Þjóðviljinn - 12.01.1974, Síða 16
t wmi/mi Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Kvöld-, nætur- og helgarvarsla lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna 11.—17. janúar er i Borgarapóteki og Reykjavikurapóteki.
Kvöldsimi hlaðamanna er 17504
Laugardagur 12. janúar 1974 eitir klukkan 20:00.
Slysavarðstofa Borgarspítalans
,er opin allan sólarhringinn.
'Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Sýning myndverka í
eigu borgarinnar
1 dag verður opnuð að Kjar- Reykjavikurborgar. Sýningin
valsstöðum sýning mynd- verður opnuð klukkan 15 og
verka i eigu Listasafns stendur til 27. janúar.
t austursal hússins eru ein-
göngu sýndar myndir eftir
Jóhannes S. Kjarval en i
vestursal eru myndir eftir
ýmsa listamenn. A sýningunni
eru alls 106 listaverk, þar af 11
höggmyndir.
Myndin, sem fylgir, er af
málverkinu „Fyrsti sonur
Maríu” eftir Hörð Agústsson,
— málað 1950.
Sölumetin fjúka
hjá togurunum
Togararnir islensku
setja nú daglega sölu-
met við isfisksölur i er-
lendum höfnum og
standa metin yfirleitt
ekki nema sólarhring
eða svo.
Nýjasta metið setti Svalbakur,
en hann seldi í Grinisby i gær 72,3
tonn fyrir 29.718 pund, eða 5,7
miljónir og meðalverð á kiló varð
79 krónur og 12 aurar. Þessar
upplýsingar fékk blaöið hjá Ingi-
mar Einarssyni, en hann aftur
beint frá skipverjum. Mun þetta
vera hæsta meðalverð hjá togara,
bæði i islenskum krónum og einn-
ig talið i breskri mynt.
Það er nokkur urgur i útgerðar-
mönnum yfir þvi, að tollur skuli
vera 12% af isfiski, en ef allt hefði
verið með felldu i Efnahags-
bandalaginu þá hefði tollur af is-
fiski verið 6% nú samkvæmt
samningum þeim sem Island
gerði við bandalagið, en það hing-
að til neitað að staðfesta.
Hvert kitt af afla Svalbaks var
selt á 26 sterlingspund, en það
þótti góð sala 1960 ef kittið fór á
4,5 sterlingspund.
Enginn af úthafstogurum
Breta mun vera væntanl. til þess
lands fyrstu þrjá dagana i næstu
viku, en hins vegar verða þrir is-
lenskir togarar þar þá daga, einn
á hverjum degi, svo búast má við,
að hið nýja sölumet Svalbaks
standi ekki lengi. Þeir togarar
sem selja i byrjun næstu viku i
Bretlandi eru Narfi, Sólbakur og
Arnar. _úþ
Loðnuvertíð
í Noregi
OSLO 11/2 — Loönuveiðar
hefjast í Noregi á þriöju-
daginn. Stjórnvöld gefa út
ýtarlegar leiðbeiningar um
veiðarnar og er bæði tekið
fram um hámarksveiðina
og hámarksafla á skip.
Alls hafa 472 skip tilkynnt sig til
loðnuveiða við Noreg. Leyft verð-
ur að veiða alls 7 miljónir hektó-
litra, en það er liklega ekki fjarri
þvi að vera 700 þúsund tonn. Til
neyslu og frystingar fara 600 þús-
und hektólitrar, en hitt i bræðslu.
Af bræðsluloðnunni fá togarar að
veiða 1 miljón hektólitra, en
hringnótabátar 5,4 miljónir.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Tryggvi
Ragnar
Akranes
Alþýðubandalagiö á Akranesi boðar til al-
menns fundar um raforkumál I dag kl. 14 I fé-
lagsheimilinu Rein. — Frummælandi verður
Tryggvi Sigurbjarnarson.
Stjórnmálafundir
á Norðurlandi
Ragnar Arnalds hefur verið á ferð i Norður-
landskjördæmi vestra að undanförnu og haldiö
almenna stjórnmálafundi á Sauðárkróki, Hofs-
ósi og Siglufirði.
Nú um helgina heldur hann fundi á Blönduósi
kl. 41 dag, laugardag, Skagaströnd kl. 4 á morg-
un og á Hvammstanga á mánudagskvöld kl. 9.
Oeðlilegur
gróði hjá
olmfélögum
KAUPMANNAHÖFN 11/1 —
Sandinaviska flugfélagiö SAS I-
hugar beiðni til rikisstjórna Norð-
urlanda þess efnis, aö þau hafi
meiri hemil á oliufélögunum og
gæti þess að þau hækki ekki verð-
ið óeðlilega mikið. Þau verði
skylduð til að láta næga oliu I té á
flugvöllunum.
Einn af framkvæmdastjórum
SAS sagði beinum orðum að oliu-
félögin græddu á tá og fingri
vegna oliukreppunnar.
Vegna oliuhækkunarinnar hafa
IATA-flugfélögin orðið ásátt um
að hækka fargjöld um 7% og kem-
ur það til viðbótar við nýlega 6%-
hækkun. Hins vegar þyrfti far-
gjaldahækkunin að vera 20% til
að fá fullar bætur fyrir þá oliu-
hækkun sem orðin er.
Meira orðaskak,
minna vopnaskak
11/1 — Eitthvað virðist hermála-
ráðherra Bandaríkjanna, Schles-
inger, hafa dregið i land varðandi
striðshótanir sinar við Araba.
Segir hann nú, að hernaöarihiut-
un i Austurlöndum nær sé ólikleg,
en hann kvað fastar að orði I fyrri
viku. Þau ummæli leiddu til þess,
að yfirvöld I fleiri en einu Araba-
riki kváðust mundu kveikja I oliu-
brunnum, ef Bandarikjamenn
réðust á þau.
Hins vegar er Ijóst, að Banda-
rikin vilja með einhverjum ráð-
um koma Arabarikjunum á kné
vegna stefnu þeirra i oliumálum.
Boðar Nixon nú til ráðstefnu með
8helstu iðnaðarveldum auðvalds-
heimsins, en þau neyta 80% þeirr-
OSLO 11/1 — Sett hefur verið upp
oliumálaráð á vegum norska
rikisins og á það að samhæfa að-
gerðir stjórnvalda, oliufélaga og
stærstu oliuneytendanna. Felld
var á þingi tillaga sósialista þess
efnis, að oliufélögin sjálf skyldu
engan fulltrúa hafa i ráði þessu,
enda skyldi ráðið hafa eftirlit með
fjárreiðum oliufélaganna.
ar oliu sem seld er á heimsmark-
aði.
Japanska stjórnin hefur riðið á
vaðið með aö lýsa yfir þátttöku i
ráðstefnunni sem á að hefjast 11.
febrúar. Sagt er, að hún óttist
mjög vaxandi samkeppni iðnað-
arþjóðanna við oliukaup, þar sem
þau geti leitt til verðhækkana og
„öngþveitis”.
Á1 fer upp
11/1 — Norskar fréttir herma að
verð á hrááli hafi hækkað um
50—100% sl. ár en verðlag á hálf-
unnum vörum hafi ekki stigið
samsvarandi.
Eftirspurnin eftir áli sé mikil og
bendi ekkert til þess að hún réni i
Evrópu. Hugsanlegt sé að orku-
kreppan komi norskum framleið-
endum vel, þar sem eitthvað
muni vist verða dregið úr fram-
leiðslu áls i Bandarikjunum,,
Bretlandi og Japan.
Skammt er siðan mikil lægð var
I álframleiðslu, og kvartað er yfir
rekstrartapi.
ASKORUN
frá
Happdrœtti Þjóðviljans
Dregið var i happdrætti Þjóðviljans á Þor-
láksmessu eins og venja er til, en þar sem upp-
gjöri var ekki lokið voru vinningsnúmerin inn-
sigluð hjá borgarfótega.
Unnið er nú að þvi að kappi að ljúka uppgjöri
um þessa helgi svo að hægt verði að birta
númerin i næstu viku. Er þvi eindregið skorað
á umboðsmenn og alla þá sem fengið hafa
senda miða að ljúka uppgjöri nú um helgina.
Skrifstofa happdrættisins að Grettisgötu 3 er
opin allan daginn í dag og á morgun kl. 13 til 18.
Léttið störfin og ljúkið uppgjöri strax i dag.
Happdrætti
Þjóóviljans
1973.
Happdrætti
Þjóóviljans
. 1973
Happdrætti
Þjóóviljans
. 1971