Þjóðviljinn - 16.11.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 16.11.1973, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN Föstudagur 16. nóvember 1973. Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefr'”-' simsvara Læknafélags Heykja vfkur, sími 18888. Kvöldsimi blaöamanna er 17504 eftir klukkan 30:00. Helgar-, kvöld- og næturþjón- usta lyfjabúöa í Reykjavfk vik- una 16.-22. nóvember verður i Vesturbæjarapóteki og Háleitis- apóteki. Slysavarðstofa Borgarspítalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuvernd^arstöðinni. Simi 21230. Grikkland Stúdentarnir gegn fasisma AÐENU 15/11 — Mörg þúsund stúdentar tóku tækniháskóla i miðborg Aþenu á sitt vald i gær- kvöidi og tiikynntu að þeir hefðu skipað byltingarncfnd til að reka skólann. Hafa stúdentarnir komið upp eigin útvarpsstöð og útvarpa þeir efni sem sagt er mjög fjandsam- legt fasistastjórn Papadopoulos- ar. A fundi stúdentanna myndaðist mjög sterk stemmning gegn rikis- stjórn landsins, en hún er um mánaöargömul i sinu núverandi formi og átti að leysa þær her- foringjastjórnir af hólmi, sem rikt hafa siöan valdaránið var framið fyrir 6 árum. Meðal vigorða stúdenta má nelna: Niður meö Papadopoulos (forseta). Út með Bandarikja- menn. Fasisminn skal ekki sigra. Lögreglan hefur mikinn við- búnað en er sögð hafa fyrirmæli um að láta stúdentana i friði fyrst um sinn ef þeir haldi kyrru fyrir inni i tækniskóianum. Slcólastjóri og sleólanefnd Fiskvinnsluslcóla: Námskeiðin eigum við að halda Skólastjóri og skólanefnd Fisk- vinnsluskólans hafa sent frá sér yfirlýsingu vcgna niálefna skól- ans og brotthvarfs ncmenda. 1 yfirlýsingunni segir m.a., að skólastjóri og formaður skóla- nefndar Fiskvinnsluskólans hafi ekki íallist á, að námskeið það yrði haldið, sem mest hefur verið deilt um. 1 yfirlýsingunni segir: „Aðiljar Fiskvinnsluskólans létu þá skoðun i ljós, að ef til vill væriofseint aðafturkalla auglýst námskeið á vegum Fiskmats rik- isins. öll slik námskeið yrðu að vera á vegum skólans i framtið- inni. Yrði skólinn að hafa frum- kvæöið (varðandi framkvæmd- ina), en þetta útilokaði ekki sam- vinnu við aðrar stofnanir, eins og Fiskmat rikisins, Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins, sölusam- Aðalfundur Þinghóls h.f., Kópavogi Aðalfundur Þinghóls h.f. Kópavogi verður haldinn á morgun, laugardag kl. 17.00 að Alfhólsvegi 11. Um kvöldið verður dansleikur á sama stað fyrir hluthafa og gesti þeirra. Stjórnin tökin o.fl. Með þvi móti yrði yfir- umsjón með menntuninni á einni hendi,og væri þörf sérstakra nám- skeiða til að fullnægja þörfum fiskiðnaðarins, gæti skólinn geng- ist fyrir slikum námskeiðum. Það segir sig sjálft, að Fisk- vinnsluskólinn getur hvorki yfir- tekið né gengið inn i námskeiða- hald Fiskmats rikisins með nokk- urra daga fyrirvara, ef það á að vera annaö en nafnið tómt." Sjá frásögn á 4. siðu af umræð- um um málið á alþingi og yfirlýs- ingu, er Lúðvik Jósepsson, sjávarútvegsráðherra gaf þar. Brúðkaup — umferðartöf LONDON 15/11 — Borgarablöðin i Bretlandi voru i dag full með myndir og frásagnir af veglegu brúðkaupi önnu prinsessu og kafteins i riddaraliðinu að nafni Mark sem fram fór i gær. Morn- ing Star, málgagn kommúnista- flokksins, birti um þetta forsiðu- frétt undir fyrirsögninni: Um- ferðartruflun. „Umferðin i London truflaðist i gær þegar Anna Windsor gekk i hjúskap með Mark Phillips i Westminster Abbey". Þennan fréttaflutning teljum við hér á Þjóðviljanum til fyrirmyndar! ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið á Akureyri heldur almennan félagsfund sunnudaginn 18. nóvember kl 2 i Þine vallastræti 14. e Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga 2. Soffia Guðmundsdóttir ræðir bæjarmál 3. Fulltrúar á flokksráðsfundi segja frá. 4. önnur mál. Stjórnin Austfirðingar Fundir verða með stuðningsfólki Alþýðubandalagsins á Reyðarfirði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði nú um helgina. Helgi Seljan, alþingismaður, ræðir um viðhorfin i stjórnmálum, og Haukur Helgason, hagfræðingur, ræðir ástand og horfur i efnahags- málum. Fundirnir verða nánar auglýstir á stöðunum. Aðstandendur Furöuverksins. Frá vinstri: Kristln Magnús Guöbjarts- dóttir, leikstjóri. Sigmundur örn Arngrlmsson. Arni Elfar, semjandi og flytjandi músikur, Halla Guömundsdóttirog Herdls Þorvaldsdóttir. (Ljósm. AK) Nýbreytni hjá Þj óðleikhúsinu Sýningar í Leikhúskjallaranum A sunnudaginn hefst nýr kapl- tuli i starfsemi Þjóöieikhússins. Þá verður fyrsta leiksýningin i Þjóöleikhúskjallaranum en eins og kunnugt er hefur hann verið rekinn sem veitingahús eingöngu til þessa. A blaðamannafundi í gær voru kynnt áform leikhúsmanna um starfsemina i kjallaranum. Fyrsta verkiö sem þar verður sýnt er barnaleikritið Furðuverk- iö. I fyrravetur var þetta leikrit sýnt á 14 stöðum i nágrenni Reykjavikur en verður nú i fyrsta sinn sýnt höfuðborgarbúum. Leikrit þetta fjallar um sköpun heimsins og tiloröningu lifsins. Það er samiö i hópvinnu af leikur- um og leikstjóra en þau eru Krist- in Magnús Guðbjartsdóttir sem er leikstjóri og leikararnir Halla G uð m un dsdó ttir , Herdis Þorvaldsdóttir og Sigmundur örn Arngrimsson. Leikmyndir eru gerðar af Birgi Engilberts. Arni Elfar annast undirleik en hann á- samt Hrafni Pálssyni hafa samið tónlistina. Fyrsta sýning á Furðuverkinu veröur eins og áöur segir á sunnu- daginn klukkan 15 og veröur það sýnt næstu sunnudaga á sama tima. Annað verkefni sem ákveöið hefur verið að sýna i Leikhús- kjallaranum er Old Time eftir hið þekkta breska leikritaskáld Har- old Pinter og verður Stefán Bald- ursson leikstjóri. Fleira mun ekki vera ákveðið um sýningar i kjallaranum en rætt hefur veriö um að koma þar upp kabarett. Einnig hefur komið til tais að ýmsir leikarar troði þar upp viss kvöld vikunnar þegar op- iðer fyrir gesti. En ætlun leikhús- manna mun vera sú að starfsem- in i kjallaranum verði af léttara taginu fremur en hitt. —ÞH Fundur um Chile á laugardag stúdenta Fyrir 32 árum koniu saman fulltrúar stúdenta frá þeim lönd- um sem börðust gegn fasisma og ákváöu að 17. nóvember yröi al- þjóölegur stúdentadagur. Það var þann dag, árið 1939. sem þýsku nazistarnir myrtu stúdentaleiö- toga og iokuöu háskólum og æöri skólum i Tekkóslavakiu. En ein- mitt þessir atburöir voru uppliaf kúgunar nazista á tékknesku þjóöinni. Siöan hafa slúdentar haft dag þennan sem tákn baráttu sinnar gegn heimsvaldastefn- unni. á vegum Nú á timum er hin fasiska her- foringjastjórn i Chile heldur áfram hryðjuverkum sinum, er meiri nauðsyn á stuðningi við al- þýðu Chile en nokkurntima áður. Þessvegna mun alþjóðlegi stúd- entadagurinn verða helgaður þvi málefni að þessu sinni. Stúdentaráð Háskóla íslands mun gangast fyrir fundi um mál- efni Chile i félagsheimili stúdenta v/Hringbraut laugardaginn 17. nóv. ki. 14.30. A þeim fundi munu hafa fram- sögu þeir Sigurður Hjartarson og Ólafur Einarsson. Fundurinn er öllum opinn. erlendar fréttlr i stuttu málí Tilgangur olíu- takmarkana LONDON 15/11 — Takmörkun Araba á oliuframleiðslunni verður haidið áfram uns eitt- hvað ákveðið og óafturkallan- legt gerist i þvi máli, að tsrael hverfi frá herteknu svæðun- um. Þetta segir i auglýsingu sem samtök oliuútflutnings- rikja settu i breska blaðið Guardian i dag. Ennfremur er ætlunin með oliutakmörkuninni að vekja athygli Bandarikjastjórnar á þvi, hvað Israelsvinátta henn- ar kostar önnur iðnvædd riki Vesturlanda. Á siðasta áratug hafa Arabalöndin aukið oliufram- leiðslu sina verulega til þess að svara aukinni eftirspurn eftir oliu i heiminum. Meö þvi hafa þau fórnað verðmætum sem ekki verða bætt. En sam- timis hafa æ stærri landsvæði verið af Aröbum tekin án þess að iðnvæddu rikin legðu neitt á sig-til að girða fyrir það. Vegna oliubannsins var bensln hækkað i verði um 10% i Brasiliu i dag. O Oliuleiðslan loksins leyfð WASHINGTON 15/11 — Nixon Bandarikjaforseti undirritar á morgun, föstudag, lögin um það að lögð verði oliuleiðsla þvert yfir Alaska, en þetta hefur verið mjög umdeilt mál og þvi hefur lengi verið frestað vegna harðrar andstöðu nátt- úruverndarmanna. Oliufélög- in voru fyrst og fremst að glima við þessa andstöðu þeg- ar þau skipulögöu hinn „til- búna skort” á oliu i Banda- rikjunum i sumar sem leið. En oliubann Araba rak smiðs- höggið á þetta, og rann þá frumvarpið i gegnum þingið. Leiðslan á að geta flutt 2 miljón tunnur af oliu á dag að 3—4 árum liðnum, og verður það ekki nema brot af inn- flutningsþörfum Bandarikj- anna þá. o Hvítabjörn alfriðaður OSLO 15/11 — Hvítabjörn verður nú alfriðaður á norður- slóðum samkvæmt samkomu- lagi sem Norðurheimskauts- lönd hafa gert meö sér. Aðeins verða leyfðar tak- markaðar veiðar á hvitabirni á Grænlandi, I Kanada og Al- aska þar sem Eskimóar lifa aö einhverju leyti á slikum veið- um. En þá verður að nota hefðbundnar veiðiaðferðir eingöngu. 1 Noregi er lýst yfir mikilli ánægju með samkomulag þetta, og verður það staðfest hið fyrsta. Þetta er I fyrsta sinn sem norðlægar þjóðir hefja meö sér samstarf á sviði umhverfisverndar. Norðmenn segjast hafa áhuga á þvl aö auka það og láta það ná til annarra dýrategunda og fugla norðan heimskautsbaugs.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.