Þjóðviljinn - 27.03.1973, Qupperneq 16
UOBVIUINN
Þriðjudagur 27. marz. 1973
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Kvöld-, nætur- og helgar-
þjónusta lyfjabúðanna i
Reykjavik vikuna 23.-29.
marz er i Reykjavikurapóteki
og Borgarapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhring-
inn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverndarstöðinni.
Simi 21230.
Eldfjalla-
stofnun í
Reykjavík
á næsta
an
OSLÓ 26/3. — A fundi mennta-
málaráðherra Norðurlanda i
Osló náðist samkomulag um
að verja sem svarar 105
miljónum islenzkra króna til
norræns menningarsamstarfs
á næsta ári. Þetta þýðir m.a.
að árið 1974 verður stofnsett
norræn eldfjailarannsóknar-
stofnun i Reykjavik og stofnun
til rannsóknar á menningu
Lappa.
Norðurlandaráð samþykkti
1972 að stofna skyldi eldfjalla-
fræðastofnun við Háskóla Is-
lands. Lappar munu fá meiri-
hluta i stjórn stofnunar
þeirrar sem fjalla á um tungu
þeirra og menningu. Verður
hún i Kautokeino i Noregi.
Ný alþingiskantata frumflutt í gœr
Er ekki rjómatertan
landbúnaðarvara?
i gær var frumflutt ný
alþingiskantata í þing-
húsinu við Austurvöll.
Reykvískar húsmæður
höfðu boðað til mótmæla-
stöðu á Austurvelli vegna
hækkunar landbúnaðar-
vara en bóndakonur austan
úr Árnessýslu stálu frá
þeim senunni og fjöl-
menntu á þingpalla til að
mótmæla mótmælum
þeirra reykvísku.
Allur þessi kvennafans
utan þinghúss og innan
setti þingmenn stjórnar-
andstöðunnar út af laginu,
en þeir risu upp hver af öðr-
um til að biðla til annars
Kjaradeilan í Danmörku:
Sáttatillaga mun
nú vera í smíðum
Verður samið til þriggja ára?
KAUPMANNAHÖFN 26/3. — Að-
ilar að vinnudeilunni i Danmörku
hafa setið á þindariausum fund-
um um helgina og talið var liklegt
aö samningum miðaöi það áfram,
að hægt yrði að leggja fram sátta-
tilboö á morgun eða miðvikudag.
Thomas Nielsen, forseti Alþýðu-
sambandsins, taldi samt i gær, að
deilan mundi standa i þrjár vikur.
Blaðamenn hafa ekkert fengið
af viðræðum að frétta. Samt tók
það að siast út, að viðmælendur
væru farnir að ræða möguleika á
samningi til þriggja ára I stað
tveggja og að vinnuvika yrði stytt
I 40 stundir (er nú 41 3/4). Þetta
þýðir, að tekinn er upp nýr
umræðugrundvöllur og fyrri til-
laga rikissáttasemjara lögð til
hliðar.
Engu að siður eru likur til þess
að verkfallið harðni enn meðan á
viðræðum stendur og við bætist
bilstjórar og flugvirkjar.
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
hvors hópsins og/eða
beggja hópa.
Reykviskar húsmæður höfðu
lengi undirbúið mótmæli sin,
vegna hækkunar á landbúnaðar-
vörum, en svo gerist þaö fyrir-
varalaust, að 25 konur austan úr
Arnessýslu koma til höfuð-
staðarins og báðu Jónas Árnason
að lesa upp mótmæli sin yfir þing-
heimi vegna aðfara Reykjavikur-
kvenna.
Þetta gerði Jónas aö sjálfsögðu,
og þar með sprakk blaðran.
Eftir að einn þingmanna kjör-
dæmisins hafði talað á eftir
Jónasi spratt Jóhann Hafstein
upp úr sæti sinu og i pontuna.
Jóhanni var sýnilega nokkuð niðri
fyrir. En kveðja hans var sofelld:
„Búkonur þessar hefðu mátt
láta aðra þingmenn en
kommúnistann Jónas Árnason
vita af þvi að þær ætluðu að
koma”.
Um þetta leyti fóru þær reyk-
vlsku að syngja utan dyra og
heimta þingmennút á svalir.
Allt i einu breyttist sá söngur i
heljarmikið baul þegar forsætis-
ráðherra lét sjá sig i glugga
alþingishússins, og ekki minnkaði
það þegar Jóhann Hafstein birtist
i öðrum glugga og tók til við að
veifa til reykviskra kjósenda
sinn.
Gullkorn
Annars staðar i blaðinu eru um-
ræður þessar raktar. Þó er ekki
hægt að sleppa svo frásögn af
þessari nýju alþingiskantötu, að
ekki séu tilgreindlnokkurgullkorn
af vörum þingskörunganna:
„Þrátt fyrir vonda stjórn hafa
kjörin batnað.” (Gylfi Þ.)
„Það er illa gert að hækka verð
á landbúnaðarvörum... það á að
halda áfram að kaupa land-
búnaðarvörur þvi þær eru ódýrari
en aðrar vörur. ” .(Ingólfur á
Hellu) (Þegar Ingólfur haföi
þetta mælt spratt Jóhann
Hafstein upp úr sæti sinu, gekk i
átt til Ingólfs og hvislaði i eyra
hans einhverjum fyrirmælum þar
sem Ingólfur stóð i pontunni.
Hætti Ingólfur þá tali sinu fljótt
eftir þessar ávitur frá skottu-for-
manninum.)
„Bændur hafa ekki fengið nóga
hækkun á vörum slnum”.
(Ingólfur á Hellu)
„Þessi stjórn gaf út loforðin 10.
Þau hefur hún öll svikið nema
tvö, sem hún vildi svikja, en gat
ekki svikið.” (Gylfi Þ. )
Utan dyra
Úti fyrir þinghúsinu stóðu rúm-
Framhald á bls. 15.
Þrjú dœgur
á reki á
fleka í
ofviðri
WASHINGTON 26/3. — 1 gær
fannst á lestarhlera Stein
Gabrielsen, ungur piltur frá
Osló, og mun hann hafa kom-
izt einn lifs af er norska skipið
Norse Variant sökk i óveðri á
Suður-Atlanzhafi á föstudags-
kvöld. Hafði hann þá rekið um
100 sjómilur frá slysstað og
hafði hann einskis neytt i um
þrjá sólarhringa er hann
fannst.
Stein Gabrielsen er nú um
borð i bandarisku beitiskipi og
er liðan hans sögð góð. Flug-
vél fann hann, og vörpuðu
tveir froskmenn sér út i fall-
hlif til hans.
Norse Variant fékk á sig
háar öldur, sem burtu upp
lestarhlera. Fylltist skipið af
sjó og sökk skömmu siðar, að-
þvi er Gabrielsen segir. Óvist
er, hvort timi vannst til að
setja á flot björgunarbáta. A
skipinu voru um 30 manns.
Leitinni er haldið áfram.
Danska stjórnin spar-
ar 16 miljarða króna
KAUPMANNAHÖFN 26/3. —
Náðst hefur samkomulag um að
Sósialiski alþýðuflokkurinn, SF,
styðji sparnaðaráætlun minni-
hlutastjórnar sósialdemókrata,
sem miðar að þvi að draga úr
opinberum útgjöldum um 1100
miljónir danskra króna á þessu
ári, eða meira en 16 miljarði isl.
króna.
Atök stóðu milli flokkanna um
sparnað á útgjöldum til félags-
mála. Stjórnin ætlaði að spara 4Ö0
miljónir á þeim lið, en SF fékk þá
upphæð minnkaða I 172 miljónir.
Hætt var við að skerða fjölskyldu-
bætur o.fl.
Niðurskurður þessi er gerður til
að koma i veg fyrir frekari hækk-
un skatta i Danmörku.
Reyndi að eyðileggja
r
yörpu Guðbjarts IS
Fáskrúðsfjörður — Reyðarfjörður
Alþýðubandalagið boðar til fundar n.k. laugardag á Reyðarfirði og
n.k. sunnudag á Fáskrúðsfiröi.
Arnmundur Bachmann fulltrúi, Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi og
Helgi Seljan alþingismaður mæta á fundunum.
Fundirnir eru öllum opnir.
Húsavik — Akureyri
Alþýðubandalagið boðar til fundar n.k. föstudag á Húsavik og n.k.
laugardag á Akureyri. Fundirnir verða nánar auglýstir siðar.
Umræðufundur
Lúðvik Jósepsson, ráðherra, verður málshefj-
andi á umræðufundi Alþýðubandalagsins i
Reykjavik á fimmtudagskvöldið. Fundurinn
verður að Grettisgötu 3 og hefst kl. 20.30. Um-
ræðuefnið er Island og viðskipta- og efnahags-
bandalögin og er allt áhugafólk velkomið á fund-
inn.
Borgarmálaráð
Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins i Reykjavik boðar til fundar
annað kvöld að Grettisgötu 9. Hefst fundurinn kl. 21. A fundinn eru boð-
aöir allir þeir, er eiga sæti I nefndum borgarinnar á vegum Alþýðu-
bandalagsins.
Viðtalstimar
Sigurjón Pétursson borgarráðsmaður verður
til viðtals annað kvöld að Grettisgötu 3 frá kl. 5
til kl. 6. Slminn er 19835.
Mikil tiðindi gerðust á miðun-
um um helgina og i gærmorgun.
Kom til átaka eftir að brezkir tog-
arar höfðu reynt ásiglingu, var
klippt á togvira og skotið föstum
skotum og púðurskotum að
brezku landhelgisþjófunum.
Bretarnir gerðu sig seka um at-
hæfi um helgina sem ekki á sinn
lika i deilunni áöur; brezkur tog-
ari skautneyðareldflaug með linu
yfir varðskip og i gærmorgun
reyndi brezkur togari að eyði-
leggja veiðarfæri islenzka togar-
ans Guðbjarts tS.
Hér fer á eftir skýrsla land-
helgisgæziunnar um atburði þá er
áttu sér stað um helgina.
Klukkan 16 á sunnudag stugg-
aði varðskipið Ægir viö brezku
togurunum Wyre Defence FD 37
og Brucella H291 sem voru að
veiöum við 12 mílna mörkin suður
af Surtsey. Brucella hifði fljót-
lega og gerði itrekaðar ásigl-
ingartilraunir en hinn togarinn
hélt áfram veiðum. Brucella var
með hótanir um ásiglingu og
framkvæmdi tilraun til ásiglingar
og skaut varöskipið þá einu
púðurskoti fyrir framan togarann
og þremur púðurskotum að hon-
um. A meðan hifði Wyre Defence
og tók þátt i ásiglingartilraunum
Brucella um stund en hættu þó
báðir fljótlega. Niu islenzk tog-
skip voru á þessu sviði.
Nokkru fyrir klukkan 18 sama
dag hindraði varðskipið brezka
togarann Brucella i að hefja veið-
ar að nýju. Togarinn skaut þá
neyðarrakettu að varðskipinu en
rakettan fór yfir skipið og lenti
lina hennar á varðskipinu. Varð-
skipið sem hér átti hlut að máli
var Ægir.
Um klukkan 23.50 um kvöldið
skar varðskipið Ægir báða tog-
vira brezka togarans Wyre
Defence FD 37 eftir mjög grófa
ásiglingartilraun af hálfu togar-
ans. Atburður þessi átti sér stað
um 15 sjómilur suðvestur af
Surtsey.
Um klukkan 10 á mánudags-
morgun skar varðskipið Ægir á
báða togvira brezka togarans St.
Leger H 178 sem var að veiðum
17,5 sjómilur suðvestur af Surts-
ey. Með þessu hefur veriö skorið á
vira fjögurra vesturþýzkra og 38
brezkra togara eða alls 42 síðan 1.
september s.l.,þar með talið er að
Oðinn skar á fótreipi vörpu
Robert Hewett LO 65 og er Týr
skar á annan togvir brezka togar-
ans Peter Scott H 103 þann 19.
þessa mánaðar og missti við það
virahnif sinn.
Eftir að varðskipið skar á tog-
vira St. Leger i morgun barst
beiðni um aðstoð frá Guðbjarti IS
16 vegna þess að St. Leger væri að
koma með akkerið úti og
gerði sig liklegan til að slita af
þeim trollið. Kom hann inn á bak-
borðssiðu Guðbjarts i beygju en
Guðbjartur gat forðað árekstri
með þvi að setja á fullu ferð.
Klukkan 10.40 kallaði varðskipið i
St. Leger og tjáði honum að ef
hann léti ekki skipið i friði yrði
skotið á hann föstum skotum.
Klukkan 10.46 var komið að skip-
unum og höfðu þá Brucella og
Jacinta FD 159 bætzt i hópinn.
Var skotið sex púðurskotum að
togurunum og þeim sagt að hafa
sig frá Guðbjarti — öðrum kosti
yrði skotið skörpum skotum.
Þessu lauk með þvi að Guðbjart-
ur náði inn veiðarfærunum heil-
um og St. Leger náði akkerinu inn
eftir talsverða erfiðleika. Varð-
skipið sem hér um ræðir er Ægir.
Hfttumst i kaupfélagínu
-