Þjóðviljinn - 27.03.1973, Qupperneq 5
Þriðjudagur 27. marz. 1973 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 5
Þröstur Ólafsson hagfrœðingur:
Vinstri stefna
og efnahagsmál
Hér birtist síöari hluti
greinar Þrastar ólafssonar
hagfræðings um vinstri
stefnu og efnahagsmál.
Fyrri hlutinn birtist í Þjóö-
viljanum föstudaginn 23.
marz.
Ég vil nú reyna að telja upp
nokkur dæmi um vinstrisinnaða
efnahagspólitik hérlendis.
t fyrsta lagi verður að ganga
milli bols og höfuðs á verðbólg-
unni, þvi hún er ekki aðeins stoð
og styrkur hagkerfisins, heldur
hefur hún i för með sér auðsöfnun
einstaklinga og almenna samfé-
lagslega sóun, sem hvorttveggja
eykur ójöfnuð og styrkir völd pen-
ingaaðalsins. Þessi álmenna
samfélagslega sóun kemur bezt
fram i viðhaldi verðbólgufyrir-
tækja i hvers konar dreifingu
verðmæta, rándýrum og upp-
spenntum innflutningi og að-
þrengdum lánamarkaði.
Verðbólga verður þvi ekki
niðurkveðin nema með skipulags-
breytandiaðgerðum þótt hagræn-
araðgerðir þurfi einnig að fylgja i
kjölfarið. Ein sú leið, sem val-
kostanefndin svo kallaða benti á
— niðurfærsluleiðin — bauð upp á
tækifæri til slikra aðgerða. Hún
hlaut þvi miður ekki hljómgrunn
hjá núverandi rikisstjórn.
Það er ekki nóg að tala um
bölvun verðbólgunnar á sunnu-
dögum eða rétt fyrir kosningar,
en gera svo þveröfugar ráðstaf-
anir þegar á hólminn er komið.
Maður
Nixons og
FBÍ hlýtur
þungan
dóm
W atergate-málið,
er að upplýsast
Washington 23/3. — Gordon
Liddy, fyrrum starfsmaður
Bandarikjaforseta og bandarfsku
leyniþjónustunnar, FBI, var i
dag dæmdur i allt að 20 ára
fangelsi. Hann var fundinn sekur
um að vera annar höfuðpaurinn i
innbroti i aðalstöðvar Demó-
krataflokksins i Watergate-bygg-
ingunni i Washington i júni i
fyrra. Auk þess stundaði hann og
samstarfsmenn hans simahler-
anir. Liddy og félagar voru for-
ystumenn i kosninganefnd Nixons
i kosningabaráttunni fyrir for-
setakosningarnar i fyrra, og
glæpirnir voru einmitt framdir
þegar hún stóð sem hæst.
Auk fangelsisdómsins var
Liddy dæmdur i 40 þús. dollara
sekt (um 4 miljónir isl. kr.X
Liddy er fyrstur sjö ákærðra, sem
hlýtur dóm i máli þessu. Fimm
hinna ákærðu hafa játað sekt
sina, en Liddy og einn annar hafa
neitað ákærunni.
James McCord heitir hinn sak-
borningurinn sem ekki hefur
játað sekt sina. Dómarinn frest-
aði þvi að kveða upp dóm yfir
honum, þar sem fram hafa komið
nýjar upplýsingar um að hann
hafi verið beittur pólitiskum
þvingunum til að sverja rangan
eið i réttinum.
LONDON 23/3. — Verkamenn i
gasstöðvum hafa nú fengið kaup-
hækkun eftir 6 vikna verkfall.
Lengi vel þverskallaðist stjórn
Heaths við öllum kröfum þeirra,
en nú hefur samkomulag tekizt
um 3 1/2 punds hækkun á viku-
kaupi (h.u.b. 800 kr.)
Þröstur ólafsson.
SEINNI HLUTI
fslenzkt launafólk getur ekki
átt von á bandamönnum frá
hægri til að kveða niður verðbólg-
una, tólf viðreisnarár sanna það.
En þegar vinstri stjórn — sem svo
kallar sig — sýnir enga tilburði til
þess, er i fá hús að vernda, og
hlýtur fyrr og siðar að kalla á við-
brögð „háttvirtra” kjósenda.
Verðlagsmálin eru eitt megin-'
málið i islenzkum stjórnmálum,
og ekkert er skaðlegra framtið
vinstri hyggju i landinu og þar
með vinstri stjórnar en að missa
tökin á þeim. Það dylst engum, að
þar er við marga varga að berj-
ast, og þeir láta ekkert af hendi
án baráttu. En til þess var þessi
stjórn kosin.
i öðru lagiþarf að vinna gegn of
miklum tekjumismun i samfélag-
inu. Hér er þó við þann vanda að
etja að tekjur samanstanda bæði
af launum og gróða. Hægt er að
hafa mikil áhrif á launamyndun
og dreifingu þeirra i gegnum
kjarasamninga, en gróðanum
verður að stjórna i gegnum
skattalögin og verðlagskerfið.
Þjóðnýting gæti að visu ráðið við
gróðann, en ég reikna ekki með
henni sem pólitiskt raunhæfri nú.
Skattakerfið verður þvi að endur-
bæta og breyta, svo lengi sem það
ræður ekki við tekjujöfnun og af-
nám fjárhagslegra forréttinda.
i þriðja lagi þarf almennings-
valdið að ná samræmdari tökum
á heildarstjórn fjárfestingarmála
til að geta stjórnað hagvextinum
og atvinnumagninu. Þetta ætti að
vera framkvæmanlegt, þar sem
raunar allt er fyrir hendi sem til
þarf. Bankar flestir og fjárfest-
ingarsjóðir eru i rikiseign, en lif-
eyrissjóðir i eigu verkalýðsfé-
laga. Auk þess mögnuð stofnun til
að framkvæma þetta. Um leið
þarf að fara að huga að auknum
itökum verkafólks á vinnustöðum
sinum.
i fjórða lagi — og þetta er
meginmál — auka þarf sam-
neyzlu og opinbera fjárfestingu,
en þetta er eitt af meiriháttar ein-
kennum vinstri stefnu i efnahags-
málum, þvi þetta er fyrsta skrefið
á þeirri leið að afnema peninga-
tekjur i samfélaginu og það
gildismat, sem þeim fylgir. Þeg-
ar komin er á frjáls og ókeypis
menntun, heilbrigðisþjónusta og
umfangsmiklar almannatrygg-
ingar má auka þetta smám sam-
an yfir á önnur svið og láta það
gilda yfir ýmsar vörur og þjón-
ustu s.s. húsnæði, ljós og hita, þar
til við höfum náð fullkomlega
frjálsri dreifingu eftir þörfum. En
þetta felur að sjálfsögðu i sér af-
nám vöru- og gildishlutfalla
rikjandi kerfis. Samfélag sem
hefur tekið verulegt skref i þessa
átt og sem er á áframhaldandi
leið þangað getur með góðri sam-
vizku kallað sig vinstri sinnað.
Ég ætla ekki að gera þvi skóna
hér hvaða óhemju átök þyrftu að
ganga á áður en peningakerfið er
afnumið — sennilega valdatöku
verkalýðsins — en það losar okk-
ur ekki undan þeirri skyldu að
þrýsta á stöðugt aukin útgjöld til
félagslegra umbóta, sem þegar til
lengdar lætur er ekki aðeins af-
komutrygging launafólks, heldur
einnig frelsistrygging. Hér er
reyndar um að ræða grundvallar-
atriði i framkvæmd sósialisma,
sem þvi miöur hefur hvergi verið
reynt enn að marki. ekki einu
sinni i þeim löndum, sem kenna
sig við sósialisma, þótt það sé
lengra á veg komið en hér.
Markviss framkvæmd slikrar
stefnu krefst að sjálfsögðu vissra
fórna launafólks i bráð og að
sjálfsögðu minni einkaneyzlu, en
við fáum engar samfélagsumbæt-
ur á silfurdiski og þeir, sem
hanga sem mest i hæstri einka-
neyzlu og að hana megi á engan
hátt skerða á sama tima og verið
er að gera verulegar félagslegar
umbætur — þeir eruandstæðing-
ar hagsmuna launafólks. Þvi má
nefnilega aldrei gleyma, að tvær
meginstoðir auðvaldsins eru
einkaneyzla og vald. f neyzlu-
þjóðfélaginu verða ekki bara
falskar og óþarfar þarfir búnar til
— þvi framleiðslan vegna fram-
leiðslunnar (gróðans) þarfnast
stöðugt nýrra kaupenda, — held-
ur er skírskotað til neyzlulýðræð-
is og sjálfsvirðingar neytandans.
Billinn i búðarglugganum kallar:
Þrælaðu meira, þá geturðu fengið
mig! Og billaus maður er aðeins
hálfur maður. Styrkleiki neyzlu-
þjófélagsins og þar með valds
gróðamanna liggur i þvi, að auð-
valdsarðránið hefur fengið verð-
mæta hjálp i sjálfsarðráni launa-
fólks. Hér verður ekki spornað við
nema ráðast á einkaneyzluhug-
sjón nútimans.
Nú eru nægilega uppteiknaðir
megindrættir þess, sem kalla
mætti vinstri stefnu i efnahags-
málum, þótt ótal smáatriði séu
eftir. Hvaö skyldu vera margir
stjórnmálaflokkar á Islandi, sem
af heilindum hafa forsendur til að
framfylgja henni?
HEFTI 1973
56. ÁRGANGUR
KR. 75,00 HEFTIÐ
iBttni
Home i neðri málstofunni:
„Sendum herskip á Is
landsmið ef þörf er á“
Nýtt heftí af
Rétti komið út
Héttur, 1. hefti nýs árgangs, er
kominn út og flytur margvislegt
efni að vanda. Forsiðurnar á
Rétti vekja jafnan athygli og ekki
sizt sú sem hér birtist mynd af;
barátta islenzku þjóðarinnar við
náttúruhamfarir og brezkt tog-
araauðvald hefur sjaldan komið
skýrar fram en einmitt á þessari
mynd. Innlendir höfundar efnis i
Rétti nú eru Einar Olgeirsson,
Þröstur Olafsson, Loftur Gutt-
ormsson og Albert Einarsson.
Rétt þurfa allir þeir að lesa sem
vilja fylgjast með þjóðfélagsum-
ræðum. Áslfriftarsiminn er 17500,
Skólavörðustíg 19, Rvik.
Bóksala stúdenta opnar i dag kl. 10 árdegis i Stúdentaheimilinu
við Hringbraut
sýningu á visinda-
og t{ennslubókum frá
c Graw- CHill
útgáfufyrirtœkinu
Sýndir verða 150 bókatitlar.
Fulltrúi McGraw-Hill,
David S. Anderson.verður á staðnum þessa viku og veitir
upplýsingar kl. 11-15
eða samkvæmt nánara umtali.
Sýningin verður opin i viku
kl. 10-18 virka daga.
BÓKSALA STÚDENTA — SÍMI: 24555.