Þjóðviljinn - 21.07.1973, Side 16
Pacific Ocean
'y—Jf MURUROfl
AustraluP PNew. (Test site)
Zealand
territorial limit
Canterbury
Nætur- kvöld- og helgidaga-
varzla lyfjabúðanna vikuna
13. til 19. júli er i Háaleitisapó-
teki og Vesturbæjarapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhringinn.
Kvöld- næ tur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
W atergate-málið:
Nixon neitar
aðgang að
heimildum
WASHINGTON 20/7. —
Nixon forseti kallaði orð-
róm um að hann ætlaði að
segja af sér vegna Water-
gatemálsins bull og vit-
leysu er hann kom af
spítala í dag. Hann hefur
legið í lungnabólgu.
Við skulum láta aðra velta sér
upp úr Watergate, sagði hann.
Við ætlum að vinna okkar verk.
Samdægurs barst um það frétt
frá Hvíta húsinu að Nixon ætláð'i
ekki að leyfa meðlimum þing-
nefndar þeirrar sem fjallar um
Watergatemálið að hlýða á þær
segulbandsupptökur frá Hvita
húsinu sem gætu haft gildi i
málinu. Nefndin mun ef til vill
leita til dómstóla um rétt til að fá
segulböndin og þar með er allt
reiðubúið fyrir uppgjör á vett-
vangi stjórnarskrárinnar milli
Nixons og Watergatenefndarinn-
ar.
74 voru ákærðir fyrir
samsæri í Grikklandi
AÞtNt) 20/7. Herforingjastjórnin
gríska hefur ákært alls 74 gríska
liðsforingja og stjórnmálamenn,
m.a. Karamanlis fyrrum
forsætisráöherra, fyrir samsæri
um að steypa stjórninni og koma
Konstantln konungi aftur tii
valda.
Meðal hinna ákærðu eru og
Averoff, fyrrum utanrikisráð-
herra, tveir aðrir fyrrverandi
ráðherrar og nokkrir af æðstu
mönnum sjóhersins.
Allir þeir, sem nefndir eru i
ákæruskjalinu, að undanskildum
Karamanlis og þrem sjóher-
foringjum, sem eru i útlegð,sitja
nú i gæzluvarðhaldi i Aþenu. I
mai var gerð uppreisnartilraun i
griska flotanum, og leitaði þá
drjúgur hluti áhafnar eins
herskips hælis á Italiu.
1 ákæruskjalinu segir, að nokk-
ur herskip hafi átt að taka eyna
Syros og neyða stjórnina til að
segja af sér.
Flótti undan
fj öldamorðum
GENF 20/7. — 300—400 manns
flýja á hverjum degi frá Mið-Afr-
ikiirikinuBurundi,þar sem stjórn
hins rikjandi þjóðflokks hefur
gengizt fyrir fjöldamorðum á.
Um 85 þúsund manns hafa að
undanförnu flúið til nágranna-
rikjanna, Tanzaniu, Zaire og Rw-
anda.
392 milj.
kr. viðlaga-
gjald í
Reykjavík
Viðlagagjald er nýr
gjaldliður hjá skatt-
þegnum, og er það lagt
á vegna eldgossins á
Heimaey. Viðlagagjald
er lagt á eignarskatt,
útsvarog aðstöðugjaId.
Samtals er gjaldið i
Reykjavik um 392 milj.
króna. Einstaklingar
greiða 225 miljónir, en
fyrirtæki 167 miljónir
kr.
Af eignaskatti ein-
staklinga fást 27 milj.,
af eignaskatti fyrir-
tækja 28 milj. kr. Af út-
svari einstaklinga fást
164 milj., en af útsvari
fyrirtækja 56 þús. kr.
Af aðstöðugjaldi ein-
staklinga fást 31
miljón, en af aðstöðu-
gjaldi fyrirtækja 139
miljónir króna.
Glistrup
verður með
130 fram-
bjóðendur
KAUPMANNAHÖFN 20/7
Mogens Glistrup,sem er frægur
fyriraðkenna mönnum að svikja
undan skatti, mun bjóða fram um
130 frambjóðendur I næstu þing-
kosningum. Framfaraflokkur
hans hefur þegar safnað 40
þúsund meðmælendum til þátt-
töku í þingkosningunum í haust.
179 manns sitja á danska þinginu.
Þessi mynd sýnir afstöðu Mururoaeyjaklasans, þar sem Frakkar ætla að gera tilraunir sfnar. Stærri
teikningin sýnir bæði landheigislinuna og hættusvæðið, staðsetningu freigátanna, sem um ræðir I
greininni eins og hún var fyrir skemmstu og svo mótmælendaskipa, sem Frakkar hafa viljaðdraga á
brott. ,
Tilraun frestað vegna veðurs en
Frakkar sprengja
um helgiiia
PARtS 20/7. — Franskir
kjarnorkufræðingar halda þvl
fram, að fyrstu sprengingunni
i tiiraunum Frakka með
atómvopn á Mururoa I Kyrra-
hafi hafi verið frestað i gær
vegna veðurs, en ekki af
tæknilegum ástæðum.
Aður höfðu borizt fréttir frá
Nýja-Sjálandi um, að spreng-
ingunni hafi verið frestað,
vegna þess að á siðustu stundu
hafi komið upp erfiðleikar i
sambandi við loftbelginn, sem
lyfta átti atómhleðslunni.
Skipið Otago, sem Nýsjá-
lendingar hafa sent á vettvang
til að mótmæla sprengingunni,
heldur áfram siglingu sinni
inn að 12 milna landhelgi
Mururoaeyjaklasans og er
langt fyrir innan það 72 milna
hættusvæði, sem Frakkar
hafa bannað skipum að sigla
inn fyrir. Ahöfn freigátu
þessarar er við öllu búin. Rétt
við hættusvæðið er ástralska
freigátan Canterbury og
birgðaskipið Supply.
Frönsk njósnaflugvél flaug
yfir Otago i gær, en ekki er
talið liklegt, að Frakkar reyni
að koma skipinu út af hættu-
svæðinu.
Talið er vist, að fyrsta
sprengingin fari fram um
helgina þrátt fyrir frestunina.
Það er til þess tekið, að
skömmu áður en Frakkar til-
kynntu um fyrstu spreng-
inguna undirrituðu þeir
samning um bann við
kjarnavopnum i Rómversku
Ameriku — og hafði það komið
nokkuð á óvart, ekki sizt með
tilliti til þess, að stjórn Perú
hefur heitið þvi að sllta stjórn-
málasambandi við Frakka, ef
þeir hverfa ekki frá áformum
sinum um sprengingar á
Mururoa.
HANDVIRKAR SÍM-
STÖÐVAR í EYJUM
þar til ný stöð kemur eftir ár
t ráði er að setja upp í Vest-
mannaeyjum handvirkar sim-
stöðvar, sem gætu þýtt 100 til 200
númera aukningu. Varla er hægt
að búast við frekari aukningu fyrr
en 1. júli næsta ár, en þá verður
ný sjálfvirk stöð tengd i Eyjum.
Þetta kom fram i spjalli við
Magnús Magnússon, bæjarstjóra
i Eyjum. Hann sagði, að þegar
sjálfvirka stöðin i Eyjum var
tekin niður, hefðu hlutar úr henni
dreifzt um allt Reykjavfkur-
svæðið og kannski viðar. Þetta
kom Vestmannaeyingum til góða
að hluta til, þegar þeir fluttu sima
sina til lands. Ekki er vitað, hvort
fyrirvaralaust verður hægt að
tengja sima i Viðlagasjóðshúsin,
•þar sem álag á simakerfi eru
mjög mismunandi á hinum ýmsu
stöðum. Aftur á móti var sim-
stöðin I Eyjum sams konar og
notaðar eru viðast hvar úti á
landi, þannig að það má nota hluti
úr Eyjastöðinni til að bæta við á
öðrum stöðum.
I Vestmannaeyjum var 1600
númera stöð og i notkun voru um
1500 númer, þegar gosið hófst.
Eftir að simstöðin var flutt var
sett upp 90 númera stöð i Eyjum,
en um 100 Reykjavikurnúmer
hafa verið i notkun að undanförnu
Eyjum. sj
Tundurdufl í vörpuna
Rétt fyrir kl. 7 á fimmtu-
dagskvöldið sendi togarinn
Narfi Landhelgisgæzlunni
boð um, að tundurdufl
hefði komið í vörpuna.
Þyrlan Gná var þá send af stað
með sprengjusérfræðing Land-
helgisgæzlunnar og flaug með
hann að Arnarstapa, en þaðan fór
hann i trillu út að togaranum.
Duflið reyndist vera frá þýzka
hernum frá þvi i siðustu heims-
styrjöld.
Voru bæði hvellhettur og
forsprengjan virk i þvi og duflið
þvi stórhættulegt.
Það gerist nú heldur fátiðara,
að islenzk fiskiskip setji i tundur-
dufl, en slikar sprengjur hafa
sökkt nokkrum islenzkum skip-
um.
Framhald á bls. 15.
Norðmenn
hjálpa Norður-
Víetnam
OSLO 20/7. — Norðmenn
ætla að beina aðstoð sinni til
uppbyggingar I Norður-VIet-
nam að þvi að efla fiskveiðar
I landinu. Þegar á þessu ári
munu þeir senda útbúnað I
fiskiðjuver til landsins.
Norðmenn munu einnig reisa
skipasmiðastöð fyrir fiski-
báta i Norður-Vietnam og
sjómannaskóla i Haiphong.
N asist af lokkur
býður fram í
Svíþjóð í haust
STOKKHOLMI 20/7
Nasistaflokkur mun bjóða
fram til kosninga á Norður-
löndum i fyrsta sinn eftir
strið i Sviþjóð i haust. Hinn
svonefndi Norræni ríkis-
flokkur mun leggja fram
landslista og er þar efstur á
blaði Göran Moredsson
ritstjóri frá Strængnes.
Uá
Almennar upplýsingar um
Jæknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Laugardagur 21. júli 1973.