Þjóðviljinn - 12.01.1974, Qupperneq 5
Laugardagur 12. janúar 1974 ÞJóÐVILJINN — StÐA 5
Heljar-
slóðar-
orusta
Ilundraö ára gömul gamansaga
eftir Benedikt skáld Gröndal,
Sagan af Heljarslóðarorrustu, er
á janúardagskrá i Siðdegisstund
Leikfélags Reykjavikur. Fluttir
eru nokkrir kaflar úr sögunni og
lesarar bregða sér i raddgervi
spaugilegra þjóöhöfðingja, sem
uppi voru á siðustu öld og ráð-
gjafa þeirra i stritinu við að
stjórna löndum. Þarua koma við
sögu Napóleon þriðji Frakkakeis-
ari og Franz Jósef Austurrikis-
keisari, að ógleymdum íslending-
um og islenskum þjóðháttum,
sem setja svip sinn á lif höfðingj-
anna i Fvrópu i gamansömum
lýsingum Gröndals.
Sagan af lleljarslóðarorrustu
var frumflutt i Siðdegisstund sl.
fimmtudag, en vcrður endurtekin
i Iðnó i dag kl. 17.00. Flutningur-
inn er undir stjórn Helgu Bach-
mann. Þau Jón Hjartarson, Karl
Guðmundsson, Valdemar Helga-
son, Sólveig Ilauksdóttir og
Kjartan Ragnarsson fara með
hlutverk söguhetjanna.
Bóksalafélag íslands 85 ára
Bóksalafélag tslands er 85 ára i
dag 12. janúar. t fréttatiikynn-
ingu, sem félagið hefur sent frá
sér af þessu tilefni,segir m.a.:
,,Fyrstu bóksalar á Islandi voru
farandsalar, sem ferðuðust með
bækur, ýmist á hestum eða ber-
andi bókapinkla á sjálfum sér
Skipulag kemst ekki á þessa
dreifingu fyrr en þrir framtak-
Burtfararpróf úr
Tónlistarskólanum
Leikur
einleik með
hljómsveit
skólans
í dag, laugardaginn 12.
janúar kl. 3 i Háskólabiói, mun
Snorri Sigfús Birgisson leika á
tónleikum með Hljómsveit
Tónlistarskólans i Reykjavik,
undir stjórn Björns Ólafsson-
ar. Snorri Birgisson er að
ljúka einieikaraprófi frá skól-
anum og hélt hann tónleika i
desember sl. i Austurbæjar-
biói, og var það fyrri hluti
prófsins,
A efnisskrá tónleikanna er
Sinfónia i Es-dúr nr. 103, eftir
Haydn, og pianókonsert i Es-
dúr op. 73 eftir Beethoven.
Þessir tónleikar eru þeir
fyrstu af mörgum, sem
Hljómsveit Tónlistarskólans
mun halda i vetur á vegum
skólans og annarra aðila. Vel-
unnurum skólans er bent á að
allir eru velkomnir að hlýða á
tónleikana meðan húsrúm
leyfir.
samir bókaútgefendur i Reykja-
vik tóku sig saman og stofnuðu
Bóksalafélag tslands 12. janúar
1889. Menn þessir voru: Björn
Jónsson, ritstjóri, Sigfús
Eymundsson, bókaútgefandi og
ljósmyndari, sem var formaður
og Sigurður Kristjánsson.
Fundargerðarbækur félagsins
eru allar til frá upphafi. 1 fyrstu
fundargerðinni er greint frá regl-
um, sem samþykktar voru fyrir
félagið. Þá eru þar bókuð ,,við-
skiptaskilyrði Bóksalafélagsins
við útsölumenn sina”, og jafn-
framt er birt skrá yfir útsölu-
mennina, 27 talsins,
1 dag eru útsölumenn Bóksala-
félags tslands milli 90 og 100”.
Og siðar segir:
„Sem dæmi um mismunandi
aðstöðu hér og i nágrannalöndum
má geta þess, að i Noregi hafa
stjórnvöld talið sér skylt að styðja
við bakið á bókaútgáfu með
margs konar aðgerðum á þeirri
forsendu, að norska þjóðin, sem
telur fjórar miljónir manna, sé
svo litið málsamfélag, að þvi sé
hætta búin ef bókaútgáfa og bóka-
lestur drægist verulega saman,
en hér á landi, i 200.000 manna
málsamfélagi; hafa stjórnvöld á
umliðnum áratugum jafnan skellt
skollaeyrum við óskum islenskra
bókaútgefenda um hliðstæðar að-
gerðir.
Það hefur alla tið verið eitt af
baráttumálum félagsins að felldir
yrðu niður tollar af bókagerðar-
efni og skal það viðurkennt, að
nokkuð hefur áunnist i þeim mál-
um.
Hins vegar hefur þeirri mála-
leitan félagsins ekki verið sinnt
að fella niður söluskatt af bókum,
sem talið er sjálfsagt i ýmsum
menningarlöndum og alls staðar
hefur verkað örvandi á bóksölu.
Svo sem áður segir var Sigfús
Eymundsson fyrsti forinaður fé-
lagsins, siðan gegndi formennsku
i félaginu ólafur Runólfsson,
Arinbjörn Sveinbjarnarson, Pét-
ur Halldórsson, Gunnar Einars-
son, Ragnar Jónsson, Oliver
Steinn og Valdimar Jóhannsson.
Núverandi stjórn l'élagsins er
þannig skipuð: Orlygur Hálf-
dánarson, form., Arnbjörn
Kristinsson, varaform., Gisli
Ólafsson, ritari. Hilmar Sigurös-
son, gjaldkeri, og meðstjórnend-
ur þeir Valdimar Jóhannsson,
Böðvar Pétursson og Björn Jóns-
son. Lögfræðilegur ráðunautur
félagsins er Knútur Bruun.
Samband ungra framsóknarmanna:
Með brottför hersins
hverfi allar kvaðir
hemámssamningsins
I Timanum i gær birtist
grein frá Sambandi ungra
framsóknarmanna þar sem
itrekað er afstaða sambands-
ins til herstöðvamálsins, en
um leið lögð áhersla á nauðsyn
þess að úr gildi falli allar
kvaðir herstöðvasamningsins
um leið og herinn fer úr land-
inu. 1 Timanum er þannig að
orði komist:
,,A fyrstu vikum og mánuð-
um nýja ársins munu ungir
framsóknarmenn lcggja á það
liöfuðáherslu, að staðið veröi
við fyrirheitið um brottför alls
bandarisks herliðs af landinu
fyrir lok yfirstandandi kjör-
tfmabils. Það mun skapa
sams konar ástand hér I varn-
armálum og var áður en
samningurinn frá 1951 var
gerður. Eðlilegt er og sjálf-
sagt, að með brottför hersins
hvcrfi allar kvaðir~þess samn-
ings úr gildi að islenskum lög-
um, og að skuldbindingar okk-
ar gagnvart NATO vcrði þær
einar, s»m NATO-samningur-
inn sjálfur og fyrirvaranir frá
1949, kveða á um”.
Styrkir Vísindasjóðs auglýstir
Styrkir Visindasjóðs árið 1974
hafa vcriö auglýstir lausir til um-
sóknar, og er umsóknarfrestur til
1. mars.
Raunvisindadeild annast styrk-
veitingar á sviði náttúruvisinda,
þar með taldar eðlisfræði og
kjarnorkuvisindi, efnafræði,
stærðfræði, læknisfræði, liffræði,
lifeðlisfræði, jarðfræði, jarðeðlis-
fræði, dýrafræði, grasafræði,
erfðafræði, búvisindi, fiskifræði,
verkfræði og tæknifræði.
Hugvisindadeild annast styrk-
veitingar á sviði sagnfræði, bók-
menntafræði, málvisinda, félags-
fræði, lögfræði, hagfræði, heim-
speki, guðfræði, sálfræði og upp-
eldisfræði.
Hlutverk Visindasjóðs er að
efla islenskar visindarannsóknir,
og i þeim tilgangi styrkir hann:
1. Einstaklinga og visindastofn-
anir vegna tiltekinna rann-
sóknarverkefna.
2. Kandidata til visindalegs sér-
náms og þjálfunar. Kandidat
verður að vinna að tilteknum
sérfræðilegum rannsóknum
eða afla sér visindaþjálfunar tii
þess að koma til greina með
styrkveitingu.
3. Rannsóknarstofnanir til kaupa
á tækjum, ritum eða til greiðslu
á öðrum kostnaði i sambandi
við starfsemi, er sjóðurinn
styrkir.
Umsóknareyðublöð, ásamt
upplýsingum, fást hjá deildarrit-
urum, i skrifstofu Háskóla Is-
lands og hjá sendiráðum tslands
erlendis. Athygli skal vakin á þvi,
að ný gerð eyðublaða hafa verið
tekin i notkun. Umsóknir skal
senda deildarriturum, eða i póst-
hólf Visindasjóðs nr. 609.
Deildarritarar eru Guðmundur
Arnlaugsson rektor, fyrir Raun-
visindadeild og Bjarni Vilhjálms-
son þjóðskjalavörður fyrir Hug-
-visindadeild.
Loðnan fœrir sig sunnar
Rannsóknárskipiö Árni
Friöriksson lá inni á Þórs-
höfn á Langanesi um miðj-
an dag i gær vegna slæmra
leitarskilyrða, en eins og
kunnugt er stundar Árni nú
loðnuleit.
Talsvert magn hefur fundist af
loönu, og nú siðast fannst loðna
nokkuð mikið sunnar en áður, eöa
i landgrunnskantinum norð-aust-
ur frá Fonti á Langanesi. Loðnan
heldur sig i dreif ennþá og
stendur djúpt og þvi vart hugsan-
legt að ná henni meðan svo er.
-úþ