Þjóðviljinn - 28.03.1973, Page 1

Þjóðviljinn - 28.03.1973, Page 1
ÞJOÐVUMN Miðvikudagur 28. marz 1973 — 38. árg. — 74. tbl. SENDIBÍLASTÖÐIN HF BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA Á ellefta tímanum í gœrkvöldi: 1050 Hraunið skreið nijög hægt fram en kanturinn hækkar Seint á ellefta timanum í gærkvöldi hafði blaðíð samband við Eyjar og hafði hraunið þá ekki alveg náð höfninni, en hraun- kanturinn hafði hækkað og mikil glóð var í kantinum og búizt við að hraunið tæki skrið þá og þegar. HrauniB hélt áfram eyöilegg- ingu i gærdag og tók ein 10 hús til viðbótar þeim 40 sem fóru i siöara áhlaupinu. 1 gær brunnu m.a. hótel Berg, Þingholt. Þing- vellir og Oddfellowhúsið og Hraö- frystistööin var að gefa undan hraunstrauminum i gærkvöld. Fylla átti þrær verksmiðjunnar með sjó til að kæla hraunið og tefja þannig fyrir þvi. 1 gær var bjargað vélum og innanstokks- munum úr Fiskiðjunni og úr fleiri húsum viö höfnina. Nýi flakkarinn er á leið niður ofan á gamla hrauninu. Herjólfur kom um hádegiö með fyrsta hlutann af dæluútbúnaðin- um frá Bandarikjunum, sem á að tifalda afköst sjódælingarinnar. 20 menn komu með skipinu til að vinna við að koma dælubúnað- inum i gagnið. Verið er að vinna við tengingu gamla vatnsbólsins viö bæjar- vatnsveituna og er taliö að eftir tenginguna verði vatnsþörf bæjarbúa fullnægt. Þessi mynd var tekin aðfaranótt mánudags er hraunið var að renna ofan i sundlaugina. Sjá fleiri myndir i opnu. ' manns vantar á vetrar- vertíðina A svœðinu frá Stolckseyri til Snœfellsness vantar 472 bátasjómenn og 478 manns til fiskvinnu vinnslu Mikill skortur er nú á verka- fólki við sjávarsiðuna á öllu vetr- arvertiðarsvæðinu, frá Stokks- eyri vestur á Snæfellsnes. Sam- kvæml athugun sem sjávarút- vegsráðuneytið bað Kiskifélagið að gera vantar hátt á 5. hundrað sjómenn og hátt á 6. hundrað karla og kvenna til fiskvinnslu- starfa. Ilorfir til vandræða með að liægt verði að bjarga mestu verðmætunum sem nú berast og ættu að geta borizt á land, nema mikið framboð skapist alveg á næstunni af fólki til sjómennsku og i fiskvinnslustöðvarnar. Blaöinu barst i gær eftirfarandi fréttatilkynning frá sjávarút- vegsráðuneytinu: „Samkvæmt sérstakri ósk samtaka útvegsmanna hefir sjávarútvegsráðuneytið nýlega látið fram fara athugun á vinnu- aflsþörfinni i sjávarútvegi á vetrarvertiðarsvæðinu á Suðvest- urlandi. F'iskifélag tslands tók að sér að gera þessa athugun. Þær niður- stöður, sem nú liggja fyrir af þessu starfi, eru i aðalatriðum þessar: Mjög mikill skortur er á sjó- mönnum og verkafólki til fisk- vinnslu á öllu svæðinu frá Stokks- eyri til Snæfellsness. Þannig er talið að nú vanti alls 472 sjómcnn á bátaflotann á þessu svæði til þess að hægt sé að fullmanna þann bátaflota, sem til staðar er. Talið er að nú vanti 578 karla og konur lil fiskvinnslustarfa á þessu svæði. Það vantar þvi sam- Framhald á bls. 15. Fimm fórust með TF IKrákur Hwhííií áuK--' ‘ Lyktafell Sandkútufell__\ •iríksjókull Rfeískarð B^íltiw4B20 Rjýpi * / f: s v> KJÖLUR O. v Hrútafell (-j ... Qr /J \ S>3 Baldberöi'. c/ / m y/ f'/P' 'rnes/ / ■> i ÍSIálfSane^jffj 11 Kortið sýnir staðinn þar sem flugvéiin fórst. ÍHv Flugvélin fórst í Búrfjöllum - flakið fannst kl. 8,40 í gœrmorgun Flakið af Beechcraft- flugvél Flugþjónustunnar, TF-VOR, sem hafin var leit að upp úr kl. 15 á mánudag- inn var, fannst um kl. 8.40 i gærmorgun í Búrfjöllum, norðaustur af Hundavötn- um. Með vélinni fórust allir sem í henni voru, 5 menn. Það var flugvél frá Flugstöðinni,TF-EGG, sem fann TF-VOR en þyrla lenti þar skömmu síðar. Þeir sem fórust með TF-VOR voru: Björn Pálssonflugmaður, Heiði i Mosfellssveit, 65 ára, hann lætur eftir sig konu og 4 uppkomin börn. Björn Pálsson var einn af kunn- ustu flugmönnum Islands. Hann var fæddur að Ánastöðum i Hjaltastaðaþinghá 10. janúar 1908. Björn átti „sóló-flug- skýrteini” númer 1 sem hann fékk 1939. Árið 1949 fór Björn sitt fyrsta sjúkraflug, en fyrir sjúkra- flug sin varð Björn kunnur bæði utan lands og innan. Hann hefur verið flugmaður að atvinnu siðan 1951 og sjúkra- flughans eru orðin langtum fleiri en nokkurs annars manns hér á landi. Hann hefur hlotið gull- merki SVFl, sem veitt er fyrir björgun mannslifa. Einnig hlaut Björn gullmerki Flugmálafélags Islands. Þá hlaut hann viður- kenningu frá danska rikinu fyrir sjúkraflug til Grænlands. Knútur óskarsson flugmaður, Safamýri 44 Reykjavik, 33ja ára, kvæntur og lætur eftir sig 3 börn. llaukur Claessen, varaflug- málastjóri og framkvæmdastjóri flugvalla úti á landi, Langholts- vegi 157 Reykjavik, 55 ára, kvæntur og lætur eftir sig 3 börn. Vor Björn Pálsson, flugmaður ólafur Júliusson arkitekt, Reynimel 37, Reykjavik, 49 ára, kvæntur en barnlaus. Framhald á bls. 15.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.