Þjóðviljinn - 16.11.1973, Side 3

Þjóðviljinn - 16.11.1973, Side 3
/ Föstudagur 16. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 BLÓÐBANKINN 20 ÁRA: Prentari i Gutenberg gefur blóft. Hann var alls ósmeykur, þó aft svipurinn á honum gefi annaft til kynna. forstöðumannsstarfið auka- starf svæfingalækna, en þann dag tók Ólafur Jensson við forstööumannsstarfinu sem fullu starfi. Nú vinna 15—16 manns hjá Blóðbankanum við blóötökur, skrifstofuvinnu og rannsókn- arstörf, og þar fer einnig fram kennsla fyrir meinatækna. Starfsemin hefur aukist ár frá ári, og nú er orðið of þröngt fyrir dyrum. Aætlað er að Blóðbankinn flytjist i bygg- ingu sem verður reist fyrir neðan Hringbrautina, en áður en að þvi kemur er nauðsyn- legt að fá bráðabirgöahúsnæði til viðbótar. Ýmsir aðilar, einstaklingar og starfshópar, hafa alltaf reynst tilbúnir að gefa blóö, og grundvallast öll starfsemi Blóðbankans á þessum föstu viðskiptavinum ef svo mætti að orði komast. Þá hefur Rauði krossinn frá þvi áriö 1967 safnaö blóði úti á landi og Vinsæl stofnun með trygga viðskiptavini Það rikti lif og f jör i Blóðbankanum i fyrradag, enda var þar haldið upp á 20 ára afmæli þessarar vinsælu bankastofn- unar. Þar voru mættir ýmsir af fyrstu við- skiptavinum bankans og fulltrúar vinnu- hópa sem reglulega hafa gefið blóð. Forstöðumaður Blóðbank- ans, Ólafur Jensson, læknir, sagði fréttamönnum að byrjað hefði verið að byggja Blóð- bankann árið 1949, en form- lega var hann tekinn í notkun árið 1953. Hvatamaöur að byggingunni var prófessor Niels Dungal, en hann var þá manna lærðastur á þessu sviði læknisfræðinnar hérlendis. Allargötur til 1. mars 1972 var rekið sérstaka bifreið til þeirra hluta. Tveir menn hafa gefið blóð oftar en fimmtiu sinnum, en þeir heita Stefán Jónsson, ætt- aður frá Stokkseyri, og Björg- vin Magnússon, kennari. All- margir hafa gefið blóð 20—30 sinnum. Blóð geta allir gefið sem eru á aldrinum 18—60 ára, og þarf enginn að óttast eftirköst eða vanliðan þótt gefinn sé hálfur litri af blóði, en það er 10% af blóðinu i likamanum. Fullt Krautryftjendur á svifti blóft- gjafa i kaffi. blóðmagn er komið að nýju i likamann eftir eina til tvær vikur. Ólafur Jensson sagði, að hann hefði tekið saman hve margar blóðgjafir hefðu veriö skráðar og reyndust þær i fyrradag alls 69.359. Yfirleitt er nóg af blóði á lager, en það er ekki geymt lengur en i 3 Vikur. —SJ ólafur Jensson, læknir. Byggðdsdfn Vestmannaeyja: Sýningar á munum og málverkum I myndlistarhúsinu á Klambratúni a morgun — Þegar gosið hófst sl. vetur urðum við að flytja megniðaf byggðasafninu i land/ alls 4 gáma, og hafa þessir munir verið geymd- ir i Þjóðminjasafninu síð- an. Nú líður senn að því að við flytjum safnið aftur til Rafmagnið hækkar, en ekki hitaveitan Reykjavikurborg sótti fyrir skömmu um verulegar hækkanir á verðskrá rafmagns og hitaveitu til iðnaðarráðuneytisins. Borg- inni var heimilað að hækka gjald- skrá rafmagnsveitunnar um 9,8% frá 1. desember n.k. að telja og er þetta leyfi gefið vegna hækkana á rafmagni frá Landsvirkjun. Þá sótti borgin einnig um leyfi til hækkunar á gjaldskrá hitaveit- unnar en var synjað. Sótti borgin um að fá að hækka gjaldskrána um 12%. —S.dór j Eyja, en áður en af því verður ætlum við að halda sýningu hér i myndlistar- húsinu á Klambratúni, svona til að gleðja þá sem áhuga hafa á safninu okk- ar. Það var Þorsteinn Viglundsson byggðasafnsvörður i Vestmanna- eyjum, sem sagði þetta á blaða- mannafundi i gær, er hann var að kynna fyrir blaðamönnum muni þá úr byggðasafni Vestmanna- eyja, alls 110 muni og málverk, sem sýndir verða frá morgundeg- inum að telja til sunnudagsins 25. nóvember nk. — Uppúr þvi fer maður nú að pakka niður til heimflutnings, sagði Þorsteinn. Það er að visu nokkuð erfitt að vera að flytja þetta yfir vetrartimann, en ætli við látum nú ekki samt slag standa, bætti hann vð. Á sýningunni verða eins og áður segir 110 munir og málverk. Margt er þarna merkilegra muna, sem Reykvikingum hefur ekki almennt gefist kostur á að sjá fyrr. Má þar nefna litla fall- byssu frá Tyrkjaráninu, sem fannst i höfninni i Vestmannaeyj- um við dýpkunaraðgerðir. Bút af kili á skipi, sem sökk við Vest- mannaeyjar 1711, vestan við Básaskersbryggju. Brot úr skip- Þorsteinn Viglundsson mefteina herfangift sem tslendingar hafa fengift frá sjóræningjum. Þessi litla failbyssa mun vera frá Serkjum þeim sem hér frömdu rán þaft er kaiiað hefur verift Tyrkjaránift 1627. inu fundust, eins og byssan þegar verið var að dýpka höfnina; þá fóru allt i einu að koma upp smá spýtukubbar. Þegar svo kafað var þarna niður kom i Ijós skips- skrokkur, illa farinn að visu, en samt var hægt að bjarga úr hon- um nokkrum stórum heillegum bútum m.a. broti að kili og stefni. Þá eru á sýningunni margt fal — legra báta og skipslikana svo dæmi séu nefnd. En það sem ef til vill vekur hvað mesta athygli eru 34 mál- verk eftir Kjarval frá þeim tima er hann var ungur fátækur mál- ari. Þessi málverk eru þannig komin i eigu Eyjamanna að Sig- fús Johnsen keypti þau af Kjarvai ungum og hjálpaði honum þar með um peninga til að geta haldið áfram að mála. Siðan seldi Sigfús Vestmannaeyjabæ málverkin og eru þau i dag sjálfsagt með mestu dýrgripum i eigu bæjarins. Sýningin verður opnuð kl. 14 á morgun og stendur til sunnudags- ins 25. nóvember nk. S.dór Framhald axarsögu Eins og frá var skýrt i blaðinu sveiflaði ungur maftur öxi yfir böffti embættismanns i borginni fyrir skömmu og gerfti sig likleg- an til aft höggva inann ok annan. Var axarmaftur aft mótmæla fjár- innheimtu á liendur sér. I gær kom faðir piltsins i sömu skrifstofu, og þótti brátt sýnt hvert stefndi, þvi að hann bar poka. Komumaður las fyrst em- bættinu pistilinn og þreif siðan öxina góðu upp úr pokanum. Skók hann vopnið allvigalega og kvað maklegt að kljúfa skrifstofublæk- ur og rukkara i herðar niður. Framkvæmdastjóri stofnunar- innar hélt stillingu sinni enn sem fyrr og skoraði á berserkinn að poka nú vopn sitt og reiða fram féð. Stóð i þófi um hrið, en þó fór svo að lokum að kappinn lét vopn- ið siga. Skrifaði hann ávisun upp á helming skuldarinnar, en kvað þessarar svivirðu grimmilega hefnt verða siðar. Eskfirðingar fá skuttogara K'yrrihluta desembermánaðar er búist við nýjum skuttogara til Eskifjarðar. Það eru Hólmar h.f. sem láta smiða togarann á Spáni, en hann er af minni gerð skuttog- ara. Gerter ráð fyrir að þessi tog- ari fari i reynsluferð i þessari viku. Skipstjóri á þessu nýja fiski- skipi verður Sigurður Magnús- son. Það eru liraðfrystihús Eski- fjarðar og Kaupfélag Héraðsbúa, sem eru stærstu aðilarnir að Hólmum h.f. Verð á rækju Yfirneínd Verðlagsráðs sjávar- lútvegsins hefur ákveðið eftirfar- andi lágmarksverð á rækju frá 1. nóvcmber 1973 til 31. mai 1974. Rækja, óskelflett i vinnsluhæfu ástandi: Stór rækja, 220 stk. i kg eða færri (4.55 gr. hver rækja eða stærri), hvertkg ..kr. 41.50 smá rækja, 221 stk. til 350 stk i kg. (2.85 gr. til 4.55 gr. hver rækja), hvert kg...........kr. 24.00 Verðið er miðað við, að seljandi skili rækju á ílutningstæki við hlið veiðiskips. Fulltrúinn i Verðlagsráði er heimilt að segja verðinu upp meö 15 daga fyrirvara miðað við 1. febrúar 1974. Verð þetta var ákveðið meö samhljóða atkvæðum allra yfir- nefndarmanna. (Frá Verðlags- ráði sjávarútvegsins) Bók um trúarbrögðin Ut er komin á vegum Þjóðráðs Baháia á Islandi bókin ,,Og sólin ris” (á frummálinu Release the Sun) eftir William Sears. Bók þessi fjallar um sögu Bahái- trúarinnar fyrstu ár hennar, eða allt frá þvi að hinn fyrri af tveimur spámönnum hennar, Bábinn, kunngerði köllun sina i Persiu 1844 og þangað til hann var lífiátinn sex árum siðar, þritugur að aldri. Bók sú, er nú kemur út á is- lensku, hefur verið þýdd á öll helstu tungumál heims og er eitt aðgengilegasta kynningarrit um forsögu Bahái-trúarinnar. Hún er hin fyrsta af þremur bókum, sem fjalla um spámenn Báhái-trúar- innar. Aður hefur komiö út á islensku „Þjófur á nóttu” eftir sama höfund. ,,Og sólin ris” er 250 blaðsiður, prentuð i prentsmiðju Jóns Helgasonar. Káputeikningu geröi Max Bossi. Bókin verður til sölu i bókabúðum og hjá Þjóðráöi Bahái á Islandi, óðinsgötu 20. Or fréttatilkynningu frá Bahái

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.