mynda
gaf þakiö sig á hinu stóra húsi,
Nýja bíói, og þegar askan hrundi
niður gáfu veggirnir eftir og
sprungu út. Er það nú gerónýtt.
Sömu sögu er að segja af nokkuð
mörgum húsum i austurbænum
sem höfðu flöt þök. Þau gáfu sig
þegar askan blotnaði og þyngdist.
Kappsamlega var unnið að þvi
að negla bárujárnsplötur fyrir
austurglugga húsa um allan bæ,
enda veitti ekki af, og er þá sama
hvort heldur er i austurbænum
eða vesturbænum. Skýfalli af
hnefastórum hnullungum rigndi
yfir allan bæinn i austan og suð-
austan áttinni. Ekki mun þó lokið
við að negla fyrir glugga, enda
skorti bæði mannskap og efni þar
til á sunnudagskvöld er margir
menn komu frá björgunar-
sveitinni Ingólfi og hjálparsveit
skáta.
A mánudagsmorguninn,
snemma, snerist vindur aftur til
suð-austan áttar og siðan til
austurs, og hófst þá sama gjall-
og öskuregniö yfir bæinn og á
laugardag, en þó verra. Mjög
mikið öskulag bættist á götur og
þök húsa á fáum klukkustundum,
og um klukkan 10 i gærmorgun,
hafði bætzt viö i það minnsta 5 cm
lag vestast i bænum. Með
kvöldinu á vindur aftur að snúast
til suð-vesturs og iagast ástandið
þá vonandi fljótlega.
Um hádegið í gær hafði ekki
kviknað i neinu húsi til viðbótar,
og þakka menn það þvi, að búið er
að negla fyrir glugga flestra
þeirra húsa sem eru á mesta
hættusvæðinu.
Sifellt verður erfiðara að
komast um götur bæjarins eftir
þvi sem öskulagið eykst. Hafa
vegheflar og jarðýtur vart undan
lengur að halda götum opnum og
má sjá flokka vera að ýta vörubil-
um sem hafa fest sig á götunum.
I gær átti að reyna flug hingað
til Eyja að þvi er Bjarki Eliasson
Kirkjugarðurinn I Eyjum eins og hann leit út eftir öskufallið fyrir helgjna. prestar munu hafa yfirgefið staðinn strax er gosið hófst I Helga-
felli, en ljós hefur logað í kirkjunni æ siöan og kirkjudyr veriö ólæstar, en nú hefur lagzt svo mikill vikur fyrir frainan þær, að ekki er lengur
unnt að opna. (Ljósm. vh.)
Sérfréttatímar
um og fyrir
Eyjamenn
Útvarpsráð ákvað i gær i sam-
ráði við bæjarstjórn Vestmanna-
eyja að taka upp sérstaka frétta-
tima fyrir Vestmannaeyinga i
hljóövarpi og er stefnt að þvi, að
þetta verði daglcgir þættir að
loknum aðalkvöldfréttum út-
varpsins.
Siðar er ætlunin að einnig verði
teknir upp ákveðnir tilkynninga-
timar fyrir Eyjamenn. Að sögn
Njarðar P. Njarðvik, sem fór
ásamt fleiri fulltrúum útvarps-
ráðs til Vestmannaeyja um
helgina til að kanna aðstæður og
ræða við bæjarstjórn þar, er
þessum fréttaþáttum ætlað að
flytja Eyjamönnum i landi og
Eyjum nákvæmari fréttir af at-
burðum, eyðileggingu og björg-
unarstarfinu er ætla má að varði
almenning, og fjalla um málefni
þeirra, verða eins konar tengi-
liður milli Eyjamanna er þeir
dreifast á ýmsa staði á landinu.
Þá má geta þess, að annað
kvöld verður umræðuþáttur um
málefni Vestmannaeyinga i sjón-
varpinu og verða þar mættir til
viöræðna Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra, fulltrúar
bæjarstjórnar Vestmannaeyja og
Almannavarnaráös, og jarðfræð-
ingar, en Eyjamenn verða i sjón-
varpssal. Magnús Bjarnfreðsson
stjórnar umræðum.
— vh
Hvað á barnið
að heita?
Hæsti tindur hins nýja fjall-
garðs sem myndazt hefur við
gosiö i Vestmannaeyjum og
þegar slagar hátt i foreldri sitt,
Helgafell, hefur enn ekki hlotið
ákveðiö nafn.
Sin á milli eru Eyjamenn þó
þegar farnir að kalla fellið
ýmsum nöfnum, hvað sem nú
festist og verður endanlegt. Hafa
heyrzt nöfn eins og Kirkjufell —
eftir Kirkjubæ, Pislarfell — eftir
Jóni pislarvotti, Urðarfell — eftir
Uröartanga, Bersi, Nýjafeli og að
lokum Litla Helga eða jafnvel
Lilia Hegga i höfuðið á foreldrinu.
— vh
Launþegar og
atvinnurekendur
gefi eitt dagsverk
Þjóðviljanum barst i gær
eftirfarandi fréttatilkynning
frá Málm- og skipasmlðasam-
bandi tslands og Sambandi
málm- og skipasmiöja:
Sameiginlegur fundur
stjórnar Málm- og skipa-
smiðasambands tslands og
Sambands málm- og skipa-
smiðja, þ.e. launþega og
vinnuveitendasamtaka i
málm og skipasmiðaiðnaði,
haldinn 29. jan. 1973, gerði
eftirfarandi samþykkt vegna
eldgossins i Vestmannaeyj-
um:
„Samböndin beina þeim til-
mælum til allra starfsmanna i
málm- og skipasmiöaiðn-
greinum, þ.e. verkafólks,
skrifstofufólks, verkstjóra og
annarra stjórenda fyrirtækja,
að þessir aðilar leggi fram i
fjársöfnun til stuðnings Vest-
mannaeyingum upphæð, sem
svarar til launa fyrir eitt
dagsverk.
Óskað er að fyrirtækin af-
hendi þetta fé að viðbættri
fjárhæð sem svarar til leyfðr-
ar álagningar.
Stjórnir framangreindra
samtaka óska þess, að þeir
sem þannig vilja leggja sitt af
mörkum, tilkynni það sem
fyrst skrifstofu viðkomandi
fyrirtækis.”
Stjórn Málm- og skipa-
smiðasambands Islands:
Snorri Jónsson( sign)
Guðjón Jónsson (sign)
Sigurgestur Guðjónss. (sign)
Kristján Ottósson (sign)
Sigurður Brynjólfss. (sign)
Helgi Arnlaugsson (sign)
Astvaldur Andrésson (sign)
Stjórn Sambands málm- og
skipasmiðja.
Þórður Gröndal (sign)
Sveinn A. Sæmundss. (sign)
Steinar Steinsson (sign)
Geir Þorsteinsson (sign)
Jón Sveinsson (sign)
Að sögn Guðjóns Jónssonar,
formanns Málm- og skipa-
smiðasambands Islands, gæti
almenn þátttaka hlutaðeig-
andi aðila i þessari fjársöf nun
þýtt um 5 miljónir króna sjóö
fyrir Vestmannaeyinga.
Sögusögn
kveðin niður
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi fréttatilkynning frá forsætis-
ráðuneytinu:
„Vegna sögusagna, sem i gangi
eru um að rikisstjórnin hafi
hafnað aðstoð, sem boðin hefur
verið fram af erlendum rikis-
stjórnum vegna náttúruhamfar-
anna i Vestmannaeyjum, skal
tekið fram, að engri slikri aðstoö
hefur verið hafnað heldur tekiö
fram, að rikisstjórnin væri mjög
þakklát fyrir slik boð og myndi
þiggja framboðna aðstoð eða
fyrirgreiðslu, en nánar yröi að
athuga um hvers konar aðstoö og
i hvaða formi gæti veriö um aö
ræða og kæmi að mestu gagni.”
Póstkortasala til
styrktar
Eyjabúum
Þjóðviljanum hefur borizt eftir-
farandi fréttatilkynning frá kven-
félaginu Heimaey i Vestmanna-
eyjum:
Með samþykki bæjarstjórnar
Vestmannaeyja hyggst kvenfé-
lagið Heimaey hefja útgáfu á all-
mörgum lit-póstkortum frá
náttúruhamförunum i Eyjum.
Þeim til aðstoöar verður Sólar-
filma sf. svo og hópur gamalla
skáta frá Vestmannaeyjum, sem
nefna sig Útlaga.
Tilgangur þessarar útgáfu er
aö afla fjár til hjálparstarfsins.
Þeir, sem að þessum málum
standa, munu vinnan endur-
gjaldslaust, svo að allur ágóði
geti runnið óskiptur til Vest-
mannaeyinga.
Allir aðilar, sem eiga myndir
og vilja leggja þessu máli lið með
þvi að láta þær i té, eru góðfús-
lega beönir aö snúa sér til Sólar-
filmu, Bragagötu 27 i Reykjavík
— Simi: 12277 — sem allra fyrst,
en þar verður myndunum veitt
viðtaka og greitt fyriri þær eftir
samkomulagi.
Ráðgert er að selja kortin um
allt land og erlendis lika. Þvi er
treyst, aö margir verði til aö út-
vega myndir, og vonir standa til,
aö töluvert fé megi hafa upp úr
þessari útgafu. Samtökin, sem að
þessu standa, vænta þess að fljótt
verði brugðið við, þvi að nokkurn
tima tekur að vinna myndirnar og
koma þeim á framfæri.
Heitiö er á alla góöa menn og
konur að leggja málinu lið.”
Björgunarstarfið
í Eyjum
gengur vel
Almannavarnaráð, bæjarstjórn
Vestmannaeyja og aðrir aðilar,
sem að björgunarmálum starfa i
Vestmannaeyjum, vilja, af gefnu
tilefni, taka fram, að náið og gott
samstarf er milli allra aðila, sem
að skipulögðum björgunar-
störfum vinna i Vestmanna-
eyjum.
Lokið er við að bjarga innbúi úr
liðlega helmingi allra ibúðarhúsa
i kaupstaðnum, og búið að byrgja
glugga, sem að gosstöðvunum
snúa, svo og þakglugga, á öllum
húsum frá Skólavegi austurfyrir
Suðurveg.
Afram verður unnið að þessum
störfum eftir þvi sem aðstæður
frekasí leyfa. Ekki er vitað til að
nein hús hafi eyðilagzt siðastlið-
inn sólarhring og engin slys hafa
orðið á mönnum, þrátt fyrir mikið
gjallregn.
Um 500 manns starfa nú að
skipulgöðum björgunarstörfum,
að meðtöldu slökk viliði og
lögregluliði, og er ekki talin þörf á
meira starfsliði að svo stöddu.
Misjafnt framlag
í Eyjasöfnunina
All mörg sveitarfélög hafa til-
kynnt um framlög til Vestmanna-
eyjasöfnunarinnar, ýmist til
Rauða Krossins eða Sambands is-
lenzkra sveitarfélaga. Frá
þessum framlögum hefur flestum
verið skýrt hér i blaðinu jafn-
skjótt og fréttir hafa borizt um
hver þau eru.
Austur-Landeyjahreppur, sem
er beint i noröur frá Vestmanna-
eyjum, hefur lagt fram úr sjóðum
sinum 200 þúsund krónur, og jafn-
framt gekkst hreppsnefndin fyrir
söfnun i hreppnum meðal ein-
staklinga og félaga, og nam
söfnunar upphæðin 300 þúsund
krónum. Ibúar Austur-Land-
eyjarhrepps eru 186, og er þá
framlag þaðan um 3 þúsund
krónur á ibúa, þvi samtals kemur
þaðan hálf miljón.
Reykjavíkurborg ákvað fyrsta
dag gossins að veita 150 þús. kr.
úr sinum sjóðum i Vestmanna-
eyjasöfnunina.
Um 18 miljónir
komnar
Rauði kross Islands hafði tekið
á móti 14.5 miljónum króna i
Vestmannaeyjasöfnunina i gær. I
gær bárust 2 miljónir 440 þúsund
krónur frá Bandarikjastjórn, og
hálf miljón króna frá kvenfélag-
inu Hvitabandinu. Útgjöld eru nú
talin nema 10-11 miljónum króna.
Hjálparstofnun kirkjunnar hef-
ur borizt hátt á þriðju miljón
króna i Vestmannaeyjasöfnun-
ina.
Fjölskyldu-
skemmtun
í Háskólabíói
Vegna hinna válegu atburða
sem hafa átt sér stað í Vest-
mannaeyjum hafa allir Islend-
ingar fundiö knýjandi þörf innra
með sér að leggja allt sitt fram til
að veita Vestmannaeyingum alla
þá hjálp og stuðning sem mest má
verða.
Á miðvikudaginn þann 31.
janúar verður haldin fjölda-
skemmtun i Háskólabiói tii
styrktar hjálparstarfi þessu.
Fjöldi landsþekktra skemmti-
krafta ogannarra sem koma fram
á þessu kvöldi vill sýna hug sinn i
garö Vestmannaeyinga og er öll
þeirra vinna lögð fram endur-
gjaldslaust.
Háskólaráð lagði fúslega fram
Háskólabió sem einnig er lánað
endurgjaldslaust. Fjöldi manna
hefur unnið að þvi að hrinda
þessu máli i framkvæmd.
Samúöin ein með Vestmannaey-
ingum er ekki alveg nóg og vonast
allir sem skerf sinn til máls þessa
leggja, að Reykvikingar og fólk
annarsstaðar af landinu fjöl-
menni á miðvikudagskvöldiö i
Háskólabiói.
Skemmtunin hefst kl. 9 og
kostar aðgöngumiðinn kr. 300.
Sérleeir gestir kvöldsins veröa:
forseti Islands, Kristján
Eldjárn, biskupinn yfir Islandi,
séra Sigurbjörn Einarsson,
borgarstjóri Reykjavikur, Birgir
ísleifur Gunnarsson, og fulltrúi
Sameinuðu þjóðanna i almanna-
vörnum, Bandarikjamaðurinn
Will H. Perry.
Eftirfarandi skemmtikraftar
koma fram á skemmtuninni:
Litið eitt.
Þorvaldur Halldórsson
Gisli & Júlli
Kristin Lilliendahl
Rió Trió
Náttúra
Ómar Ragnarsson
Maria Lierena frá Kúbu
Guðbergur Auðunsson
Jónas & Einar
Haukur Snorrason
Guðrún Á Simonar
Jón Gunnlaugsson & Jörundur.
1