Þjóðviljinn - 27.03.1973, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 27. marz. 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Eftir Whit
Masterson
það mistókst, hafði hann lent i
hring umhverfis Andy og Ilenzt
þar. Skyldur hans voru hálf-
óljösar. Hann var samband af
trúnaðarmanni, sáttasemjara og
Frjádegi Róbinsons Crusoe.
— Þarna kemur lögreglan, sagöi
Thornburg. Hub hafði ekki tekizt
sérlega vel að dreifa fiöldanum.
Fólkið kom til baka jafnnraðan og
hann stuggaöi þvi burt Nú komu
fáeinir einkennisklæddir lög-
regluþjónar til hjálpar,og það fór
að koma skilsmynd á allt saman.
— En hvar i fjandanum eru ljós-
myndararnir?
— Ég verð að muna eftir að
striða Hubmeðþessu, sagði Bake
ihugandi. — Það er búningurinn
en ekki maðurinn sem máli
skiptir.
— Ég myndi ekki gera það i
þinum sporum, sagði Andy. —
Hub er dálitið viðkvæmur hvað
þetta snertir, og ég greiði ekki
spitalavist fyrir þig.
— Ég geri það samt, sagði Bake
striðnislega, en Andy vissi aö
Bake færi að ráðum hans. Þaö
var ekki vegna þess að Bake væri
hræddur við Hub, alls ekki. En
Hub — Hubbard Wiley — var ekki
einn af þeim sem auðvelt var aö
gantast við. Hann hafði verið
lögregluþjónn, einkaspæjari og
atvinnuglimumaður, og eini veiki
blettur hans var drafandi röddin.
Hub var snöggur og hann var
Skákþraut
Þessi staða kom upp i skák
þeirra Kozlovska og Cardoso i
Ohrid árið 1971.
Hvitur leikur og vinnur.
Lausn á dæmi no. 9.
1. Dg5 Kh7 2. Hd3 Dc8 3. Hh3 Be3
4. Hh5 Kg8 5. Dxg6 fxD 6. Hg7
mát.
Lausn á síðustu
krossgátu
1 = F,2 = R,3 = E,4 = L,5 = S, 6 = 1,
7 = T, 8=1, 9 = K, 10 = A, 11 = Þ,
12=0, 13 = N, 14 = Ð, 15 = A, 16 = P,
17 = 0, 18 = 0, 19 = M, 20 = U,
21 = Æ, 22 = B, 23 = G, 24 = H,
25=0, 26 = J, 27 = V, 28= D, 29 = Y.I
skynugur, og þótt hann hefði ekki
vott af skopskyni, þá var ekkert
við þvi að gera. Enginn réð sér
lifvörð til að hlusta á hann segja
brandara.
Hub opnaði afturdyrnar á
Kádilljáknum. — Allt i landi,
herra Paxton. Andy hafði oft
hvatt hann til að kalla hann
skirnarnafni, en Hub var form-
fastur.
Bake steig út fyrst og Andy á
eftir. Lögregluþjónarnir voru
eins konar högghlifar og
hindruðu æsta unglingana i að
kremja Andy upp viö bilinn. Veifað
var rithandabókum, rétt eins og
fánum.
— Svona, svona, vikiö frá, sagöi
Hub. — Herra Paxton þarf að
komast leiðar sinnar.
En þeir héldu áfram að hrópa og
veifa bókunum. Andy hnippti i
Hub: — Verum svolitið liðlegir.
Þau hafa beðið hér i þokunni.
Hann drap tittlinga til Lannys
Munce. — Það er þetta fólk sem
kaupir plöturnar.
Hub benti á stúlku i fremstu
röð. — Allt i lagi. Þú ert sú fyrsta.
Einn i einu og engan troðning.
Andi fór að skrifa nafnið sitt, en
tók varla eftir andlitum þeirra
sem otuðu bókunum að honum.
Hann heyrði ekki mikið af orðum
þeirra heldurjallir reyndu að tala
i einu. Hann brosti og kinkaði
kolli og sagði vinsamleg einsat-
kvæðisorð. Einhver hrópaði: —
Hvar er Lissa? Andy leit upp og
brosti. — Hún er auðvitað barn-
fóstra.
Bake hvislaði að honum: —
Það er orðið framorðið.
— Allt i lagi. Ég er næstum búinn.
Hann rétti siðustu bókina til
eigandans og veifaði fjöldanum.
Fylgdarlið hans dró hann næstum
að innganginum. Táningarnir
eltu hann og hrópuðu til hans
hvatningarorð.
Thornburg sagði hlæjandi: —
Heill þér, Cæsar! Hann fyrirleit
allt þetta grófa smjaður, vissi vel
mikinn þátt menn eins og hann
áttu i að skapa það. Vinstri fótur
hans var bæklaður eftir lömunar-
veiki i æsku,og bæklun hans fjar-
lægði hann fjöldanum engu siður
en atvinnan. Thornburg var
hvorki hetja né hetjudýrkandi.og
hann hafði fundið sér ágætan sess
i tilverunni sem hetjuskapari.
— Þú hefur misskilið þetta allt,
Ed, sagði Bake. — Nú á dögum
eru þeir að leita að spegilmynd
Og hver er fallegastur af þeim
öllum?
Andy vandist aldrei þessu tali,
þegar þeir ræddu um hann sem
afurð en ekki sem persónu.
Ykkur hefur aldrei dottið i hug, að
þeim þætti kannski einfaldlega
gaman að hlusta á mig syngja.
— Ef honum dytti einhvern tima
eitthvað i hug, myndi hann ekki
vera blaðafulltrúi, sagði Bake.
Þeir gengu inn um sviðsdyrnar og
stálhurðirnar féllu að stöfum
bakvið þá. Til gamans þrýsti
Bake sér upp að þeim með
skelfingu i svipnum. — Guði sé
lof, loksins erum við öruggir.
Enginn tók eftir honum.
Þeir höfðu komið úr einum
mannsöfnuði i annan. Bak við
sviðið var troðfullt af fólki, raf-
virkjum og sviðsmönnum, sem
hagræddu útbúnaðinum, tónlist-
armönnunum, sem stilltu hljóð-
færi sin, og sæg af fólki, körlum
og konum, sem virtust ekki vera
að gera neitt sérstakt, heldur ráf-
uðu um ringluð á svip. Og handan
við rauða flauelstjaldið beið enn
einn hópur, áhorfendur fyrstu
sýningar, eftir þvi að röðin kæmi
að þeim. Þessi litli heimur snerist
um einn öxul þetta kvöld, og sá
öxull var Andy Paxton.
Andy reyndi að sýna öllum
alúð, meðan fylgdarmenn hans
leiddu hann i áttina að stiganum
sem lá til búningsherbergjanna i
kjallaranum. Já, hann yrði að
hafa handhljóðnema þegar hann
söng fyrir áhorfendur....Nei,
hann vildi fyrst hafa einn ljós-
kastara, en þegar hann væri
búinn ...Já, hann ætlaði að láta
mynda sig, ef einhver vildi minna
hann á það seinna
Andlit birtust fyrir framan
hann eins og korktappar i vatni og
hurfu næstum samstundis aftur.
Lou DuVol, kenndur eins og ævin-
lega, en albezti undirleikari sem
hægt var að fá. Raymond Fox,
litli harðstjórinn sem stjórnaði
hljómsveitinni. Nat Tully og
Sidney Domen er fengnir höfðu
verið frá New York til að sjá hon-
um fyrir réttu efni. Þeir voru
dapurlegir á svip, alveg eins og
allir fyrsta flokks textahöfundar.
Enginn hafði i rauninni neitt við
hann að segja, en samt reyndu
allir að segja eitthvað. Þetta var
allt saman þáttur i taugaóstyrk
frumsýningarkvöldsins. Þeir
vissu að sýningunni yrði ekki
breytt eða hún endurbætt á
siðustu minútu. En samt sem
áður...
Varaðu þig á byrjuninni á
„Granada”, Andy. Ég skal gera
það, Lou. Hafðu ekki áhyggjur af
hraðanum, Andy, við fylgjum þér
eftir. Ég veit það, Ray. Legðu
áherzlu á setninguna um spila-
vélarnar, Andy, áheyrendur
mega ekki missa af henni. Já, ég
skal gera það. Gangi þér vel,
gangi þér vel...
Lanny Munce skildi við hann
efst i stiganum. — Ég ætla fram
fyrir, Andy. Þar er heilt borð af
plötusnúðum og ég verö að gæta
þess að þeir drekki ekki út allan
hagnað plötuútgáfunnar. Hann
þreif i ermina á Andy. — Þú ættir
að segja eitthvað við þá, ef þú
færð tækifæri til.Þú skilur, svo að
ÞRIÐJUDAGUR 27. marz
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guðrún Guðlaugs-
dóttir heldur áfram að lesa
söguna um „Litla bróöur og
Stúf” eftir Anne Cath. -
Vestly (11) Tilkynningar kl.
9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög á milli liða. Við sjó-
innkl. 10.25: Halldór Gisla-
son verkfræðingur talar um
frystihús og búnao þeirra.
Morgunpopp kl. 10.45:
Hljómsveitin Pink Floyd
syngur og leikur. Fréttir kl.
11.00. H1 jóm plöturabb
(endurt. þáttur Þ.H.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.15 Fræðsluþáttur um
almannatryggingar (endur-
tekinn). örn Eiðsson stýrir
þætti um greiöslufyrir-
komulag tryggingabóta.
14.30 Skólahættan og
tvenndarskóli. Kristján
Friðriksson forstjóri flytur
erindi i tilefni af grunn-
skólafrumvarpinu.
15.00 Miödegistónleikar:
Minnzt 125. ártiðar
Mendelssohns á tónleikum
Berlinarútvarpsins. Vera
Lejskova, Vlastimil Lejsek
og Sinfóniuhljómsveit út-
varpsins i Berlin leika Kon-
sert i E-dúr fyrir tvö pianó
og hljómsveit; Helmut Koch
stj. Félagar i óperuhljóm-
sveit Berlinar leika Oktett
fyrir f jórar fiðlur, tvær lág-
fiðlur og tvær knéfiðlur.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
16.25 Popphornið,
17.10 Framburðarkennsla i
þýzku, spænsku og erper-
anto.
17.40 (Jtvarpssaga barnanna:
„Nonni og Manni fara á
fjöll” eftir Jón Sveinsson.
Freysteinn Gunnarsson is-
lenzkaði. Hjalti Rögnvalds-
son les (2).
18.00 Eyjapistill. Bænarorð.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill.
19.35 UmhverfismálSnæbjörn
Jónasson yfirverkfræðingur
talar.
19.50 Barnið og samfélagið.
Maria Kjeld sérkennari
talar um uppeldisskilyrði
þroskaheftra barna á for-
skólaaldri.
20.00 Lög unga fólksins.
Sigurður Garðarsson kynnir.
20.50 tþróttir. Jón Ásgeirsson
sér um þáttinn.
21.20 Pianósónata nr. 4 op. 54
eftir Pál Kadosa. Höfund-
urinn leikur.
21.25 t ljóðahugleiðingum.
Konráð Þorsteinsson les
nokkur ljóð i þýðingu
Magnúsar Asgeirssonar og
spjallar um þau.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passlusálma (31).
22.25 Rannsóknir og fræðiJón
Hnefill Aðalsteinsson fil. lic.
talar við dr. Þorvarð Helga-
son.
22.50 Harmónikulög. Viola
Turpeinen og hljómsveit
hennar leika.
23.00 A hljóöbérgi. Danska
skáldið Martin A. Hansen
les smásögu sina „Soldaten
og pigen”.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Þriðjudagur 27. marz
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Ashton-fjölskyldan.
Brezkur framhaldsmynda-
flokkur. 46. þáttur. Skyn-
semin ræður.Þýöandi Heba
Júliusdóttir. Efni 45. þáttar:
Davið er á batavegi eftir
slysið. Hann hefur slasazt á
höfði og læknarnir telja að
honum verði ekki leyft að
fljúga framar. Sheila heim-
sækir hann á sjúkrahúsið.
Hann reynir að vekja
meðaumkun hennar, og
eftir mikið táraflóð ákveða
þau að gera enn eina tilraun
til að lappa upp á hjóna-
bandið.
21.20 Vinnan. Fræðsla fullorð-
inna. Fræösla utan hins
hefðbundna skólakerfis er
athyglisverður og þýðingar-
mikill þáttur I menntun
fólks, til að fylgjast með I
sinu starfi. Þessi þáttur er
filmaður á ýmsum stöðum,
þar sem slik kennsla fer
fram. Rætt er við nemendur
og formann nefndar sem
vinnur að lagasetningu á
þessu sviði. Umsjónar-
maður Baldur öskarsson.
22.00 Listhlaup á skautum.
Orslit parakeppninnar á
heimsmeistaramóti i list-
hlaupi á skautum, sem fram
fór i Bratislava i
Tékkóslóvakiu um siðustu
mánaðamót. Þulur Ömar
Ragnarsson. (Evróvision —
Tékkneska sjónvarpiö)
22.40 Dagskrárlok.
Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta meS
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F.
Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 30688