Þjóðviljinn - 28.03.1973, Side 15
Miðvikudagur 28. marz 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Getraunaspá
Framhald af bls. 11.
Wolves—Sheff.Utd. 1
Hér er ekkert hik i málinu.
Það kemur vart annað til greina
en heimasigur, enda hafa Úlf-
arnir staðið sig með eindæmum
vel undanfariö og eru örugglega
eitt bezta lið Englands i dag.
Carlisle—Luton X
Þá erum viö komin i 2. deild-
arleikina, og þótt Luton sé nokk-
uð betra lið en Carlisle, ræður
heimavöllurinn hér miklu, og
við spáum jafntefli, en annars
kæmi útisigur frekar til greina.
Nott.For.—Burnley 2
Burnley er nú komið upp i 1.
deild þótt enn séu eftir 5—7 um-
ferðir i 2. deild, nokkuð misjafnt
hve marga leiki liðin þar eiga
eftir. Liðið þarf ekki nema 1 stig
úr þessum 5 leikjum sem það á
eftir til að tryggja sér sæti
og það þarf kraftaverk til að
það gerist ekki. Við spáum þvi,
að einmitt þessi leikur færi liðið
upp i 1. deild endanlega, með
þvi að það fái bæði stigin.
Rekstrarlán
Framhald af bls. 6.
óhjákvæmilega tekið, að gefa út
reglugerð Seðlabankans, svo og
að koma á samræmingu milli við-
skiptabankanna i þessum efnum.
Sagði ráðherra, aö samkvæmt
þessum reglum hefðu til þessa
verið afgreitt 17 fyrirtæki á einn
eða annan hátt. Það hlyti að taka
langan tima að koma á föstu
skipulagi i þessum efnum og þvi
hefði verið lögð áherzla á að efla
útflutninginn.
Ráðherra sagði, að erfitt væri
að festa hendur á heildarlánveit-
ingum til iönaöar, en á fundi með
forystumönnum iðnrekenda fyrir
nokkru hefði hann beðið um að
sér væri bent beint á ákveðin fyr-
irtæki, sem ekki hefðu fengið út-
flutningslán sambærileg sjávar-
útveginum. Það væri löngum tal-
að um að iðnaöurinn væri ein-
hvers konar hornreka við hlið sjá-
varútvegar og landbúnaðar, en ef
ekki væri unnt að benda á ákveðin
tilfelli i þessu sambandi, væri
tómt mál að tala um þetta.
Almenn rekstrarlán viðskipta-
bankanna til iðnfyrirtækja væru
miklu hærri en til útgerðarinnar,
og það tæki tima að færa þau yfir
á nýtt form. ,
Til þess væri ætlazt af rikis-
stjórninni, að iönaöurinn sæti við
sama borö og aðrir atvinnuvegir
og fyrirmæli þar að lútandi lægju
fyrir þeim, er með framkvæmdir
færu i lánamálum. Auðvitað yrðu
fyrirtæki, sem lán fengju, að geta
staðiö við ákveðnar fjármálaleg-
ar skuldbindingar. Þau iðnfyrir-
tæki, sem teldu sig sett skör neðar
en vera ætti, þyrftu þó að gefa sig
fram, svo að unnt væri að athuga
mál þeirra.
NM-unglingamót
Framhald af bls. 11.
og vera með þvi á mótinu. Það,
aö hafa lækni með liðunum, er
eitt af þvi sem ekki hefur
almennt verið gert hjá
islenzkum landsliðum, og er
þetta bvi mjög til fyrirmyndar.
Islenzka liðið verður þannig
skipað:
Einar Guðlaugsson Armann
Einar Ásmundsson KR
Ásmundur Vilhjálmss. tBK
Gisli Torfason tBK
Jóhaiin Ingi Gunnarss. Valur
Þorbjörn GuðmundssonValur
Gisli Arnar Gunnarss. Valur
Hörður Harðarson Valur
Gunnar Einarsson FH
Janus Guðlaugsson FH
ViggóSigurðsson Vlkingur
Stefán Halldórss. Víkingur
Hanncs Leifsson Fram
Hörður Hafsteinsson tR
Fyrirliði liðsins verður
Jóhann Ingi Gunnarsson.
Vill byggja mótel i Ryík
Þorgeir Halldórsson hefur sótt
til borgaryfirvalda um lóð fyrir
mótel, sem hann vill byggja og
reka i Reykjavik. Var fjallað um
umsókn hans á fundi borgarráös i
fyrri viku og henni visað til lóða-
nefndar.
Samkvæmt upplýsingum skrif-
stofustjóra borgarverkfræðings
mun umsækjandi ekki hafa neina
sérstaka staðsetningu i huga, en
miðar við byggingu á þessu ári,
þannig, að fyrirtækið komist i
gagnið á næsta ári.
Hugmynd Þorgeirs er ekki
hverfi smáhýsa eins og mótel eru
yfirleitt erlendis, td. i Bandarikj-
unum, heldur hefur hann i huga
byggingu 2ja til 3ja hæða húsa,
jafnvel blokka með litlum ibúðum
til leigu fyrir ferðamenn yfir
sumarmánuðina, sem jafnvel
mætti þá nýta á annan hátt á
veturna. —vh
Laun hækkuðu um 60 % — 80% en
kjöt og mjólk innan við 30%
1 gær brenglaðist hjá okkur
frétt á 6. siðu frá umræðum utan
dagskrár á alþingi um verðlags-
mál. Við birtum þvi fréttina á ný:
1 ræðu Agústs Þorvaldssonar
við umræðurnar um verðlagsmál
á alþingi komu m.a. fram þær
upplýsingar, er hér fara á eftir
um hækkun ýmissa vörutegunda
annars vegar og launa hins vegar
frá nóvember 1970 til þessa dags.
Byggt er á tölum frá Hagstofu
Islands og frá skrifstofu verö-
lagsstjóra
Kiöaö er viÖ 1 kg vör-
unnar, nema annars sé
getiÖ
Nymjölk, 1/1 hyrna
KáólkurostAir 45%
SÍr.jör, I. fl. •
Súpukjöt, I. verÖfl.
Kótelettur
Kindabjúgu
RúgbrauÖ, óseytt, 11/2
Franskbrauö, 500 g
Hveiti, pakkaö kg
fsa, slægö og hausuö
Þorskflök, roölaus, ný
Saltfiskur
Fiskbollur, 1/2 dós
Epli
Rúsínur, pakkaöar
Kartöflur í 5 kg pokum
Strásykur
Kakó
Kaffi, brennt og malaÖ
Kaltöl, 33 cl. flaska
Verö í nóv. Verö í febr.
1970, kr. 1973, kr.
15.30
237,00
199,00
150,20
176,80
144,00
kg 26,00
18.50
26,00 36,50
31,00
53.50
55,00
35,00
67,05 85,75
94,00 158,90
23,10
20,35 43,75
205.30 279,20
190,00
11.50
ö 20. marz
3 , kr.___ Hakkun, %
19,50 27
238 ,00 0
250,00 26
190,40 27
226,00 28
177,00 23
32,00 23
25,00 35
40
52,00 68
77,00 44
80,00 45
53,00 51
28
69
17,50 ♦ 24
115
36
296,00 56
16,00 39
Frá þvl i nóvember 1970 hefur
almennt timakaup verkamanna i
dagvinnu hækkaö kringum 60%
og laun opinberra starfsmanna
hafa hækkað kringum 80%. Rétt
er þó að geta þess, að laun þau,
sem opinberir starfsmenn sömdu
um i desember 1970, voru látin
verka aftur fyrir sig. Verölags-
grundvöllur landbúnaöarafurða
hefur hækkað um 52% frá haust-
verðlagningu 1970.
ARNFINNUR JÓNSSON
fyrrverandi skólastjóri
varð bráðkvaddur að Hrafnistu aö kvöldi 26. marz.
Fyrir hönd Róberts Arnfinnssonar
Sandra Róbertsdóttir Linda Róbertsdóttir
Þingsjá
Framhald af bls. 6.
einkum sakna tveggja atriða i
skýrslu ráöherrans. Annars
vegar niöurstaðna alþjóðlegarar
ráöstefnu fiskifræðinga i Wash-
ington 1972 og hins vegar
ábendinga um það, að hjá ráð-
herrum þeim, er stóðu aö samn-
ingum viö Breta 1961, hefði hvaö
eftir annað komið fram sá skiln-
ingur á samningunum, að aukin
islenzk landhelgi skyldi standa i
framkvæmd, unz Alþjóðadóm-
stóllinn hefði fellt sinn dóm. Hjá
ráðamönnum I Englandi og
Þýzkalandi heföi aldrei bólað á
mótmælum gegn þessum skiln-
ingi tslendinga.
Einar Ágústsson, utanrikis-
ráðherra, sagði, að hann hefði
látiö kanna, hvort I utanrikis-
ráðuneytinu lægju einhver gögn,
sem rennt gætu stoðum undir
þennan skilning ráðherra
Viðreisnarstjórnarinnar, en þar
væri engin slik skjöl að finna.
Ráðherrá taldi ekki liklegt, aö
nein slik gögn fyndust I London
heldur.
Þessir þingmenn tóku þátt i
umræðunum: Jón Ármann
Héðinsson, Jónas Árnason,
Jóhann Hafstein og Tómas
Karlsson.
1050 manns
Framhald af bls. 1.
kvæmt þessari. athugun 1050
starfsmenn til starfa við útgerð-
ina á þessu svæði eins og nú
standa sakir. Hér er að sjálfsögðu
fyrst og fremst um að ræða vönt-
un á fólki á aðaltima vetrarver-
tiðarinnar, þegar mestur afli
berst að landi. Hér er um mjög
alvarlegt ástand að ræða þar sem
afli er nú allgóður i mörgum ver-
stöðvum. Allir þeir, sem aðstöðu
hafa til að aðstoða við björgun
verðmæta á mesta annatiman-
um, ættu að gefa sig fram eða að
hafa áhrif á að vinnuafl sem ekki
er fullnytt komi hér til hjálpar.”
5 fórust
Framhald á bls. 15.
Hallgrimur Magnússon húsa-
smiður, Hjarðarhaga 46 Reykja-
vik, 52 ára, kvæntur og lætur eftir
sig 3 börn.
TF-VOR var i leiguflugi fyrir
Flugmálastjórn og var að koma
frá Akureyri á leið til Reykjavik-
ur er slysið varð. Það var kl. 14.51
á mánudaginn að siðast var haft
samband við vélina og var hún þá
i 11000 feta hæð norður af Lang-
jökli. Þegar svo ekkert heyrðist
til vélarinnar eftir það, en hún
átti að lenda i Reykjavik kl. rúm-
lega 15.30, var þegar hafin leit að
vélinni.
Fjölmargar flugvélar leituðu
strax á mánudaginn og leitar-
flokkar frá flugbjörgunarsveitum
og SVFI voru sendir af stað. I
gærmorgun leituðu 12 flugvélar
að TF-VOR og auk þess á þriðja
hunrdað manns. Þá svipuðust
flugvélar frá Flugfélagi Islands
og Flugfélaginu Vængjum eftir
vélinni með þvi að leggja lykkju á
leið sina i áætlunarflugi.
Ekki var hægt að fá neinar upp-
lýsingar um orsakir slyssins I
gær, en siðdegis var rannsóknar-
nefnd flugslysa að leggja af stað á
slysstaðinn i Búrfjöllum. Þess má
að lokum geta, að flakið fannst i
fjallshliði Búrfjöllunum. — S.dór.
Bókasýning i Stúdentaheimilinu
Þessa dagana heldur Bóksala stúdenta sýningu á vlsinda- og
kennslubókum i Stúdentaheimilinu við Hringbraut. Þar eru sýndir 150
bókatitiar frá McGraw-Hili útgáfufyrirtækinu, sem er eitt hið stærsta I
heimi. Af þessu tilefni er staddur hér á iandi fulltrúi McGraw-Hill,
David S. Anderson, og mun hann veita sýningargestum upplýsingar
um bækur fyrirtækisins og kynna útgáfuáætiun þess. — Sýningin I
Stúdentaheimilinu er opin kl. 10-18 virka daga.
Aðstoðarlæknisstaða
Staða aðstoðarlæknis við endurhæfingar-
deild Landspitalans er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. mai n.k.
Umsóknir er greini frá aldri, námsferli og
fyrri störfum, sendist stjórnarnefnd rikis-
spitalanna, Eiriksgötu 5, fyrir 27. april
n.k.
Reykjavik, 26. marz 1973
Skrifstofa rikisspitalanna.
Sérfræðingur
Staða sérfræðings á bæklunarlækninga-
deild Landspitalans er laus til umsóknar
og veitist frá 1. mai n.k.
Staðan er hálft starf- Umsóknir, er greini
aldur, námsferil og fyrri störf, ber að
senda stjórnarnefnd rikisspitalanna,
Eiriksgötu 5, fyrir 30. april n.k.
Reykjavik, 26. marz 1973
Skrifstofa rikisspitalanna
® Til sölu
Togarinn ,,Jón Þorláksson”, i eigu Bæjar-
útgerðar Reykjavikur (BÚR), er til sýnis
og sölu i þvi ástandi, sem hann er i nú.
Tilboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 15. mai n.k. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
FríkirUjuvegi 3 — Sími 2S800
SólaÖir
hjólbarÖar
til sölu á ýmsar stærðir fólksbila.
Mjög hagstætt verð.
Full ábyrgð tekin á sólningunni.
Sendum um allt land gegn póstkröfn.
BARÐINN
ÁRMÚLA 7 SÍMI 30501 REYKJAVÍK.