Þjóðviljinn - 12.01.1974, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Laugardagur 12. januar 1974
AF FLATKÖKU
Flatkakan: Árshátíðarhljómkviða
fyrir kór, hljómsveit og slagverk,
samin í tilefni sjöhundruðára
afmælis gamla sáttmála.
Höf: Hrollgeir Snær
Flutningur: Kviðukórinn
og Árshátíðarsveitin
Ég mun í framtíðinni,
að áeggjan góðra
manna, f jalla hér í blað-
inu um alla þá tónlist,
sem með sanni getur
talist heyra undir þjóð-
lega tónlist, eða ,,music
pestilential".
Ég vil taka það skýrt
fram strax í upphafi og
leggja á það mjög ríka
áherslu — eins og aðrir
listgaggrínendur, sem í
blöðin skrifa, að ég hef
nánast ekkert vit á tón-
list, en mun eigi að siður
ekki bregðast skyldu
minni nú fremur en
endranær og skrifa i
framtiðinni hljómdóma
eftir bestu vitund.
Hve margar spurning-
ar hlutu ekki að vakna á
mánudaginn var, þegar
sjálf Flatkakan var
frumflutt i Háskólabíói.
Flatkakan, sem alþjóð
hafði beðið eftir i of væni
og með höndina í háls
inum allt frá því að hún
var samin árið 1962 í til-
efni sjö alda afmælis
Gamla sáttmála.
Meðal annars hlýtur
sú spurning að vakna-.
Hvers vegna hefur þjóð-
in ekki fengið að njóta
Flatkökunnar fyrr?
Hvers vegna hefur Flat-
kakan legið lokuð niðri á
kistubotni í fórum
Eyglóar Hrollgeirsdótt-
ur óflutt í rúman ára-
tug? Þetta hljómverk!
Þessi kviða, sem með
sanni má kalla höfuð-
verk íslenskra tónskálda
fyrr og síðar án þess að
hinum sé gert rangt til.
Hvers á Flatkakan eig-
inlega að gjalda? Hroll-
geir Snær — höfundur
Flatkökunnar,segir svo í
hljómskrá: ,,Ég var ekki
lengi að kompónera
Flatkökuna. Það var
eins og mér birtist vitr-
un að kvöldlagi einhvern
tímann á Þorranum.
Kviðan átti að vera
þjóðleg og með hliðsjón
af því hafði églengi haft
kleinuna eða jafnvel
laufabrauð í huga, en á
þorrablóti tónskálda i
Tónabæ þar sem ís-
lenskur matur var fram
borinn var eins og eld-
ingu lysti niður í höfuð
mér, þegar ég sá flat-
kökuna í öllu sínu skarti
í troginu. Flatkakan!
Flatkakan! Og ég fann
hvernig strófurnar öðl-
uðust líf. Sjálft tónverk-
ið Flatkakan stóð mér
fyrir hugskotssjónum
eins og opinberun og
fullbúið. Kviðan var i
heiminn borin. Hvers
vegna hafði mér ekki
dottið þetta fyrr í hug?
Eða hafði ég alltaf vitað
það í undirmeðvitund-
inni að það væri f latkak-
an, sem hlyti að verða
yrkisefni mitt? Þetta
varð svo undur Ijóst.
Flatkakan þarna i trog
inu var nákvæmlega
eins og gamalt bókfell,
skorpin og dökkbrún
með svörtum skellum.
Og sú himneska stað-
reynd blasti við mér að
flatkakan hafði í raun
og réttum sanni leyst
bókfellið af hólmi.
Þjóðarréttur islendinga
hafði raunar verið bók-
fell allt fram fil þess
dags að þjóðin tók að
nærast á flatkökunni.
Gamli sáttmáli hefði
þess vegna eins getað
verið skrifaður á flaf-
köku og við tónskáldin
þarna í Tónabæ á þorra-
blótinu getað verið að
gæða okkur á bókfellinu
sem Gamli sáttmáli var
skráður á, því ekki vant-
aði viðbitið.
Eg þreif eina flatköku
uppúr troginu, þaut
heim eins og byssu-
brenndur og hóf að
semja hljómkviðuna
Flatkakan, sem hér
verður flutt í kvöld."
Svo mörg voru þau orð
snillingsins. Ekki var
þorrinn liðinn, þegar hin
stórfenglega, þjóðlega
og hrikalega hljóm-
kviða Flatkakan var til-
búin til flutnings fyrir
tvöhundruð manna kór
og hljómsveit.
Nú hefði verið ætlandi
að framámenn í tón-
mennt landsmanna
hefðu tekið Flatkökunni
opnum örmum og tekið
hana umsvifalaust til
flutnings á sjálfu sjö
alda afmæli Gamla sátt-
mála, en ekki var þvi að
heilsa. Ýmis viðaminni
verk virtust hafa alger-
an forgang og má í því
sambandi nefna níundu
sinfóniu Beethovens og
Hámoll messuna sem
vart er hægt að gera sér
i hugarlund að eigi
meira erindi til þjóðar-
innar en Flatkakan.
Um tima leit út fyrir
að verkið yrði tekið til
flutnings á fiskkveðju-
hátíðinni i Grimsby und-
ir nafninu ,,Pastry
prostrate in A flat" en
úr því varð þó ekki, enda
hefði það orðið tónf röm-
uðum islensku þjóðar-
innar til ævarandi
skammar.
Það væri að bera í
bakkafullan lækinn að
skrifa meira um þessa
hrikalegu tónleika, en
þar kom fram hver
sigurvegarinn af öðrum,
en lokasigurinn vannst
þó sannarlega, í loka-
kaflanum, sem Þjóð-
verjar kalla gjarnan
,,Durchfall", en i miðri
diaríunni féll gestasöng-
konan Raja Batis í öng-
vit og var það sannkall-
aður Grandfínale, sung-
inn i afectuoso stíl.
Flatkakan hefur
sigrað. Vér erum
dauðlegir menn, sem
eigum fyrir höndum að
falla fyrir manninum
með Ijáinn, en Flat-
kakan mun lifa um
ókomnar aldir, sem tákn
þeirrar menningar, sem
hér hefur blómstrað
síðan Gamli sáttmáli
var undirritaður.
Sannarlega rís Flat-
kakan hæst í lokakafl-
anum (grandfínalnum)
þegar kviðukórinn
syngur í hrikalegum
fortissimó:
,,En Flatkakan ávallt mun fylla þitt brjóst
og fagnandi gleði sem eilífðin skóp
og þjóðin mun hylla þig leynt bæði og ljóst
og lengi mun óma vort flatkökuhróp.”
Hljómdómur
Geirvar Páll skrifar um
á rshátíða rf I ut ni ngi n n
á Flatkökunni
Telur Páll ekki
einsœtt að
sýna flámœlinu
meiri sóma?
Jeg get ekki stillt mig um að
biðja Bæjarpóstinn fyrir fáein orð
til Páls Bergþórssonar vegna
greinarkorns um ..framburð,
stafsetningu og umburðarlyndi”,
sem Þjóðviljinn birti 11. des. s.l.
Það eru raunar einkum tvær
spurningar sem mig langar til að
fá svar við:
Alitur Páll ekki að það hafi ver-
ið mjög misráðið þegar kennarar
tóku sig til f'yrir allmörgum ár-
um og útrýmdu að mestu leyti, að
mjer er sagt, flámæli. Og ef hann
skyldi nú álita að þetta hafi verið
rjettmætt, hvers á þá blessað flá-
mælið að gjalda? Stuðlar það
kannski ekki að litriki og fjöl-
breytni eins og hver önnur mál-
lýska? Og hafi þetta framtak
kennaranna verið órjettmætt,
álitur Páll þá ekki einsætt að snúa
vörn (uppgjöf?) i sókn og sýna
flámælinu meiri sóma og hlynna
að notkun þess?
— Og um linmælið ætti að taka
til athugunar hvort nokkur mein-
ing er að láta staðar numið á þvi
stigi sem nú er almennast. Einu
sinni heyrði ég mann segja skýrt
og greinilega (i útvarpi) láða.þar
sem venjulegir linmælismenn
segja láda, en harðmælismenn
segja láta.lSama þróunin og t.d. i
dönsku lade, framborið laðe).
Þetta eykur fjölbreytnina. —
Væri annars ekki langeinfald-
ast og best að spara sjér alt rex
og pex um framburð og stafsetn-
ingu og lofa hverjum að syngja
með sinu nefi?
Þó nokkur beiskja sje kanski i
þessum pistli, þá vona jeg að Páll
finni þar engan ofsa. Hinu leyni
ég ckki að jeg er jafn ósammála
Páli og jeg er sammála öðrum á-
gætum Borgfirðingi , Helga J.
Halldórssyni: Sunnlenska lin-
mælið og norðlenska kv-ið ætti að
leggja niður. En það yljar mjer
altaf um hjarta að heyra vest-
firska framburðinn svokallaða og
hornfirska rn-framburðinn þó að
hvorugt sje mjer munntamt.
Sunnudagsgangan 13/1.
verður með Leiruvogi.
Brottför kl. 13 frá B.S.Í.
Verð 200 kr.
Ferðafélag tslands.
Kvenfélag Háteigssókn-
ar
býður eldra fólki i sókninni
til samkomu i Domus
medica sunnudaginn 13.
janúar kl. 3 siðdegis. Fjöl-
breytt skemmtiatriði.
Stjórnin.
Auglýsinga
síminn
er17500