Þjóðviljinn - 28.02.1974, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.
Burt með svarta
blettinn
Svarti bletturinn á þjóðfélaginu
er ameriski herinn og hann
skulum við afmá. Herseta
þessara drápara og njósnara hér-
lendis hefur aðeins ill áhirf. Þar á
meðal þau að Rússar þurfa að
hafa gifurlegan herafla kringum
landið til að vega upp á móti
Keflavikurstöðinni og ameriskum
fréttaflutningi bæði i útvarpi og
sjónvarpi, sem vart getur
hlutlaus talist. Sá boðskapur er of
mörgum íslendingum biblia eða
átrúnaður.
Þar sem Norðmenn frændur
vorir virðast mikið hræddir við
Rússa og telja sina einu vörn
gegn þeim herstöð á íslandi, ættu
þeir að taka fram landabréf og
kanna stöðu Svalbarða þar. Sá
staður ætti betur að þjóna þeirra
vörn og væri sjálfsagt að flytja
kanaskrilinn með allt sitt gervi-
skro og annan ósóma, sem þeir á
sinum tima innleiddu hér, þangað
norður. Reyndar væru þeir betur
settir i Indiánanýlendum eða
negrahverfum heima fyrir i stað
þess að flekka umheiminn með
nærveru sinni.
Úr NATÓ — herinn burt.
Björn Finnsson
MOSKVU 26/2. — Dómstóll i
ráðstjórnarlýðveldinu Grúsiu
hefur fellt langa fangelsisdóma
yfir þremur vottum Jehóva fyrir
að halda bænafundi og að taka
með sér börn á þá. Einnig var
dæmdur af einum sakborninga,
konu, umráðaréttur yfir börnum
hennar.
KENJAR
Mynd: Francisco Goya y Lucientes
Mál: Guðbergur Bergsson
25.
Hollar
ráðleggingar
Hefði Goya verið gefin rökrétt hugs-
un mundi myndin hafa staðið á undan
mynd númer fjórtán. En svipað er að
segja um hann og höfund Völuspár:
hann ruglaði röð kvæða sinna. Þvi
væri engin vanþörf, að einhver réðist i
það að gera „lagfærðan texta”. En um
réttan söguþráð má þó alltaf deila.
Goya virðist hafa grafið myndina und-
irbúningslaust á koparinn; engin
frumteikning hefur fundist. Þar er
auðveld skýring fengin á mistökum
listamannsins: fingrunir réðu en ekki
rökvísin.
Handrit E1 Prados — sem ég mun nú
kalla P-handritið, Ayala-handritið A-
handritið, en handrit Landsbókasafns-
ins L-handritið, i þvi skyni að stytta
mál mitt og nálgast vinnubrögð
manna, sem haldnir eru handritasýki
— lætur svofelld orð falla um mynd-
ina:
„Ráðleggingar eru i ætt við ráðu-
nautinn. Verster, að ungfrúin er vis til
að fylgja þeim nákvæmlega. Vei þeim,
sem kemur nálægt henni!”
Ungfrúin er með blöðrubrjóst og af
þeirri tegund kvenna, sem kölluð var
la maja; það merkir snotra. Snotran
átti hliðstæöu i el majo.snotra. Snotr-
ar og snotrur settu mikinn svip á bæj-
arlif Madrid-borgar á átjándu öld:
fjörugt fólk, dansglatt, deilugjarnt og
stoltir fulltrúar „sanns kastiljansks
anda”. Yfirstéttin likti eftir þessu
fólki, og Hamilton (1750-1800) segir i
bók sinni, A Study of Spanish Manners
(Athugun á spænskri hegðun): „1
flestum löndum sjá lágstéttirnar sóma
sinn i að apa eftir yfirstéttinni; þessu
er öfugt farið á Spáni.”
Það tekur hálfan mánuð að
að ganga um sýningarsvæðið
Leipzigborg er eitt stórt hótelþegar
kaupstefnusýningarnar eru haldnar
Þaö tekur háltan mán-
uð fyrir venjulegan mann
að ganga um allt sýn-
ingarsvæði Leipzigvöru-
sýningarinnar, sem hald-
in er tvisvar á ári og er sú
stærsta sinnar tegundar í
heiminum.
Gestir sýningarinnar
eru hátt yfir miljón
hverju sinni, og næstum
hver einasta fjölskylda í
þessari 800.000 manna
borg leigir út l—2 her-
Aukaþing SÞ
um hráefni
NEW YORK 25/2 Aðildarriki
S.Þ. hafa verið kölluð saman til
aukafundar allsherjarþingsins
9nda april til að fjalla um hrá-
efnamál i heiminum, að þvi er til-
kynnt var i skrifstofu Kurts Wald-
heims, aðalritara SÞ i dag.
Aukafundurinn er kvaddur
saman að tillögu Boumedienne,
forseta Alsir. Liklegt er að oliu-
mál og hækkandi orkuverð verði
efst á baugi á fundi þessum.
bergi fyrir erlenda kaup-
sýslumenn og aðra gesti.
Vörur á kaupstefnunni eru frá
öllum heimsálfum og einnig
gestirnir. Það er vinsælt að
sækja Leipzig heim á meðan
vörusýning er haldin, kaup;
sýslumennirnir vinna e.t.v. 12
stundir á sólarhring, en er
vinnudegi lýkur er vart hægt að
komast hjá þvi að lifa Ijúfa lif-
inu að einhverju leyti, þvi Leip-
zig hefur löngum þótt „glöð
borg” i meira lagi.
Á þessari vorkaupstefnu
munu Islendingar sýna afurðir
sjárvarútvegsins, en þátttaka
fslands hefur löngum miðast
svo til eingöngu við þær vöru-
tegundir. Þó hafa ullarvörur og
fleira verið sýnt á Leipzigsýn-
ingunni og má rekja ákveðin
viðskipti Islands við aðrar þjóð-
ir beint til kaupstefnunnar
miklu.
Sýningin i Leipzig verður að
þessu sinni dagana 10.—17.
mars. Á þessu ári er aldarfjórð-
ungsafmæli DDR, og er ekki ó-
sennilegt að það sé þess vegna,
að ýmsar austantjaldsþjóðir
leggja enn meira kapp á vand-
aða sýningu en nokkru sinni
fyrr. Þátttaka Rússa er t.d.
meira en áður og er það raunar
svo um ýmsar fleiri þjóðir.
Sýningarsvæði Leipzigsýningarinnar nær vel yfir 350.000 fermetr^
og ef allar sýningardeildir eru skoðaðar á þessari stærstu alþjóð-
legu vörusýningu hcims, má reikna með að það sé miklu meira en
mánaðar vinna. Það tekur 1/2 mánuð að gera ekkert annað en að
ganga á milli sýningarbásanna, þ.e. ef hvergi er numið staðar til að
lita á innihald þeirra.
Leipzig-kaupstefnan hefur
stækkað jafnt og þétt frá upp-
hafi, en fyrsta sýningin var
haldin fyrir 800 árum siðan, i tið
Habsborgaranna.
9000 sýningargestir
Rúmlega 60 lönd i öllum
heimsálfum munu hafa sýn-
ingardeildir nú á vorsýning-
unni, og af þeim samtals um
9000 sýningardeildum, sem þar
verða, munu um 5000 sýningar-
deildir vera frá öðrum löndum
en Þýska alþýðalýðveldinu, og
er það meiri þátttaka en nokkru
sinni fyrr. Gert er ráð fyrir að
sýningargestir, kaupsýslumenn
og sérfræðingar á ýmsum svið-
um verði frá rúmlega 90 þjóð-
löndum.
Sýningarsvæði Kaupstefn-
unnar i Leipzig nær yfir 350 þús-
und fermetra svæði, sem jafn-
gildir talsvert á annað hundrað
sýningarhöllum á stærð við
Laugardalshöllina. Sýningunni
er skipt i aðgengilega vöru-
flokka og 26 þeirra eru iðnaðar-
og fjárfestingarvörur en i 22
neysluvörur.
Nokkur stærstu islensku út-
flutningssamtökin verða með
sýningardeildir i Leipzig, en það
eru Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, Samband islenskra sam-
vinnufélaga, Sölustofnun lag-
metisiðnaðarins og e.t.v. ein-
hver fleiri fyrirtæki.
Reiknað er með að margir is-
lenskir kaupsýslumenn muni
halda til Leipzig i vor.
—gsp