Þjóðviljinn - 13.03.1974, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 13. marz 1974.
E. Th. Mathiesen h.f. Hafnar-
firði opnaði föstudaginn 8. mars
nýtt verslunar- og skrifstofuhús-
næði að Strandgötu 4. E. Th.
Mathiesen h.f. er eina fyrirtæki
sinnar tegundar hér á landi sem
um árabil hefir sérhæft sig i vör-
um til öryggis fyrir fyrirtæki og
stofnanir svo sem peningaskáp-
um, eldtraustum skápum, banka-
hólfum og hurðum, skrifstofuhús-
gögnum úr stáli, mynttalnings- og
j.
Glens
„Áður en þú byrjar að tclja upp
alit, sem Lilli hefur gert i dag,
ætla ég að minr.a þig á, að hann
er ekki nema blessað barn".
Byggingarfélag alþýðu
Reykjavík
2ja herbergja ibúð i I byggingaflokki til
sölu.
Umsóknum sé skilað til skrifstofu félagsins Bræðraborg-
arstig 47fyrir kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 20. þ.m.
Stjórnin
sundurgreiningarvélum o.fl.
A myndinni er Einar Þ. Mathie-
sen framkvæmdastjóri ásamt
ýmsum tegundum peningaskápa
sem E. Th. Mathiesen h.f. býður.
Lausn á
krossgátu
1 = F,2 = J,3 = Ó, 4 = L, 5 = A, 6 = K,
7 = E, 8 = P, 9 = N, 10 = 1, 11 = B,
12 = A, 13 = S, 14 = R, 15 = D, 16=Ý,
17 = Æ, 18 = T, 19 = 0, 20 = Y,
21 = U, 22 = G, 23 = M, 24 = Ð,
25 = 0, 26 = H, 27 = Þ, 28 = Ú, 29 = 1
30 = V, 31 = É.
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
I
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Sími 169%
BYGGÐA-
LÍNUNEFND
Hinn 5. þ.m. skipaði iðnaðar-
ráöherra Magnús Kjartansson,
sérstaka nefnd, er hafi i umboði
iðnaðarráðuneytisins yfirumsjón
með byggingu háspennulinu milli
Suður- og Norðurlands eftir svo-
nefndri byggðaleið.
1 nefndina voru skipaðir: Egill.
Skúli Ingibergsson, verkfræðing-
ur, formaður nefndarinnar; Guð-
jón Guðmundsson, skrifstofu-
stjóri; Kristmundur Halldórsson,
fulltrúi og Tryggvi Sigurbjarnar-
son, verkfræðingur.
1 fjárlögum fyrir árið 1974 hefur
Alþingi heimilað rikisstjórninni
lántökur til linubyggingarinnar
að upphæð samtals kr. 300 milj.
Málefni
Framhald af 3. siðu.
gert tillögur til ráðuneytis og
barnaverndarnefnda og aðstoða
þær með upplýsingastarfsemi, og
ráöið hefur ekki einu sinni á að
skipa einum starfsmanni i fullu
starfi.
Verkefnum skipt i
Reykjavík
Björn Björnsson form. barna-
verndarnefndar Reykjavikur
skyrði frá skipan mála þar og
verkaskiptingu milli félagsmála-
ráðs og barnaverndarnefndar,
sem ákveðin var 1970 og reynslu
af henni. Var þungamiðja barna-
verndarmála flutt til félagsmála-
ráðs eða f jölskyldudeildar
Félagsmálastofnunarinnar, þe.
þau atriði er varða heimili barns-
ins og atriði i fari barnsins sjálfs.
Hlutverk barnaverndarnefndar
væri hinsvegar eftirlit með upp-
eldisstofnunum, umsögn um ætt-
leiðingar og forræðismál og úr-
skurðir um meiriháttar mál varð-
andi ráðstöfun eða forræði.
Vinnubrögð starfsfólks félags-
málastofnunar væru að taka mið
af fjölskyldunni og fjalla um
vandamál einstáklingsins á sem
breiðustum félagslegum grund
velli. Tali dr. Björn i stuttu máli
að fenginni reynslu, að barna-
verndarnefndir væru óþarfar eða
úreltar orðnar, málum best borg-
ið i höndum sérfróðra aðila og
gagnger endurskoðun að þessu
leyti fyllilega timabær.
Breytt gerð dagvistunar-
stofna na?
Sveinn Ragnarsson ifélags-
málastjóri Reykjavikurborgar
talaði um dagvistunarstofnanir
og sagði hlutverk þeirra tviþætt,
uppeldislegt og til að bæta að-
stöðu foreldra til vinnu utan
heimilis. Dagheimili hefðu upp-
eldislegt, þjóðfélagslegt og
félagslegt gildi, hér hefði mest
áhersla verið lögð á félagslega
gildið, þe. það að létta félagslegar
og.fjárhagslegar byrðar heimila,
en siður á þjóðfélagslegt eins og
td. þörf atvinnuvega fyrir vinnu-
afl.
Mat á þörf fyrir dagvistunar-
stofnanir hefði verið umdeilt,
sagði Sveinn, þótt viðhorf hefðu
breyst undanfarin ár, og þvi erfitt
um vik i þessu efni i sambandi við
skipulagningu hverfa. Vitað væri
um þörf fyrir skóla, en ekki hver
eftirspurn yrði eftir dagheimilum
eða leikskólum. Þá vek hann að
hinum ýmsu gerðum dag-
vistunarstofnana og hugmyndum
um toreytingu þar á, eins og td.
blöndun aldursflokka, blöndun
fatlaðra og heilbrigðra barna,
niðurfellingu marka milli dag-
heimila og leikskóia osfrv. Um-
ræöa hérlendis hefði oftast snúist
um skort á stofnunum, en siður
um gerð þeirra, og væri þetta
óæskilegt, dagheimilin ættu ekki
■ að vera geymslur, heldur upp-
eldisstofnanir. Hér væri þó sýni-
leg breyting á orðin siðustu árin.
Dagvistun á einkaheimilum
sagði Sveinn að lita yrði á sem úr-
ræði, sem gripið væri til vegna
skorts á dagvistunarstofnunum,
en þar sem sýnt væri, að það yrði
enn að nota um óákveðinn tima
væri rétt að stefna að auknu eftir-
liti og ráðgjöf um tækjakost og
starfsemi.
Stefnubreyting
Stefán Ólafur Jónsson stjórnar-
ráðsfulltrúi kynnti og skýrði lögin
um hlutdeild rikisins i byggingu
og rekstri dagvistunarstofnana,
og vék ma. að þeirri stefnubreyt-
ingu, sem i þeim fælist, að vikið
væri til hliöar þvi sjónarmiði að
dagvistunarstofnanir væru
neyðarúrræði vegna barna, sem
byggju við erfiöar, félagslegar
aðstæður, þess i stað væri mörkuð
sem framtiðarstefna, að öll börn
ættu þess kost að njóta dvalar á
slikum stofnunum um skeið um
lengri eða skemmri tima dag-
lega. Með þvi væri uppeldið ekki
tekið af foreldrum og heimilum
barnanna, heldur væri þetta for-
eldrunum til aðstoðar.
Ekki er ástæða til að rekja efni
laganna hér, svo oft sem það hef-
ur verið gert i Þjóðviljanum, en
Stefán kynnti einnig drög að
reglugerð, sem enn hafa ekki ver-
ið staðfest, en eru nú til um-
ræðu i samstarfsnefnd mennta-
málaráðuneytisins og Sambands
isl. sveitarfélaga og til umsagnar
hjá Barnaverndaráði lslands og
fleiri aðilum.
Þar kemur fram ma., að til
stofnkostnaðar, sem rikið greiðir
af 50%, að jafnaði á 4 árum, telst
húsnæði, innanstokksmunir, leik-
föng og áhöld, hljómburðartæki,
nýsitæki,frágangur á lóð og leik
tæki þar. Varðandi stærð og
skipulag er gert ráð fyrir sem há-
marksstærð 10 ferm á barn i
heildargólfrými dagheimilis, en 5
ferm. á hvert barn á leikskólum.
Heildarleikrými gólfflatar skal
vera 3,5 ferm. á barn á dagheim-
ilum, en 2 ferm á leikskólum. Úti-
leiksvæði ekki minna en sem
svarar 20 ferm. á hvert barn.
Þá eru sett ákvæði um fjölda
barna i deild, þarsem deilda-
skipting er, frá 6 börnum á
vöggustofu uppi 20 börn á deild
fyrir 4ra til 6 ára, miðað við 2
starfsmenn á deild. I blönduðum
aldursflokkum er hámarkið sett
15—17 börn eftir þvi hve vitt
flokkurinn spannar i aldri. A
skóladagheimilum er gert ráð
fyrir 20 barna hámarki og i leik-
skólum frá 14 uppi 22 börn eftir
aldri og skiptingu.
Stefán sagði, að nú væru um 35
aðilar, sem fallið gætu undir lög-
in, en ekki væri fullkannað, hvort
allir uppfylltu sett skilyrði. Fram
kom, að veittar verða heimildir
til undanþága ákveðið aðlögunar-
timabil, þvi ekki væri ætlunin
með lögunum að stuðla að þvi að
rekstur legðist niður, heldur
þvert á móti að verða hvetjandi,
sagði hann. Að lokum sagði hann,
að sýnilega þyrfti fljótlega að
endurskoða bæði lögin og reglu-
gerðina að fenginni reynslu.
Félagsstarf i skólum
Siðasti ræðumaður ráðstefn-
unnar i gær var Reynir Karlsson
æskulýðsfulltrúi og ræddi félags-
starf yngstu nemendanna i skól-
um. Félagsleg þjálfun i skólunum
væri fyrirbyggjandi barnavernd,
sagði hann, og áleit núgildandi
námsskrá gefa fullt tilefni til
þjálfunar með málfundum, leik-
formi og fl., ef framfylgt væri, en
þaö væri ekki gert nema i mjög
íitíum mæli. Skólana skorti fjár-
magn og aðstöðu og kennarana
þjálfun, áleit Reynir.
Samkvæmt svörum við
spurningalista, sem sendur var
skólastjórum, væri greinilegur
áhugi á þessum þætti skólastarfs-
ins, sem margir álitu ekki
þýöingarminni en bóknámið. Með
heimild i grunnskólafrv. til
greiðslu hluta kostnaðar við slika
starfsemi á barnaskólastigi væri
gefin visbending um stefnu
fræðsluyfirvalda, en einnig þyrfti
til þjálfun kennara og að gert
væri ráð fyrir þessum þætti
starfsins við hönnun skólahús-
næöis.
Að loknum framsöguerindum
svöruðu ræðumenn fyrirspurn-
um,en skiptust siðan i umræðu-
hópa, sem skila áliti I dag. Þá
flytja einnig framsöguerindi
Sigurjón Björnsson sálfræðingur,
Magnús Sigurðsson fv. skólastjóri
og Gunnar Guðmundsson skóla-
stjóriog siðan starfa umræðuhóp-
ar að nýju um erindi dagsins.
Ráðstefnunni verður slitið i
kvöld.
—vh
Staðan
Framhald afll. siöu.
Preston . 33 8 12 13 34-47 27
Oxford 32 7 12 13 30-40 26
Sheff. Wed. 33 8 9 16 39-48 25
C. Palace 32 7 10 15 31-44 24
Swindon 34 5 9 20 30-58 19