Þjóðviljinn - 30.01.1973, Qupperneq 15
Þriðjudagur 30. janúar 1973 ÞJÓÐVILJIWN — SIÐA 15
Afmæli
Framhald af bls. 4.
Þrátt fyrir ágætan lækninga-
mátt þessa peneselins, varð Skúli
ekki alheill, örlitill skáldskapar-
sýkilsangi varðeftir og hefur búið
um sig. ,,Margur er skáld þó hann
ekki yrki” hefur sannazt á Skúla,
þess höfum við orðið greinilega
vör i ritgerðunum, sem hann hef-
ur sent frá sér, og við höfum lesið
okkur til ánægju. Það er sama
hvort hann lýsir bæjarbrekkunni
heima hjá sér, Ljótunnarstaða-
brekku, segir frá einstökum
mönnum og atburðum eða leiðir
okkur inn i hugarheim barnsins,
allsstaðar skin á meira og minna
bjartan og fagran skáldlega
neista, sem oft glitrar af gaman-
semi. Það er a.m.k. annað og
meira en venjulegur landsupp-
dráttur og staðreyndaþula.
En nú er bezt að hætta sér ekki
frekar út i bókmenntalegar hug-
leiðingar og listrænt mat, þvi að
þá gæti svo farið, að bókmennta-
fræðingar Þjóðvilians oe starfs-
bræður þeirra hlægju svo hátt að
hvalir hlypu á land i Trékyllisvik
og jafnvel alla leið upp i Ljótunn-
arstaðabrekku. Þvi skal snúið sér
að þvi, sem átti að verða upphaf
og innihald þessarar greinar, að
Skúli á Ljótunnarstöðum er sjö-
tugur i dag; hann er sum sé af-
mælisbarnið, og það er af þvi til-
efni, að öllu þessu grufli og þrugii
er dembt yfir alsaklausa lesendur
Þjóðviljans.
Þá er að slá botninn i þetta allt
saman, þakka afmælisbarninu
allt gott og árna þvi allra heilla.
Þakka Skúla ágætar ritgerðir
hans, blaðagreinar og útvarps-
þætti, og þá ekki sizt pistlana,
sem hann hefur birt i jólablaði
Vestfirðings á undanförnum ár-
um og allt annað, sem hann hefur
unnið i þágu Alþýðubandalags-
ins, stefnu þess, sósialismanum,
til framgangs.
Arnaðaróskir bið ég Þjóðvilj-
ann að flytja honum frá mér per-
sónulega, frá blaði okkar Vest-
firðingi og siðast en ekki sizt frá
samtökum okkar alþýðubanda-
lagsmanna i Vestfjarðakjör-
dæmi.
Halldór ólafsson.
Af mæliskveð j a
frá Þjóðviljanum
Þjóðviljinn sendir hinu siunga
afmælisbarni á Ljótunnarstöðum
kveðjur sinar og lesenda sinna,
þakkir fyrir liðin ár og heillaóskir
um ókomin ár. Samfylgd Skúla og
Þjóðviljans er orðin löng, og fyrir
Þjóðviljann a.m.k. ákaflega
ánægjuleg. Skúli hefur verið
óþreytandi að skrifa fyrir blaðið,
og m.a. skrifað útvarpsgagnrýni
reglulega um árabil. Frá skrifum
Skúla stafar lifsgleði og birtu, og
hefur það verið happ fyrir Þjóð-
viljann og lesendur að fá að njóta
þess. örlæti Skúla við blaðið og
málstað þess er nátengt! stjórn-
málaskoðunum og -afskiptum
Skúla, en hann hefur jafnan skip-
að sér undir merki sósialisma,
verklýðshyggju og þjóðfrelsis.
Skúli Guðjónssin fæddist 30.
janúar 1903 á Ljótunnarstöðum i
Bæjarhreppi, Strandasýslu, og
þar hefur hann staðið fyrir búi
siðan 1936. Kona hans er Þuriður
Guöjónsdóttir frá Heydal i sömu
sveit. Auk fjölda greina i blöðum
og timaritum og frásagna i út-
varpi, hafa komið þrjár bækur frá
hendi Skúla: Bréf úr myrkri, Það
sem ég hef skrifað og Heyrt en
ekki séð.
Skúli! Þjóðviljinn er ekki búinn
að bita úr nálinni við þig né þú við
hann. Hafðu þakkir og komdu
sem oftast að finna okkur!
Kauphækkun
Framhald af bls. 1.
gert ráð fyrir þessum aðaltekju-
stofnum til viðlagasjóðs:
1. 1. marz — 30. september
þetta ár greiði atvinnurekendur
5.5% viðlagagjald af launa-
skattskyldum vinnulaunum að
undanskildum aflahlutum og
launum áhafna á fiskiskipum.
2. Auk þessa skulu launa-
greiðendur greiða 1% launaskatt i
viðbót við þann sem fyrir er i við-
lagasjóð.
3. Þeir sem stunda eigin at-
vinnurekstur eða hafa tekjur af
sjálfstæðri starfsemi skulu og
greiða i viðlagasjóð, 6,5%. þ.e.
bæði hlut atvinnurekanda og
launamanns, en launaskatturinn
sem að ofan getur er i rauninni sú
kauphækkun sem koma átti til
framkvæmda 1. marz næst-
komandi.
4. Frá 1. febrúar til 31. desem-
ber 1973 skal leggja 2% viðlaga-
gjald á söluskattstofn allra sömu
aðila og ella er kveðið á um i lög-
um.
5. Bændur leggi fram til viö-
lagasjóðssem svarar 1% gjaldi á
>ann hluta gjaldstofns Búnaðar-
málasjóðs, sem svarar til
hundraðshluta launaliðs verö-
lagsgrundvallar búvöru af
heildarútgjöldum hans.
6. 1. marz — 31. september
skulu fiskkaupendur greiða sem
svarar 4% af skiptaverðmæti i
stofnfjársjóð fiskiskipa. Af
þessari greiðslu reiknast 2/3
hlutar viðlagagjald.
7. A gjaldárinu 1973 skal leggja
30% viðlagagjald á álagðan
eignaskatt.
Gert er ráð fyrir þvi að með
ofangreindum ráðstöfunum renni
til viðlagasjóðs á þriðja miljarða
króna.
Sprengingar
Framhald af bls. 1.
inn undir ösku, og aska er einnig
upp á miðja veggi Landakirkju.
Nokkur hús suðvestast i bænum
hafa að mestu sloppið við ösku-
fallið, eða maður kallar það, þó
að aska nái meter upp á veggi
húsanna. Þar hefur litið öskufall
verið siðan aðfaranótt föstudags-
ins, en hætt er við að þar falli
aska i nótt, ef hann gerir norð-
austan átt eins og spáð er, en þá
sleppur lika stærsti hluti bæjar-
ins.
Búiö aö tæma
5-600 hús
Magnús Magnússon, bæjar-
stjóri, sagði mér siðdegis i dag að
búið væri að tæma 5-600 hús i
bænum, og mætti segja að öll hús
austan Skólavegar væru tóm,
utan örfá, en þar biða eigendur
eftir gámum — vilja ekki flytja
dót sitt fyrr en þeir fá þá, enda
hefur farangur manna skemmzt
mikið, ef hann hefur ekki verið
fluttur i gámum.
Þá sagði Magnús, að strax yrði
byrjað að flytja skipulega innbú
manna úr vesturbænum, en þvi
má bæta við, að þegar er búið að
flytja innbú úr mjög mörgum
húsum i vesturbænum; það hafa
eigendur gert upp á eindæmi og
flestir án þess að hafa gáma.
Hraunrennslið hefur ekkert
breytzt að þvi er jarðfræðingar
sögðu siödegis i dag, og rennur si-
fellt i austur. Þá var og dýpi hafn-
arinnar mælt i dag og hefur engin
breyting orðið þar á.
Allt skalf og nötraði
Gosið hefur verið með allra
mesta móti i dal. Sprengingar i
gignum tiðar og háværari en und-
anfarna daga, einkum var þetta
þannig fyrripart dags, en heldur
hefur dregið úr sprengingum sið-
degis. Þegar mestu sprenging-
arnar voru i gignum nötraði allt
Þökkum innilega öllum þeim sein auðsyndu okkur sam-
úð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar,
dóttur okkar, systur og mágkonu
AUÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR HOWIE,
Háteigsvegi 18, Reykjavik
James Gordon Howie
Þórður Jasonarson Jónina Þórðardóttir
Þórður Markús Þórðarson Jenný Einarsdóttir
og skalf i bænum. Herjólfur og
Esja eru hér i dag og er verið að
lesta þau. Von er á Heklunni i nótt
og ef til vill fleiri skipum.
Talið er að um 600 manns vinni
nú að björgunarstörfum i Vest-
mannaeyjum i dag. Það versta er
að enn stendur á gámum, en aftur
á móti er orðið nóg af flutninga-
tækjum.
Byggja verður
Framhald af bls. 1.
veitingarnefndar og hófst þing-
fundur að nýju kl. 6.
Var þá tilbúið nefndarálit og
gerði Geir Gunnarsson, formaður
fjárveitinganefndar grein fyrir
þvi.
Nefndin lagði einróma til, að
þingsályktunartillagan yrði sam-
þykkt með smávægilegri oröa-
lagsbreytingu. Er tillagan, eins
og hún var endanlega oröuð birt á
öðrum stað i blaðinu.
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, þakkaði mönnum ein-
hug og lét i ljós von um, að menn
gætu sameinast um flutning á
frumvarpi til fjáröflunar vegna
hinna gifurlegu áfalla.
Forsætisráðherra minnti á, að
við Islendingar erum nú ólikt
betur undir það búnir, að mæta
afleiðingum stóráfalla vegna
jarðelda, eins og nú hafa yfir
dunið, heldur en áður var, er
þjóðin bjó við sára fátækt.
Að ræðu forsætisráðherra
lokinni var þingsályktunartil-
lagan samþykkt i einu hljóði, og
voru siðan 7 alþingismenn kosnir
i nefnd þá, er hún gerir ráð fyrir,
og komu ekki fram tillögur um
fleira en kjósa átti.
Þessir voru kjörnir: Eysteinn
Jónsson, Halldór E. Sigurösson,
Hannibal Valdimarsson, Lúðvik
Jósepsson, Jóhann Hafstein,
Ingólfur Jónsson og Gylfi Þ.
Gislason.
150 hús
Framhald af bls 8.
Hins vegar er meðalstærð
hnullunganna eins og manns-
hnefi, en margir eru eins og sim-
tæki að stærð eða enn stærri.
Þetta er eins og margoft hefur
verið sagt gjall sem splundrast
þegar það kemur niður, en það
meiðir töluvert ef það kemur i
menn, og gerir þetta björgunar-
mönnunum erfitt fyrir þótt þeir
séu með hjálma, með storm-
gleraugu og i þykkum úlpum eða
stökkum. Einkum meiðast menn
á höndum við að fá gjall-
hnullungana i sig, enda eru þeir
logandi. En menn láta þetta ekki
á sig fá heldur vinna af kappi.
Nokkuð hefur verið um smá-
meiðsli hér, en læknir er á staðn-
um og aðstoðarmenn.
Gróusagnir
Framhald á 16. siðu.
viðræður við forystumenn i
sjávarutvegi, Vestmannaeying-
ana sjálfa og einnig aðila frá Ltú,
fiskimálastjóra, verksmiðjueig-
endum, frystihúsaeigendum Sjó-
mannasambandinu og Far-
manna- og fiskimannasam-
bandinu.
Lúðvik minnt á þá sérstöku
þýðingu, sem Vestmannaeyjar
hafa haft fyrir islenzkan sjávar-
útveg. Þar hefur m.a. verið lif-
höfn fyrir stóran hluta flotans.
Rikisstjórnin hefur undanfariö
hugað að þeim stórkostlegu fjár-
hagsvandamálum, sem upp koma
vegna gossins. Frumvarp er til
búiö, og verður það lagt fyrir þá
þingnefnd, sem hér er ætlunin að
kjósa. Lúðvik taldi sjálfsagt, að
reynt yrði að ná samstöðú allra
þingflokka, væri þess nokkur
kostur, en hér væru um stórar
fjárhæðir að ræða, sem afla þyrfti
Tugir trésmiða
hjálpa
til í Eyjum
62 trésmiðir frá Trésmiðafélagi
Reykjavikur fóru til Eyja á
laugardag, og hafa unnið þar
sleitulaust siðan. 40 trésmiðir
héldu til Eyja i gær til að hvila
félaga sina.
Nýjar hjálpar-
sveitir til Eyj a
1 dag hefur verið unnið að þvi á
vegum Almannavarnaráðs að
senda óþreyttar hjálparsveitir til
skipulagðra björgunarstarfa i
Vestmannaeyjum. Fyrri hluta
dags fóru um 180 menn úr
björgunarsveitum Slysavarna-
félagsins, skáta og flug-
björgunarsveitum frá ýmsum
stöðum á landinu, en fjöldamörg
boð um aðstoð hafa borizt frá
björgunarsveitum og einstakling-
um. Einnig fara i kvöld 40 tré-
smiðir og nokkrir bifvélavirkjar.
Leysa þessir hópar af hólmi
hjálparsveitir, sem verið hafa að
björgunarstarfi. Þá hefur verið
haldið áfram flutningi ýmis konar
búnaðar til notkunar við hjálpar-
starfið. Haldið hefur verið áfram
samstarfi við skrifstofu Vest-
mannaeyjabæjar i Hafnarbúðum
um flutning á búslóðum frá Vest-
mannaeyjum og skipulagður
flutningur á gámum með bifreið-
um varnarliðsins milli Þorláks-
hafnar og Reykjavikur og útveg-
að meira geymslurými til mót-
töku á búslóðum i Reykjavik,
m.a. flugskýli á Reykjavikurflug-
velli. Mun Þröstur Sigtryggsson,
skipherra, hafa yfirstjórn þeirra
mála af hálfu Almannavarna og
bæjarstjórnar Vestmannaeyja.
Aætlað er, að nær 400 gámar séu i
notkun við flutninga þessa. Eins
og undanfarið hefur verið lögð
megin áherzla á flutninga með
skipum, þar eð flutningar i loft
hafa legið niöri vegna veðráttu.
Þá hafa i dag farið fram itarlegar
viðræður við jarðfræðingana Sig-
urð Þórarinsson og Þorleif
1300
saknað í
Indókína
WASHINGTON 29/1. — Fjöl-
skyldur 555 bandariskra striðs-
fanga i Vietnam hafa fengiö til-
kynningu um að þeir verði látnir
lausir á næstunni, 55 hafa fengið
staðfestingu á að þeirra nánustu
hafi fallið i orustu eða látizt i
fangabúðum. Enn biða að-
standendur 1300 manna sem
saknað var eftir vitneskju um af-
drif ættingja sinna.
100-150 fangar munu innan viku
sóttir til Hanoi, en allir eiga
fangarnir að vera komnir heim
áður en marz er liðinn. Samtök
aðstandenda striðsfanga bera
Norður-Vietnemum það á brýn,
að þeir hafi ekki staðið við loforð
sin um að gera grein fyrir öllum
striðsföngum i Vietnam og Laos.
Húsnœðiskönnun
sveitarfélaga
Flest eða öll sveitarfelög hafa
nú fengiö eyðublöð frá Rauða
krossinum til þess að geta gert
könnun þá á húsnæði sem nú fer
fram um allt land vegna náttúru-
hamfaranna i Vestmannaeyjum.
Nokkur sveitarfélög munu hafa
brugðizt fljótt og vel við, og eru
Keflvíkingar meðal annars búnir
að setja upp skrifstofu fyrir þá
Vestmannaeyinga sem þangað
kunna að leita. önnur sveitarfé-
lög munu vera i þann veginn að
hefja þessa könnun.
Snorri
Hallgrímsson
látinn 60 ára
Snorri Hallgrimsson, prófessor,
er látinn. Snorri fæddist 9. októ-
bcr 1912 og var þvi aöeins liölega
scxtugur er hann lézt. Snorri
Hallgrimsson var einn kunnasti
og virtasti maður tslendinga á
sviði læknavisindanna, — gegndi
hann prófessorsembætti og yfir-
læknisstööu árum saman og var
kunnur erlendis fyrir störf sín að
læknisfræði.
Einarsson og prófessor Þorbjörn
Sigurbjörnsson, eðlisfræðing, um
ástand og horfur frá öryggis
sjónarmiði.
29. janúar 1973.
Svanur heldur *
styrktartónleika
Lúðrasveitin Svanur heldur
tónleika næstkomandi laugar-
dag 3. febrúar klukkkan 15,
klukkan 3 e.h.
Allur ágóði af tónleikunum
rennur til Rauða kross Islands
og verður varið til hjálpar-
starfs vegna eldgossins i Vest
mannaeyjum.
Stjórnandi er Jón Sigr js-
son og einleikari á klarinettu
er Björn Leifsson.
Sérstakur gestur lúðrasveit-
arinnar verður Ellert Karls-
son, stjórnandi Lúðrasveitar
Vestmannaeyja, og mun hann
stjórna útsetningu sinni á
lagasyrpu eftir Arna
Thorsteinsson.
Flutt verður tónlist við allra
hæfi.
Aðgöngumiðar kosta aðeins
100 krónur og fást hjá Svans-
mönnum og við innganginn.
Viðkomustaðir
bókabiianna
Simi bókabilanna er 36270 kl
9—12
Arbæjarhvcrfi
Hraunbær 162 mánud. kl.
3.30—5.00 Verzl. Hraunbær
102 þriðjud. kl. 7.00—9.00
Verzl. Rofabæ 7—9 mánud.
kl. 1.30—3.00. þriðjud. kl.
4.00—6.00
Hlesugróf
Blesugróf
— 6.15.
mánud. kl. 5.30-
Hrciöholt
Breiðholtsskóli mánud. kl
7.15— 9.00. fimmtud. kl. 7.00
—9.00 föstud. kl. 1.30—3.30
Fremristekkur fimmtud
kl. 1.30—3.00. Verzl
Straumnes fimmtud. kl
4.15— 6.15 Þórufell þriðjud
kl. 1.30—3.15 föstud. kl. 4.00
-5.00
Háalei tishverfi
Alftamýrarskóli fimmtud.
kl. 1.30—3.30 Austurver,
Háaleitisbr., mánud. kl.
3.00—4.00 Miðbær, Háaleit-
isbr. mánud. kl. 4.30—6.15
miðvikud. kl. 1.30—3.30
föstud. kl. 5,45—7.00
llolt — Hliöar
Stakkahlið 17 mánud. kl.
1.30—2.30 miðvikud. kl. 7.00-
—9.00 Æfingaskóli Kennara-
sk . miðvikud. kl. 4.15—6.00
Laugarás
Hrafnista föstud. kl. 3.15-
—4.15 Verzl. Norðurbrún
þriðjud. kl. 5.00—6.30 föstud.
kl. 4.30—5.45
Laugarneshverfi
Dalbraut/Kleppsv. þriðjud.
kl. 7.15—9.00 Laugalækur-
/Hrisat. föstud. kl. 1.30-
—3.00
Sund
Verzl. við Sæviðarsund
þriðjud.kl. 3.00—4.30 föstud.
kl. 6.00—7.00
Tún
Hátún 10 þriðjud. kl. 1.30-
—2.30
Vesturbær
KR-heimilið fimmtud. kl.
7.15— 9.00 Skerjafjörður-
Einarsnes fimmtud. kl.
3.45—4.30 Verzl. Hjarðar-
haga 47 mánud. kl. 7.15-
—9.00 fimmtud, kl. 5.00-
—6.30
Nýja bókasafnið i Bústaða-
kirkju — Bústaðaútibú — er
opiðmánud. til föstud. kl. 2.00
—9.00