Þjóðviljinn - 21.07.1973, Síða 5
Laugardagur 21. júli 1973. t'JODVILJINN — SÍÐA 5
ÞORLÁKSHÖFN
sem risa eiga i Þorlákshöfn
munu vera i byggingu milli 20 og
30 ibúðir. Búið er að byggja
flesta grunna undir viðlagasjóðs-
húsin, en ekki enn farið að reisa
húsin sjálf. Sagði Þorsteinn, að
búizt væri við, að úr næstu
sendingu húsanna til landsins
myndu koma hús til Þorlákshafn-
ar, en gert er ráð fyrir að búið
verði að ganga frá öllum húsun-
um i ágúst lok, hvort sem það
stenzt eða ekki.
Eins og allir vita er mikil og
breið sandauðn i nágrenni
Þorlákshafnar. Sagði Þorsteinn,
að undanfarin ár hefði verið unnið
að þvi af sandgræðslu rikisins að
græða sandana upp. Fyrir einum
10 árum var fyrst farið að sá i
sandana og tókst það sæmilega.
Svo var ekkert gert i nokkur ár,
en fyrir einum 3 árum var aftur
hafizt handa um að sá og bera
áburð á sandinn árlega og siðan
hefur sézt töluverður munur á
hvað upp hefur gróið. Það gefur
augaleið, að mikið sandrok stend-
ur á Þorlákshöfn i norðan og norð-
austan átt og stundum svo að ver-
ið hefur eins og bylur. Það er þvi
mikið kappsmál Þorlákshafnar-
Höfnin á Þorlákshöfn, mái málanna þar eystra.
Á siðustu vertið vökn-
uðu menn upp við þann
vonda draum, að
hafnaraðstæður i
Þorlákshöfn eru með
þeim hætti, að alls óvið-
unnandi er, bæði fyrir
heimabáta og aðkomu-
báta, sem landa þar yfir
vertiðina, svo ekki sé
talað um Vestmanna-
eyjabátana. i Þorláks-
hafnarbúar hafa hvað
eftir annað kvartað yfir
þessu máli til yfirvalda,
þar eð höfnin er lands-
höfn, en ávallt fyrir
daufum eyrum, þar til
sem einhver skriður sé
komin á hafnarmálin.
Þorsteinn Sivaldason fréttarit-
ari Þjóðviljans i Þorlákshöfn
sagði okkur, að undanfarna daga
hefðu menn frá vita- og hafnar-
málaskrifstofunni verið að bora
og mæla viðhöfnina og svo virtist
sem sá langþráði draumur
Þorlákshafnarbúa, að eitthvað
væri gert i hafnarmálunum væri
nú að rætast.
Að þvi er Þorsteinn sagði, kom
það fram á fundinum með Lúðvik
Jósepssyni, að hægt er að fá lán
hjá Alþjóðabankanum til fram-
kvæmdanna, en þó gegn þvi, að
verkið verði boðið út. Þess vegna
sýnist Þorlákshafnarbúum, að nú
standi á vita- og hafnarmála-
skrifstofunni að hefjast handa.
Þorsteinn sagði, að til mundu
vera einhverjar teikningar af þvi,
hvernig fyrirhugað er að stækka
höfnina, en þær teikningar eru
ekki þannig, að hægt sé að hefjast
handa eftir þeim.
Þorlákshafnarbúar hafa stung-
ið upp á lsusn til að bæta ástandið
fyrir næstu vertið, sem er fólgin i
þvi að fá tvö ker að utan og
byggja garð og opna Norður-
varnargarðinn inn i nýja kvi. Með
þvi móti fengist ágætis aðstaða.
Svo virðist sem þessi tillaga
þeirra hafi ekki fengið
hljómgrunn hjá ráðamönnum, Þó
eru menn eystra bjartsýnni eftir
fundinn með Lúðvik, þvi að menn
frá vita- og hafnarmála-
skrifstofunni eru komnir austur
til mælinga og borana.
Að fullgera höfnina mun kosta
milli 600 og 800 miljónir, en það er
hægt að gera mikið gagn með
mun ódýrari og minni fram-
kvæmdum, þótt hitt væri kannski
framtiðarplanið. Nú geta um 8 til
10 bátar, af þessari venjulegu
vertiðarbátastærð athafnað sig i
einu I höfninni i Þorlákshöfn og
þar geta legið milli 60 og 70 bátar,
ef gott er veður. Það gefur auga-
leið, að þetta er alltof litið, þegar
allur þorrinn af vertiðarflotanum
landar i Þorlákshöfn eins og var á
siðustu vertið. Þá er öll aðstaða
vigtarmannanna og bátaradiós-
ins fyrir neðan allar hellur og þol-
ir það enga bið að bæta aðstöðu
þessara aðila. Þessir aðilar hafa
orðið að hýrast saman i smáskúr
og auðvitað á þetta ekki saman og
þyrfti að fá góða aðstöðu hvort i
sinu lagi. Þá er engin aðstaða
fyrir hafnarstjórann, sem orðið
hefur að hafa skrifstofuna heima
hjá sér. Sá, sem nú er hafnar-
stjóri,hefur sagtstarfisinu lausu
og það verður alls engin aðstaða
fyrir þann, sem tekur við.
Þorsteinn sagði, að nú væru 4
stór fiskverkunarfyrirtæki I
Þorlákshöfn. Þar skal fyrst nefna
Meitilinn, sem er stærsta fyrir-
tæki þorpsins, þá Glettingur, þá
Guðmundur Friðriksson með
fiskverkun og loks Þorláksvör.
Allt eru þetta nokkuð stór fyrir-
tæki. öll eiga þessi fyrirtæki báta,
en alls munu Þorlákshafnarbátar
vera 18 og eru þá bæði taldir litlir
og stórir bátar.
I Þorlákshöfn er nú mjög mikil
atvinna og skortur á vinnuafli
mikill, aö þvi er Þorsteinn sagði.
Fyrir utan 42 viðlagasjóðshús,
búa, að sandurinn i nágrenninu
verði græddur upp. Allra næst
þorpinu hafa heimamenn verið að
sá og bera áburð á og þar hefur
tekizt mjög vel til. Þó er það i svo
litlum mæli að það segir litið, ef
ekki verður unnið sleitulaust að
uppgræðslu sandsins.-S.dór
Sjálfboðaliða vantar
til hjálparstarfa i
Vestmannaeyjum, einkum
til að hreinsa vikur
af götum bæjarins.
Unnið verður um helgar
nú i sumar.
Sýnið samstöðu með
alþýðu Vestmannaeyja
og látið skrá ykkur
til þátttöku i sima 15959.
Þar verður tekið á móti
þátttökutilkynningum
og veittar frekari
upplýsingar kl. 15—17
alla virka daga.
Stúdentaráð
Háskóla
íslands.
Grásleppuhrognatunnur biða
þcss að vera fluttar út, en i Þor-
lákshöfn eins og viðar er
grásleppuveiði drjúgur atvinnu-
vcgur.
fyrir nokkru siðan, að
Lúðvik Jósepsson
sjávarútvegsmálaráð-
herra kom austurog hélt
þar fund, þar sem þessi
mál voru mikið rædd.
Eftir þann fund virðist
Stútentar,
námsmenn
18 ára
og eldri: