Þjóðviljinn - 28.03.1973, Side 13
— Sjálisagt, herra minn. Bake
bar höndina upp að enninu með
striðnissvip og þrammaði burt.
Ofanúr stiganum hrópaði hann
skrækri röddu: — Ég skal aldrei
gleyma þér, Andy, aldrei.
Thornburg kom úr simanum
um leið og Andy kom að dyr.unum
að búningsherbergi sinu. — Þetta
voru einhverjir menntaskóla-
nemendur, sagði hann til
skýringar. — Þeir vildu fá viðtal i
skólablaðið sitt. Ég gaf þeim tima
eftir hádegið á morgun.
— Hvað menntaskóli gefur út
skólablað i júli? Það er sumar-
leyfi.
Tornburg varð undrandi á svip,
siðan skömmustulegur. — Það at-
hugaði ég ekki. Jæja, þau sneru á
mig. Nei, við þurfum vist ekki að
Miftvikudagur 2N. marz 1973. þjóÐVILJINN — StDA 13
m
Eftir Whit
Masterson
þeim finnist þeir vera eins merki-
legir og þeir halda að þeir séu
— Ég skal segja þetta við þá,
sagði Andy. Munce hélt að honum
væri alvara. — Slakaðu á, Lanny.
Ég geri ekkert sem kemur sér ilía
fyrir þig.
— Ég var ekki hræddur um
það, sagði Munce i flýti. — Þú
veizt vel að þú ert efstur á blaði
hjá mér.
Þeir gengu niður kjallara-
stigann. En þar voru þeir ekki
einir heldur — flamenco-
dansararnir sem voru neðstir á
leikskránni, rifust hástöfum á
baskamáli i búningsherberginu
og i hinum enda gangsins var
simi að hringja. Thornburg
haltraði þangað til að svara.
Andy hafði ekki tekið eftir
stúlkunni fyrr en hún fleygði sér
yfir hann. Hún hafði falið sig
undir stiganum. Nú var hún allt i
einu komin i miðjan hópinn og
hélt sér dauðahaldi i Andy með
báðum höndum meðan hún
hrópaði nafn hans yfirkomin af
hrifningu.
Andy sleit sig lausan en var svo
óheppinn að nögl klóraði rispu i
kinnina á honum. Um leið var
Hub búinn að ná taki á stúlkunni
og sneri henni i hring. — Hvern
fjandann ert þú að vilja?
Hún streittist á móti. — Ég
ætlaði bara að koma við hann. Æ,
leyfðu mér að snerta hann.
— Þú ert svo sannarlega búin
að snerta hann. Littu framani
hann. Hub hristi hana. — Ertu
kolv.itlaus?
Andy var búinn að jafna sig
eftir undrunina og sagði: — Vertu
ekki harður við hana. Hún gerði
þetta ekki viljandi.
Skákþraut
Þessi staða kom upp i skák
þeirra Tals og Solmanis i Rúss-
landi 1971. Hvitur leikur og
vinnur.
Lausn á dæmi no. 10.
1. Dxh7 RxD 2. HxR KxH 3. Hh3
Dh5 4. BxD og svartur fær ekki
varizt máti.
Hub var enn reiður stúlkunni,
en návist hennar gat gefið tilefni
til að draga hæfni hans sem lif-
varðar i efa. Hann sleppti henni
með semingi. Hún var með tárin i
augunum. — Ég ætlaði ekki að
klóra yður. Sizt af öllu vildi ég
gera yður mein, Andy.
— Engar áhyggjur, þetta grær
fljótt, sagði Andy vingjarnlega, —
en nú verðurðu að fara. Þú hefðir
ekki átt að laumast hingað niður.
Þú hefðir getað lent i alvarlegum
vandræðum.
3
— Ég varð að sjá yður. Ég fæ
kannski aldrei annað tækifæri.
— Já, og nú ertu búinn að sjá
hann, sagði Hub hásum rómi og
þreif aftur i handlegginn á henni.
— Æ, má ég ekki fá eitthvað
sem þér eigið, sárbændi hún án
þess að lita af Andy. — Bara eitt-
hvað, mér er sama hvað, svo að
þau trúi mér?
Andy hafði ekki hugmynd um
hver ,,þau” voru, en hann sagði:
— Auðvitað, þú verður af hafa
eitthvert sönnunargagn. Hann tók
af sér þverslaufuna. — Er þetta
nóg?
Hún þrýsti þverslaufunni að
sér, alsæl eins og henni hefði
verið gefinn demantur. — Ó,
kærar þakkir, hvislaði hún. Þegar
Hub tosaði henni burt, hrópaði
hún. — Þessu skal ég aldrei
gleyma, Andy.aldrei.
— Lánið eltir suma, sagði Bake
dapur i bragði. — Litlar kynbom-
bur sem kasta sér yfir þá við
hvert tækifæri. Ef ég hefði átt i
hlut, þá hefði ég svo sannarlega
gefið henni meira en þver-
slaufuna.
— Mundu að ég er giftur. Andy
hristi höfuðið ringlaður. — Þetta
er furðulegt — hún er það lika.
Hún var að minnsta kosti með
giftingarhring. Hvað hleypur
eiginlega i fólk sem hagar sér
svona?
— Það er eins gott fyrir þig að
horfast i augu við það — þú ert
kyntákn.
— Æ, hættu þessu, Bake. Þú
þekkir mig alltof vel til að vita að
það er ekki rétt.
— Ég geri það, en þau ekki.
Þessi stelpa er sjálfsagt gift ein-
hverjum ónytjungi og óskar þess
af öllu hjarta að þú værir kominn
i hans stað. Og það eru miljón
aðrar eins og hún.
Andy hló. — Þetta er bráð-
fyndið þegar hugsað er út i það.
En, Bake, gerðu mér greiða. Ég á
von á Lissu á hverri stundu. Viltu
fara upp og sjá um að hún komi
hingað niður.
hafa áhyggjur af æskunni i dag.
Hún er að minnsta kosti nógu
hugmyndarik. Heyrðu, hvað
hefur komið fyrir andlitið á þér?
— Annað dæmi um hug-
myndauðgi æskunnar. Andy
opnaði dyrnar að búningsher-
berginu og gekk inn með Thorn-
burg á hælunum. Þeir fjórir sem
fyrir voru i herberginu, brugðust
á sama hátt og aðrir við komu
Andys; það var eins og þegar
segull dregur að sér járnsvarf.
Phil Gagnon kom fyrstur til hans,
hann var grannvaxinn maður
með hrokkið hár og hafði þá at-
vinnu að klæða Andy. Hann fór að
færa Andy úr jakkanum.
— Mannf jöldinn fyrir utan tafði
mig.
Hvað hefur orðiö af
þverslaufunni þinni? Gagnon tók
fyrst eftir að hana vantaði, áður
en hann tók eftir andlitinu á
Andy, vegna þess að föt gáfu til-
veru hans innihald.
öðru máli gegndi um hina. Þeir
spurðu næstum samstundis. Andy
leit i spegillinn. Rifan sýndist
verri en hún var; þetta var ekki
annað en rispa sem auðvelt yrði
að fela með sminki. En þeir
horfðu samt á hann með áhyggju-
svip. Tilvera þeirra byggðist á
velliðan Andys Paxtons. Rocco
Vecchio, fjármálastjóri hans,
þrekinn hlunkslegur maður, sem
þjáðist af atvinnusjúkdóm i
stéttarinnar, áhyggjum, var
kviönastur. Hann var sköllóttur,
með svört augu og þykkar,
svartar brúnir, sísveittur og
stöðugt að leita að einhverju til að
þurrka sér með i lófunum; oftast
notaði hann buxnaskálmina. —
Það kemur að þvi að þú verður
tættur i sundur, sagði hann. — Til
hvers fjandans erum við að borga
þessum lifverði kaup?
— Það var ekki Hub að kenna.
Stundum fór þessi sifellda um-
hyggja i taugarnar á honum.
Hnerri vakti skelfingu, ósköp
venjulegt kvef var álitið hroll-
vekja..það var aðeins vegna þess
að hann hafði þvertekið fyrir það
að ekki hafði verið ráðinn einka-
læknir til að ferðast með honum.
Hann hafði hætt við frosk -
mannsköfun, sem honum þótti
skemmtileg, til að komast hjá
daglegum ásökunum starfs-
manna sinna. — Það var svo sem
ekki eins og ég fótbryti mig,
fjandinn hafi það.
— Gerðu ekki litið úr svona
löguðu. Vecchio svipaðist um
eftir tré til að berja undir.
— Andy hefur rétt fyrir sér,
sagði Charlie Marble, — það er
óþarfi að gera veður út af þessu.
Sizt af öllu núna. Hann var að
eðlisfari róandi maður. Hann var
fulltrúi viðtæks leikhúsumboðs og
i sérstökum tengslum við Paxton.
MIDVIKUDAGUR 28. marz
7.00 Morgunútvarp.Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guðrún Guðlaugsdótt-
ir les framhald sögunnar
um ..Litla bróður og Stúf”
eftir Anne Cath,- Vestly
(12). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
ámilliliða. Kitningarlestur
kl. 10.25: Séra Kristján Ró-
bertsson les úr bréfum Páls
postula (23). Sáliualög kl.
10.40. Fréttir kl. 11.10. Tón-
leikar: Hljómsveit Tón-
listarskólans i Paris leikur
„Sylviu”, ballettmúsik eftir
Delibes. / Listafólk i Vin
flytur lög úr óperettunni
„Madame Pomadour” eftir
Fall. / Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leikur „Slæpingja-
barinn”, divertissement
eftir Milhaud.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.15 Ljáftu mér eyra. Séra
Lárus Halldórsson svarar
spurningum hlustenda.
14.30 Síftdegissagan: „Lifsor-
ustan” cftir óskar Aftal-
stein.Gunnar Stefánsson les
(5).
15.00 Miftdegistónleikar: ls-
lenzk tónlist. a.Forleikur að
„Fjalla-Eyvindi” og Sex
vikivakar eftir Karl O. Run-
ólfsson. Sinfóniuhljómsveit
tslands leikur; Bohdan
Wodiczko stj. b. ,,f lundi
ljóðs og hljóma”, lagaflokk-
ur eftir Sigurð Þórðarson.
Sigurður Björnsson syngur;
Guðrún Kristinsdóttir leikur
undir. c. Lög eftir Bjarna
Þorsteinsson i hljómsveit-
arbúningi Jóns Þórarins-
sonar. Sinfóniuhljómsveit
Islands leikur; Páll P. Páls-
son stj. d. Tvö lög eftir Pál
tsólfsson. Guömundur Jóns-
son syngur. Ölafur V. Al-
bertsson leikur undir e. Lög
eftir Sigvalda Kaldalóns og
Sigurð Þórðarson. Guðrún
A. Simonar syngur. Guðrún
Kristinsdóttir leikur undir.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.Tilkynn-
ingar.
16.25 Popphornift.
17.10 Tónlistarsaga. Atli
Miövikudagur 28. marz
18.00 Jakuxinn. Barnamynda-
flokkur. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. Þulur
Andrés Indriðason.
18.10 Frumskógarleikurinn,
Finnsk teiknimynd. Þýð-
andi Kristin Mantyld.
(Nordvision-Finnska sjón-
varpið)
18.20 Einu sinni var.... Gömul
og fræg ævintýri færð i
leikbúning. Mafturinn og
hjákonurnar t v æ r.
Niz. kukollurinn og
Nirfillinn. Þulur Borgar
Garðarsson.
18.40 lllé.
20.00 Fréttir.
20.25 Veftur og auglýsingar.
20.3Ó Þotufólk. Leyndarmál
Astros. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.55 Skipt um hlutverk (L
une et 1’ autre). Frönsk bió-
Heimir Sveinsson sér um
þáttinn.
17.40 Litli Barnatlminn. Gróa
Jónsdóttir og Þórdis As-
geirsdóttir sjá um timann.
18.00 Eyjapistill. Bænarorft.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 A döfinni.Kristján Bersi
Ölafsson skólastjóri stjórn-
ar viðræðuþætti um kenn-
aramenntunina. Þátttak-
endur: Dr. Broddi Jó-
hannesson rektor, Kristján
Ingólfsson kennari og Óskar
Halldórsson lektor.
20.00 Kvöldvaka. a. Lög eftir
Pétur Sigurftsson frá Sauft-
árkróki. Svala Nielsem og
Friðbjörn G. Jónsson
syngja; Guðrún Kristins-
dóttir leikur undir á pianó.
b. Baslsaga Jón Sigurjóns-
sonarj — fyrri hluti. Agúst
Vigfússon skráði. Auðunn
Bragi Sveinsson flytur. c.
Kvæfti cftir Jakob Thorar-
ensen. Stefán Asbjarnarson
á Guðmundarstöðum i
Vopnafirði les. d. I.itift um
öxl. Jón Arnfinnsson garð-
yrkjumaður segir frá.
Kristján Þorsteinsson flyt-
. ur. e. Finnvitkun, Þorsteinn
I frá Hamri tekur saman
þáttinn og flytui'ásamt Guð-
rúnu Svövu Svavarsdóttur.
f. Um islenzka þjófthætti.
Arni Björnsson cand.mag.
flytur þáttinn. g. Kórsöng-
ur. Karlakórinn Geysir á
Akuréyri syngur „Fóst-
bræðrasyrpu”, islenzk þjóð-
lög i raddsetningu Emils
Thoroddsens. Söngstjóri:
Arni Ingimundarson.
Pianóleikari: Þórunn Ingi-
mundardóttir.
21.30 Aft tafli. Guðmundur
Arnlaugsson flytur skák-
þátt.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (32).
22.25 Ctvarpssagan: „Ofvit-
inu” cftir Þórberg Þórftar-
son. Þorsteinn Hánnesson
les (22).
22.55 Aft lilusta á nútimatón-
I is t JT a 1 ldó r Haraldsson
ræðir um nokkur atriði
nýrrar tónlistar og kym
ir jafnframt verkin „Lux
Eterna” og Requiem eftir
Ligeti.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
mynd. Leikstjóri Nicole
Stephane. Aðalhlutverk
Malka Robovska, Philippe
Noiretog Marc Cassot. Þýð-
andi • Óskar Ingimarsson.
Aðalpersónan, Anna, er
leikkona. Hún býr með
rosknum ljósmyndra, en
hefur hug á að slita sam-
búðinni. Systir hennar, sem
býr i Lundúnum, er rik, og
hún verður önnu fyrirmynd
i ýmsum tilvikum.
22.10 Kirkjur og ofbeldi.
Finnsk kvikmynd um
ástandið á N-trlandi og hlut
hinna þriggja aðaltrúar-
félaga iófriðinum, sem þar
rikir, og tilraunum til úr-
böta. Rétt er að benda á, að
myndin er ekki alveg ný af
nálinni. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
23.00 Dagskrárlok.
O cj