Þjóðviljinn - 13.03.1974, Qupperneq 1
UÚBVIUINN
Miðvikudagur 13. mars 1974 — 39. árg. — 60. tbi.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
APQTEK
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7.
| NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2.
SUNNUDAGA MILU KL. 1 OG 3
SlMI 40102
ASI VILL:
LÖG-
FRÆÐI-
LEGA
RANN-
SÓKN
á ákvörðun 6
manna
nefndarinnar um
hœkkun
búvöruverðs
Miðstjórn Alþýðusambands
tslands hefur ákveðið að láta
fara fram lögfræðilega rann-
sókn á þvi hvort sú ákvörðun 6
manna nefndarinnar að láta
kauphækkun verkafólks og
væntanlega hækkun
dreifingarkostnaðar koma
þegar i stað fram i
verðlagningu búafurða, hafi
stoð i lögum um
framleiðsluráð og fleira.
Hefur miðstjórnin beðið lög-
fræðingana Egil Sigurgeirsson
og Jón Þorsteinsson að kanna
þetta. Hafa þeir ákveðið að
gera athugun þessa.
Ólafur Hannibalsson skrif-
stofustjóri ASl sagði i viðtali
viö Þjóðviljann I gær, að
ástæðan fyrir þvi að þetta væri
gert, væri sú, að hækkun bú-
vara væri látin koma til fram-
kvæmda áður en raunveruleg-
ar kauphækkanir koma til
framkvæmda. Benti Ólafur á
að mánaðarkaupsfólk hefði
ekki enn og fengi ekki fyrr en
næstu mánaðarmót þá hækk-
un sem varð á kaupi þess i
siðustu samningum. Viku-
kaupsfólk hefði ekki fengið
þær fyrr en um miðjan þennan
mánuð.
Hin svo kallaða 6
manna nefnd ákvað það i
nóvember sl. að hafa þennan
hátt á við verðlagningu bú-
vara og vegng sérstakra
kringumstæðna var þessu ekki
mótmælt i desember sl. þegar
ný verðlagning kom til fram-
kvæmda. Og það sem ASl vill
fá úr skorið með þessari lög-
fræðirannsókn er hvort það
fæst staðist gagnvart lögunum
um framleiðsluráð og 6 manna
nefnd að nefndin setji sér slik-
ar starfsreglur sem þessar.
—S.dór
Ari Kárason tók meðfylgjandi
myndir. A stóru myndinni má
fá nokkra hugmynd um þann
mikla mannfjölda, sem hyllti
Þórberg, en á litlu myndinni
til vinstri eru þau Þórbergur
og Margrét á svöium hússins.
Meistari
hylltur
í gær siðdegis hylltu nokkur
hundruð tslendingar meistara
sinn Þórberg Þórðarson 85 ára
(86) og frú hans Margréti.
Gengið var fylktu liði úr
Vonarstræti, eftir Suðurgötu
og að Hringbraut að heimili
Þórbergs og Margrétar.
Lúðrasveit fór fyrir fylking-
unni, og blysberar gengu með
jöðrum hennar.
Að húsabaki við Hringbraut
staðnæmdist svo hersingin og
kom þá meistarinn út á svalir
ásamt Margréti.
Lúðrasveit lék nokkur lög,
og meistarinn heilsaði mann-
fjöldanum á sina visu.
Pétur Pétursson útvarps-
þulur flutti meistaranum
ávarp, og siðan var honum
afhend orðsending frá þeim
sem þarna voru saman
komnir.
Stúdentakórinn leiddi söng
tveggja ljóöa meistarans, og
að þvi loknu ávarpaði meist-
arinn mannfjöldann nokkrum
oröum, sem vindurinn bar frá
eyrum fjöldans svo enginn
heyrði þó allir vildu heyrt
hafa.
Að lokum lék lúðrasveitin
Internationalin.
—úþ
Æskulýðssamtök norska Verkamannaflokksins mótmæla
íhlutun í innan-
ríkismál Islands
Æskulýðssamtök norska
Verkamannaflokksins líta
svo á, að ýmsir aðilar i
Noregi, þeirra á meðal
sjálfur stórþingsforsetinn
Guttorm Hansen, hafi gert
sig seka um ihlutun í
islensk innanríkismál að
því er varðar herstöðva-
málið. Þetta kemur fram í
yfirlýsingu sem forysta
æskulýðssamtakanna lét
frá sér fara 6. þ.m. og
formaður þeirra Rune
Gerhardsen skrifar undir.
Yfirlýsing æskulýðssamtak-
anna AUF fer hér á eftir i
orðréttri þýðingu:
„Þar eð vissir aðilar i Noregi,
þeirra á meðal stórþingsforsetinn
Guttorm Hansen, hafa hlutast til
um islenskar umræður um her-
stöðina á Keflavikurflugvelli og
aðild tslands að Atlantshafs-
bandalaginu, vill Æskulýðs-
fylking verkamanna (AUF) i
Noregi (þ.e. æskulýössamtök
Verkamannaflokksins) lýsa þvi
skýrt og skorinort yfir, að við
styðjum kröfuna um að banda-
riska herstöðin verði lögð niður
og íslendingar segi sig úr NATO.
AUF er þeirrar skoöunar að hin
miklu hernaðarbandalög veiti
smáum og meðalstórum löndum
enga tryggingu fyrir öryggi sinu,
og þvi hljóti það að vera verkefni
hinna minni landa að losa sig
undan áhrifavaldi stórveldanna.
Fyrir hönd AUF,
Rune Gerhardsen formaður.”
Þjóðviljinn vill minna á það, að
Rune Gerhardsen sótti Island
heim haustið 1972 og var þá
haldinn almennur fundur með
honum hér i Reykjavik. Þetta var
skömmu eftir hinn mikla sigur
NEI-manna i Noregi yfir þeim
sem vildu teyma landið inn i auð-
hringaveldi Evrópu, EBE. Gerði
Rune hér grein fyrir sjónar-
miðum sinum i þvi máli, en hann
var mjög'einbeittur NEI-maður,
eins og raunar öll AUF-forystan
og ungkratar yfirleitt i Noregi.
Æskulýðssamtök norska
Verkamannaflokksins standa að
ýmsu leyti nokkuð til vinstri við
flokkinn sjálfan, einkum i utan-
rikismálum. Eru þau mjög gagn-
rýnin á þá pólitik flokksins i
varnarmálum að binda norsku
kænuna aftan i hafskip Banda-
rikjanna og NATO. Mörg bönd
tengja þó AUF-menn við Verka-
mannaflokkinn auk þeirra skipu-
lagslegu, t.d. er Rune sonur
Einars gamla Gerhardsens sem
var leiðtogi flokksins um áratugi
og forsætisráðherra lengst af eftir
striðiö, allt þar til hinn gæfulitli
Bratteíi varð eftirmaður hans.
FLÓTTAMENN FRÁ CHILE:
Ein f jölskylda vill til Islands
Dómsmálaráðuneytið hefur málið til umsagnar
Eftir valdarán herforingjaklik-
unnar í Chile fyrir hálfu ári fyllt-
ust allfelst erlend sendiráð i
Santiago af flóttamönnum sem
freistuðu þess að komast undan
þeirri ógnaröld sem hófst I land-
inu 11. september. Sendiráðin
reyndu svo hvað þau gátu að fá
landvistarleyfi fyrir þetta fólk
viða um heim.
Misjafnlega hafa stjórnir tekiö
beiðnunum og þvi datt okkur i hug
að kanna hvort islenskum stjórn-
völdum hefði borist beiðnir um
hæli fyrir chilenska flóttamenn
hér á landi og ef svo væri hvernig
á þeim hefði verið tekið.
I utanrikisráðuneytinu fengum
við þau svör að engin formleg
beiðni hefði borist. Hins vegar
hefði borist fyrirspurn frá is-
lenska sendiráðinu i Stokkhólmi
um horfur á að koma einum
Chilemanni og fjölskyldu hans
fyrir hér á landi. Var málinu vis-
að til dómsmálaráðuneytisins
sem hefur með að gera að veita
landvistarleyfi.
Baldur Möller staðfesti það að
dómsmálaráðuneytinu hefði bor-
ist þessi fyrirspurn. Væri þar um
að ræða mann að nafni Manuel
Vergara, konu hans og eitt barn
sem eru nú I italska sendiráðinu i
Santiago. Heföi hann komið
beiðninni á framfæri við sænskan
kunningja sinn sem aftur hefði
haft samband við islenska sendi-
ráðið i Stokkhólmi.
Manuel Vergara er búfræðing-
ur og félagsfræðingur að mennt.
Hann er frá Suðurhluta Chile og
ástæðan fyrir þvi að hann fýsir að
flytjast hingað til lands er sú að
hann telur loftslag hér vera svip-
að og i heimabyggð hans.
Baldur kvað málið nú vera til at-
hugunar hjá ráðuneytinu og hefði
hún tafist vegna utanfarar þess
starfsmanns sem með málið hafði
að gera.
Um það hvað úr yrði vildi Bald-
ur ekki tjá sig. — Hann sagði að
tekið yrði i ath. mið af mála-
kunnáttu fjölskyldunnar og einnig
hvaða möguleika Vergara hefði
hér á atvinnu. Kvað hann það
nauðsynlegra fyrir íslendinga að
athuga þessi mál áður en land-
vistarleyfi væri veitt en aðrar og
stærri þjóðir. Ylli þar smæð og fá-
menni landsins, fábreytni i at-
vinnulifi og aö landið væri tiltölu-
lega lokað málsvæði.
Starfsmaður sá sem um málið
fjallar er væntanlegur til landsins
i vikulok og má þvi vænta ein-
hverrar hreyfingar i þvi i næstu
viku.
—ÞH
HVER SA
ÓLA
ANTON?
Enn hefur enginn gefið sig
fram við lögregluna sem sá
Óla Anton Þórarinsson á tima-
bilinu frá kl. 1 aðfaramótt
laugardags fram til klukkan
17 á laugardag þegar hann
fannst látinn við sumarbústað
i nágrenni Hafarvatns. Vill
lögreglan eindregið skora á
fólk sem varð hans vart á
þessum tima að hafa samband
við hana.
1 gær var lik Óla Antons
krufið en er við höfðum sam-
band við lögregluna i gærdag
höfðu niðurstöður úr henni
ekki borist og eru þær væntan-
legar i dag. Eins og fram hef-
ur komið voru engir óeðlilegir
áverkar á likinu né önnur
merki þess að dauði hans væri
af mannavöldum. Hallast
menn helst að þvi að hann hafi
króknað.
En hitt er enn óráðin gáta
hvernig Óli hefur komist á
þennan stað þvi siðast er vitað
var til hans var hann á veit-
ingastað i miðborginni. _þh