Þjóðviljinn - 28.03.1973, Page 8

Þjóðviljinn - 28.03.1973, Page 8
S SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 28. marz 1973 HILDARLEIKUR Miðvikudagur 28. marz 1973. , ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 1 Hraunið náði ekki þessu húsi i fyrra áhlaupinu, en setti á þaö rækilegt mark. 2 Hér skríður hraunið fram með húsi Hjartar Hjálmarssonar. 3 Þessi hús stóöu ráðvillt og löskuð inni i langri geil i hrauninu. 4 Þetta hús hét llraun og i þvi bjó Magnús Jóhannsson frá Hafnar- nesi, scm cldri lesendum Þjóðvilj- ans er að góðu kunnur. Hraun fór undir hraun fljótlega aðfaranótt mánudags, en lengi vei var barizt gegn hraunkantinum við þetta hús. 5 Hvað er maðurinn aö gera þarna með handslöngu eina að vopni gegn hrauninu? hugsaöi ég. og var siðan fræddur á þvi að hann væri að kæla aðalvatnsleiðslurnar. Það var ótrúleg lífsreynsla að vera í Vestmannaeyjum aðfara- nótt mánudags og mánudaginn þegar áhlaup númer tvö stóð yf- ir. Fram að þeim tíma var ég að skoða verksummerki eftir fyrra áhlaupið og var þar margt merkilegt að sjá. i útjaðri hraunsins voru hús og húshlutar í furðulegustu stellingum, sum höfðu færzt langt úr stað. Þetta var auðvitað stórkostlegt myndaefni. Fyrir utan þessi verksummerki eyðileggingar- innar beindist athyglin að þeim mönnum sem stóðu í einna erfiðasta starfinu, að kæla hraunið. Þessir menn hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum æ of- an í æ, en alltaf tekið upp þráð- inn að nýju, fært leiðslur úr stað eftir því sem hraunið hækkaði eða skreið fram. Ýtur gerðu nýj- ar brautir upp á hraunið, aftur voru leiðslur tengdar og vatn sett á. Mér er t.d. minnisstætt verkið við mikla leiðslu frá Sandey sem reyndist gagnslaust er hosur, sem tengdu rörin sam- an, gáfu sig er vatninu var hleypt á. Þetta var bitur stað- reynd, en áfram var haldið. ,,Strákar", sagði einn, ,,við ætt- um að fá inngöngu í ASí". ,,Af hverju", spurði ég ,,Af þvi að við erum ný stétt— hraunkælingar- menn!" Er baráttunni að Ijúka? setti ég í yf irfyrirsögn í blaðinu í gær, og þetta hefur verið gagnrýnt. Sú gagnrýni á rétt á sér vegna þess að það hefur, a.m.k. fram til þessa, harður baráttuandi ríkt i liðinu í Vestmannaeyjum og ég virði þennan baráttuanda og finnst sjálfsagt að halda áfram baráttunni fram á síðustu stund. En ég vil samt ekki draga neina dul á, að þessari baráttu kann að Ijúka áður en varir. Ég vil af þessu tilefni lýsa mikilli aðdáun á verki hraunkælingarmanna og annarra baráttumanna i Eyjum. Þegar hraunið fór að skríða fram fyrir alvöru aðfaranótt mánudagsins fengu viðstaddir að sjá ólýsanlegan hiIdarleik. Ómögulegt er að lýsa þessum hamförum i orðum eða myndum svo nokkurt bragð sé að. Hvert húsið á fætur öðru malaðist und- ir hrauninu, eða fuðraði upp. Fólkið fylgdist af athygli með afdrifum hvershúss. Húsin voru eins og holdi klædd og örlög hvers húss hafði á sér sérstakan blæ. Gömlu timburhúsin járn- klæddu, eða forsköluðu, létu undan þunganum á margvísleg- an máta: þau skældust eða lognuðust. útaf, sum enda- stungust, önnur fóru á ferð und- ♦ an hrauninu og brunnu eða stóðu i undarlegum stellingum fjarri þeim stað er þau höfðu verið. Sum steinhúsin brustu skjótt og molnuðu niður, einstaka hús gaf ekki eftir langtimum saman, en ekkert fékk stöðvað hraunið — þaðsem ekki gaf eftirstrax, eða brann, grófst undir. Sérstaklega var minnisstætt að fylgjast með afdrifum nýs og mikils steinhúss sem Hjörtur Hjálmarsson verkstjóri hafði byggt rétt hjá sundlauginni. Hraunið þrengdi sér að húsinu, var komið upp á þakið og þrýsti að húsinu til híiðanna, en ekki gaf húsið sig hið minnsta. Minúta eftir minútu leið, hraun- ið hækkaði en engin breyting sást á húsinu. Skyndilega brotn- aði það með háum brestum, en lengi á eftir var geil i hrauninu þar sem þetta mikla hús hafði staðið. ,,Þetta hús var ramm- lega járnbent", sagði maður sem horfði á aðfarirnar. sj

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.