Þjóðviljinn - 16.11.1973, Page 11
Föstudagur 16. nóvember 1973. ÞJ'óD.VILJINN — SÍÐA 11
Frekar
af vana
en getu
Valsmenn áttu slakan
leik gegn ÍR
en sigruðu samt 22:17
Einhvern veginn hafði maður það á tilfinningunni
að sigur Valsmanna yfir 1R byggðist á vana frekar
en getu, ekki þeim vana að sigra ÍR, þvi það hafa
Valsmenn ekki gert svo oft, heldur aðeins þeim
vana að sigra. Leikur Valsmanna var mjög slakur,
einkum i fyrri hálfleik, og ástæðan eflaust sú að þeir
reyndu nýja varnaraðferð, 6-0 i stað 5-1, sem
„mulningsvélin” hefur verið byggð upp, á.Vals-
menn uppskáru aðeins að fá á sig 11 mörk i fyrri
hálfleik. í þeim siðari breyttu þeir yfir i 5-1 og fengu
þá aðeins 6 mörk á sig. ÍR-Iiðið lék af svipuðum
styrkleika og gegn FH á dögunum, styrkleika sem
aldrei getur komið liðinu upp úr meðalmennskunni.
Það er alveg ljóst að breytist ekki leikur liðsins til
batnaðar, þá tekur 1R ekki þátt i fallbaráttunni i
vetur, gagnstætt þvi sem maður átti von á.
færa sér veilurnar i Vals-vörninni
i fyrri hálfleik. Þaö var aöeins
Agúst Svavarsson sem fann
smugurnar. enda skoraöi hann
obbann af mörkum IR i f. hálf-
leik, þar af 5 fyrstu mörkin. Hefði
einhver broddur veriö i sókn IR,
hefði liðið átt að hafa forustu i
leikhléi i stað þess að vera tveim
mörkum undir, 11:13.
1 siðari hálfíeik breyttu Vals-
menn aftur vörn sinni og þá fór að
ganga betur. IR-ingum tókst aö-
eins 6 sinnum að senda boltann i
mark Valsmanna i síðari hálfleik,
sem segir kannski meira en mörg
orð um það hve vörn Valsmanna
breyttist. Lokatölurnar urðu eins
og áður segir 22:17, sem er aö
visu stór sigur, en var fremur þvi
að þakka hve slakt IR-liöið var
heldur en að Valsmenn sýndu
góðan leik.
Ef við litum aðeins á tölur úr
leiknum var jafnt frá 1:1 i 4:4 en
þá komust Valsmenn 2 mörk yfir,
6:4, og siðan 7:4, og má segja að
þar með hafi verið gert út um
leikinn. IR-ingum tókst aldrei að
brúa þetta bil. Munurínn það sem
eftir var leiksins var frá 1 uppi 5
mörk mest.
Það er alveg ljóst að Valsmenn
verða að fara að huga að varnar-
leik sinum, sem hefur verið
þeirra sterkasta vopn til þessa.
Hann hefur slakast m jög mikið,og
ég er hræddur um að titillinn
verði ekki eins auðunninn fyrir
liðið i ár og hann var i fyrra. Aö
þessu sinni áttu aðeins 3 menn i
liðinu góðan leik, þeir Stefán
Gunnarsson, sem var besti maöur
liösins, Gisli Blöndal, sem er óð-
um að komasti sitt fyrra form, og
Gunnsteinn Skúlason, maðurinn
sem aldrei bregst. Þá átti ungur
nýliði i markinu, Ólafur Guðjóns-
son, eftirtektarverðan leik i siðari
hálfleik.
Hjá 1R bar Agúst Svavarsson af
i fyrri hálfleik,en mátti sin litils i
þeim siðari. Guðión Marteinsson
Framhald á bls. 14 I
Um leið og talað er um slakan
leik Valsmanna má ekki gleyma
þvi að besti maður liðsins, Ólafur
H. Jónsson, meiddist fyrst i leikn-
um og það litla sem hann var inná
eftir það var hann ekki nema
hálfur maður, haltrandi um völl-
inn. Ofan á bættist svo að nafni
hans Benediktsson tók þarna út
sinn slæma dag og varði hreint
ekki neitt, þann tima sem hann
var inná, sem var megnið af fyrri
hálfleik.
IR-ingunum gekk illa að not-
/*v y&i staðan
Staðan í 1. deild i
handknattleik er nú
þessi:
Valur 2 2 0 0 46:35 4
FH 2 2 0 0 43:36 4
Fram 2 1 1 0 42:32 3
Haukar 2 1 1 0 33:32 3
Ármann 1 0 0 1 13:13 0
Þór 1 0 0 1 13:24 0
I R 2 0 0 2 35:43 0
Víkingur 2 0 0 2 36:48 0
AAarkahæstu menn:
Viðar Símonarson FH 18
Gísli Blöndal Val 14
Hörður Sigmarsson
Haukum 13
Axel Axelsson Fram 13
Ágúst Svavarsson IR 12
Gunnar Einarsson
Haukum 12
Einar Magnússon Vík-
ingi 12
Ólafur H. Jónsson Val11
Gisli Blöndal var markhæstur Valsmanna með 8 mörk. Hér skorar hann eitt þeirra
Aftur var Viðar
í aðalhlutverki
þegar FH sigraði Víking 24:18
Viðar Símonarson lék
ekkert smáhlutverk með
FH gegn IR á dögunum,
skoraði 11 mörk. Hann var
svo ekki í minna hlutverki
gegn Víkingi sl. miðviku-
dagskvöld er hann skoraði
7 mörk og var potturinn og
pannan í leik liðsins. Hann
hefur svo sannárlega tekið
við hlutverki Geirs Hall-
steinssonar í FH-liðinu auk
þess sem hann hefur ef til
vill aldrei verið betri en um
þessar mundir. Hitt er svo
annað mál, að fyrirstaðan
að þessu sinni hjá Víkingi
var engin þannig að Við-
ar og co. áttu auðvelt með
að láta Ijós sitt skína. Ég
hygg að alveg sé óhætt að
afskrifa Víkinga sem topp-
lið að þessu sinni, og með
þessu áframhaldi lendir
liðið hreinlega í fallbarátt-
unni með alla sína lands-
liðsmenn.
Margir hafa verið að spá þvi að
FH yrði á milli vita i vetur, myndi
hvorki vera i fallhættu né i topp-
baráttunni. Ég hef ekki trú á að
þetta rætist. FH verður áreiðan-
lega með i toppbaráttunni. Liðið
hefur synt i tveim fyrstu leikjum
sinum að það er sterkt, leikur
hraðan og árangursrikan sóknar-
leik en varnarleikurinn er að visu
ekki uppá það besta, en hann má
lagfæra. Sá varnarleikur, sem
liðið leikur nú, 4:2, er ekki likleg-
ur til árangurs gegn liðum sem
beita linuspili en getur gengiö
gegn stórskyttuliði eins og Vik-
ingi.
Varnarleikur er enn sem fyrr ó-
þekkt hugtak hjá Vikingi og ofan
á bætist að liöið var að reyna að
leika ákveöin kerfi i sóknarleikn-
um sem geröu ekki annað en gera
hann veikari frá þvi sem var.
Heföi Guðjón Magnússon, besti
maður liðsins aö þessu sinni, ekki
tekið til sinna ráða, hefði Viking-
ur sennilega tapað þessum leik
með uppundir 10 marka mun.
Leikurinn var heldur jafn til að
byrja með. Jafnt var frá 1:1 uppi
5:5 en þá náöi FH 2ja marka for-
skoti, 7:5, og siöan 9:6 og eftir það
var ekki spurning um hvort liðið
myndi sigra heldur hve stór sigur
FH yrði. 1 leikhléi var munurinn
orðinn 4 mörk 12:8.
I siðari hálfleik varð munurinn
fljótlega 6 mörk, 15:9, enda varði
þá Hjalti Einarsson mjög vel i
FH-markinu en hann hafði litið
varið i fyrri hálfleik. Meðal ann-
ars varði hann vitakast þegar
staðan var 16:10 og það varð til
þess að FH breikkaði biliö enn,
17:10, en meira varð það aldrei í
leiknum.
Undir lokin var mikið los orðið
á báðum liðum og mörkin hlóðust
upp og lokatölurnar urðu 24:18
sigur FH.
. Framhald á !l4. slðu.
Næstu
ieikir
NÆSTU LEIKIR í 1. deild
karla i handknattleik fara
fram um helgina. A laugardag
leika Þór og Armann norður á
Akureyri^en á sunnudag leika
ÍR—Fram og Viking-
ur—Haukar i Laugardalshöll-
inni. Þar næstu teikir verðá
svo fimmtudaginn 22. nóv. en
þá mætast FH og Valur og
Haukar og Þór i Hafnarfirði.
UMSJÓN SIGURDÓR SIGURDÓRSSON1
i . .