Þjóðviljinn - 13.03.1974, Side 5
Miðvikudagur 13. marz 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
innlend
Þrir forstjórar „Flugleiða
A stjórnarfundi FLUGLEIÐA
H.F. þann 22. fyrra mánaðar var
tekin ákvörðun um stjórnunar-
fyrirkomulag félagsins, sem
gilda skal frá 1. mars n.k. til aðal-
fundar 1976, en þau mál hafa ver-
ið til athugunar undanfarna
mánuði.
Meginatriði fyrrgreindrar
samþykktar eru þessi:
l.Sérstök stjórnarnefnd.skipuð
þremur mönnum, fer með völd
stjórnarinnar milli stjórnar-
funda. Verkefni stjórnarnefndar
eru jafnframt að móta stefnu
félagsins og annast framkvæmd
sameiningar flugfélaganna
tveggja, Flugfélags Islands h.f.
og Loftleiða h.f., á þann hátt, sem
fyrirhugað er.
Stjórnarnefndskipa þeir örn Ó.
Johnson, sem er formaður henn-
ar, Alfreð Eliasson og Sigurður
Helgason.
2. Forstjórar félagsins verða
þrir, þeir örn Ó. Johnson, sem
verður aðalforstjóri, og Alfreð
Eliasson og Sigurður Helgason.
Forstjórarnir skipta með sér
málaflokkum i daglegum rekstri
þannig, að örn Ó. Johnson fer
með stjórnskipunarmál og innan-
landsflug, Afreð Eliasson með
flugrekstrar- og tæknimál og
hótel og bilaleigu, en Sigurður
Helgason með fjármál og
markaðsmál.
571 skráður atvinnulaus i lok feb.
571 var skráður atvinnulaus um
siðustu mánaðamót, en atvinnu-
lausir voru 942 i lok janúar. Af
hinum 571 atvinnulausa eru 371
kona en 200 karlar.
Flestir eru atvinnulausir á
Siglufirði, þ.e. 154 (123 konur). í
Reykjavik voru 44 skráðir (7 kon-
ur), Akranesi 24 (23 konur),
Hafnarfirði 21 (18 konur), Sauð-
árkróki 17 (12konur), Akureyri 17
(2 konur), Kópavogi 4 ( allt kon-
ur), Húsavik 3, Keflavik 1.
I kauptúnum og þorpum voru
flestir skráðir atvinnulausir á
Vopnafirði 43 (20konur), á Dalvik
35 (29 konur), Eyrarbakka 31 (28
konur), Bildudal 29 (17 konur),
Stykkishólmi 27 (22 konur),
Stokkseyri 26 (14 konur), Þórs-
höfn 21 (15 konur), Drangsnesi 13
(8 konur), Hrisey 13 (11 konur),
Blönduósi 10 (5 konur), Hólmavik
10, Bakkagerði 9, Þorlákshöfn 8,
Bakkafirði 6, Árskógsströnd 4,
Hofsósi 3, Seltjarnarnesi 2.
er nauðsynlegt öllum þeim, sem vilja fylgjast með
sveitarstjórnarmálum. Sveitarstjórnarmál kemur út
6 sinnum á ári og kostar kr. 500,00.
Leggið grunn að góðri þekkingu Gerist áskrifendur
SAMBAND ÍSLENZKRA
SVEITARFÉLAGA
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Fundir um verkalýðsmál
Rœtt við Sigurð Magnússon
um fundina og
undirbúninginn að
borgarstjórnarkosningum
Næstkomandi fimmtudag
verður haldinn umræðufundur
um verkalýðsmál á vegum
Alþýðubandalagsins i Reykjavik.
Þjóðviljinn ræddi i gær við Sigurð
Magnússon, formann flokks-
félags Alþýðubandalagsins i
Reykjavik, um þennan umræðu-
fund sérstaklega og starfið fram
undan. Sigurði sagðist svo frá:
Fundurinn á fimmtudaginn
verður sá fyrsti af fleiri fundum
um verkalýðsmálin. Á fimmtu-
daginn munu þeir Eövarð Sig-
urðsson, Guömundur J. Guð-
mundsson og Benedikt Daviðsson
ræða um nýafstaðna kjara-
samninga. Eðvarð var sem kunn-
ugt er formaöur samninga-
nefndar ASl, Benedikt var i
húsnæðismálanefndinni og Guð-
mundur i skattanefndinni.
Nú þegar fundum Alþýðu-
bandalagsins um herstöðvamálið
Námsmenn i Edinborg:
Herinn fari á
kj örtímabilinu
Fundur i Félagi islenskra
námsmanna i Edinborg þann 6.
febrúar 1974 skorar á rikisstjórn
Ólafs Jóhannessonar að standa
við málefnasamning sinn og
senda bandariska herinn úr landi
á þessu kjörtimabili. Við viljum
vara landslýð við þeim krossferð-
um sem hervinir hafa nú skipu-
lagt um landið endilangt. Þeirra
boðskapur um „varið land”
byggir á forsendum sem ekki eiga
lengur við.
Barátta gegn erlendum her-
stöðvum á Islandi er barátta fyrir
sjálfstæði þjóðarinnar, jafnt
stjórnmálalegu sem efnahags-
legu. Islendingum ber fyrst og
fremst að styðja málstað þeirra
þjóða er draga vilja úr áhrifa-
mætti stórveldanna.
Með þvi að skjóta skjólshúsi yf-
ir heri Bandarikjamanna ger-
umst við sjálfkrafa þátttakendur
i viðhaldi þess fyrirkomulags i
alþjóðasamskiptum sem ein-
kennst hefur af kúgun og vald-
beitingu. Ef menn virða að ein-
hverju sjálfstæði og ákvörðunar-
frelsi þjóða, þá leggja þeir bar-
áttunni gegn heimsvaldastefn-
unni lið. Herstöðvarlaust ísland
er i minni hættu en hersetið land.
Sigurður Magnússon.
er lokið i bili, er ákveðið að halda
nokkra fundi um verkalýðsmál.
Þar verða teknir til umræðu
nokkri þættir verkalýðsmála,
Eftir fyrsta fundinn, sem fjalla
mun um kjarasamningana, er
ætlunin að eftir fylgi fundur um
lýðréttindi verkafólks i atvinnu-
lifinu en með þvi er átt við það
sem sumir kalla „atvinnulýð-
ræði.” Ég mun siðar biðja Þjóð-
viljann að segja nánar frá skipu-
lagi og efni þessara fundarhalda.
En tilgangur Alþýðubandalags-
ins með þessum fundum er sá að
reyna að lifga umræðu um verka-
lýðsmál sem hefur verið of litil i
flokknum sem annars staðar.
Á siðasta flokksráðsfundi
Alþýðubandalagsins var sam-
þykkt að haldin skyldi sérstök-
ráðstefna um verkalýðsmál og á
hún að verða fyrir landsfund
flokksins i haust. Við gerum
okkur vonir um það að umræðu-
fundir Alþýðubandalagsins geti
orðið einskonar undanfari og
undirbúningur þessarar ráð-
stefnu.
— Hvað er annars að frétta af
starfi Alþýðubandalagsins i
Reykjavik?
— Undirbúningur kosninganna
er þegar hafinn. Mikið starf hefur
verið unnið i fjölmennum hópum
að stefnuskrá flokksins i borgar-
málum vegna kosninganna i vor.
A skrifstofu félagsins að Grettis-
götu 3 er nú unnið alla daga að
undirbúningi kosningastarfsins.
Nú er til dæmis verið að senda út
lista til að kanna skoðanir félaga
á þvi hvernig haga skuli
kosningabaráttunni, hvaða mál
skuli einkum sett á oddinn og eins
er beðið um ábendingar um
hugsanlega menn á framboðslista
félagsins. Ég vil i þessu viðtali
bið'ja félagana að senda svör sin
hið allra fyrsta svo að ábendingar
berist uppstillingarnefnd og
stefnuskrárnefnd i tæka tið.
UH UUSKAHIUCIPIR
KCRNFLÍUS
JONSSON
SKÓLAVOROUSl IG 8
BANKASTRA Tl 6
- 1Ö600
Sviar fundu pillu:
Ekkert
gaman að
drekka
lengur!
STOKKHÓLMl — Sænskir
sérfræðingar hafa komist að
þvi að það er unnt að fram-
leiða lyf sem eyða öllum
ánægjulegum áhrifum áfengis
og gæti þar með komiö að
gagni i viðureign við drykkju-
sýki.
Hópur visindamanna i
Gautaborg hefur reynt á sjálf-
um sér slikt efni, sem heitir
alfametyltyrosin. Þeir settust
til kvöldverðar og höfðu áfengi
um hönd. Sumir höfðu einnig
fengið ofangreint efni, aðrir
vita áhriflausar pillur og vissi
hver um sig ekki hvað hann
hafði inn tekið. Innan
skamms urðu þeir sem höfðu
fengið alfametyltyrosin svo
niðurbortnir og þreyttir að
þeir fóru sem fyrst úr gleðinni
að sofa.
Helgi
Tómasson
sæmdur
riddarakrossi
Forseti lslands sæmdi hinn 9.
þ.m. Helga Tómasson listdansara
riddarakrossi hinnar islensku
fálkaorðu fyrir balletdans.
Ég undirrit óska eftir að gerast
áskrifandi
Nafn:
Heimili:
Sendið seðilinn til Sambands íslenzkra sveit-
arfélaga, Laugavegi 105. Pósthólf 596.