Þjóðviljinn - 21.07.1973, Síða 3
Laugardagur 21. júlt 1973. ÞJOÐVILJINN — StÐA 3
Brezka freigátan Arethusa:
Hindraði siglingu Oðins
Á þriðjudag hefst í Reykjavík
Þing norrænna
byggingamanna
Bretar hafa talað mikið
um, að hin nýja íslenzka
fiskveiðilögsaga væri al-
þjóða siglingaieð. Floti
hennar hátignar hikar þó
ekki við að hindra siglingar
skipa á þessusvæði. Bretar
sinna ekki alþjóðlegum
siglingamerkjum og þver-
brjóta allar siglingareglur
æ ofan í æ.
Varðskipið Oðinn lenti af
þessum sökum í árekstri
við brezka freigátu og lask-
aðist lítillega.
Siöastliöinn fimmtudag var
varðskipið Oðinn við landhelgis-
störf norður af Horni. Brezka
freigátan Arethusa F 38 sigldi
samsiða varðskipinu og hindraði
allar aðgerðir þess, og hélt frei-
gátan sig i fimm til fimmtán
metra fjarlægð frá Óðni á bak-
borða við varðskipið.
Um kl. 00.30 gaf varðskipið til
kynna með hljóðmerki, að það
ætlaöi að snúa til bakborða. Hafði
hraði skipanna þá verið átta til tiu
sjómilur um lengri tima. Freigát-
an hafði varnað þvi i eina og hálfa
klukkustund, aö varðskipið bæti
haldið fyrirhugaðri stefnu.
Eftir að varðskipið hafði gefið
hljóðmerki, sneri það mjög hægt
til bakborða. Freigátan hélt sama
hraða og fjarlægð og tók ekkert
tillit til hljóðmerkja varðskipsins.
Skömmu siðar lentu skipin sam-
an, og urðu nokkrar skemmdir á
bakborðsbóg varðskipsinS svo og
á rekkverki bakborðsmegin.
Rekkverk á stjórnborðsbóg frei-
gátunnar skemmdist einnig. Eng-
in slys urðu á mönnum.
— Þessar myndir voru teknar um borð I Ægi siðastliðinn þriðjudag,
þegar freigátan Lincoln gerði itrekaðar tilraunir til að sigia á hann.
Freigátan siglir fram með bakborðshlið Ægis og sveigir svo skyndilega i
veg fyrir hann. Takið eftir friholtunum á freigátunni, þau eiga að hlifa
henni við hnjaski i viðureigninni.
— Þegar freigátan var komin i veg fyrir Ægi,dró hiin skyndilega tir
feröinni. Arekstur var óumflýjanlegur. Engar skemmdir urðu á Ægi, en
kefi brotnaði á freigátunni. Með þessu athæfi vilja Bretár iáta lita svo Ut,
að það séu islenzku varðskipin.sem stundi á siglingar. Atferli brezku
freigátunnar Arethusa gagnvart Óöni i fyrrakvöld er af sama toga
spunnið.
Búið að fín-
hreinsa 350
lóðir í Eyjum
í fyrradag var búið að fin-
hreinsa 350 lóðir i Vestmannaeyj-
um og grófhreinsa margar lóðir
til viðbótar. Hreinsunin gengur
mjög vel, þó að verkið sé tafsamt.
i blaðinu i dag aulýsir Stú-
dentaráð Háskóla islands eftir
sjálfboðaliðum til að vinna um
helgar i Vestmannaeyjum við
hreinsun bæjarins. SJ-
Nærrænt þing bygginga-
manna verður háld-
ið hér á landi í næstu
viku. Samband bygginga-
manna á (slandi sér um
undirbúning og fram-
kvæmd þingsins.
Þingið verður haldið á þriðju-
dag og miðvikudag i Hótel Loft-
leiðum. Til þingsins koma 200
fulltrúar frá hinum Norður-
löndunum, og auk þess sitja það
20 fulltrúar frá islenzka sam-
bandinu. Gestir þingsins verða
Magnús Kjartansson iðnaðarráð-
herra og Björn Jónsson félags-
málaráðherra og auk þeirra
sænski iðnaðarráðherrann Rune
Johansson, sem flytur erindi á
þinginu um iðnaðar- og efnahags-
mál á Norðurlöndum. Meðal
gesta þingsins verður einnig
framkvæmdastjóri Alþjóðasam-
bands byggingamanna.
Eitt helzta viðfangsefni
þingsins verður iðnmenntun i
bygginga- og tréiðnaði á Norður-
löndum. Búast má við umræðum
um erindi sænska iðnaðarráð-
herrans, og fulltrúar bygginga-
sambandanna á Norðurlöndum
bera saman bækur sinar um
málefni samtakanna.
Samband byggingamanna er
myndað af mönnum úr öllum
starfsgreinum faglærðra
byggingamanna hér á landi. Eru
langflest fagfélög bygginga-
manna um allt land aðilar að
sambandinu. Formaður er
Benedikt Daviðsson.
Viðlagasjóðshúsin á Eyrarbakka.
Keflavíkurhúsin
komin lengst
Varanleg hús verða 494 en auk þess
bráðabirgðahús í Hveragerði
Gott veður um helgina
1 gærmorgun var allmikið mist-
ur yfir Reykjavík, en hvarf þó er
leið á daginn. Páli Bergþórsson
veðurfræðingur tjáði okkur, að
það hefði stafað af raka við Vest-
urströndina, sem þéttist um næt-
ur og var nokkur þokumóða i fló-
anum I fyrrinótt. Hún þynnist þó
er liða tekur á dag og loftið hitn-
ar.
Varðandi veðrið um helgina
sagöi Páll okkur, aö búast mætti
Vegaþjónusta F.t.B. 21,—22. júli
1973.
Þjónustutimi hefst kl. 14.00
báða dagana og er til kl. 20.00 á
laugardag og til kl. 24.00 á sunnu-
dag. F.l.B. 1. Hellisheiði — Ar-
nessýsla., F.l.B. 3. Hvalfjörður,
F.l.B. 4. Mosfellsheiði — Þing-
vellir — Laugarvatn, F.l.B. 5. Ot
frá Hvitárbrú, Borgarfiröi, F.l.B.
13. Rangárvallasýsla, F.l.B. 18.
Út frá Akureyri, F.l.B. 20. V.-
Húnavatnssýsla.
Gufunes-radio simi 91-22384,
Brú-radio simi 95-1112, Akurevr-
við, að góöa veðrið héldist á laug-
ardag og sunnudag, en kvaðst
ekki þora að lofa neinu eftir það.
Svalara er fyrir norðan og austan
en hér suðvestanlands og skýj-
aðra.
A hádegi i gær var 13 stiga hiti
hér i Reykjavik. Þá var heitast á
Hæli i Gnúpverjahreppi og að
Siðumúla, 16 stig. Við Norður- og
Austurströndina var svalara eða
yfirleitt um 8 stig. _ þh.
ar-radio 96-1104, taka á móti að-
stoðarbeiðnum og koma þeim á
framfæri við vegaþjónustubif-
reiðir F.l.B.
Einnig er hægt að koma aðstoð-
arbeiönum á framfæri gegnum
hinar fjölmörgu talstöðvabifreið-
ar á þjóðvegunum.
Félagsmenn ganga fyrir utan-
félagsmönnum um aðstoð.
Áriðandi er, að bifreiðaeigend-
ur hafi meðferðis góðan vara-
hjólbarða og viftureim og vara-
hluti i rafkerfi. Einnig er ráðlegt
að hafa varaslöngu.
Loks hyllir undir það, að
Vestmannaeyingar fari að fá
hús þau til afnota, er Viölaga-
sjóður hefur séð um að kaupa
og reisa viðsvegar um landið.
Málin standa þannig i dag, að
á flestum stöðum eru húsin frá
þvi að vera steyptur grunnur
og upp i það að vera fullbúin,
en það eru Kefiavikurhúsin,
sem lengst eru komin. Hafa
ibúar þeirra þegar fengið
lykla að húsunum, en ekki
hefur verið hægt að flytja i
þau, þar eð hlutur Keflavikur-
bæjar situr eftir, hvaö við-
kemur rafmagni, síma, skoipi
og vatni, en menn munu nú
vera að leggja siöustu hönd á
þessi verk.
A Stokkseyri og Eyrarbakka
verða húsin afhent ibúum
þeirra einhvern næstu daga,
eða i siðasta lagi um mánaða-
mótin. A Selfossi er heldur
lengra i, að húsin séu tilbúin,
fÞorlákshöfn er ekki farið að
reisa nein hús, aðeins búið að
steypa grunnana. En verst
standa málin i Reykjavik, þar
sem alls ekkert er byrjað á
þeim húsum, sem fyrirhugað
er að reisa þar.
1 allt er fyrirhugað að
byggja 494 ibúðir i varan-
legum húsum á vegum við-
lagasjóðs, eða i það minnsta
hefur ekki verið tekin
ákvörðun um fleiri hús eins og
er. Þessi hús skiptast milli
staða á landinu sem hér segir:
Þorlákshöfn 42
Selfoss 60
Stokkseyri 12
Eyrarbakki 12
Hveragerði 12 varanleg og 50
bráðabirgðahús
Keflavik 54
Grindavik 54
Sandgerði 8
Garði 3 hús með 15 ibúum
Hvolsvöllur 5
Hella 5
Akranes 10
Hornafjörður 20
Neskaupstaöur 6
Akureyri 14
Reykjavik 42
Mosfellssveit 35
Garðahreppur 35
Hafnarfjörður 15
Kópavogur 52v S.dór.
Hússein reiður
AMMAN 17/7 — Tilkynnt var
opinberlega i Amman i dag. að
Jórdanir heföu slitið stjórnmála-
tengsl við Túnis. Jórdania kallaði
heim sendiherra landsins i Túnis
fyrir skömmu. i mótmælaskyni
við niðrandi ummæli forseta
Túnis. Habib Bourgiba. um Jórd-
aniu.
A siðustu þremur árum hafa
þrjú Arabariki. Libýa. Egypta-
land og Sýrland. rofið stjórn-
málatengsl við Jördaniu vegna
meðferðar Hússeins konungs á
Palstinuaröbum.
Akvörðun Jórdaniu er sögð
hafa verið tekin eftir að Bourgiba
kallaði Jórdaniu falskt riki i við-
tali við blað i Beirut. Hann sagð'.
einnig að Hússein bæri að segja
af sér. svo unnt væri að stofna
palestinskt riki i landinu.
1
l
1
!