Þjóðviljinn - 21.07.1973, Qupperneq 15
Laugardagur 21. júli 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Kennslubók
Framhald af bls. 7.
,, mig” og að skoða ágreinings-
málin utan frá. En þóttað tekið sé
undir allar tilraunir til samstarfs
vill höfundur heldur ekki að bók
hans verði tæki til að fá menn til
að ,,slá vörð um það sem er”.
Kaflinn „Þegar maður verður
undir” gefur margar
leiðbeiningar um það hvernig á
að fá erfiðan „topdog” (þann
sem er „ofan á”) til að ræða lausn
vandans.Formúlan fyrir „skyn-
samlegum áhrifum” er þá þessi:
— Þú getur breytt skoðunum
annarra aðeins i þeim mæli sem
það sem þú segir er i samræmi
við það sem hann hugsar og
trúir.”
Lýðræði
— Flestir „yfirboðar-
ar” játast á vorum timum undir
lýðræðislegar hugmyndir. Það er
gott að byggja á þvi, og benda
siðan af einurð og kurteisi á
dæmi um að gerðir yfirboðarans
samræmast ekki þvi sem hann
telursig trúa. Með nokkrum hætti
er hver „topdog” háður
„underdog” (þeim sem minna
má sin). Gerðu þér grein fyrir
þessu, og komdu ekki til móts við
hann smjaðrandi, heldur biddu
þangað til hann þarf á þér að
halda.
Höfundur bókarinnar reynir að
gæta pólitisks hlutleysis. Hann
mælir fyrst og fremst gegn þeim
hugmyndum sem skapa svo-
kallaðan vitahring; ástandi þegar
árás frá einni hlið kallar fram
enn sterkari árás frá hinni.
í stað þess að safna stigum i
slagsmálum er mælt með þvi að
menn safni stigum i þvi að yfir-
buga eigin árásarhneigð.
— t stað þess að smiða niður-
sallandi tilsvör i rifrildi er hægt
að finna spennu i að smiða máls-
vörn þannig að hún „komist inn”
á andstæðinginn og leiði til
samstarfs, segir Anatol Pikas.
Sjálfsagt verða deilur um þessa
bók; s'umir gætu sætt sig við
hana sem nokkurn leiðarvisir i
persónulegum málum,en mundu
halda þvi fram, að ef henni er
beitt á þjóðfélagið i heild þá
mundi hún vera til þess fallin að
svæfa baráttuvilja alþýðu. Aðrir
mundu halda fram gömlum
kenningum um að árásarhvötin
hafi skapandi gildi, hressi upp á
stofninn En allavega er bókin
talin merkileg tilraun á timum
þegar þörf fyrir samskipti um
lausn brýnna mála verður æ
meiri i þröngt settum heimi.
(byggtáDN)
Menn sem blakta
Framhald af bls. 10.
Af þvi að vatnið þraut næstum þvi
stundum hér i vetur, úr upp-
sprettulindinni i Staðardal, á að
beizla einhverja aðra uppsprettu,
sem þeir hafa talið sig sjá án
glerja i ca. 1000 m fjarlægð frá
hinni fyrri. Vonandi verður góð
tið fram eftir hausti, þannig að
ekki snjói mikið.
Stórlaxarnir kaupa
Ennþá flytur fólkið burtu. A
næstu dögum og vikum fara héð-
an og eru þegar farnar 6 fjöl-
skyldur eða um 35 manns alls.
Það eru nálægt 7% af skráðum i-
búum Súgandafjarðar. Sumar
þessar fjölskyldur hafa verið
sæmilegir skattgreiðendur eða
allt uppi kr. 400 þúsund á heimili.
Það munar um minna. 8 fjöl-
skyldufeður sóttu um lóð undir
hús i vor. Sennilega verða þeir
aðeins 4 sem byggja. Þrir eru
þegar byrjaðir. Einn þeirra telur
sig verða að hætta þegar húsið er
orðið fokhelt, hvað svo.það er ó-
vist.
Geta svo þeir sem flytja burt
selt hús sin? Já, það eru sko engin
vandræði með það. Stórlaxarnir
kaupa. T.d. svo eitthvað sé nefnt
keypti kaupfélagið eitt húsið á 2.5
miljónir, annað húsið keypti Von-
in h.f. enda stórgræðir hún á
harðfisksölunni. Þeir éta svo
mikið farþegarnir um borð i Gull-
fossi. Þriðja húsið mun forstjór-
inn Páll Friðbertsson hafa keypt
á 2.7 miljónir. Hann kaupir nú hús
með stuttu millibili. Eitt keypti
hann i Reykjavik i endann á april
á 3.4 miljónir. M/s Guðrúnu Guð-
leifsdóttur keypti hann s.l. haust
á 24 eða 26 miljónir og kostaði
margvislegar breytingar á henni
s.l. vor. Inn á milli þessara kaupa
kaupir hann svo bila. Eitt húsið
keypti vélstjórinn á Kristjáni
Guðmundssyni; hann er Færey-
ingur, sem dvalið hefur hér nokk-
ur ár og borgað sin útsvör hér og
skatta til rikisins, en var bannað
að kjósa i siðustu hreppsnefndar-
og alþingiskosningum að tilhlutan
hernámssinnaðra ihaldsfram-
sóknarmanna. Já, hér eru nú
menn sem blakta og það er lif i
tuskunum. Nýir bilar streyma
hér inn mjög ört. Og fyrir kemur
að þrir bilar eru hjá sömu fjöl-
skyldu. 93—95 bilar eru nú skrá-
settir hér i byggðarlaginu.
Á fundi
með Lúðvik
Sunnudaginn 8. júli fóru héðan
nokkrir heldri menn byggðar-
lagsins til tsafjarðar á fund, sem
Lúðvik okkar Jósepsson hafði
boðað til. Mennirnir sem fóru
voru Páll Friðbertsson fjármála-
ráðunautur Fiskiðjunnar, Þor-
björn Gissurarson framkv.stj.
sama félags. Einar Guðnason
skipstjóri, Einar ólafsson fyrrv.
skipstjóri á Ólafi Friðbertssyni,
Bragi Ólafsson núv. skipstjóri á
sama bát og Gisli Guðmundsson
vigtarmaður. Fundurinn var
mjög vel sóttur og menn komu
viða að. Fundinn sátu rúmlega
100 manns. Lúðvik skýrði öll atr-
iði varðandi samningaviðræður
og þau atriði sem Islendingar
hafa átt og eiga enn I við hipa há-
bölvuðu erlendu veiðiþjófa. Lúð-
vik var klappað lof i lófa i lok
ræðu sinnar, enda var hún mjög
fróðleg og greinargóð. Nokkrir
tóku til máls á eftir og ekki var
annað að heyra, en að þjóðinni
bæri nú að standa saman og herða
enn róðurinn á móti hinum er-
lendu veiðiþjófum og alls ekki að
gefa eftir i einu eða öðru. (Það
væri auðvitað þjóðarmorö ef slikt
ætti sér stað).
Og að siöustu ætla ég að spyrja
svona privat; á að leyfa erlendum
veiðiþjófum að liggja i vari undir
Grænuhlið og undir Látrabjargi
og viðar, t.d. á Austfjörðum i
haust þegar veður versnar án
þess að hreyfa við þeim hið
minnsta? Timinn sker úr þvi.
GIsli.
1. deild
Framhald af bls. 11.
þessu sinni, til þess er Vals-liðið
of sterkt fyrir Breiðablik, sem nú
situr á botni 1. deildar. En tapi
IBK á Akranesi og vinni Valur
þennan leik, þá er mótið orðið
mjög svo tvisýnt, þar eð ekki
skilur þá á milli nema 1 stig hjá
Val og IBK.
Yerksmiðja
Framhald af bls. 1.
framkvæmdastj. Rannsóknaráðs
rikisins, og Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, sem er for-
maður hennar. Einnig tóku að-
stoðarmenn nefndarinnar þeir
Garðar Ingvarsson, Jón Stein-
grimsson og Hjörtur Torfason
þátt i viðræðunum.
Viðræðunefndin átti að lokum
fund með Magnúsi Kjartanssyni,
iðnaðarráðherra, og gerði honum
grein fyrir niðurstöðum við-
ræðnanna”.
Tundurdufl
Framhald af bls. 16.
Tundurdufl eru mörg hver þvi
hættulegri sem þau eru eldri.
Þótt hvellhettan sé ónýt, er sjálft
sprengiefnið i sumum tegundum
baneitrað og veldur ólæknandi
exemi.
Narfi landaði i Reykjavik i gær
og heldur væntanlega út aftur á
morgun.
Krónprins er
fæddur
í Noregi
OSLO 20/7. — Norðmenn
eignuðust nýjan krónprins I dag
er Sonja krónprinsessa, kona
Haralds rikisarfa, eignaðist
myndarlegan strák á Ríkisspital-
anum i Osló.
Þau hjón eiga áður tæplega
tveggja ára gamla dóttur, Mörtu
Lúisu.
Haraldur rikisarfi var
viðstaddur fæöinguna. Heilla-
óskir hafa þegar margar borizt.
Þetta er i annaö sinn að krón-
prins fæðist i Noregi á þessari
öld: Haraldur er sjáfur fæddur á
Skaugum fyrir 31 ári. En slikur
atburður hafði þá ekki gerzt siðan
1370 að Olafur fæddist, sonur
Hákons 6. Var hann siðasti liöur
gömlu konungsættarinnar
norsku.
Drengurinn nýfæddi er tiunda
barnabarn Ölafs Noregskonungs,
sem fyrirskömmu varö sjötugur.
Svíar aðstoða
FRELIMO í
Mósambik
STOKKHÓLMI 20/7 Sviar hafa
ákveðið að veita sem svarar
hundrað miljónum islenzkra
króna til FRELIMO, þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar i portúgölsku ný-
lendunni Mósambik. Er það um
60 miljónum meira en i fyrra.
Fénu á að verja til fræðslumála
og heilsugæzlu á þeim svæðum,
sem hreyfingin hefur á sinu valdi.
ÞAÐ STANZA FLESTIR í STAÐARSKÁLA
VEG
ENDUR
UM HRUTAFJÖRÐ
Við bjóðum fjölbreyttar veit-
ingar í rúmgóðum húsakynn-
um. Opið alla daga frá kl. 8 til
23.30. Morgunverður,
hádegisverður, kvöldverður.
Grillið er opið allan daginn,
þar er hægt að fá Ijúffengar
steikur, kjúklinga, hamborg-
ara, djúpsteiktan fisk, fransk-
ar kartöflur o.fl. o.fl. Kaffi,
te, mjólk, heimabakaðar kök-
ur og úrval af smurbrauði.
Stærri ferðahópar eru beðnir
að panta með fyrirvara,
simanúmer okkar er 95-1150.
Við útbúum gómsæta girni-
lega nestispakka.
i ferðamannaverzlun okkar
eigum við ávalt úrval af mat-
vöru, hreinlætisvöru, viðlegu-
útbúnað, Ijósmyndavöru, gas-
tæki o.fl. o.fI.
Vegna mikillar aðsóknar að
gistiaðstöðuokkar biðjum við
þá sem ætla að notfæra sér
hana að panta með fyrirvara,
símanúmer okkar er 95-1150.
Til að mæta eftirspurn eftir
tjald%tæðum hér i Hrútafirð-
inum höfum við útbúið þau
hér neðan við skálann og geta
þeir sem notfæra sér þá að-
stöðu haft afnot af snyrtiher-
bergjum í skálanum á þeim
tímum sem hann er opinn.
Við önnumst afgreiðslu á
ESSO og SHELL bensíni og
olíum, einnig fyllum við á
ferðagastæki.
Rúmgóð aðstaða er til að þvo
bifreiðina. Viðskiptavinir
eiga kost á afnotum af hjól-
barðadælu.
Ákjósanlegur áfangi hvort
sem þér eruð á leið norður eða
aö norðan.
/mAkfKÁVi
HRÚTAFIRÐI SÍMI (95)1150