Þjóðviljinn - 25.03.1973, Side 16

Þjóðviljinn - 25.03.1973, Side 16
DfOÐVll/m Sunnudagur 25. marz. 1973 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Lækna- félags Reyk javikur, simi 18888. Kvöld-, nætur- og 'helgar- þjónusta lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna 23.-29. marz er i Reykjavikurapóteki og Borgarapóteki. Slysavarðstofa Borgarspital- ans er opin ailan sólarhring- inn. Kvöld-, nætur og helgidaga- vakt á heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. RÆTT VIÐ SKIPSTJÓR- ANN Á BJARTI NK Skoðanakönnun á vegum íhaldsblaðs í Noregi um 50 mílur: Fylgis- menn útfœrslu í sókn OSLÖ — útfærsla fisk- veiðilögsögunnar virðist geta orðið dagskrármál í Noregi innan tíðar, ef marka má skoðanakönnun Aftenposten i Osló. Sam- kvæmt henni töldu 49% hinna spurðu sig fylgjandi því að fiskveiðilögsagan yrði færð út í 50 mílur, en 51% kvaðst þvi andvígur. Greinilegt var, að hræðslan við refsiaðgerðir af hálfu Efnahags- bandalagsins vegur þungt hjá þeim sem vilja fara sér hægt i málinu. Og spurningar hins ihaldssama blaðs vöktu sérstaka athygli á þeim viðhorfum. I skoð- anakönnuninni kom fram, að fylgjendur hægri flokksins voru yfirleitt andvigir útfærslu, en þeir sem fylgja hinum strjálbýlisvin- samlega Miðflokki að málum og einnig Sósialiska alþýðuflokknum studdu stækkaða landhelgi. Tvennt hefur einkum vakið þá hreyfingu yfir 50 milna landhelgi sem nú er að vaxa fiskur um hrygg i Noregi. Annars vegar er niðurstaðan af þjóðaratkvæða- greiðslunni um aðild að EBE og sá skilningur á sérstöðu norska atvinnulifsins sem NEI-hreyfing- in efldi meðal þjóðarinnar. Hins vegar er útfærsla tslendinga á sinni fiskveiðilögsögu i 50 milur. tslenzkir námsmenn i Noregi hafa unnið ötullega að kynningu á málstað tslands i landhelgisdeil- unni við Breta og Vestur-Þjóð- verja, og hafa þeir náð samstöðu með öflugum samtökum norsks æskulýðs sem hafa tekið upp mál- ið sem norskt baráttumál fyrir 50 milum. Er landhelgishreyfingin i Noregi greinilega i sókn. Eltingaleikur Lögreglan i Keflavik átti i fyrrinótt langan og erfiðan eltingaleik við óðan Amerikana, sem ók um götur Keflavikur og nágrennis á yfir 100 km hraða og neitaði að sinna nokkrum kröfum um stöðvun. Maðurinn hafði ekið út um girðingarhliðið á Keflavikurflug- velli án þess að nema þar staðar, eins og reglur mæla fyrir um. Var þá lögreglan i Keflavik beðin að handsama ökumanninn, og gekk það heldur illa eins og að ofan greinir. Þegar loks tókst að króa manninn af kom i ljós, að hann var hvorki undir áhrifum áfengis eða deyfilyfja, en liklega hefur honum verið farin að leiðast vist- in innan girðingar og þráð frelsið. Hittannst i hmtpfélaginu - Nýi skuttogarinn þeirra Noröfiröinga Bjartur, . kom úr sinni fyrstu veiðiferð sl. mið- vikudag. Við slógum á þráðinn til skipstjórans, Magna Krist jánssonar, og spuröum frétta af þess- ari fyrstu veiðiferö. Það komu nokkrir smá- vægilegir vankantar fram i túrnum, sagði Magni. Til að mynda voru átaksmælarnir bilaðir, dýptarmælirinn mældi ekki rétt dýpi og við lentum i vandræðum með trollið. - Hvar hélduð þið ykkur? Kyrstu tvo dagana vorum við fyrir austan, en fórum sið- an á Selvogsbanka og vorum þar i 5 daga. A þessum 5 dög- um fengum viðaðeins ldtonna afla. Siðan fórum við austur aftur og fengum 140 tonn þar á limm dögum. Hvað takið þið mörg höl á sólarhring? Niu ef vel gengur. Við fengum þessi 140 tonn i 45 höl- um, 3 tonn að meðaltali i hali. Er það vont eða gott fiskiri? Það verður að teljast aII- gott, þvi meðalafli á togtima er á að gi/.ka 7—800 kiló. Hvernig eru vaktirnar um borð? — Það er skráð eftir báta- kjarasamningum, sem þýðir að heimilaðar eru allt að 18 tima stöður á sólarhring, en samt sem áður er vöktum þannig hagað, að staðið er 6 tima og siðan er 6 tima hvild. — Var mikið af aflanum þorskur? — Þetta var allt þorskur. Við isuðum 85 tonn af honum i 60 kilóa kassa, en við höfðum áður gert tilraun með það á Barða. Siikur fiskur verður fyrsta flokks hráefni — Hvernig gengur þeim á Barðanum? Þaðgengurvel hjá þeim. Þeir eru búnir að fá 630 tonn frá áramótum. — Hvernig reyndist svo Bjartur þegar á allt er litið? — Mjög vel. Til að lagfæra þessar smábilanir, sem ég minntist á áðan, og hagræða einu og öðru smálegu, eru komnir hingað austur Japanir frá vérksmiðjunum sem smið- uðu togarann. Við ætlum að láta gera smávægilegar breytingar til hagræðis á vinnudekki og i lestinni. — Hvað er ábyrgðartimi langur á Bjarti? — Tólf mánuðir. — Þú ert sem sagt ánægður með skipið? — Hæstánægður. já. —úþ Margir þekktu Norður- pólinn Fjölda margir hringdu, bæði hingað á Þjóðviljann og á Þjóðminjasafnið, til að gefa upplýsingar um gömlu myndirnar, sem birtust í blaðinu á sunnu- daginn var. Flestir þekktu húsið i Reykjavik, sem enn stendur við Hlemmtorg, og varkallað Norðurpóll, en er nú Hverfisgata 125. Sem sjá má hefur Norðurpóllinn tekið nokkrum breyt- ingum, ma. verið settur á •það stór kvistur. Myndina tók Ari ijósmyndari nú í vikunni. Þessi inynd var tekin af Kjarti þegar hann koin til Neskaupstaðar frá Japan i byrjun niánaðarins. Magni Kristjánsson Þátturinn með gömlu myndununt heldur áfram I blaðinu i dag á IX. siðu og segjum við þar nánar frá fyrri myndunum og birtum tvær til viðbótar, sem við vonum, að lesendur hjálpi okkur lika til að finna. i ÞRJÚ TONN í HAIJ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.