Þjóðviljinn - 21.07.1973, Blaðsíða 11
Laugardagur 21. júli 1973. pJöÐVILJINN — SIÐA 11
Björgvin
íslandsmótinu
í golfi lýkur
seint í dag
Þorbjörn Kjærbo hefur forustu fyrirsíðustuumferð
islandsmótinu í golfi
lýkur f dag á Hvaleyrar-
holtinu við Hafnarfjörð. Nú
hafa verið leiknar 54 holur
og hefur Þorbjörn Kjærbo
forystu með 225 högg, en
aðrir fylgja fast á eftir.
Það ætíar sumsé að verða
bæði jöfn og skemmtileg
keppni um islandsmeist-
aratitilinn og islandsmeist-
arinn frá 1972/ Loftur
Ólafsson er i hópi þeirra,
sem berjast munu um tit-
ilinn í dag. Keppnin í dag
hefst kl. 13, en henni lýkur
ekki fyrr en undir kvöld-
mat. Gunnlaugur
Ragnarsson hafði forystu
eftir fyrsta dag keppn-
innar, en missti hana síðan
til Kjærbo strax eftirannan
dag og eftir 3ja dag keppn-
innar, sem var i gær, hafði
Kjærbo enn forustu þótt
naum væri.
Staða efstu manna eftir
54 holur er þessi:
1. Þorbjöm Kjærbo 225
högg.
2-3. Hannes Þorsteinsson og
Björgvin Þorsteinsson 226
högg.
4.-5. Gunnlaugur Ragnars-
son og Loftur Ólafsson 227
högg
6. Atli Aðalsteinsson 231
högg
7-8. Þórhallur Hólm-
geirsson 232 nögg, Óttar
Ingvarsson 232
9-10. Haraldur Júliusson
233 högg, Ólafur Bjarki 233
högg.
Það verður því ekki lítill
spenningur í keppninni á
morgun milli þeirra Kjær-
bo, Hannesar, Björgvins,
Gunnlaugs og Lofts. Það
munar ekki nema 2
höggum á 1. og 5. manni,
sem er auðvitað ósköp lítill
munur fyrir 18 holur. Við
munum svo skýra frá úr-
slitum mótsins í blaðinu á
þriðjudag. —S.dór.
Loftur
1. deildarkeppnin aftur í gang
Heil umferö verður
leikin á morgun
Heil umferð verður leikin
í 1. deildarkeppninni á
morgun, sunnudag, en hlé
hefur verið á 1. deildar-
keppninni nú um nokkurt
skeið vegna landsleikja.
Með þessari umferð á
morgun hefst síðari hluti
keppninnar; mótið var
hálfnað þegar hléið var
gert á henni.
ÍA—ÍBK
Segja má, að aðalleikur helgar-
innar verði íeikur IA og ÍBK uppi
á Akranesi. Skagamenn eru óút-
reiknanlegir og margir spá þvi,
að þeir verði fyrstir til að taka
stig af Keflvikingum i mótinu.
Keflvikingar hafa verið með 6
menn i landsleikjunum undan-
farna daga, og þeir eru eflaust
þreyttir auk þess sem Guðni
Kjartansson, lykilmaöur liðsins,
á við meiðsli að striða. Það má
þvi segja, að allt geti gerzt á
Skaganum á morgun, auk þess
sem það skal haft i huga, að Kefl-
vikingum hefur alltaf gengið illa
þar efra.
ÍBV—KR
A Njarðvikurvelli mætast
„heimamenrf’þ.e. Vestmanna-
eyingar og KR. Ekki hef ég trú á
þvl að KR-ingar verði Eyja-
mönnum erfiðir: slikur regin
munur er á þessum tveim liðum.
Ef maður gleymir þvi, að allt
getur gerzt i knattspyrnu, þá
reiknar maður með 2ja til 4ra
marka sigri ÍBV.
ÍBA—Fram
Fram fer til Akureyrar og
leikur þar gegn heimamönnum.
Þessi leikur getur vissulega oröið
jafn og skemmtilegur. Menn'
minnast þess eflaust, að liðin
skildu jöfn I fyrri umferðinni, 0:0
og siðan hefur ÍBA-liðinu farið
mikið fram en Fram-liðinu heldur
aftur ef eitthvað er, auk þess sem
IBA er að þessu sinni á heima-
velli. Þó verður að taka með I
reikninginn að búast má við mjög
miklum breytingum á Fram-
liðinu. Guðmundur þjálfari þess
er heldur óhress yfir frammi-
stöðu sinna manna i fyrri um-
ferðinni og hyggur á gerbreytingu
á liðinu, hvernig sem það svo
heppnast.
VALUR—UBK
Á Laugardalsvellinum mætast
svo Valur og UBK annað kvöld kl.
20, en þessi leikur átti að fara
fram á mánudagskvöldið, en var
færður fram vegna bikarkeppn-
innar. 16 liða úrslit i henni hefjast
á þriðjudaginn. Ekki er hægt að
gera ráð fyrir jöfnum leik að
Framhald á bls. 15.
[ Bikarkeppni KSf
16 liða úrslitin
hefjast á þriðjud.
Þá er komið að þvi að 16 liða
úrslit bikarkeppninnar hefjist, en
það verður á þriðjudag,sem fyrsti
leikurinn fer fram, en siðan 6
leikir á miðvikudag og einn á
fimmtudag. Þetta er meira en
mánuði fyrr en vant er að 16 liða
úrslit hefjast, og hefur sú móta-
nefnd.sem nú starfar unnið mikið
og gott starf og hefur allt staðizt
hjá henni fram að þessu. Þetta er
alveg nýtt fyrirbæri, þar eð sú
nefnd,sem áður var við störf og
hafði verið i áraraðir, réði ekki
neitt við neitt og eyðilagði bæði
tslandsmót og bikarkeppni ár
eftir ár með hringlandahætti og
skipulagsleysi.
En þeir leikir i 16 liða úr-
slitunum, sem fram fara i næstu
viku,eru þessir:
Þriðjud. 24. júli
Miðvikud. 25. júli
Miðvikud.
Miðvikud.
Miðvikud.
Miðvikud.
Miðvikud.
Fimmtud.
25. júli
25. júli
25. júli
25. júli
25. júli
26. júli
Melavöllur, Fram—Haukar kl. 20.00
Melavöllur, Valur—IBV kl. 20.00
Selfossv. Selfoss—ÍA kl. 20.00
Húsavikurv. Völsungur—KR kl. 19.30
Keflav.völlur IBK—UBK kl. 20.00
Isafj.völlur IBI—IBA kl. 20.00
Kaplakrikav. FH—Þróttur N kl. 20.00
Melavöllur, Vikingur—ÞrótturR kl. 20.00
Jón Alfreðsson, einn bezti leikmaður tA-liðsins. A morgun fá hann og
fclagar hans erfitt verkefni þar sem er leikurinn við IBK.
3 leikir í
2. deild
í dag
Þrir leikir fara fram i 2.
deildarkeppninni I dag. Þá
mætast á Melavelli Þróttur (R)
og Haukar á Hafnarf jarðar-
velli FH og Vöisungar, og
á Selfossi heimamenn og Þróttur,
(N) liðin, sem eru neðst og jöfn að
stigum i deildinni. Þetta gæti þvi
orðið einskonar úrslitaleikur um
fallið. A mánudagskvöldið leika
svo Armann og Vikingur á Mela-
velli.
Árni
hættur
hjá KSÍ?
Ekki hefur veriö hægt að ná
sambandi við framkvæmda-
stjóra KSt undanfarna daga
og hafa ýrnsir stjórnarmenn
KSl orðið að taka á sig störf
hans. Þvi hefur verið fleygt,
að Arni muni vera i þann
veginn að hætta sem fram-
kvæmdastjóri KSÍ.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson
r