Þjóðviljinn - 28.03.1973, Page 16
VOBWUINt
Miövikudagur 28. marz 1972.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Kvöld-, nætur- og helgar-
þjónusta lyfjabúðanna i
Reykjavik vikuna 23.-29.
marz er i Reykjavikurapóteki
og Borgarapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhring-
inn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuvernc^arstöðinni.
Simi 21230.
Olnbogabörn
yelferðar
á sviði Þjóðleikhússins
Annað kvöld, föstudag, frum-
sýnir Þjóðleikhúsið sænskt nú-
Limaleikrit sem heitir Sjö stelpur.
Leikritið var frumsýnt I Stokk-
hólmi haustið 1971 og þá á
minnsta sviði Dramaten sem er
þjóðleikhús Svia. Vakti það svo
mikla athygli og hrifningu að það
Kaldvin llalldórsson og Þórunn
Magnúsdóttir eiga hér i einhverj-
um sviptingum.
Verkföll í
dönskum
skólum
KAUPMANNAHÖFN 27/3. —
Liklegt er að öll kennsla faili
niður i Damnörku á föstudag en
þá hefur ein miljón skólanem-
enda boðað verkfall.
Það er samstarfsnefnd nem-
enda samtakanna sem boðar til
verkfallsins, en áöur hafði verk-
fallsboðunin verið samþykkt i
landssamtökum skólanemenda.
sem eru samtök nemenda i
barna- og gagnfræðaskólutn.
sprengdi fljótlega af sér húsnæði.
Var þaðsiðan flutt svið af sviði og
að endingu dugði ekki minna en
aðalleiksvið leikhússins og þar
gengur það enn. Um þessar
mundir gengur það á öllum
Norðurlöndunum og æfingar á þvi
eru hafnar I Þýzkalandi.
Höfundurinn er þekktur
sænskur rithöfundur en hann
skrifar þetta leikrit undir dul-
nefninu Erik Thorstensson. Hefur
hans rétta nafni verið vandlega
haldið leyndu eins og um
hernaöarleyndarmál væri að
ræða. Astæðan er sú aö persónur
leiksins eiga sér allar lifandi
fyrirmyndir. 011 helztu atvik leik-
sins og jafnvel einstök tilsvör eru
sannsöguleg þótt nöfnum sé
breytt.
Tilurð verksins er sú að
höfundurinn réö sig sem gæzlu-
mann á upptökuheimili fyrir svo-
nefndar vandræðastúlkur sem
staðsett var uppi í sveit. Þar
skrifaði hann dagbók sem gefin
var út i söguformi. Eftir henni
var svo leikritið gert.
1 leiknum eru 10 hlutverk öll
svipuð að stærð. Staðgengil
höfundar, nýja gæzlumanninn,
leikur Guðmundur Magnússon og
annað gæzlúfólk leika þau Ævar
Kvaran, Þóra Friðriksdóttir og
Baldvin Halldórsson. 1 hlutverk-
um stúlknanna sem eru sex, sú
sjöunda sést aldrei á sviðinu, eru
þær Þórunn Magnúsdóttir,
Steinunn Jóhannesdóttir, Guðrún
Alfreðsdóttir, Sólveig
Hauksdóttir, Helga Jónsdóttir og
Helga Stephensen.
Þau Guðmundur, Sólveig og
Helga Stephensen koma fram i
fyrsta skipti á fjölum Þjóðleik-
hússins i þessu stykki en þau hafa
öll leikiö áöur hjá Leikfélaginu.
Sömu sögu er að segja af Birni
Björnssyni sem gerir nú leik-
myndir i fyrsta sinn fyrir Þjóð-
leikhúsið en hann hefur um árabil
gert leikmyndir fyrir sjónvarpið.
Leikstjóri er Briet Héðinsdóttir
og er þetta fyrsta verkefni hennar
sem leikstjóra hjá Þjóðleik-
húsinu. Þýðandi verksins er Sig-
mundur örn Arngrimsson. ÞH
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Fáskrúðsfjörður — Ileyðarfjörður
Alþýðubandalagið boðar til fundar n.k. laugardag á Reyðarlirði og
n.k. sunnudag á Fáskrúösfirði.
Arnmundur Bachmann fulltrúi, Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi og
Helgi Seijan alþingismaður mæta á fundunum.
Fundirnir eru öllum opnir.
Umræðufundur
Lúðvik Jósepsson, ráðherra, verður málshefj-
andi á umræðufundi Alþýðubandalagsins i
Reykjavik á fimmtudagskvöldið. Fundurinn
verður að Grettisgötu 3 og hel'st kl. 20.30. Um-
ræðuefnið er tsland og viðskipta- og efnahags-
bandalögin og er allt áhugafólk velkomið á fund-
inn.
Húsavik — Akureyri — Sauðárkrókur
Alþýðubandalagiö boðar til fundar i Alþýðuhúsinu á Akureyri á
laugardaginn kl. 14.
Einnig verða haldnir fundir á Húsavik og Sauðárkróki um helgina og
verða þeir nánar auglýstir siðar.
A fundunum mæta þeir Ragnar Arnalds, Jónas Arnason, Stefán
Jónsson og Jón Snorri Þorleifsson. — Fundirnir eru öllum opnir.
Borgarmálaráð
Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins i Reykjavik boðar til fundar i
kvöld að Grettisgötu 3.
Hefst fundurinn kl. 21. A fundinn eru boðaðir
allir þeir, er eiga sæti i nefndum borgarinnar á
vegum Alþýðubandalagsins.
Viðtalstimi i dag
Sigurjón Pétursson borgarráðsmaður verður
til viðtals að Grettisgötu 3 frá kl. 5 til kl. 6. Sim-
inn er 19835.
Narfinn hcldur til veiða.
Togararnir streymdu
út á miðin í gærdag
Strax eftir aö togaraverkfallið
leystist I siðustu viku héldu
nokkrir togarar á miðin, en aörir
urðu eftir vegna strögls út-
gerðarmanna. Nú hafa þeir hins
vegar hætt öllu slfku og I gær tóku
togararnir sem eftir voru að
tinast út úr Reykjavfkurhöfn,
hver á fætur öðrum.
Samkvæmt upplýsingum sem
við fengum hjá BÚR i gær fór
Bjarni Benediktsson RE fyrstur
BúR-togara á veiðar eða uppúr
kl. 14 i gær. Þá lagði Hallveig
Fróðadóttir af stað kl. 16 og Þor-
móður goði átti að leggja af stað
kl. 20 i gærkvöld.
Narfi hélt á miðin um miðjan
dag i gær og Karlsefni átti að fara
siðdegis. Sigurður RE hélt á
miðin i fyrrinótt og búizt var við
að ögri og Vigri héldu á miðin i
nótt er leið eða i morgun en eitt-
hvað stóð á að afgreiða alla
togarana með is i gær. Þannig að i
dag ættu allir togararnir að vera
komnir á miðin. S.dór
S v eit arst j órnarmenn
á fulltrúaráðsfundi
Frá fulltrúaráðsfundinum. Formaður sambandsins, Páll Lindal borgarlögmaöur, er I ræðustól
Samkomulag
í D anmörku
1 gær og i dag stendur yfir i
Reykjavik fundur i fulltrúaráði
Sambands ísl. sveitarfélaga, en
slikir fundir eru jafnan haldnir
einu sinni á ári. Aðalverkefni
fundarins er að fjalla um
nefndarálit um landshlutasamtök
sveitarfélaga.
t fulltrúaráði eiga sæti auk
stjórnarmanna sambandsins 25
fulltrúar ýmissa sveitarfélaga úr
öllum landshlutum. Þeir eru
kjörnir af landsþingi sam-
bandsins, sem haldið er fjórða
hvert ár að loknum sveitar-
stjórnarkosningum.
A fundinum verður að venju
fjallað um starfsemi Sambands
islenzkra sveitarfélaga siðastliðið
ár, svo og starfsemi Lánasjóðs
sveitarfélaga og Innheimtu-
stofnun sveitarfélaga, en aðal-
verkefni fundarins verður að
fjalla um itarlegt nefndarálit um
Landshlutasamtök sveitarfélaga,
verkefni og stöðu þeirra i stjórn-
kerfinu. Nefndarálit þetta er
samið af Aiexander Stefánssyni,
Bjarna Einarssyni og Sigfinni
Sigurðssyni.
Formenn og framkvæmda-
stjórar Landshlutasamtaka
sveitarfélaga eru boðnir á
fundinn.
KAUPMANNAHÖFN 27/3. — t
nótt sem leið náðist samkomulag
i vinnudeilunni miklu i Dan-
mörku. Samninganefndir liöfðu
þá setiö á fundum frá þvi á
laugardag meö sáttasem jara .
Samkomulagiö verður lagt fyrir
verkalýðsfélögin og samtök at-
vinnurekenda og verða úrslit ekki
kunn fyrr en eftir 10-12 daga, fyrr
hefst vinna ekki.
Búizt er við að báðir aðilar
samþykki samningsuppkastið.
Atvinnurekendur munu boða til
aukaaðalfundar næstu daga til að
kjósa -um uppkastið. t verkalýðs-
félögunum verða kosningar með
tvennum hætti. 1 sumum félögum
verður allsherjaratkvæða-
greiðsla en i öðrum verða atkvæði
greidd á fulltrúaráðsfundum.
Ekki er búizt við að úrslit liggi
fyrir fyrr en 8. eð 9. april og liggur
vinna niðri þangað til. Félög þau
sem hugðu á verkföll, en höfðu
ekki hafið þau, hafa aflýst þeim.
-—--------
Hittumst i haupfélaginu