Þjóðviljinn - 28.03.1973, Síða 11
Miftvikudagur 28. marz 1973. 'ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
GETRAUNASPÁ
Aðeins 5 réttir siðast er nokk-
uð sem við getum ómögulega
verið ánægð með, þrátt fyrir
nokkur mjög óvænt úrslit. Það
kom okkur og sjálfsagt fleirum
mikið á óvart, að Everton skyldi
sigra Ipswich á útivelli og þá
ekki siður, að Leeds skyldi ekki
ná nema jafntefli á heimavelli
gegn úlfunum. Þá virðist Derby
heillum horfið i deildarkeppn-
inni, þvi að liðið tapaði 0:3 fyrir
Sheff.Utd. Þetta eru aðeins fá-
ein sýnishorn af hinum óvæntu
úrslitum á laugardaginn.
Nú eru aðeins eftir 7 umferðir
i ensku deildarkeppninni hjá
flestum liðum. Nokkur lið eiga
þó eftir 8 leiki og örfá 9 leiki.
Það er alveg ljóst að einungis
Liverpool og Arsenal munu
berjastum titilinn i ár, en Leeds
á þó enn nokkra möguleika. Og
þótt tölfræðilegir möguleikar
séu enn á sigri Ipswich og New-
castle og jafnvel Wolves, þá eru
það ekkert nema tölfræðilegir
möguleikar. Slíkt hrun hjá topp-
liðunum, sem þarf til að sigur
þessara liða geti átt sér stað
getur ekki komið til greina. Það
verða þvi skemmtilegar 7 vikur
framundan hjá þeim sem ákaf-
ast halda með þessu eða hinu
toppliðinu i ensku knattspyrn-
unni. En snúum okkur þá að
næsta seðli.
Arsenal—Derby 1
Fyrr i vetur var talað um
„heppna Arsenal”, en nú er
talað um „heppna, heppna,
Arsenal”, þvi að liðið vinnur nú
orðið leiki með næsta undarlegri
heppni. En hvað um það, mjög
ótrúlegt er að Derby taki stig af
Arsenal að þessu sinni, ef
marka má frammistöðu liðsins i
siðustu deildarleikjum.
Coventry—Ipswich 1
Fyrst Ipswich tókst ekki að
sigra Everton og það á heima-
velli um siðustu helgi, er vart
þorandi að spá því sigri á úti-
velli gegn Coventry, en þó má
segja, að jafntefli komi til
greina.
Crystal Palace—Chelsea 2
Jafnvel á heimavelli er afar
ótrúlegt að Palace nái stigi úr
viðureigninni við Chelsea. Eins
og er virðist ekkert blasa við
Palace annað en fall niður i 2.
deild, og yrði það þá eflaust eitt
dýrasta lið sem fallið hefur nið-
ur i Englandi.
Leicester—Newcastle 2
Þetta er án efa einn erfiðasti
leikurinn á seðlinum að spá um
úrslit i. Ég hef þá trú að hið
ágæta Newcastle-lið vinni þenn-
an leik, en það skal tekið fram
að jafntefli og jafnvel heimasig-
ur koma til greina.
Man.City—Leeds 2
Manchester City réð ekki við
Frank McLintock fyrirliöi hins
heppna Arsenal-liös.
Arsenal um siðustu helgi, og
manni þykir afar ótrúlegt að þvi
takist að sigra Leeds, en jafn-
tefli kemur hér sterklega til
greina.
Norwich—Birmingham 2
Birmingham-liðið hefur náð
sér á strik svo um munar að
undanförnu og er nú úr allri fall-
hættu, en það sama verður ekk;.
sagt um Norwich sem komst
upp i 1. deild i fyrra ásamt
Birmingham. Við spáum hik-
laust útisigri að þessu sinni og
teljum vart annað koma til
greina.
Southampton—Man.Utd. 2
Enn spáum við útisigri, en
teljum þó að hér leiki meiri vafi
á en i leiknum á undan.
Manchester Utd. hefur hægt og
rólega sótt á að undanförnu og
virðist sloppið úr fallhættunni ef
ekkertóhapp á sér stað i siöustu
leikjunum. Og við setjum hér
útisigur, þótt jafntefli eða jafn-
vel heimasigur komi til greina.
Stoke—WBA 1
Stoke er sem stendur i 4.
neðsta sæti en WBA i þvi neðsta
og virðist dæmt til að falla niður
i 2. deild. Ég hef þá trú að Stoke
spjari sig bæði i þessum leik og
þeim næstu, þannig, að það
verði ekki annað liðið sem fellur
að þessu sinni.
West Ham—Everton 1
Ef marka má leik Everton og
Ipswich um siöustu helgi virðist
eitthvað vera að rofa til hjá
Everton um þessar mundir, og
þvi er nokkuð erfitt aö spá um
úrslit. En við setjum samt einn
fyrir þennan leik, en bendum á
að jafntefli og jafnvel útisigur
koma til greina.
Framhald á bls. 15.
/a\
. staðan
Staðan i 1. og 2. deild I
Englandi er nú þessi:
1. deiid:
Liverpool 35 22 8 5 64:36 52
Arsenal 35 21 8 6 50:32 50
Leeds 32 18 9 5 56:33 45
Ipswich 34 16 10 8 48:34 42
Newcastle 35 15 10 10 54:42 40
Wolves 34 15 9 10 52:42 39
Wcst Ham 35 14 9 12 56:45 37
Tottenham 33 13 9 11 45:36 35
Derby 35 14 7 14 43:51 35
Southam 35 9 16 10 35 39 34
Covcntry 33 12 9 12 35:37 33
Chelsea 33 9 14 10 42:42 32
Leicester 35 9 13 13 37:42 31
Manch. City 34 11 9 14 46:53 31
Everton 33 11 8 14 32:34 30
Sheff. Utd 35 11* ' 8 16 38:50 30
Birmingha m 35! 9 11 15 40:48 29
Manch. Utd. 35 8 11 15 35:55 27
Stoke 34 8 9 17 46:49 25
C. Palace 33 7 11 15 34:43 25
Norwich 34 8 9 17 29:52 25
WBA 34 7 9 18 29:51 23
2. deild. Burnley 35 19 13 3 59:31 51
QPR 34 18 12 4 66:35 48
Blackpool 36 15 10 11 48:43 40
Sheff. Wed 36 15 9 12 54:48 39
Aston Villa 34 14 11 9 41:38 39
Fulham 34 14 10 10 51:40 38
Middelsbro 36 13 12 11 35:38 38
Oxford 34 15 6 13 40-33 36
Luton 33 13 10 10 41-39 36
Millwall 35 14 7 14 50-42 35
Bristol City 35 12 11 12 47-45 35
Nott.Forest 35 12 11 12 39-40 35
Hull 32 11 11 10 49-42 33
Sunderland 30 11 9 19 43-47 31
Portsmouth 35 10 10 15 38-47 30
Preston 35 10 10 15 33-55 30
Carlislc 34 10 9 15 43-41 29
Orient 34 9 11 11 38-42 29
Swindon 36 8 13 15 42-57 29
lluddersfield 35 6 15 14 32-
47 27 Cardiff 33 10 6 17 34-48 26
Brighton 35 6 10 19 38-73 22
NM unglinga háð
um næstu helgi
Um næstu helgi fer
fram Norðurlandamót
unglinga í handknattleik,
og sendir Island lið bæði í
keppni pilta og stúlkna.
Keppni piltanna fer fram
i Svíþjóð, en stúlknanna í
Danmörku. Eins og
mennn eflaust muna urðu
íslen2ku piltarnir Norður-
landameistarar árið 1970
og hafa síðan verið nærri
því að vinna titilinn öðru
sinni. Nú er íslenzka pilta-
liðið talið mjög sterkt,
sérstaklega sem sóknar-
lið, og miklar vonir við
það bundnar.
Þjálfari liðsins nú siðustu vik
urnar hefur verið Páll Björg-
vinsson hinn kunni handknatt-
leiksmaður úr Vikingi, og hefur
liðið tekið breytingum til hins
betra undir hans stjórn. Farar-
stjórar liðsins til Sviþjóðar
verða þeir Einar Mathisen
formaður HSI og Jón
Kristjánsson, sá er mest og
bezt hefur unniö að unglinga-
málum handknattleiksins sl. 10
ár á Islandi. Liðstjóri verður
Olfert Naaby úr Armanni og
þess má geta að Páll Eiriksson
læknir hinn kunni handknatt-
leiksmaður, sem dvelur við sér-
nám i Danmörku,mun koma til
móts við liðið i Kaupmannahöfn
Framhald á bls. 15.
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
Derek Dougan, snillingurinn I framlinu úlfanna. Hann á ekki
hvað minnstan þátt I velgcngni liðsins i vetur.
cr
CJ
o
D
100 unglingar tóku
þátt í bikarkeppni
Skíðafélags Rvíkur
Annað unglingamót i bikar-
keppni Skiðafélags Reykjavikur
var haldið við Armannsskálann
i Bláfjöllum laugardaginn 24.
marz kl. 3 e.h. Um eitthundrað
unglingar tóku þátt i keppninni.
Stormur var og 12 stiga frost.
Lagðar voru tvær brautir, ein
fyrir yngri flokkana og lengri
brautin innarlega i dalnum fyrir
eldri flokkana. Mótsstjóri var
Haraldur Pálsson S.R. og braut-
arstjóri Skarphéðinn Guð-
mundsson S.R. Þetta er önnur
keppnin i bikarkeppni um 21
bikar sem verzlunin Sportval á
Laugavegi 116 hefur gefið.
Eitt mót er eftir i þessari
keppni, og verður þaö haldið
mjög fljótlega.
Úrslit urðu sem hér segir:
Eldri flokkur, 36 port.
Drengir 15 og 16 ára:
1. Guðni Ingvarss. K.R. 85,3
2. Kristján Kristjáns. A. 87,7
3. Magni Pétursson K.R. 88,8
Drengir 13 og 14 ára:
1. Ólafur Gröndal K.R. 85,9
2. Bj. Ingólfsson A. 88,1
3. Hilmar Gunnarsson A. 99,0
Stúlkur 13, 14 og 15 ára:
1. Jórunn Viggósd. K.R. 93,5
2. Guöbj. Arnad. A. 117,3
3. Anna Dia K . R. 128,5
Yngri flokkar, 28 port.
Drengir 11 og 12 ára:
1 og 2 Lárus Guðmundss. A 58,5
1 og 2 Sigurður Kolbeins A 58,5
3. Páll Valsson IR 62,8
4. Helgi Geirharðsson A 64,6
Drengir 10 ára og yngri:
1. Rikharður Sigurðsson A 44,6
2. JónBergsSR 51,4
3. Kormákur Geirharðss. A 51,9
Stúlkur 11 og 12 ára:
Steinunn Sæmundsd. A. 55.6
2. Maria Viggósd. KR 57,3
3. Helga Magnúsd. KR 69,4
Stúlkur 10 ára og yngri:
1. Ása Hrönn Sæmundsd. A 49,9
2. Auður Pétursd. A 57,3
3. Bryndis Pétursd. A 60,0