Þjóðviljinn - 28.02.1974, Qupperneq 11
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Heimsmeistarakeppnin
hefst í kvöld meö
baráttu viö Tékkana
Síöan veröur leikiö viö
V-Þjóöverja á föstudag
og Dani á sunnudaginn
Sigurdór
til A-
Þýskalands
Sigurdór Sigurdórs-
son, íþróttafréttaritari
Þjóðviljans, er nú farinn
til A-Þýskalands og mun
dveljast þar á meðan
heimsmeistarakeppnin
stendur yfir. Fyrirhug-
að er, að hann hringi til
islands strax að loknum
hverjum leik, og munum
við, sem hér heima sitj-
um, reyna að koma frá-
sögn hans inn á íþrótta-
siðuna daginn eftir.
Hvort sem íslenska
landsliðið kemst i loka-
keppnina eða ekki, mun
Sigurdór verða í Þýska-
landi til loka keppninnar
og senda fréttir hingað
heim.
Umsjónarmaður
iþróttasíðunnar i fjar-
veru Sigurdórs verður
Gunnar Steinn Pálsson.
Afmælismót
KR í
badminton
Afmælismót KR I badminton
veröur háö dagana 9.—-10. mars.
Keppt veröur i einliöa- og tviliöa-
leik meistaraflokks og 2. flokks og
i tviliöaleik kvenna. Þátttaka til-
kynnist Reyni borsteinssyni i
sima 38177 eöa 82398 fyrir 5. mars.
Eftir frægðarför is-
lenska landsliðsins til
Osló, þar sem það sigr-
aði Norðmenn með 21
marki gegrf 16 i æfingar-
leik, hélt liðið til Karl
Marx Stadt i Austur-
Þýskalandi, en þar
verða a.m.k. fyrstu þrir
leikir liðsins i heims-
meistarakeppninni
leiknir.
Annars fer heims-
meistarakeppnin fram á
mörgum stöðum i
Austur-Þýskalandi, og
komist íslendingar
áfram i keppninni munu
þeir væntanlega leika
framhaldsleiki sina i
Berlin.
Með íslendingum i
riðli eru Danir, V-Þjóð-
verjar og Tékkar. Allar
þjóðirnar eru okkur
nokkuð kunnar, ekki sist
Danir, sem við höfum
svo marga hildi við háð.
Eðlilega hafa margir velt vöng-
um yfir þvi, hverjir séu sterkastir
og hverjir séu veikastir i heims-
meistarakeppninni. Skoðanir eru
æði misjafnar, og þaö eina, sem
allir geta fallist á, er aö keppnin-
verður afar hörð og spennandi,
mörg frábær lið munu leiða sam-
Framhald á 14. siðu.
íslandsmót
ér
l
minnibolta
Minniboltanefnd Körfu-
knattleikssambandsins óskar
eftir þátttökutilkynningum
fyrir tslandsmótið i minni-
bolta, sem hefst i mars. bátt-
takendum verður skipt i 2
flokka, 11 og 12 ára i öörum, en
10 ára og yngri i hinum.
öllum félögum er heimil
þátttaka i mótinu, svo og
skólaliðum, og mega allir
þessir aðilar senda eins mörg
10 manna lið til keppninnar og
þeir óska. Hugsanl. er að um
riðlakeppni verði að ræða,
ekki hvað sist meö tilliti til
væntanlegra þátttakenda utan
af landi. bátttökutilkynningar
þurfa að hafa borist til minni-
boltanefndar KKt i siðasta
lagi 10. mars nk.
Björgvin Björgvinsson hefur sjaldan brugðist I landsleikjum og jafnan
verið einn skæðasti maður okkar. Enginn vafi er á að hann bregst ekki
heldur að þessu sinni og að hann á eftir að gera andstæðingum okkar
gramt i geði á stundum.
FRÁ UMSK
i fréttabréfi frá
UMSK, sem sent var
dagblöðunum fyrir
skömmu, kemur fram,
að sambandið neyddist
til að leggja niður starf
framkvæmdastjóra
vegna fjárskorts. Vissu-
lega hlýtur það að vera
slæmt fyrir jafn stórt
ungmennasamband og
þetta, að þurfa skyndi-
lega að leggja svo nauð-
synlegt starf niður, en i
fréttabréf inu kemur
fram, aðvonir standi til,
að úr rætist fljótlega.
Fréttabréfið er ann-
ars á þessa leið:
51. ársþing Ungmennasam-
bands Kjalarnesþings (UMSK)
var haldið 13. jan. ’74 að Félags-
garði i Kjós eða tæpum 2 mánuð-
um seinna en lög gera ráð fyrir.
■ Astæðu þess má rekja fyrst og
fremst til siaukinna umsvifa á
sviði iþrótta og félagsmála. bing-
ið stóð yfir i 10 klst.
Störf þingsins einkenndust af
dugnaði virkra fulltrúa, og kom
það m.a. frm i þvi, að engin mál
lágu fyrir á þinginu af hálfu
stjórnarinnar; en mörg mál voru
rædd og margar samþykktir
gerðar og flestar i þá átt að auka
samskipti félaganna annarsvegar
og UMSK og félaganna hinsvegar
á sviði iþrótta og félagsmála með
sameiginlegum fundum, heim-
sóknum, hópferðum og að sjálf-
sögðu þeim fjölda móta sem ár-
lega eru haldin i ýmsum greinum
iþrótta á sambandssvæðinu.
Sigurður R. Guðmundsson rit-
ari stjórnar UMFl mætti til þings
cpm CfPCtlir
Um skeið hefur UMSK haft
framkvæmdarstjóra i fullu starfi,
en hætta varð við það seint á ár-
inu ’73 vegna fjárskorts, og er það
miður, vegna þess mikilvæga
hlutverks sem framkv.stj. gegnir
i sambandinu og aðildarfélögum
þess, en von er að úr rætist.
Framhald á 14. siðu.
Fimleika-
fólk til
Danmerkur
Fimleikasamband Islands
hefur fengið boð um að senda
sýningarflokk á fimleikahátiö
Holstebro i Danmörku, en
iað verður haldið dagana 31.
nai til 3. júni 1974.
Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Fimleika-
sambandsins.
(Fréttatilkynning)
Unglinga-
mót í
borðtennis
Opið mót unglinga og
stúlkna fer fram á vegum
borðtennisdeildar K.R. i
kvöld, 28. febrúar, i Laugar-
dalshöllinni. Um 60 þátttak-
endur hafa tilkynnt þátttöku,
og eru allir bestu unglingar
landsins meðal þátttakenda.
Mótið hefst kl. 20.00.
(Frétta tilkynning).
Drengja- og
stúlkna-
meistaramót
í frjálsum
Drengja- og stúlkna-
meistaramót Islands 1974 i
frjálsum iþróttum innanhúss
fer fram i Njarðvikum sunnu-
daginn lO.mars nk.
Keppt verður i eftirtöldum
greinum:
Drengir: Hástökk, stangar-
stökk, kúluvarp, hástökk án
atr. langstökk án atr. þristökk
án atr.
Stúlkur: Hástökk, langstökk
án atr.
bátttökutilkynningar skulu
berast til Helga Hólm,
Verslunarbankanum, Kefla-
vik, simi 1788, eða i heima-
sima 2613 i siðasta lagi þriðju-
daginn 5. mars ásamt þátt-
tökugjaldi kr. 50.- fyrir hverja
keppnisgrein.
Dómara-
námskeið
í körfu
Dagana 9.—14. júli nk. verð-
ur haldið i Belgiu á vegum
alþjóðakörfuknattieikssam-
bandsins námskeið fyrir dóm-
ara og þjálfara. barna verður
um að ræða námskeið fyrir
verðandi alþjóðadómara i
körfuknattleik, og munu þátt-
takendur gangast undir próf
að námskeiðinu loknu.
t annan stað er um að ræða
námskeið fyrir landsliðsþjálf-
ara og námskeið fyrir þjálfara
almennt.
Körfuknattleikssamband ts-
lands sér um öll þátttöku-
gjöld, en varðandi frekari
upplýsingar er mönnum bent
á aö snúa sér til Körfuknatt-
leikssambandsins, sem hefur
pósthólf 864 i Reykjavik.
Skilafrestur umsókna rennur
út 10. mars.
UMSJÓN: GUNNAR STEINN PÁLSSON