Þjóðviljinn - 28.03.1973, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 28.03.1973, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 28. marz 1973. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3 Birgitta Ulfsson og Lasse Mártenson í „Kyss sj'álv Lilla teatern frá Helsinki i heimsókn: Kabarett um sam skipti kynjanna Hópurfrá Lilla teatern i Helsinki, sem hér sýndi á Listahátíð i fyrra við góðan orðstír, kemur í heimsókn um helgina. Sýnir hann kabarett- sýningu í um tuttugu atriðum sem fjalla um samskipti kynjanna, og mun sýningin full með kímni og hvassar stungur ef að líkum lætur. Sýningin nefnist ,,Kyss sjálv". Leikfélag Reykjavikur og Norræna húsið hafa i sam- einingu staðið að þessari heimsókn. Leikararnir, sem eru þrir, gera hér stuttan stanz og sýna aðeins á mánu- dagskvöld i Iðnó. Þeir eru Birgitta Ulfsson Elina Salo og Lasse Martenson. Birgitta er eigin- kona Lasse þess Pöysti, sem sérlega hrifningu vakti i fyrri gestaleik Lilla teatern i vor leið, en þá var fluttur sjónleik- ur um „Umhverfis jörðina á 80 dögum”. Þau hjón hafa um 12 ára skeið stjórnað þessu sænskumælandi leikhúsi, sem er allt i senn róttækt, fram- sækið og hið vandaðasta i vinnubrögðum. Eru þau um þessar mundir að taka við stjórn Alþýðuleikhússins i Tampere. Leikararnir flytja rúmlega tuttugu atriði eftir ýmsa þekkta samtiðarhöfunda, t.d. Christer Kihlman, sem er hreinskilnari um sjálfan sig og aðra en flestir þora, Sonju Akeson, Wava Sturmer ofl. Nöfn atriðanna gefa sitt af hverju til kynna um anda sýningarinnar: eitt heitir Satan skapaði konuna, annað Frú Góð og Umhyggjusöm, hið þriðja Herra Orsök og frú Afleiðing — osfrv. Sviðs- búnaður er einn sófi, þriskiptur. Pianóleikarinn Esa Katjuvuori er með i förinni. Sérsambönd innan ASÍ orðin 7 talsins Stofnað Landsam- band iðnverkafólks Laugardaginn 24. þ.m. var, að hótelinu Varðborg á Akureyri, stofnað Lands- samband Iðnverkafólks. Aðildarfélög eru Iðjurnar þrjár, á Akureyri, i Hafnar- firði og Reykjavik, með rúmlega 3300 meðlimi. Stofnþingið sátu 23 fulltrúar. 1 stjórn sambandsins voru kjörnir: formaður Björn Bjarna- Hækkuð gatnagerð- argjöld frá og með Stóragerðinu Félagsmálaráðuneytið hefur staðfest umleitan borgarráðs Reykjavikur frá i janúar um 20% hækkun á gjaldskrá gatnagerðar- gjalda og lá bréf ráðuneytisins fyrir fundi borgarráðs i sl. viku. Samþykkt var að gjaldskráin eftir hækkun skuli gilda um út- hlutun lóða við Stóragerði, sem fram fór i desember sl. son Reykjavik, varaformaður Jón Ingimarsson Akureyri, ritari, Bjarni Jakobsson Reykjavik, gjaldkeri, Runólfur Pétursson Reykjavik, meðstjórnendur, Guðmundur Þ. Jónsson Reykja- vik, Magnús Guðjónsson Hafnar- firði og Þorbjörg Brynjólfsdóttir Akureyri. Aðsetur sambandsins verður fyrst um sinn að Skólavörðustig 16 Reykjavik. —0— Blaðið hafði samband við for- mann sambandsins, Björn Bjarnason, og sagði hann, að með þessu sambandi væru sérsam- bönd innan ASI orðin 7 talsins. Sérsamböndin eru: Verka- mannasambandið, Lands- samband islenzkra verzlunar- manna, Málm- og skipasmiða- sambandið, Rafvirkjasam- bandið, Samband bygginga- manna, Landssamband vörubif- reiðastjóra og nú Landssamband iðnverkafólks. Björn sagði að viða úti á landi ynni verkafólk eftir Iðjutaxta, en væri samt félagar i almennu verkalýðsfélögunum, sem ekki semdu fyrir það. Fjöldi þessa fólks er 3-400. Eftir stofnun landssambands geta verkalýðsfélögin stofnað deildir fyrir iðnverkafólk og siðan geta þessar deildir orðið aðilar að Landssambandinu. — Til þess, að sem flest iðn- verkafólk geti átt aðgang að Landssambandi iðnverkafólks, og treyst með þvi samstöðu sina, þurfum við að ná góðu samstarfi við verkalýðsfélögin úti á landi, sagði Björn.og ég vænti þess að það takist. —úþ Björn Bjarnason Jón Ingimarsson Lóðaslagsmál í uppsiglingu Lengi hefur borgurunum þótt fint eða finast að búa i Vestur- bænum og er fyrirsjáanlegt, að slegizt verður um lóðirnar, þegar úthlutað verður á siðasta blettin- um þar. Þessi siðasti „fini” blettur verður á svæðinu milli Hagamels, Nesvegar og Hofsvallagötu, rétt hjá Einimelnum, en á þeim reit hefur nú verið ákveðið endanlegt skipulag og var bókun skipulags- nefndar um deiliskipulagið þarna lagt fyrir borgarráð i siðustu viku. Samkvæmt upplýsingum Más Gunnarssonar, skrifstofustjóra borgarverkfræöings, er þarna gert ráö fyrir einbýlishúsum, fjöl- Viðbygging Vesturbæjar- laugar boðin út að nýju Borgarráð samþykkti á fundi sinum i sl. viku að heimiia útboð að nýju á viðbyggingu við Sund- laug Vesturbæjar, og verði stefnt að þvi, að húsið verði fokhelt á þessu ári og byggingu ljúki á árinu 1974. Verk þetta var boðið út i fyrra, en engu þeirra tilboða er þá bárust var tekið, heldur fór borgin sjálf i að framkvæma ákveðnar breytingar. Er nú búið að vinna vissan hluta verksins og verður það boðið út sem eftir er. Þvi miður fyrir fasta laugar- gésti hefur verkið gengið heldur hægt i vetur og hefur fólk einkum saknað þess að komast ekki i eina heita pollinn, sem er við Vestur- bæjarlaugina. Miðaö við nýja út- boðið virðist eiga að vinna aðal- hluta verksins á þessu ári eða i sumar, og hefði óneitanlega verið sundfólkinu þægilegra, að megin- vinnan hefði farið fram að vetrar- lagi en ekki yfir sumartimann, þegar laugarnar eru langmest sóttar. —vh Borgarráð hefur samþykkt til- lögu umferðarnefndar um að framvegis verði einstefnuakstur á Naustunum til suðurs frá Tryggvagötu að Hafnarstræti. Þá var samþykkt, að bann við vinstri beygjum af Háaleitisbraut til norðurs og suðurs i Kringlumýrarbraut veröi afnum- ið. býlishúsum, dagheimili og svo- kölluðu grænu svæði, þe. úti- vistarsvæði fyrir norðan Sund- laug Vesturbæjar. Ekkert er enn ákveðið um aug- lýsingu lóða, sagði hann. Fyrst verður deiliskipulagið auglýst og athugasemdir kannaðar, ef fram koma, og þvi þá etv. breytt eitt- hvað. Má búast við, að þetta taki amk. tvo mánuði. En að þessu öllu ioknu kemur að lóðaúthlutuninni og verður þá áreiðanlega handgangur i öskjunni, ef að likum lætur. —vh Enn fá þeir loðnuna Fjórtán bátar fengu rúm 4 þúsund tonn af lobnu i fyrri- nótt og um 5 leytið I gær höfðu 3 bátar tiikynnt um veiði, en vitað var um fleiri báta, sem veiði höfðu fengið. Ileildaraflinn er nú á milli 390-400 þúsund tonn. t fyrrinótt fengu allir þeir bátar sem voru á miðunum veiði, það er að segja, ef ekkert var að hjá þeim. Hæstir voru Eldborg með 530 t., óskar Magnússon meö 480 tonn, Pétur Jónsson með 360 tonn og Gisli Arni með 350 tonn. Loðnuna fengu bátarnir á tveimur veiðisvæðum undan Skarðsvik og úti á miðjum Flóa. Þrjú skipanna fóru með 1300-1400 tonn til Bolungar- vikur, og einn bátur fór á tvær aðrar hafnir á Vestfjörðum. Eru nú allar þrær vestra full- ar. Aðrir bátar lönduðu i Faxaflóahöfnum. Klukkan 5 i gær höfðu þegar tilkynnt sig ti! loðnunefndar þrir bátar með fullfermi. Það voru Vörður með 230 tonn, Seley með 250 tonn og Helga með 240 tonn. Vitað var um fleiri báta sem fengið höfðu afla. Um þetta leyti i fyrra var loðnuveiði hætt fyrir nokkru en nú eru ennþá 25 bátar að veiðum. Sú loðna sem nú veiðist er nokkru siðri en sú sem fyrst veiddist. Til að mynda er mun minna lýsismagn i loðnunni nú en var fyrr i vetur. —úþ. Einstefna Kjör iðnverkafólks með öllu óviðunandi Blaðinu hefur borizt eftir- farandi frcttatilkynning frá Landsambandi iðn verkafólks: Stofnþing Landsambands Iðn- verkafólks telur að núverandi ástand i launamálum iðnverka- fólks sé með öllu óviðunandi, þar sem laun þess eru með þeim allra lægstu er þekkjast i landinu. Hlýtur þetta að standa heilbrigðri þróur. iðnaðarins fyrir þrifum, þar sem hann er ekki sam- keppnisfær við aðrar starfs- greinar um vinnuafl. Bætt launakjör iðnverkafólks myndu stuðla mjög að þvi að skapa festu i vinnuafli iðnaðarins. Þingið felur sambandsstjórn og samninganefndum félaganna að vinna að þvi að fá leiðréttingu á þessu við gerð næstu samninga. Sótt um leyfi til vínveit- inga í myndlistarhúsinu Mikligarður hf„ scm hefur mcð höndum veitingarekstur i Mynd- listarhúsinu á Miklatúni, hefur sótt um leyfi til vlnveitinga. Matsnefnd vfnveitingahúsa hefur gefið dómsmálaráðu- neytinu þá umsögn, að veitinga- staðurinn uppfylli vinveitinga- skilyrði samkvæmt áfengislög- um, en borgarstjórn hefur ekki tekið afstöðu til málsins. Var bréf dómsmálaráðuneytisins varðandi umsóknina lagt fram á fundi borgarráðs i fyrri viku, en borgarráð vísaði þvi aftur til um- sagnar hússtjórnar Myndlistar- hússins. Upphaflega mun aðeins hafa verið gert ráð fyrir rekstri ein- hverskonar kaffiteriu á þessum stað og varð ágreiningur i borgarstjórn um það, hvort borgin sjálf annaðist reksturinn eða léti I hendur einkaaðilum. Var meirihlutinn sem vænta mátti með einkarekstri og var veitingahúsið leigt Miklagarði hf. — vh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.