Þjóðviljinn - 12.01.1974, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINNLaugardagur 12. janúar 1974
GLENS
Hvergi fær maður frið fyrir þessum hjólhýsalýð!
554 á Grund
Loðna
Landsleikur
Framhald af bls. 4.
voru vistmenn i ársbyrjun 149, 85
konur og 64 karlar.
A árinu komu 51 kona og 37
karlar. Farnir: 34 konur og 23
karlar. Dánir: 1 kona og 0 karlar.
I árslok voru vistmenn 179, 101
kona og 78 karlar.
Samtals var heimilisfólkið i
stofnununum 375 konur og 179
karlar = 554 og hafði þvi fjölgað
um 37 á árinu.
FÉLAGSLÍF
Austfirðingamótið
veröur aö Hótel Borg í kvöld
laugardaginn 12. jan. og hefst
með borðhaldi kl. 19.
Framhald af bls. 1
1974 en það var i nóvembermán-
uði 1973.
Þá skal 25 miljónum króna af
tekjum sjóösins varið til lifeyris-
sjóðs sjómanna, eftir nánari á-
kvörðun ráöuneytisins. Jafn-
framt skal tryggja, að sjóðirnir
miði eftirlaunagreiðslur til sjó-
manna við lægri aldur en gert
hefur verið.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.”
Gjört i Reykjavik,
11. janúar 1974
Kristján Eldjárn.
(L.S.)
Lúðvik Jósepsson.
TAPAÐ
Enn einu sinni hefur Guðmundur Haraldsson tapað tösk-
unni sinni. Hún er brún að lit, með tveim smellum, þrem
hólfum og nafn Guömundar letrað gullnum stöfum innan i
henni. Finnandi vinsamlega skili henni á áuglýsingadeild
Þjóöviljans og hlýtur hann ævarandi vináttu Guðmundar
að launum.
Framhald af bls. 11.
tslenska landsliöið sem leikur gegn Ungverjum I dag verður þannig
skipað:
Markverðir: Leikir , Mörk
1. ólafur Benediktsson Val 25
12. Gunnar Einarsson Haukum 13
Aðrir leikmenn: 2. Gunnst. Skúlas. Val (fyrirl.) 48 58
3. Gísli Blöndal Val 27 56
4. Viðar Símonarson FH 59 109
5. Einar Magnússon Vik. 41 95
6. Björgvin Björgvinsson Fram 56 81
7. Sigurbergur Sigsteinss. Fram 67 57
8. Ólafur H. Jonsson Val 63 140
9. Auðunn óskarsson FH 38 26
10. Axel Axelsson Fram 31 133
15. Hörður Kristinss. Armanni 19 42
ÍSLAND — UNGVERJALAND
Háðir hafa veriö 4 landsleikir við Ungverja og allir tapast.
Markitala 58—83.
2. mars 1958 Mgdeburg H.M. 16-19
9. mars 1964 Bratislava H.M. 12-21
26. febr. 1970Mulhouse H.M. 9-19
16. des. 1873 Rostock 21-24
Landsleikir islands frá upphafi: Alls leiknir 124 leikir, 57 heima og 67
erl. Dnnir 44, tapaðir 66, jafntefli 14. Mörk skoruö eru 2248 gegn 2185.
12 leikja
skák í
4. umferð
Fjórða umferð Skákþings
Reykjavikur var tefld á fimmtu-
dagskvöldið. 1 A-riðli urðu þessi
úrslit:
Jóhann Þórir Jónsson vann
Björn Jóhannesson i 12 leikja
skák. Ómar Jónsson vann Július
Friöjónsson, Gunnar Gunnarsson
vann Leif Jósteinsson. Jafntefli
gerðu Björgvin Viglundsson og
Andrés Fjeldsted, Bragi Hall-
dórsson og Benóný Benónýsson.
Biðskákir urðu hjá Birni Hall-
dórssyni og Jóni Þ. Þór.
Helgi ólafsson er efstur i B-
riðli.
Fimmta umferð verður tefld á
sunnudag, en biðskákir á mánu-
dag.
— úþ
Sjónvarp
Framhald af bls. 7.
hjá sér að setja bréf með
andnasiskum áróðri i póstkassa
manna. Hann á sér enga vitorðs-
menn, en engu að siður nær
Gestapo honum að lokum. Sterk
bók um starfsaðferðir lögreglu-
rikisins, sem fáir hafa
imyndunarafl til að skilja fyrr en
þær bitna á þeim sjálfum.
Og úr þvi sjónvarp er á dagskrá
á annað borð: mikið var það
áhrifasterk mynd, sem Sviar hafa
tekið saman um Chile og sýnd var
á miðvikudaginn var. Ekki svo að
skilja, að þeir sem vildu höfðu
lesið um þessa hluti alla áður. En
myndavél er enn mælskari, sé vel
á henni haldið. Margir hafa sjálf-
sagt mjög gott af aö sjá og heyra
borgarakellingarnar sem fannst
allt gott og sjálfsagt sem hinir
nýju valdhafar gerðu. Þeim var
rétt sama hvort menn voru
drepnir. Þeir hlutu þá bara að
hafa unnið til þess. Eða eins og
hinn spámannlegi Kafka segir i
upphafi bókar, sem var skrifuð
fyrir eiginlegan fæðingardag
fasismans: „Herra K. hlaut að
hafa gert eitthvað af sér, þvi
morgun einn komu tveir menn og
tóku hann höndum.”
Við skulum heldur ekki gleyma
þvi að hinar velhöldnu Chilefrúr
eru ekki einar um að elska her-
foringjaklikuna heitt. Þann 14.
okt. birti „húsmóðir” bréf i Vel-
vakanda Moggans þar sem m.a.
segir: „Ég og húsmæðurnar i
Chile viljum sjálfar fá að
skammta. Það þýðir litið fyrir
almenning að menn fari rænandi,
brennandi og drepandi með
vopnum frá Rússum og kalli sig
þjóöfrelsisfylkingar, meðan allir
vita að þegar slikur lýður er
tekinn við stjórnartaumunum, þá
er úti um allt frelsi og sár vöntun
á öllum lifsnauðsynjum vis. Þess
vegna er það minnsta sem við
getum gert ...,að vera áfram i
Nato og vera fegin að Banda-
rikjamenn skuli vilja vera hér”.
Vonandi finnur þessa ágæta
islenska ihaldskerling, hvers
kyns sem hún i raun er, hjá sér
hvöt til að bregðast enn við með
andheitu bréfi út af þeirri mynd
sem við nú-höfum séð.
En reyndar voru það atriðin frá
útför Pablo Neruda skálds, sem
munu okkur sist úr minni liða.
Arni Bergmann
Félagsstarf
eldri borgara
Mánudaginn 14. jan. verður
opið hús að Hallveigarstöðum
frá kl. 1.30 e.h.
Þriðjudaginn 15. jan. verður
handavinna frá kl. 1.30 e.h.
Hraðkaup
Fatnaður I fjölbreyttu úrvali
á alla fjölskylduna á lægsta
fáanlegu verði.
Opiö: þriðjud., fimmtud. og
föstud. til kl. 10, mánud.,
miðvikud. og laugardaga til
kl. 6.
Hraðkaup
Silfurtúni, Garðahreppi
v/Hafnarfjarðarveg.