Þjóðviljinn - 25.03.1973, Page 13

Þjóðviljinn - 25.03.1973, Page 13
þangað til fyrsta sýningin átti að hefjast. Stöðugur straumur gesta þokaðist milli bilánna i áttina að innganginum. Þeir færðu sig mót- þróalaust til að hleypa gula Kádilljáknum framhjá. Nokkir gægðust inn i bilinn til aö gá hver i honum væri og snéru sér siðan að næsta manni og sögðu: „Var þetta ekki...?” En það voru fimm karlmenn i langa bilnum og og enginn var alveg viss. Andy Paxton sat i aftursætinu á milli tveggja manna, rétt eins og hann væri konungborinn. Tveir sátu i framsætinu og annar þeirra ók bilnum. Þeir voru allir i þjónustu hans á einhvern hátt. Vinstra megin við Andy sat Bake vinur hans. Til hægri Lanny Munce, listrænn ráðunautur plötuútgáfunnar. Bilstjórinn var Hub, lifvörður hans og við hliðina Eftir Whit Masterson i. Blöðin kölluðu það glæp ársins. Það voru skiljanlegar ýkjur. At- burðirnir i fyrstu viku júli voru ömulegir og ógnvekjandi og hefðu orðið forsiðufrétt, jafnvel þótt um venjulegan borgara hefði verið að ræða. En þetta voru ekki venju- legir borgarar...þeir voru sjálfir afkvæmi auglýsingastarf- seminnar, og allt sem fyrir þá kom, tðk á sig ýkta mynd. Þetta varð harmleikur sem átti sér engan lika, og öll þjóðin varð áhorfandi og gagnrýnandi. Fylgzt var með hverri hreyfingu með- leikaranna, hvert smáatriði grandskoðað og það rætt við morgunverðarborðin og á rakarastofunum stranda i milli. Og þó gerðist hinn raunverulegi harmleikur bakvið sviðið, utan sviðsljósanna og fjarri augum hinna forvitnu, i undarlegri, há- vaðalausri baráttu milli manns sem átti enga vini og manns sem átti of marga.... Samucl Skolman kynnir ANDY PAXTON. Frumsýning i kvöld! Kvöldþokan sem læddist inn af Kyrrahafinu myndaði daufan geislabaug kringum rauða ljósa- stafina. En hún huldi þá ekki og ekki heldur útlinur leikhús- loftsins, sem hófst hundrað metrum fyrir aftan neonskiltiö, eins og furðulegt sjóskrýmsli sem rekið hafði á land með flóði. En E1 Dorado var engin tilviljun fremur en landið sem það stóð á. Hvort tveggja var byggt upp af kost- gæfni, tanginn úr sandi úr Skákþraut No. 9. Þessi staða kom upp i skák þeirra Baumstark og Kozlovska i Ohrid 1971. Hvitur leikur og vinn- ur. Lausn á dæmi nor. 8. 1. Dxe5, svartur tapar nú miklu liöi vegna þess að hann getur ekki leikið dxD vegna 2. Bf6 Kg8 3. Rh6 mát. höfninni, næturklúbburinn til aö nýta umhverfið sem bezt. Með vatn á þrjá vegu og borgarljósin sem glitrandi bakgrunn, var E1 Dorado nær eingöngu glerveggir og gluggarjaðeins landmegin var heill veggur. Þeir sem höfðu efni á að greiða það sem nætur- klúbburinn setti upp, höfðu ekki áhuga á útsýni yfir bilastæðið. Samuei Skolman kynnir ANDY PAXTON. Frumsýning i kvöid. 1 nánd við hvolflaga innganginn voru tveir risastórir ljóskastarar farnir að senda ljós sin upp i 1 himininn eins og þeir gerðu næstum hvert einasta kvöld. Gagnstætt mörgum svipuðum stofnunum sem kvörtuðu um skorti áskemmtiatriðum, sem viðráðanleg væru kostnaðarins vegna en samt hægt að græða á, gat E1 Dorado viku eftir viku ráðið skemmtikrafta sem voru eins og klipptir út úr óskalista. Það var ekki vegna þess að Samuel Skolman greiddi meira en aðrir. Það gerði hann ekki, reyndar siður en svo. Þetta byggðist eiginlega á happasælli tilviljun. Það hafði komið i ljós að borgin sem E1 Dorado var i, var kjörinn staður til að færa upp ný næturklúbbaatriði — þægilega nærri Los Angeles og Las Vegas, en þó ekki svo nærri að ljóminn hyrfi af siðari hátiðasýningum. Söngvarar, dansarar, gaman- leikarar ... allir voru þeirrar skoðunar, að E1 Dorado væri sá staður þar sem hægt væri að fága ný atriði og lappa upp á gömul. Það gaf auga leið að atriði sem hlaut vinsældir i E1 Dorado myndi moka inn peningum á dýru skemmtistöðunum fyrir norðan. Atriðin sem misheppnuðust voru tekin út af dagskrá og stokkuð upp áður en þau voru reynd að nýju Samuel Skolman kynnir ANDY PAXTON. Frumsýning i kvöld. Það er sama hve oft það gerist, hugsaði Andy Paxton, þegar billinn ók inn á bilastæðið, — ég venst þvi vist aldrei að horfa á nafnið mitt i neonljósum. Honum fannst það á einhvern hátt óraun- verulegt að nafnið hans -- þessir flötu, kauðalegu stafir — var jafn þekkt og sigarettutegund eða handsápa. Þaö þurfti ekki einu sinni að bæta við skýringu svo sem „söngvari” eða „sjónvarps- stjarna.” Nafnið nægði. Allir eða að minnsta kosti flestir þekktu það. Aðeins — ANDY PAXTON. Frumsýning i kvöld. Bilastæðið var þegar fullt af bilum, þótt enn væri klukkutimi á Hub sat Ed Thornburg, blaða- fulltrúi hans. Þetta var engan veginn allt fylgdarlið hans. Ef allir hefðu átt að vera með i einu, hefði þurft að leigja strætisvagn. Ef hljómsveitin var meðtalin, var fylgdarliðið um þrjátiu manns. Bake hafði veriö að spauga með þetta i flugvelinni á leið frá Los Angeles. — Litla velferðarrikið okkar. Andy vinnur fyrir peningunum og við skiptum þeim með okkur. Andy hafði ekkert við þetta að athuga. Honum féll vel við með- bræður sina,og þegar peningarnir streymdu inni striðum straumum viku eftir viku, virtist það ekki nema sanngjarn að aðrir fengju hlutdeild i þessu mikla láni. Þannig leit hann á þetta innst inni, sem einskæra heppni sem hann átti sjálfur býsna litinn þátt i. Andy var ekki ennþá orðinn eigingjarn sjálfbyrgingur eins og flestar meiri háttar stjörnur. Hann hafði ekkert á móti sam- starfsmönnum sinum eða þeim sæg aðdáenda sem höfðu gert lif- vörð nauðsynlegan. Gagnstætt mörgum listamönnum, sem létu oft i ljós gremju yfir mann- fjöldanum sem stöðugt elti þá, fann Andy til þakklætis, næstum væntumþykju i garð þeirra. Eins og til að mynda i kvöld. Þegar Kádilljákurinn stanzaði við sviðsinnganginn i E1 Dorado, flykktist samstundis að honum mannsöfnuður. Það var einkum ungt fólk og táningar sem um- kringdu bllinn, góndu inn um gluggana og hrópuðu nafnið hans. Hub stöðvaði vélina og sagði við Andy: — Biddu þangað til ég get stuggað þeim ögn frá. Hann þaut úr úr bilnum, þrekvaxinn maður með myndugleika i fasi. Thornburg blaðafulltrúi sagði; — Þarna sérðu, Andy. Þú ert strax búinn að ná ofsalegum vin- sældum. — Hann má þakka fyrir ef hann kemst inn i buxunum heilum, tautaði Bake. — Þetta minnir mig á bandóðan múg sem vill hengja einhvern. Er þessi náungi þarna ekki með reipi? — Hver? spurði Munce og leit skelfdur i þá átt. Bake skelli- hló. Hann var óforbetranlegur sprellugosi, áhyggjulaus náungi á aldur við Andy, en stærri og dekkri yfirlitum. Þeir höfðu verið vinir siðan i æsku. Bake hafði verið varnarmaður Andys i Rugby-liðinu i menntaskóla og var það reyndar enn að vissu leyti. Þeir höfðu verið með óljósar ráðagerðir um að fara saman út i viðskiptalifið, en her- skyldan hafði aðskilið þá. Þegar Bake losnaði úr hernum, var Andy þegar á leið upp á stjörnu- himininn. Bake hafði reynt fyrir sér líka og reynt með litlum árangri að verða leikari. Þegar Sunnudagur 25. marz. 1973 ÞJ6ÐVILJINN — StDA 13 BRIDGE Meistarar eigast viö A móti meistarasveita sem haldið var i Deauville fyrir þrem- ur árum tókst Georges Théron að vinna „game” — sögn sina vegna frábærs hæfileika sins til að gera sér grein fyrir þvi, hvernig spil andstæðinganna skiptust. Noröur sp. K 10 8 6 5 hj. D 9 6 ti. 7 3 la. G 7 4 Vestur Austur sp. D 9 4 sp. A G 3 2 hj. G 2 hj. 8 4 ti K D G 10 5 4 ti. A 8 la. 5 2 Suöur la D 10 9 6 3 sp. 7 hj. A K 10 ti. 9 6 2 7 5 3 la. A K 8 Sagnir: Suður gefur. Noröur Suður á hættunni. (Borð nr. 3 — Suður: Theron, Vestur: Reese Norður: Desrousseaux, Austur: Flint) Suöur Vestur Noröur Austur 1 hj. 1 gr. 2 hj. pass 3 ti. dobl 4 hj. pass kom honum inn á spaðaásinn, svo að hann neyddist til að láta út lauf og missa þannig báða laufaslag- ina. Strax að spilinu loknu ásakaði Reese meðspilara sinn fyrir að hafa ekki tekið útspil sitt (tigul- kónginn) með ásnum og láta sfð- an út tiguláttuna.Reese hefði þá látið út tigul i þriðja sinn til þess að sagnhafi freistaðist til að trompa með háspili i blindum þ.e. með hjartadrottningu, til þess að forðast yfirtrompun frá Austri. Það hefði þá verið eðlilegt að sagnhafi gerði ráð fyrir að Vest- ur ætti aðeins einspil i hjarta, tromplitnum, og myndi þvi reyna að ná trompgosanum með svin- ingu... Trompstytting Albarrans Það eru liðnir meira en tveir áratugir siðan Pierre Albarran vann þess gjöf á glæislegan hátt. Lausnin liggur ekki i augum uppi, þótt öll spilin liggi á borð- inu. Noröur sp. A D 7 hj. A K 7 6 ti. 4 la. K D 8 7 6 Reese lét út tigulkóng og siðan tiguldrottningu, sem Austur varð aðtaka með ásnum. llann lét svo út trompfjarkann.Hvernig spilaði Theron til þess að vinna sögnina íjögur hjörtu, gegn beztu vörn? Þannig fóru spilin i þessari sömu gjöf við hin borðin tvö: (Uppsetning (borð nr. 3) nafna- skrá, sagnir, spurning) — Svar: Þegar Théron komst að þvi að Flint átti tigulásinn, skildist hon- um að eins grands yfirboð Vest- urs væri ekki „eðlilegt”, heldur lægi annað á bak við það, og að Reese myndi aðeins eiga einn sterkan lit, sennilega i tigli, og doblun hans við þremur tiglum staðfesti það. Það mátti þvi gera ráð fyrir þvi að Austur ætti spaðaás að tryggja sér með kast- þröng. Spilið fór á þennan veg: Þegar Théron hafði tekið hjartagosann með hjartadrottningu, tók hann i hjartakónginn til þess að taka siö- ustu tromp andstæðinganna. Sið- an trompaði hann þriðja tigul sinn með siðasta trompinu hjá blindum og komst sjálfur inn á laufakónginn. Siðan tók hann á öll hjörtu sin þar til þessi lokastaða kom upp (spil Vesturs skipta ekki máli): sp. K 10 la. G 7 sp. A G )a. D 10 sp. 7 hj.A la.A8 t siðasta trompið kastaði Théron spaðatiunni frá blindum, en Austur varð að kasta af sér spaðagosanum til þess aö halda i laufadrottninguna. En Théron Vestur sp. — hj. 10 8 4 3 ti. A K G 10 9 3 2 la. G 2 Austur sp. G 9 6 5 hj. D G 9 5 2 ti. D 8 la. 9 3 Suöur sp. K 10 8 4 3 2 hj- —. ti. 7 6 5 la. A 10 5 4. Sagnir: Norður gefur. Hvorugir á hættunni. Vestur Norður Austur Suöur — l hj. pass 2 la. 3 ti 4 la. pass 4 sp. pass 4 gr. pass 5 ti. pass 6 sp. pass pass. Vestur lætur út tigulkóng, siðan tigulás. Asinn er trompaður með sjöunni i borði, siðan tók Albarr- an á spaðaásinn, en Vestur reyndist vera blankur. Hvernig spilaði Albarran úr þessu til þess að tryggja sér vinn- ing i hálfslemmu i spaða gegn beztu vörn? Athugasemd um sagnirn- ar: Albarran spilaði á móti eigin- konu sinni, eftir sagnkerfi sem hann hafði nýlega fundið upp. Þegar Norður hefur opnað á einu hjarta, er hönd Suðurs fullveik til þess að hann svari með tveim laufum i fyrstu umferð, til þess að segja siðan frá spaðalit sinum. En Albarran óttaðist að ef hann segði strax einn spaða, gæti hann ekki gefið visbendingu um ágæta skiptingu spila sinna. Brunaverðir Störf þriggja brunavaröa viö slökkviliö Hafnarfjaröar eru laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum starfsmannafélags Hafnarfjaröarkaupstaðar. Upplýsingar um störfin veitir slökkviliösstjóri Umsóknir skulu sendar undirrituðum eigi siöar en 4. aprfl n.k. Bæjarstjórinn I Hafnarfiröi Tilkynning til bifreiöaeigenda í Reykjavík Af gefnu tilefni tilkynnist, að eindagi bif- reiðagjalda er ekki bundinn við skoðun bifreiðar. Eindagi þungaskatts og annarra bifreiðagjalda ársins 1973 er 31. marz næstkomandi. Bifreiðaeigendur i Reykjavik eru hvattir til að greiða bif- reiðagjöldin fyrir 1. april, svo komist verði hjá stöðvun bifreiðar og frekari inn- heimtuaðgerðum. Tollstjórinn i Reykjavik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.