Þjóðviljinn - 21.07.1973, Side 1
UOWIUINN
Laugardagur 21. iúli 1973. — 38. árg. —165. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AO VERZLA Í KRON
k á
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7.
NEMA LAUGARDAGA TIL KL.
SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3
SlMI 40102
smiðja í Hvalfirði?
65% í eigu íslenzka rikisins, ef til kemur
Síðustu daga hafa farið
fram í Reykjavík fram-
haldsviðræður milli við-
ræðunefndar um orku-
frekan iðnað/ sem starfar á
vegum ísíenzku rikis-
stjórnarinnar, annars
vegar og fulltrúa banda-
ríska auðhringsins Union
Carbide hins vegar.
Viðræður þessar hafa
snúizt um að reisa hér á
Islandi járnblendiverk-
smiðju sem væri að nálega
2/3 í eigu íslenzka ríkisins
en að rúmum þriðjungi í
eigu hringsins.
I fréttatilkynningu, sem
fjölmiðlum hefur verið
send um málið segir, að
viðræðurnar hafi borið
jákvæðan árangur, og
verða niðurstöður nú
sendar rikisstjórninni.
Þjóðviljinn mun á
morgun birta viðtal við
AAagnús Kjartansson,
iðnaðarráðherra um málið,
en í fréttatilkynningu ráðu-
neytisins segir:
„Dagna 16. til 20þ.m. hafa farið
fram viðræður i Reykjavik milli
fulltrúa Union Carbide
Corporation, New York og við-
ræðunefndar um orkufrekan
iðnað. Rætt hefur verið um
byggingu ferro-silikon bræðslu,
sem staðsett yrði i Hvalfirði. Ráð
er fyrir þvi gert, að islenzka rikið
eigi 65% af hlutafé fyrirtækisins,
en Union Carbide Corporation
35%. Stofnkostnaður bræðslunnar
er áætlaður nálægt 2500 milj. kr.,
en árlegt framleiðsluverðmæti
um 1000 milj. kr. Bræðslan mun
þurfa 55-65 MW raforku, sem hún
mundi fá frá væntanlegri Sigöldu-
virkjun.
Viðræður þessar báru
jákvæðan árangur, en niður-
stöður þeirra verða nú sendar
rikisstjórn íslands og stjórn
Union Carbide Corporation til at-
hugunar. Mun viðræðunefnd um
orkufrekan iðnað senda rikis-
stjórninni skýrslu um málið fljót-
lega.
Af hálfu Islendinga voru þessar
viðræður i höndum viðræðu-
nefndar um orkufrekan iðnað,
sem starfar á vegum Iðnaðar-
ráðuneytisins, en i nefndinni eru
hæstaréttarlögmennirnir Ingi R.
Helgason . og Ragnar ólafsson,
Steingrimur Hermannsson,
Framhald á bls. 15.
Lúðvík Jósepsson um byggingarmál Seðlabankans:
Rís járnblendiverk
Krafan um frestun
er sjálfsögð
Til mln hefur aldrei verið leitað um byggingarleyfi, vegna fyrirhug-
aðs Seðlabankahúss, enda er ég ekki sá aðili, sem hef með það að gera.
Þannig fórust Lúðvik Jósepssyni, viðskiptaráðherra orð, þegar
Þjóðviljinn innti hann eftir hans hlut i sambandi við fyrirhugaða
byggingu Seðlabankans við Arnarhól, en Lúðvlk er nú staddur á
Austurlandi i sumarleyfi.
i bankakerfinu, sem sérstök
bankamálanefnd á vegum rikis-
stjórnarinnar hefur undirbúið, og
mér er mikið áhugamál að nái
fram að ganga.
*
Hér standa þær vinkonur yfir
lestarborðunum. Ásta er
framar á myndinni en Dóra
fyrir aftan. (Ljósm. Gunnar
Steinn)
Ekkert hik á kvenfólkinu
Farnar að yinna um
borð í togurunum
Vöndu karlana af riddaramennsku
Það færist sifellt i vöxt að
kvenfólk gangi inn I starfs-
greinar, sem karlmenn hafa
einokað áður og er ekki nema
gott eitt að segja um þá þróun.
Við fréttum, að nú væri eitt
virkið enn fallið og það sem
liklegast var til að standa
einna lengst. I sumar hafa
tvær stúlkur unnið við upp-
skipun úr togurum hjá
Togaraafgreiðslunni. Upp-
skipun hefur löngum þótt með
meiri puðvinnu svo við ákváð-
um að rölta niður á kaja og
inna stúlkurnar eftir þvi
hvernig þær þrifast.
Þegar við komum voru
eyrarkarlar — og -kerlingar —
að koma úr kaffi og við
stoppuðum stúlkurnar tvær
við landganginn upp á
togarann Narfa og spurðum
þær að nafni.
Þær kváðust heita Dóra
Stefánsdóttir og Asta Arna-
dóttir. Dóra er 18 ára og
stundaði i vetur nám við
Menntaskólann við Hamrahlið
en Asta er tveimur árum yngri
og var i Vogaskóla i vetur:
Við spurðum, hvernig þeim
likaði. — Vel á fimmtudögum
þvi þá er útborgaö, var svarið.
Hvort starfið væri erfitt? Nei,
nei.
Þær hafa þann starfa aö þvo
lestarborð og voru hinar viga-
legustu ásýndum er þær höfðu
sett á sig svunturnar og tekið
sér bursta i hönd. Þær létu vel
af karlmönnunumtsem vinna
meö þeim. Fyrst fengu þær að
visu varla að hreyfa sig fyrir
þeim, þvi þeir vildu gera allt
fyrir þær. — Við erum sem
betur fer löngu búnar að venja
þá af þvi, sögðu þær.
— Og hvernig er kaupið?
Hafið þið sama kaup og
karlarnir?
— Auðvitað, annars hefðum
við ekki farið að vinna hérna.
Vib höfum 10-12 þúsund á viku
fyrir tiu tima vinnudag. Við
erum ánægðar með það.
Þær kváðust aldrei hafa
unnið við svona erfiðisvinnu
áður. — Við höfum hingað til
veriöi svona stúlknastörfum á
sumrum, sögðu þær.
Dóra er búin að vera við
uppskipunina i tvo mánuði og
Ásta i þrjár vikur. Þær
kváðust ætla að vinna þarna út
sumarið og létu i ljós von um
að fleiri kynsystur þeirra
bættust i hópinn.
Þær sögðu.að fyrst eftir að
þær byrjuðu hefði verið mikið
um að fólk kæmi niður á
bryggju og ræki i rogastanz
þegar þabsá stúlkur um borð i
togurunum. — Þetta getur
ekki verið stelpa, var algengt
að heyra fyrstu dagana. En
þetta komst fljótt i vana.
Aðspurður sagði einn
aldraður vinnufélagi þeirra af
karlkyni, að þetta væru fvrir-
taks stúlkur og alveg ágætt að
vinna með þeim.
Vonandi verbur þeim stöll-
um að ósk sinni ab fleiri
stúlkur leggi uppskipun fyrir
sig. —-ÞH.
þingkjörnu bankaráði Seðlabank-
ans og bankastjórn hans og ég hef
ekki átt þar hlut að.
Ég er reyndar þeirra þeirrar
skoðunar, að það sé i alla staði
eðlilegt og æskilegt, að bygg-
ingarframkvæmdum Seðlabank-
ans verði frestað, eins og Fram-
kvæmdastofnun rikisins hefur
mælzt til. Slikar framkvæmdir,
og þar er ekki bara um Seðla-
bankannað ræðageta vel beðið að
minu viti og eiga að biða, þegar
önnur eins þensla rikir i atvinnu-
lifi þjóðarinnar og nú.
Það er von min, að viðræður
fulltrúa Framkvæmdastofnunar
rikisins og Seðlabankans leiði til
þess, að byggingarfram-
kvæmdum verði frestað, en ég tel
mig ekki hafa lögformlegt vald til
að banna þær.
Ég vænti þess einnig, að góð
samstaða fáist á komandi hausti
um þaðfrumvarp um hagræðingu
Og Lúðvik bætti við:
Það er fjarstæða, sem haldið
hefur verið fram i blöðum, að það
sé sérstaklega á minu valdi að
stöðva þessa byggingu. Þessi
ákvörðun hefur veriö tekin af
Lúðvlk Jósepsson
„Flugleiðir”
1 gær var lokið við að ganga
frá sameiningu flugfélaganna
Loftleiða og Fí. Var hinu nýja
flugfélagi gcfið nafnið Flug-
leiðir h/f. Formenn stjórnar
þessa nýja flugfélags eru Örn
Ó. Johnsen og Kristján Guð-
laugsson og verður örn O.
Johnson forstjóri flugfélagsins
fyrstu 18 mánuðina, en
Kristján Guölaugsson næstu
18 mánuði,cn ný stjórn fyrir
félagið verður ckki kosin fyrr
en 1976.
Enn mun liöa langur timi
þar til hið nýja flugfélag
verður annað en nafnið tómt.
Bæði Loftleiöir og Flugfélag
tslands munu enn um sinn
starfa áfram sem sérstök
flugfélög, með sérstaka stjórn
og sérstakan forstjóra hvort
félag. Þó eru ákveðin
smáatriði,sem hið nýja flug-
félag, Flugleiðir h/f, mun yfir-
taka frá báðum flugfélögun-
um, rétt svona til hagræðis-
auka. En ætlunin er að það
yfir taki allan reksturinn
þegar frá Ilður. —S.dór.